Morgunblaðið - 15.06.1984, Síða 28

Morgunblaðið - 15.06.1984, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1984 Æskulýðsráð Reykjavíkur Árleg Verðlaunahátíð í Gerðubergi A myndinni sést Jóhannes Stefánsson, forstjóri Veitingahallarinnar, t.h. afhenda Stefáni Vagnssyni verðlaunin. Eiginkonur þeirra fylgjast með. Hallargarður í Veitingahöll ÚRSLIT hafa verið tilkynnt í verðlaunasamkeppni sem efnt var til um nafn á innri sal Veitingahallarinnar. Á þriðja þúsund tillögur bárust. í frétt frá Veitingahöllinni segir að innanhúsdómnefnd Veitingahallarinnar hafi valið nafnið Hallargarðurinn, en alls bárust II tillögur um nafnið. Verðlaunin, sem eru kvöldverðarveisla með öllu fyrir fjóra, hlaut Stefán Vagnsson í Reykjavík eftir að dregiö hafði verið úr nöfnum ellefumenninganna. I tilefni afmælisins hafa nýir matseðlar verið settir saman og er sérstaklega minnt á sjávarrétta- matseðil, sem verður á boðstólum í Hallargarðinum í hádeginu í allt sumar svo og á fimmtudagskvöld- um. I vínstúkunni stendur nú yfir sýning á 19 stækkuðum og hand- unnum litmyndum eftir Rúnar Gunnarsson ljósmyndara frá ný- afstaðinni fegurðarsamkeppni ls- lands. Veitingahöllin og Rúnar hafa gert með sér samning um 4 slíkar sýningar á ári á myndum frá sérstökum atburðum í þjóðlíf- inu. Á þjóðhátíðardaginn ætlar Veitingahöllin að minnast árs af- mælisins með sérstöku hátíðar- kaffi, sem m.a. verður sett upp utan dyra ef veður leyfir. Af þvi tilefni hefur verið bökuð ein stærsta Hnallþóra ársins, sem á að nægja að minnsta kosti 300 gestum auk annarra kræsinga, sem hafa seitt til sin þúsundir gesta um helgar frá því að kaffi- hlaðborðið var fyrst kynnt í vetur. ÁRLEG verðlaunahátíö Æskulýðs- ráðs Reykjavíkur fyrir nemendur í grunnskólum borgarinnar var haldin í menningarmiðstöðinni Gerðubergi föstudaginn 11. maí sl. I fréttatilkynningu sem Morgun- blaðinu hefur borist frá Æsku- lýðsráði Reykjavíkur segir að þátttaka hafi verið góð og að u.þ.b. 130 unglingar hafi hlotið viður- kenningu fyrir ágæta frammistöðu. Einnig er tekið fram að í vor hafi í fyrsta skipti verið keppt í bridge og forritagerð fyrir tölvur. I fyrsta sæti á bridgemótinu hafnaði Vogaskóli með 43 stig. Sveit skólans skipuðu þeir Jón Garðar Guðmundsson, Gunnar Þorri Þorleifsson, ólafur Þröstur Ólafsson, Guðmundur Helgi Garð- arsson og Helgi Bogason. I öðru sæti hafnaði a-sveit Breiðholts- skóla með 35 stig og í þriðja sæti sveit Laugalækjarskóla með 22 stig. I samkeppni um forritagerð fyrir tölvur bar Helgi Björnsson, Lauga- lækjarskóla, sigur úr býtum. í öðru sæti hafnaði Sverrir Þorvaldsson, Breiðholtsskóla, og í þriðja sæti hafnaði Aðalsteinn Valdimarsson, Breiðholtsskóla. A-skáksveit Fellaskóla vann nauman sigur á mótinu með 27 Vfe vinning. Sveitina skipuðu þeir Hannes Hlífar Stefánsson, Sveinn Stefánsson, Jóhann Sigurbjörnsson og Sigurður B. Halldórsson. f öðru sæti hafnaði a-sveit Hvassaleit- isskóla með 27 vinninga og í þriðja sæti hafnaði a-sveit Breiðholts- skóla með 26 vinninga. Á borðtennismóti pilta bar a-sveit Hagaskóla sigur úr býtum, en sveit skólans skipuðu þeir Snorri Briem, Kjartan Briem og Valdimar Kr. Hannesson. 1 öðru sæti hafnaði a-sveit Breiðholts- skóla og í þriðja sæti a-sveit Oldu- selsskóla. Á borðtennismóti stúlkna sigraði a-sveit Ólduselsskóla en hana skip- uðu María Hrafnsdóttir, Ása Geirdal og Þóra Geirdal. 1 öðru sæti hafnaði a-sveit Breiðholts- skóla og í þriðja sæti b-sveit Öldu- selsskóla. Fyrstu verðlaun í myndbanda- og kvikmyndasamkeppni hlaut mynd Laugalækjarskóla „Icelandic street culture" eftir Guðjón H. Ólafsson, Pétur Óskarsson, Jón Kaldal og Björgvin Friðriksson. Keppendur í forritagerð fyrir tölvur. Önnur til þriðju verðlaun hlaut annars vegar mynd Álftamýra- skóla „Skaup ’84“ og hins vegar mynd Laugalækjarskóla „Ástar- saga“. Fyrstu verðlaun í ljósmynda- samkeppni hlaut Sigurberg Hauks- son Breiðholtsskóla, önnur verð- laun hlaut Kristján Garðarsson Hagaskóla og þriðju verðlaun hlaut Einar Sigurðsson Fellaskóla. Ennfremur kemur fram í frétta- tilkynningu Æskulýðsráðs að við- urkenningar hafi verið veittar fyrir þátttöku i leiklistarmóti sem sex leiklistarhópar hafi tekið þátt i. Ljósm. Mbl. KÖE. Torfærukeppni á Hellu á morgun ÁRLEG torfæruaksturs- keppni Flugbjörgunarsveitar- innar á Hellu verður haldin á laugardaginn, 16. júní, og hefst hún kl. 14. Keppt verð- ur í tveimur flokkum, alls um tíu bflar. Aðstaða fyrir áhorfendur hefur verið löguð nokkuð frá því sem verið hefur með því að breytingar hafa verið gerðar á keppnissvæð- inu og aðkeyrslunni. Gera að- standendur keppninnar sér vonir um að áhorfendur verði margir, og benda á, að ekki taki nema liðlega klukkustund að aka að Hellu frá höfuðborgarsvæðinu. Aðgangseyrir er 200 krónur fyrir fullorðna. Tólf ára og yngri fá ókeypis inn, enda séu þeir í fylgd með fullorðnum. Tilboðum tekið í ríkis- víxla að upphæð 30 milljónir: Lægsta með- alávöxtun frá upphafi TILBOÐ í kaup á ríkisvíxlum að upphæð 30 milljónir króna voru opnuð í gær. Þrjátíu og fjögur gild tilboð bárust og eitt ógilt. Gildu til- boðin voru í 244 sett af víxlum, hvert að nafnvirði krónur 250 þúsund, samtals að upphæð 61 milljón króna. Tekið var tilboðum í alla út- boðsfjárhæðina, 30 milljónir að nafnvirði. Kaupverðið er 28.333.735 krónur sem jafngildir 25,68% meðalársvöxtum reiknuð- um eftirá. Þetta er lægsta meðal- ávöxtun frá því að farið var að bjóða út ríkisvíxla. Tilboðin, sem tekið var, voru á bilinu 236.000 til 236.500 krónur. Næsta útboð ríkisvíxla er fyrir- hugað í júli. 75 ára afmæli SJÖTÍU og fimm ára er í dag, föstudaginn 15. júní, Kristján Þor- steinsson, fyrrum húsvörður í Fiski- félagshúsinu hér í Reykjavík. Hann á nú heima í Hamraborg 4 í Kópavogi. Hann verður að heiman í dag. -A- spurt og svarad I Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINSI Eins og undanfarin ár svarar Hafliði Jónsson garð- yrkjustjóri spurningum lesenda um garðyrkjumál. Hæfít er að koma spurningum á framfæri í síma 10100 klukkan 13 til 15 alla virka daga. Fíflar í görðum Ragnheiður Einarsdóttir spyr: Hvernig er hægt að koma í veg fyrir fífla í görðum? Ég hef reynt að eitra og hef þannig losnað við hluta af fíflunum í garðinum hjá mér, en ekki alveg. Er eitthvað ráð til að losna alfarið við þá úr görð- um? Svar: Eitthvað fjallaði ég um þetta vandamál í svörum mínum fyrr í vor. En það hefur trúlega farið framhjá fleirum en Ragnheiði eins og oft vill henda í vorönnunum, þegar fæstir hafa tíma til að fletta blöðunum, hvað þá að lesa þau. Sjálfsagt er að halda baráttunni áfram og nota hormónaefnið til að úða yfir þá, en gæta verður þess að efnið nái ekki til tvíkímblaða plantnanna, sem við viljum ekki missa úr garðinum okkar. Annað ráð, sem að vísu kostar þolinmæði, er að skera með hnífsblaði á ræt- urnar og sáldra salti í sárið. Þar sem hægt er að koma því við, er einnig ráð að leggja svartan plastdúk yfir illgresið og halda plastinu niðri með sandlagi. Þá nær ekki sólarljósið til gróðursins, sem undir dúknum lendir og hann rotnar og verður að mold á tveim til þrem árum. Að sjálfsögðu má leggja moldarlag yfir plastið og sá grasfræi. Þannig er hægt að forða lýtum á grasflötinni í langan tíma. En allt kemur þó fyrir ekki, ef þess er ekki jafnframt vandlega gætt, að biðukollur berist inn á grasflötina frá nágrenninu. Fífill- inn er flestum plöntum duglegri að fjölga sér og í okkar vindasama landi berast fræ hans óravegu og eru þau örugg með að skjóta rót- um hvarvetna, sem þau falla til jarðar. Þegar þessa er gætt, mun áreið- anlega árangursríkast að ganga um nágrennið og slíta blómkoll- ana af fíflunum sem þau skarta, áður en þeir breytast í biðukollur. Áburður á trjáplöntur: Pálína Gísladóttir, Grundarfirði, spyr: Fyrst langar mig að spyrja um áburðargjöf á trjáplöntur í afgirt- um úthaga, þar sem gróðursett er í grassvörðinn: Er hentugt að nota húsdýra- áburð? Hvers konar húsdýraáburð þá helst? Eða er betra að nota garðáburð sem ætlaður er á matjurtir? Er hann þá borinn á rétt við stofninn eða er hann leystur upp með vatni og síðan hellt í kringum plönturn- ar? Af eigin reynslu finnst mér til- búinn áburður auka á grasvöxt, en hvaða tegund tilbúins áburðar er heppilegust? Lússækinn brekkuvíðir: Getur lússækinn brekkuvíðir skaðað annan trjágróður í nánd við hann, til dæmis birki, lerki, furuoggreni? Ef brekkuvíðirinn er ekki úðað- ur og á hann sækir maðkur, getur maðkurinn þá skaðað trjágróður- inn í nánd eða skaðar hann ein- göngu víðinn? Gróður í Öskjuhlíö: Einnig hefur sú spurning leitað á hugann, eftir að hafa gengið í Öskjuhlíð, hversu stórar plönturn- ar hafi verið þegar þær voru gróð- ursettar þar? Hvernig var áburð- argjöf þar háttað við gróðursetn- ingu og hvernig var umhirða síð- an? Gróðurinn þama í Öskjuhlíð- inni finnst mér ákaflega fallegur. Svar 1: Á norðanverðu Snæfells- nesi mun sennilega vera erfiðara en á flestum öðrum svæðum hér á landi að fást við trjárækt með skjótum árangri og efast ég ekki um, að áhugamenn í garðyrkju og skógrækt eru tilbúnir að leggja Pálínu lið með hollum ráðum ef það gæti orðið til að auðvelda henni ræktunarstarfið. Væri mér ■þökk í að heyra meira af hennar trjárækt þar vestra og kærkomið, ef hún hefði beint samband við mig, hvenær sem hún telur sér henta. Við gróðursetningu trjáplantna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.