Morgunblaðið - 27.06.1984, Side 16

Morgunblaðið - 27.06.1984, Side 16
56 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1984 Boston Celtics enn einu sinni „I Sigraði Lakc úrslitakeppni — Það þótti ekki góðs viti ffyrir Lakers að Abdu Boston Celtics eru Bandaríkjameistarar í körfuknattleik 1984. Þeir sigri 111 stigum gegn 102. Leikurinn fór fram á heimavelli Boston. Larry Bird, fi Þaö þurfti sjö leiki til aö knýja fram úrslitin þetta áriö, en nýjar reglur g< Úrslitakeppninni er nú þannig háttaö, að 8 efstu liöin í hvorri deild ööla leik, fyrr en þaö hefur tapað þremur eða fjórum leikjum í umferð. í fyrstu u sinnum til aö halda velli. Los Angeles Lakers voru einráöir í vesturdeildinni eins og undanfarin á af orðið Bandaríkjameistarar tvisvar. Leiö þeirra í lokaúrslitin var greiö. umferö. Dallas Mavericks fengu viölíka útreiö (4—0) og Phoenix Suns i greinilega í toppformi og sýndi allar sínar bestu hliöar. Liö Boston Celtics átti ekki eins auövelt uppdráttar í úrslitum austurde reglulegri deildakeppni meö 62 sigra og 20 töp. I fyrst umferö sigruöu þeir Washington Buliets (3—1), en síðan lá viö aö liö þetta keppnistímabil og fóru batnandi. Einn leikmanna þeirra er Berm jafnt, þrír sigrar á báöa bóga, en Boston náöi aö merja sigur í síðasta leiki Þaö var fleira sögulegt í fyrstu umferöunum í austurdeildinni. Meistarar síöastliöins árs, Phila- delpia 76ers duttu út í fyrstu umferö. Liöiö mætti New Jersey Nets og tap- aöi 2—3. New Jersey vann fyrstu tvo leikina, Philadelphia náöi aö jafna, en varö aö lúta í lægra haldi f æsispennandi lokaleik, 98—101. Auk þess aö hafa veriö slappir, hefur Philadephia átt viö ýmsa erfiöleika aö etja. Miöherjinn, Moses Malone, sem var frá í 3 vikur vegna meiðsla og sneri aftur feitur og þungur, náöi sér aldrei almennilega á strik og dr. Julius Erving var kraftlítill og virkaöi þreyttur. New Jersey tapaöi síöan fyrir Milwaukee Bucks í næstu umferö, sem mætti svo Boston Celtics í síö- ustu umferö austurdeildarinnar. Boston varö fyrir mestu auömýkingu i sögu liösins í fyrra, þegar Milwauk- ee vann þá í fjórum leikjum í röö og geröi alla úrslitadrauma aö engu. Celtics voru ákveönir í aö láta þaö ekki endurtaka sig og sigruöu í þremur fyrstu leikjunum, töpuöu þeim fjóröa en unnu þann fimmta. Liö Milwaukee var ekki auöunniö, en Boston-liöiö sýndi góöa leiki. Þar meö var Ijóst, aö draumur körfuknattleiksáhugamanna var oröinn aö veruleika. Boston Celtics og Los Angeles Lakers leiddu loks saman hesta sína í úrslitum um NBA-titlinn. Þaö eru fimmtán ár síöan þessi iiö kepptu síöast í úrslitum NBA. Þaö var á þeim árum, þegar Biil Russell og Wilt Chamberlain voru skærustu stjörnur deildarinnar. Russell var þá leikmaöur og þjálfari Boston Celtics, en Chamberlain lék meö Los Angel- es Lakers. Þeir voru báöir miöherjar og böröust hart og lengi. Cham- berlain var þá á hápunkti ferils síns, sem væntanlega mun teljast sá makalausasti í sögunni, þrátt fyrir aö ýmsum hafi tekist aö ná af honum einni og einni skrautfjööur. Eftir stendur, aö á fjórtán ára ferli varö Wilt aldrei aö hverfa af leikvelli meö 6 víti (í NBA þarf sex víti til aö dæma leikmann úr leik og fær hann ekki eitt viöbótartækifæri í framleng- ingu), sem er ótrúlegt, þegar haft er í huga, aö hann tók aö meöaltali 22,7 fráköst í leik á ferli sínum, var yfirburða varnarmaöur og varöi skot í akkoröi. Enginn státar af öörum eins skorafrekum og Chamberlain. Kareem Abdul-Jabbar tók aö vísu af honum heildarstigametin í vetur, en Wilt heldur enn nokkrum tugum meta. Eitt leiktímabil skoraði hann til dæmis rúm 50 stig aö meöaltali i leik. Þaö áriö skoraöi hann 100 stig í einum leikjanna. Kareem hefur skoraö mest 55 stig í einum leik, en Wilt lék 73 leiki, þar sem hann skor- aöi 55 stig eöa meira. Chamberlain haföi hins vegar einn veikan punkt, Bill Russell. Russell var fyrirliöi og andlegur leiötogi Boston Celtics á blómaskeiöi liösins á sjöunda áratugnum, þegar Boston vann til 9 af meistaratitlunum 15, sem liöiö státar nú af. Geta hans náði yfir endamörk og hliöarlínur, enda varö heimsfrægt á þessum ár- um hiö svonefnda Celtic-stolt, nokk- urs konar KR-harka, sem síöan hef- ur gert liðum lífiö leitt og verka- mannakörfubolta aö aðalmerki liös. Leikaöferö, sem oannar uppgjöf en heimtar bardaga og skriöþunga alls staöar á vellinum, þrátt fyrir aö þaö bitni stundum á leikfeguröinni. Red Auerbach, sem lætur af störfum sem framkvæmdastjórl Boston Celtics i sumar, var þjálfari liösins til 1966, þegar Russell tók viö þjálfuninni. Boston vann Los Angel- es örugglega í úrslitakeppninni 1968 meö fjórum sigrum gegn tveimur. Áriö eftir voru allir spádómar Los Angeles í hag. Liöiö haföi aldrei unn- iö titilinn, tapaö 5 sinnum fyrir Bost- on á 7 árum og hungraöi því í krún- una. Að auki var Wilt Chamberlain heldur á uppleiö, en stjarna Bill Russeis fór dvínandi. Samt fór þaö svo, aö Celtic-stoltiö og ægimáttur Bill Russell bar sigur úr býtum, en eins og nú þurfti sjö leiki til aö ná fram úrslitum. Þaö var Don Nelson, þáverandi Celtic-leikmaöur, en nú- verandi þjálfari Milwaukee Bucks, sem átti siöasta oröiö í þeim leik meö skoti, sem fór í körfuhringinn og hoppaöi næstum aftur fyrir körfu- spjaldiö, en hætti viö og fór ofan í körfuna í staöinn. Boston vann 108—106. Bill Russell segist hafa glataö viröingunni fyrir Chamberlain sem andstæöingi í þeim leik. Chamberlain var slæmur í hné og fór út af, þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum. Los Angeles var þá 7 stigum undir, en Wilt orkaði ekki inn á völlinn aftur, þrátt fyrir góöan vilja. Russell sagöi eftir á, aö ekkert minna en fótbrot heföi haldiö sér utan vallar í þeim leik. Þaö er sem sagt ýmislegt fleira en fagurbolti og loftfimleikar, sem gildir í þessari íþrótt. Sögulegar staöreyndir einar eru þó ekki meginástæöan fyrir ánægju manna meö titilbardaga milli Celtics og Lakers. Ekki síöur gladdi þaö unnendur íþróttarinnar aö fá aö sjá Larry Bird hjá Celtics og Earvin „Magic“ John- son hjá Lakers kljást. Liöin leika hvort í sinni deildinni og þess vegna keppa þau aöeins tvisvar á hinu reglulega keppnistímabili. í úrslita- leikjunum þurftu þeir hins vegar aö berjast í aö minnsta kosti fjórum leikjum á tveimur vikum, jafnvel oftar, ef svo fóru leikar. Persónuleg keppni Bird og John- son hefur staöiö allt frá því þeir kepptu meö háskólaliðum. Þeir mættust si’öast í meiri háttar úrslita- leik voriö 1979, þegar Indiana State University, skóli Larry Bird, og Mich- igan State University, skóli Ervin Johnson, komust í úrslit um háskólameistaratitilinn. Michigan vann og lagöur var grunnur aö hat- rammri samkeppni, sem væntanlega á eftir aö standa í mörg ár enn. Frá því NBA hóf göngu sina 1947, hefur stjörnustríö alltaf átt sér staö í einhverri mynd. Þaö sem gerir stríð- iö milli Bird og Johnson sérstakt er, hversu ólíkir þeir eru aö öllu leyti, ekki aöeins aö hörundslit, heldur og um alla þætti leiksins. i fyrsta lagi leika þeir ólíkar stööur á vellinum. Magic er bakvöröur en Larry fram- herji. Magic er fljótur og liöugur og lykilmaöur ( eitraöasta hraöaupp- hlaupi, sem sést á körfuknatt- leiksvelli. Hann er stjarnan, þegar Los Angeles-sirkusinn fer í gang, hefur ótrúlega boltameöferö og er meistari í aö láta hiö ómögulega viröast auövelt. Þess vegna fékk Earvin Johnson viöurnefniö „Magic". Hann er töframaöur með körfubolta. Hann er haröur keppnismaöur, hvet- ur samherja sína til dáöa í oröi og á boröi. Magic hefur samiö sig vel aö stjörnulífi Suöur-Kaliforníu. Hann trallar ekki aöeins í sturtunni eftir leiki heldur er hann jafnframt ókrýndur kóngur diskótekanna í Los Angeles, þessi síbrosandi blökku- maöur hefur unniö hug og hjörtu köruknattleiksunnenda, sem eru þakklátir honum fyrir aö hafa hafiö leikinn í æöra veldi. Larry Bird kann betur viö sig, þar sem menn bera húfur meö Internat- ional Harvester-merki. Hann er stundum nefndur Indiana Jones körfuboltans, ekki aöeins af því aö hann er frá Indiana, heldur ekki síö- ur vegna fjess, aö hann bregst ekki. Larry er 27 ára, þremur árum eldri en Magic. Þeir hófu atvinnumennsku í íþróttinni um leiö haustiö 1979, og hafa ekki skipt um lið sföan. Larry Bird er trúlega besti alhliöa körfu- knattleiksmaöur, sem uppi er. Marg- ir halda þvi fram, aö hann sé sá besti fyrr og síöar. Larry er ekki eins flinkur meö boltann og Magic. Hann virkar oft dálítiö klunnalegur, en þaö bitnar ekki á árangrinum. Hann hef- ur ótrúlegt auga fyrir samleik og gef- ur boltann yfirleitt meö eldsnöggum sendingum á dauðafría samherja. Hann tekur flest fráköst allra, hittir svo vel utan af velli, aö þegar hann fær boltann, fellur undantekningalít- iö varnarmaður á Larry til hjálpar þeim, sem er ábyrgur fyrir honum. Þaö opnar aö sjálfsögöu leiðir fyrir hina leikmenn Celtics. Hann er nán- ast óbrigöull í vítaskotum. Hann hef- ur áunniö sér ómælda aödáun áhorfenda, leikmanna og ekki síst þjálfara. Einn þeirra lét svo um mælt, aö ef líf hans lægi viö, léti hann boltann í hendurnar á Larry Bird. Larry Bird minnir mig um margt á Anton Bjarnason innan vallar, þó aö Anton sé ólíkt sviphreinrii maöur. Þaö eina sem er sameiginlegt þeim Larry Bird og Magic Johnson er hæöin. Þeir eru báöir 2,06 metrar (körfuknattleikur er ekki fyrir smá- fólk). 1. leikur: Los Angeles 115 — Boston 109, í Boston 27. maí Urslitakeppnin um titilinn hófst í Boston á heimavelli Boston Celtics, Boston Gardens. Boston náöi best- um árangri í deildakeppninni og lék því á heimavelli fyrstu tvo leikina. Næstu tveir leikir eru síöan leiknir á heimavelli mótherjans, skipt er um völl í þeim fimmta og aftur í þeim sjötta. Ef þarf aö leika sjö leiki, fer sá fram á heimavelli liösins sem náöi bestum árangri í deildakeppninni. Þaö getur því haft gífurlega mikiö aö segja aö standa sig vel yfir veturinn. Þaö er alltaf uppselt á heimaleiki Boston og var svo einnig nú. En þetta fékk ekkert á Los Angeles Lakers. Þeir tóku leikinn í sínar hendur strax í upphafi. Celtics áttu engin svör viö fullkomnum hraöa- upphlaupum Lakers. Hinn 37 ára gamli Kareem Abd- ul-Jabbar var stjarna Lakers. Hann hefur átt viö migrenisjúkdóm aö strföa og var fársjúkur maöur, þar til klukkutími var i leikinn. Hann varö hins vegar aöalhöfuöverkur Celtics, skoraði 32 stig. Þrátt fyrir aö Boston, meö Larry Bird í fararbroddi, væru trúir Celtic- stoltinu og neituöu aö gefast upp, áttu þeir aldrei möguleika í þessum leik. Allar tilraunir þeirra mistókust, körfuskot fóru ekki rótta boöleiö og fráköstin fóru í hendurnar á Lakers. Leikmenn liösins virkuöu þungir og þreyttir og dyggum aödáanda liös- ins leist ekkert á blikuna. Bjóst viö snöggu baöi og snubbóttum endi. 2. leikur: Boston 124 — Los Angeles 121, í Boston 31. maí Þjálfari Boston Celtics heitir K.C. Jones (k-iö og c-iö eru ekki skammstafanir). Hann varö ólympíu- meistari meö liði Bandaríkjanna 1956 og var leikmaöur Celtics á gull- aldarárunum. K.C. haföi þaö hlut- verk aö gefa boltann á Bill Russell. K.C. Jones er afskaplega hæglátur og prúöur og skiptir ekki skapi í leikjum. Hann hefur náö mjög góö- um og afslöppuöum tengslum viö leikmenn sína og gefiö þeim mátu- legt athafnafrelsi. Hann breytir sjaldan hernaöaráætlunum snögg- lega. Hann haföi greinilega komist aö þeirri niöurstöðu aö besta vopniö á Lakers væri yfirvegaöur leikur, foröast skyldi vafasöm skot og stööva leifursóknir Lakers strax í upphafi. Mikilvægi sigurs í þessum leik fyrir Boston Celtics fór ekkert á milli mála. Meö 0—2 í veganesti yfir til Los Angeles gætu þeir svo gott af- skrifaö titilinn. Þaö leit nokkuö vel út framan af fyrir Boston. Hittnin var góö og leik- aöferöin gekk upp. En skyndilega misstu þeir tökin á leiknum í hendur Lakers, sem unnu upp þrettán stíga forskot á örskammri stund. Boston rétti örlítiö úr kútnum í seinni hálfleik og náöi forystu, sem virtist ætla aö duga til sigurs. Um miöjan seinni hálfleik losnaöi hins vegar um Jam- es Worthy, sem hefur leikiö meö Lakers frá þvf hann hóf atvinnu- mennsku fyrir tveimur árum. Worthy þessi er einn af undramönnum fþróttarinnar. Meö hraðanum einum snýr hann af sór hvern mann og auk þess er hann gæddur þeim eigin- leika aö geta losaö upp á aödráttar- afli jaröar ööru hvoru. Hann skoraöi ellefu stig í röö meö blöndu af fljúg- andi furöu- og pumpukörfum. Staö- an var 113—111 Lakers í vil og tutt- ugu sekúndur voru til leiksloka. Celt- ics pressuðu allan völlinn og komust inn í bogasendingu. Staöan var þá jöfn og þrettán sekúndur eftir, næg- ur tfmi til aö skora. En pressa Celtics kom í veg fyrir þaö og Magic John- son komst hvorki í skotfæri, né gat hann sent boltann á frían samherja. I framlengingunni léku Lakers Ifkt og í sjokki eftir stórslys. Mistök á mistök ofan, sem Boston bjuggu til körfur úr og björguöu þar meö and- litinu. Staöan var 1 — 1. Þrátt fyrir allt hagstæö úrslit fyrir Lakers, þvf aö nú færöist vettvangur yfir á þeirra heimavöll næstu tvo leiki. Los Ang- eles-liöiö var greinilega mun betra en liö Boston Celtics og leikmenn jafnframt greinilega staöráönir aö bæta fyrir ófarirnar í úrslitum sfö- asta árs, þegar Philadelphia þurrk- aöi Lakers út 4—0. • Larry Bird meö knöttinn. Trúlega baati alhliöa körfuknattleiksmaöur sem uppi er í dag. „Bird minnir um margt i Anton Bjarnason innan vallar,“ segir Magnús Þrándur í grein sinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.