Morgunblaðið - 27.06.1984, Page 14

Morgunblaðið - 27.06.1984, Page 14
54 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1984 Fæst í töflum, strádufti og vökva. Ennfremur Hermesetas Gold með nýja sætiefninu ASPARTAM Niður- drepandi Hljóm- plotur Finnbogi Marinósson Berlin. Love Live. í fyrra átti hljómsveitin Berl- in lag sem naut töluverðra vin- sælda og hét „Sex“. Lagið var tekið af fyrstu breiðskífu flokks- ins en hún þótti lofa góðu. Að minnsta kosti gerðu spámenn poppsins sér vonir um að hér væri á ferðinni hljómsveit fram- tíðarinnar. Fyrir nokkrum vik- um barst síðan út sú frétt að von væri á nýrri plötu frá Berlin. Stuttu seinna kom platan og nú gafst spámönnunum tækifæri til að sannreyna spámennsku sína. En hvaða hrikalegu mistök höfðu þeir gert? Nýja breiðskíf- an heitir Love Life og fékk hún samdóma álit hjá flestöllum gagnrýnendum. Þetta er hin versti gripur og uppfyllti ekkert af því sem vonast var til. Hér verður ekki breytt frá skoðun erlendra gagnrýnenda. Platan er líflaus og ómöguleg á allan hátt. Tónlistina mætti flokka sem nýrómantík og hefði þess vegna gert flokknum eitt- hvert gagn fyrir svona þremur árum. Lögin eru hvert öðru lík. Ekkert þeirra er virkilega gríp- andi og ekkert í þeim sem fær mann til að hlusta aftur. Söng- urinn er góður og sömuleiðis hljóðfæraleikurinn. En það er ekki nóg. Lífið og gleðina vantar bæði í spilamennskuna og hljóð- blöndunina og fyrir vikið er plat- an kuldaleg og fráhrindandi. Það er kannski ekki alveg rétt að segja plötuna niðurdrepandi en þeir sem hafa áhuga á Berlin ættu að snúa sér að nytsamari plötu en Love Life. Hans besta hingað til Linton Kwesi Johnson. Making History. Fyrsta platan sem Linton Kwesi Johnson sendi frá sér heitir „Dread Beat an’ Blood" og kom út 1978. Síðan bætti hann þremur plötum við en ákvað 1980 að taka sér frí frá plötugerð þrátt fyrir að honum byðist að gera fleiri plötur. Það er ekki fyrr en núna, rúmum þremur ár- um seinna sem Linton sendir frá sér nýja plötu sem hann kallar „Making History". Á henni eru sjö lög og öll eru þau í anda fyrri laga hans. Text- arnir eru fullir af ádeilu og hann tekur fyrir ýmislegt sem ástæða er til að fjalla um. Tónlistarlega hefur hann hinsvegar breyst dá- lítið. Mesta breytingin er að nú bregður fyrir nokkrum jazz- áhrifum í sumum lögunum. Hljómsveitin, sem spilar á bak við Linton, er sú sama og kom með honum hingað, og heitir Dennis Bovell Dub Band. Sem hljóðfæraleikarar eru þeir mjög góðir og blanda jazzinum mjög skemmtilega saman við reggið. Um hvert lag mætti mikið skrifa en ekki er pláss fyrir það hér. Það er galli við plötuna að ekki skuli fylgja textablað. Textar Lintons eru allt i tónlist hans og ekki mikið í hana varið án þeirra. En á umslagi plötunnar skrifar hann smá skýringar við hvert lag og hjálpar það nokkuð við skilning textans. í stuttu máli má segja: Mak- ing History er besta plata Lint- ons til þessa. Tónlistin er frábær og sömuleiðis textarnir. Hljóm- gæðin eru mjög góð og ekki spill- ir það. Á adeins 60 mínútum framköllum viö filmuna og stækkum á úrvals pappír. Sérmenntaö starfsfólk og fullkomnustu tæki tryggja bestu möguleg myndgæði. Myndirnar frá okkur eru 28% stærrif 10x15cm í stað 9xl3cm. Fyrir sama verð. S7WÆ7722 Grænland hefur ótrúlega margt að bjóða ferðafólki: stórkostlega náttúrufegurð, fjölskrúðugt dýralíf og skemmtilegt mannlíf. Flugleiðir hafa áætlunarflug til Kulusuk um sumartímann, frá 18. júní til 30. ágúst, á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum. Brottför frá Reykjavík er kl. 11.30, en til Kulusuk er aðeins um 2ja tíma flug. Til Reykjavíkur er síðan komið aftur kl. 19.30. Dagsferð til Grænlands er tilvalinn ferðakostur fyrir hópa, vinnufélaga og félagasamtök. Takið með góða skó, og gleymið ekki myndavélinni! FLUGLEIÐIR Gott fólk hjá traustu Iélagi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.