Tíminn - 01.09.1965, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 1. september 1965
1«
100 ÁRA
Framhald af bls. 9
bók með sér. Svona var nú
þetta.
— Hver voru eftirlætisskáld
■þín?
— O, ég hélt upp á þau
flest, Hjálmar, Þorstein Erl
ingsson, Kristján Jónsson. Þú
sérð nú skápinn þarna fullan
af bókum og annað eins á ég
annars staðar. Þetta hefur
mér allt verið gefið, sumir
hafa gefið mér bók fyrir hver
jól í þrjátíu ár eða meira.
Ég held ég hafi keypt bara
eina bók þarna í skápnum, það
er eintak af ljóðmælum Kristj
áns Jónssonar FjalLaskálds.
Hún hafði verið gefin
Ingibjörgu dóttur minni
og siðar léði ég þá bók
og fékk ekki aftur, og þá
sendi Ragnheiður Jónsdóttir
rithöfundur, sem er systurdótt
ir mín, henni aðra í staðinn.
— Hefurðu líka ánægju af
nýju höifundunum?
— Það er nú bara það, að
ég þekki svo Mtið til þeirra.
Þetta er mestan part ævisögur
og endurminningar, sem mér
er gefið. En það er Mka svo,
að ég er ekki eins hrifin af
skáldsögum, það er víst af
því ég hef ekki vit á því, lík
lega er ég farin að slávgazt
fyrir alri tilfinningu. Já, ég
hef aUitaf haft minni mætur á
skáldsögum, það er víst af því,
að ég veit aldrei hvað er satt
og hvað er tilbúningur. Þó efa
ég ebki að þetta hafi allt sitt
gildi. Ég er meira gefin fyr-
ir sögur, sem ég veit að eru
saimar, jafnvel þótt þær séu
efcki fagrar. En svo eru kvæðin
sér á panti, finnst mér.
— Þú sagðir áðan, að
jörðin, sem þið hjón hófuð
' búskap á, hafi verið illa
' hýst og þýfð. Stundaði maður
þinn annað en búskapinn?
— Meðan fiskur lá hér upp
við land reri hann hér út
af Loftstaðasandi, var hepp
inn fonmaður og hafði góða
háseta, og þetta stóð í einar
tuttugu vertíðir, eða þangað til
fisbur lagðist frá landinu. Það
fiskaðist oft feiknin öll og
var engin smáræðis búbót. En
þetta var erfitt og langt að
fara, nokkuð á annan tíma að
ganga hvora leið fram að sjó.
Þá annaðist ég gegningamar á
meðan maðurinn minn var í
róðri.
— Þið hjón bættuð við
bamahópinn með því að
taka fósturbam?
— Já, það kom þannig til,
að systir mín fór til Ameríku,
átti fjögur lítil böm og gebk
með það fimmta. Hún gerði
mér boð að koma og tala við
sig. Það var þessi sbelfilegi
Ameríkuspenningur á þessum
túna. Bræður manns hennar
vom famir vestur og þeir
túlkuðu þetta svo gimilega fyr
ir honum. Faðir minn var þá
dáinn, en hann mátti ekki
heyra Ameríkuferðir nefndar.
Svo er ekki að orðlengja það,
að þau ráðast til vesturferðar,
systir mín og maður hennar,
ég tók yngstu dótturina, en
þau fóru með hin þrjú, sitt
á hverju árinu, og svo fæddist
það fimmta á leiðinni yfir
hafið. Og svo ólst þessi telpa
upp hjá okkur, Aðalheiður, og
það blessaðist mætavel. Svo
þegar maðurinn minn dó, fór
ég til Aðalheiðar. En þar kom,
að hún skrapp til Ameríku
að heimsækja systkin sín. Og
hvað heldurðu að gerist næst,
og það finnst mér einsdæmi.
Þessi unga kona hérna og mað
urinn hennar, sem voru að
h'-ogja betta hús bau ?era
soi lítið fyrir og ætla mér
eitt herbergið i þessu nýja
húsi, o£ hér siíium við iani í
85 ára í dag
María Ólafsdóttír
í dag er áttatíu og fimm ára
frú María R. Ólafsdóttir frá Bæj
um í Snæfjailahreppi.
María er fædd í Múla í ísafjarö
ardjúpi, dóttir hjónanna Ingibjarg
ar Þorkelsdóttur og Ólafs Markús
sonar, er þá bjuggu í Múla.
Móður sína missti hún viku göm
ui og ólst síðan upp á Nauteyri til
sjö ára aldurs, unz hún fluttist í
Bæi með fósturforeldrum sínum
þcim merkishjónunum Maríu
Kristjánsdóttur og HaMdóri Her-
mamnssyni.
María giftist tuttugu og tveggja
ára Sigurði Ólafssyni, er einnig
þá átti heima í Bæjum og hófu
þau þegar búskap sinn þar og
bjuggu samfleytt í Bæjum um
fjörutíu og fimm ára skeið.
Þeim Maríu og Sigurði varð
fimmtán barna auðið og eru tólf
þeirra á Mfi, búsett víðsvegar á
landinu.
AMs munu afkomendur þeirra
hjóna nú vera 127 talsins.
Árið 1947 fluttu þau hjóndn bú
ferlum til ísafjarðiar og bjuggu
þar samfleytt í 10 ár, unz María
missti mann simm. Nú síðustu árin
hefir húm búið á Hrafnistu, dvalar
heimili aWraðra sjómanna og un-
ir hag sínum þar mjög vel. Hún
er við beztu heilsu, vel em og hef
ir aiHt til þessa stundað sauma-
skap, enda kunn fyrir óvenju dugn
að og hreysti. Hún hefir þegar
skilað stórbrotnu dagsverki um
ævina, þótt hún sjálif vi-lji sem
minnst úr því gera.
Þeir eru margir, sem í dag
senda þessari merkiskonu' hug-
heilar óskir um farsælt ævikvöld
og blessunarríka daga.
Börn hennar, barna- og barna
böm og vinir, munu gleðjast með
henni um eftirmiðdaginn í dag í
húsi Slysavamafélags íslamds.
því. Ég ætlaði ekki að trúa
mínum eigin eyrum, þegar mér
vom sögð; þessi tíðindi, En
því get ég ekki neitað, aö bet
ur kann ég við mig hér fyrir
austan en í Reykjavík. Og
þetta gekk allt eins og í mask
ínu og Margrét tók mig hing
að, og það er ekki nokkur leið
að mér geti liðið betur en
hér.
— Hefurðu nógu góða sjón
til að lesa eins og þig lystir?
Nú tekur Vigdís bók af
tborðinu, í stóru broti og
isvörtu bandi, og þetta em
þá Passíusálmarnir, ljósprent
að eigin handrit skáldsins, séra
HaMgríms, og segir:
— Þessa bók er ég búin að
skemmta mér við, nú get ég
lesið hana eins og Faðirvorið.
En fyrst þegar mér var send
hún, sagði ég bara: Guð hjálpi
mér, hvað á ég að gera við
þessa bók? Og margir era
búnir- að líta í þessa bók hjá
mér og gefast allir upp við
að stauta sig fram úr letrinu.
Ég fór að reyna, því alténd
kunni ég Passíusálmana. En
svo í vetur, þegar presturinn
byrjaði að lesa þá í útvarpið
á föstunni, þá opnaði ég bók
ina um leið og fylgdist með. Og
mór fór svo fljótt og vel fram,
og síðan er þetta leikur. Og
meistaraleg er nú þessi skrift
frá 17. öld eftir hann Hall-
grím. Ég hef ekkert gaman
lengur að lesa Passíusálmana
með prentletri síðan hann
Bjarni námsstjóri tók upp á
þvi að senda mér þennan kjör
grip. Ég fæ aldrei leið á að
handleika hann. G.B.
ER ALLTAF ÞAÐ
Osta-og smjörsalan sf.
wm
SMJÖRLÍKISGERÐ
býður yði"-
FLÓRU-SMJÖRLÍKI
GULA BANDIÐ - SMJÖRLÍKI
KÖKUFEITI HRÆRISMJÖRLÍKI
KÖKUFEITI COMPOUND LARD
'Heildsölubirgðir hjá SÍS, Reykjavík, og
hjá verksmiðjunni á Akureyri.
Smjörlíkisgerð K E A,
Sími 11700, Akureyri.
Tvær kennarastöður
lausar við Barna- og unglingaskóla Reyðarfjarð-
arskólahverfis.
Æskilegt, að annar verði kven-kennari.
Upplýsingar gefa skólastjóri eða formaður skóla-
nefndar, Reyðarfirði.
Nonna-útsalan
heldur úfram
DRENGJAJAKKAFÖT Á 6—14 ÁRA.
DRENGJABUXUR — DRENGJASKYRTUR Á HÁLF-
VIRÐI.
TELPNABUXUR TERYLENE OG STRETCH.
KULDAÚLPUR BARNA FRÁ KR. 450.00
TELPUPEYSUR.
PATONS-ULLARGARN, VERÐLÆKKUN KR, 60 pr. kg.
HINGPRJÓNAR OG PRJÓNAR, mikil verðlækkun.
ASANI-UNDIRKJÓLAR.
ÁVALLT FYRIIRLIGGJAND:
ÆÐARDÚNSÆNGUR — VÖGGUSÆNGUR — ÆÐ-
ARDÚNN — GÆSADÚNN — DÚN- OG FIÐURHELT
LÉREFT.
Vesturgötu 12 — Sími 13570
TIL SÖLU
er 4ra herbergjaibúð.
Félagsmenn hafa forkaups-
rétt lögum samkvæmt.
Bygcjinnarsamvinnufélag
Reykjdvikur
Atvinna
Einhleypur maður óskast
strax eða síðar að hænsna-
búi í nágrenni Reykja-
víkur.
Tilboð leggist inn á af-
greiðslu blaðsins fyrir 8.
sept 1965. merkt „Góð
vinna“.