Morgunblaðið - 27.06.1984, Síða 17

Morgunblaðið - 27.06.1984, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1984 57 heimsmeistari" í körfuknattleik: írs í lengstu NBA til þessa l-Jabbar hafði ekki höfuðverk síðasta leikdaginn löu Los Angeles Lakers í úrslitakeppninni 13. júní í hreinum úrslitaleik meö ramherji Boston, var kosinn leikmaöur mótsins. >röu þaö aö verkum, aö úrslitakeppnin varö jafnframt sú lengsta í sögunni. st þátttökurótt í úrslitunum. Keppnin er útsláttarkeppni, en liö er þö ekki úr imferö duga þrír sigrar til að komast áfram, en síöan þarf liö aö vinna fjórum r. Þeir hafa sigrað í vesturdeildínni fjórum sinnum á síöustu fimm árum, þar Þeir sigruðu Kansas City Kings meö þremur sigrum gegn engum í fyrstu ittu aldrei möguleika í síöustu umferð vesturdeildarinnar (4—2). Liöiö var ildarinnar. Liöiö lék mjög ve! (vetur og var meö bestu útkomuna aö lokinni i Boston lasgi fyrir New York Knickerbockers. New York voru meö mjög gott ird King, sem skorar 40—50 stig í hverjum leik. Að sex leikjum loknum var tum. 3. leikur: Los Angeles 137 — Boston 104, í Los Angeles 3. júní Þaö stóð ekki steinn yfir steini í leik Boston Celtics þennan sunnu- dag. Lakers-sirkusinn setti á sviö vel metna sýningu fyrir sitt heimafólk. Þeir komust í 22—6. í hálfleik var staöan 57—46. Lokatölurnar eru stærsti sigur í úrslitakeppni frá upp- hafi. Boston voru eins og byrjendur, staöir eins og beljur. Öll veömál voru nú Los Angeles í hag. Þaö var von manna, aö fyrsti leikurinn heföi veriö óeölilega slakur af hálfu Boston, en sú von var greinilega á sandi byggö. Allt gekk upp hjá Los Angeles Lakers. Þeir tóku alls 63 fráköst, sem þeir fylgdu eftir meö næstum ómannlegum sprengikrafti. Enginn var betri en Magic Johnson í þess- um leik. Þrátt fyrir aö hafa skoraö þrjátíu stig í leiknum, var Larry Bird algerlega í skugganum þennan dag. Hann reyndi samt aö gera lítiö úr niöuriægingunni, viöurkenndi þó, aö þeir hefðu gert mörg slæm mistök, en þetta heföi bara ekki veriö þeirra dagur. Ahangendur liösins bjuggust ekki viö, aö Boston eignaöist annan dag. 300 fylgismenn, sem fóru meö liöinu til Los Angeles, tóku næstu vél heim til Boston. Þetta var búiö. 4. leikur: Boston 121 — Los Angeles 103, í Los Angeles 6. júní Kareem Abdul Jabbar er kapítuli út af fyrir sig. Hann er nú 37 ára og er enn í fullu fjöri. Þeir sem hafa ein- hvern snefil af körfuknattleik í blóð- inu, bera ómælda viröingu fyrir þessum 219 sentimetra himnastiga. Hann er hin gullna fyrirmynd utan og innan vallar, sýnir stillingu og er kurteis í háttum. Kareem er fyrirliði Los Angeles Lakers. Sem slíkur haföi hann orö fyrir liöinu í lok þriöja leiksins. Fréttamenn blóölangaöi í stóroröar yfirlýsingar. Allir geröu sér grein fyrir þýöingu sigurs í fjóröa leiknum. Hann gæfi Lakers tveggja leikja forskot og upp kæmi staöan 3—1, nokkuö sem engu llöi hefur tekist aö vinna upp í titilslag. i ofanálag heföu Lakers efni á aö tapa fimmta ieiknum í Boston (3—2) og vinna síöan titilinn á heimavelll, sem er draumur allra liöa. En Kareem er eldri en tvævetur og eftir 15 ár í atvinnumennsku veit hann vel, aö ekkert er öruggt í íþróttum. Frétta- mönnum varö ekki aö ósk sinni. Kareem var hæverskur aö vanda: „Leikurinn á miövikudaginn byrjar á 0—0 eins og allir hinir. Celtics vita þaö og viö líka.“ Og þaö voru orð aö sönnu. Celt- ic-stoltiö haföi veriö sært og sjá mátti á Celtics strax í upphafi leiks, aö barizt skyldi til síöasta manns. Mikið var um pústra og handalög- mál. Ekkert var sparað, ef á annaö borð þurfti aö brjóta á andstæöingi. Eitt sinn lá viö slagsmálum. Kevin McHale (Boston) flaug á Kurt Ramb- is (L.A.), þegar sá síðarnefndi var í þann veginn aö leggja boltann í körfuna í hraöaupphlaupi. Vara- menn þustu inn á völlinn og margir hnefar voru á lofti. Dómararnir áttu fullt í fangi meö aö greiða úr flækj- unni. Þjálfari Lakers, Pat Riley, sagöi eftir leikinn, aö Boston heföi spilaö villimannabolta. Hvaö sem leikaö- ferö Boston kallast, þá dugöi hún til aö drepa broddinn í hraöaupphlaup- um Lakers. Þeir misstu einbeiting- una í slagsmálunum. Þrátt fyrir þaö haföi Los Angeles alltaf yfirhöndina. Kareem var óstöövandi og nýtti sveifluskot sín til fullnustu, uns hann varö aö vikja af velli, þegar þrjár mínútur voru til leiksloka. 5 stig skildu liöin, er 56 sekúndur voru til leiksloka. Áhorfendur í Inglewood Forum voru farnir aö fagna sigri. En hiö ótrúlega skeöi, eins og svo oft á síöustu mínútu leikjanna í NBA. Boston náöi aö jafna. Magic John- son átti tvær ónákvæmar sendingar, sem Celtics nýttu sér til hins ýtrasta. Nákvæmlega sama uppákoma og í leik númer tvö. Óskiljanlegt klúöur á síöustu mínútum leiksins. Jafn lamaöir í framlengingunni og í Boston í vikunni áöur og auk þess meö Kareem utan vallar, voru Lak- ers auðveld bráö fyrir Boston Celt- ics. Staöan í úrslitunum var nú 2—2. Dapurleg staöreynd fyrir Los Angel- es Lakers, sem meö yfirvegun i þessum leik, sem og þeim seinni í Boston, heföu nú staöiö uppi sem sigurvegarar. 5. leikur: Boston 121 — Los Angeles 103, í Boston 8. júní. Hitabylgja gekk yfir austurströnd Bandaríkjanna þessa daga. Þaö var 29 stiga hiti í Boston þennan dag, en inni í gömlu Boston Gardens, þar sem loftræsting er léleg, var hita- stigiö 36 gráöur. Ekki bætti úr skák mikill loftraki, sem oft fylgir miklum hitum á austurströndinni. Þessar aö- stæöur settu svip sinn á leikinn. Vökvatap leikmanna var gífurlegt og margir þeirra þornuöu upp og uröu hálfringlaöir í kollinum. Lakers höföu súrefniskút á varamannabekknum tiltækan. Kom hann aö góöum not- um í seinni hálfleik, þegar Kareem Abdul Jabbar fékk andarteppu. Þaö var samt ekki hitinn og rak- inn, sem geröu út af viö Los Angeles Lakers. Larry Bird sá um þaö aö mestu leyti, en í þokkabót duttu Boston Celtics ioksins niöur á leið til aö stööva Magic Johnson. Dennis Johnson, sem Boston keypti frá Phoenix í fyrra, skipti um stöðu í vörninni um stundarsakir viö félaga sinn Gerald Henderson og tók Mag- ic aö sér. Hann náöi slíkum tökum á vörninni, aö Magic nánast hvarf í leiknum og hraöinn um leiö. Bird var betri en nokkru sinni. Hann var eins og segull á boltann og var hvatinn í efnahvörfum, sem nú áttu sér staö í liöi Boston Celtics. Bird var ógnvekj- andi. Hann var alls staöar og skaraöi fram úr, hvar sem á var litiö, skoraöi 37 stig, hitti úr 13 skotum af 20 utan af velli, þar af úr báöum þriggja stiga tilraunum sínum (3ja stiga reglan er enn ein sérreglan i NBA. deildinni. Dregin hefur verið bogalína í um þaö bil 10 metra fjarlægö frá körfunni. Heppnaö körfuskot fyrir aftan þá línu gefur 3 stig), tók alls 17 fráköst, átti óteljandi frábærar sendingar, stal boltanum og varöi skot. Loks fékk hann aöeins 6 mínútna hvíld af 48 mínútna heildarleiktíma. Lamandi hitinn virtist hafa örvandi áhrif á Larry Bird. En kappinn var ekki einn aö verki. Liöið allt vaknaöi til lífsins. Á öllum sviöum leiksins í vörn og sókn voru Celtics Lakers langtum fremri. 57 fráköst á móti 37 fráköstum Lakers. 51,7 prósent hittni utan af velli og nánast óbrigöul vítahittni. Botnfaliiö var allt Lakers megin. Styrkur liösins felst fyrst og fremst í bráödrepandi hraöaupphlaupum og frábærri skotanýtingu, sem sjaldan er undir 50 prósentum. Hittnin brast, varö aöeins 42,8 prósent (þaö þætti nú gott á sumum bæjum) og Celtics hleyptu mesta vindinum úr hraöaup- phlaupunum meö því aö taka Magic Johnson úr umferö strax á vallar- helmingi Lakers. Los Angeles liöiö sá aldrei glætu í þessum leik. Bost- on Celtics var gjörbreytt liö frá fyrstu fjórum leikjunum og yröi fram- hald þar á, dygöi Lakers ekkert nema toppleikir til aö sigra. Staöan var nú 3—2 Boston í hag og sviöiö færist til Los Angeles. 6. leikur: Los Angeles 119 — Boston 108, í Los Angeles 10. júní Lakers varö aö vinna þennan leik til aö ná fram 7. leiknum og eiga mögu- leika á titlinum. Þrátt fyrir stuöning áhorfenda á heimavelli bjóst enginn viö auöveldum sigri Lakers í þessum leik. Leikurinn var vel leikinn af beggja hálfu og sem slíkur sá besti í úrslit- unum fram aö þessu. Allar sóknir beggja liöanna í upphafi leiksins enduöu á körfu og eftir 6 mínútna leik var staöan 20—20. Seigir sem ól smásigu Celtics fram úr. Larry Bird náöi aö leika nokkuö lausum hala og uröu Lakers oft aö brjóta illa á honum til að koma í veg fyrir körf- ur. Hann skoraöi 17 stig í fyrri hálf- leik, hitti þar af úr 9 vítaskotum af 10 tilraunum. j hálfleik var staöan 65—59 Boston í vil. Tvær Boston-körfur strax í byrjun seinni hálfleiks juku muninn í tiu stig. Kareem, rétt nýlaus viö enn einn mígrenihausverkinn, hélt Lakers á floti, skoraði 6 stig í röö meö óverj- andi sveifluskotum og lagfæröi stöö- una, 71—69. Celtics, minnugir ófar- anna úr þriöja leiknum, héldu áfram störfum. Um miðjan hálfleik var staöan 84—73 þeim í vil og virtist ekkert geta komið í veg fyrir sigur þeirra. Þetta hljóp í skapiö á Los Angeles-leikmönnum og um þessar mundir mátti sjá Ijótasta ásetn- ingsbrotiö í allri úrslitakeppninni. Hinn fislétti James Worthy, sem áö- ur er nefndur, elti Cedric Maxwell, dauöafrían í hraöaupphlaupi, náöi honum upp viö körfuna, tók af hon- um jarösambandiö og hrinti á körfu- undirstöðurnar. Áhorfendur fögnuöu og töldu, aö nú væri hefnt fyrir atvik- iö í leik númer 4. Dómararnir sáu ekki ástæöu til aö reka Worthy af velli og slapp hann billega þar. Þegar hér var komiö sögu sýndu Celtics ótrúlegt kæruleysi. Einum of öruggir um sigur kepptust þeir um aö taka ótímabær og vafasöm skot, sem öll misstu marks. Meira aö segja sjálfur Larry Bird tókst á hend- ur ævintýralegt feröalag aftur fyrir körfu Lakers, sigldi síöan fram í víta- teiginn og reyndi skot aftur fyrir sig. Skömmu áöur vék Magic Johnson af velli fyrir nýliöanum Byron Scott. Úr sæti sínu á varmannabekknum horföi Magic á nýliðann koma Celt- ics úr jafnvægi meö þvi aö glæöa hraðaupphlaupin lífi á ný og á ör- skammri stundu sneru Los Angeles leiknum viöog sigruöu örugglega. Tíminn var of naumur fyrir Boston Celtics til aö hervæöast á ný. Óskastaöa var komin upp fyrir körfuknattieiksunnendur. Liöin höföu sigraö þrisvar sinnum hvort og hreinn úrslitaleikur var staö- reynd. 7. leikur: Boston 111 — Los Angeles 102, í Boston 12. júní Los Angeles Lakers höföu allt á móti sér fyrir þennan leik. i fyrsta lagi skyldi leikiö í Boston við óstööv- andi óhljóöahljómkviöu 14 þúsund áhorfenda. j ööru lagi var viö sögu- legar goösagnir aö etja. Þegar sjö leikja hefur veriö þörf til að vinna titilinn, hefur Boston alltaf sigrað, en Los Angeles alltaf tapaö. Celtics unnu St. Louis 1957 og 1960 í sjöunda leik, Los Angeles 1962, 1966 og 1969 og Milwaukee 1974. Auk ósigranna gegn Boston tapaði Los Angeles fyrir New York í 7. leik 1970. f þokkabót hafa Lakers aldrei náö aö sigra Celtics í keppni um tit- ilinn. Þetta var í áttunda sinn, sem liðin kepptu í úrslitum og í öli fyrri skiptin sjö báru Boston Celtics sigur úr býtum. Loks þótti hjátrúarfullum gárungum ekki góös viti, aö Kareem var laus viö allan hausverk þennan dag. Hvaö sem allri tölfræði og hjátrú líöur, þá var þessi leikur aö sjálf- sögöu leikur mótsins. Hann var æsi- spennandi frá upphafi til enda. Bost- on höfðu alltaf frumkvæöiö í leiknum og léku nú af sömu getu og Lakers. Hittni Los Angeles var aldeilis frá- bær og þaö brá fyrir einu og einu hraöaupphlaupi. Celtics hittu líka vel utan af velli, sem neyddi Lakers til aö fylgja mönnum fastar eftir í vörn- inni. Þaö hins vegar gaf framherjum og miöherjum meira frelsi til athafna í nálægö körfunnar. Þeir notfæröu sér þaö grimmt og mátti oft sjá Kar- eem Abdul Jabbar einn aö berjast viö þrjá Celtics-leikmenn. Þó langur sé, gekk honum ekkert of vel. Rob- ert Parish, miöherji Celtics(215 cm), haföi í fullu tré viö Kareem og eftir- leikurinn var því alla jafna auöveldgr fyrir Larry Bird (206 cm), Cedric Maxwell (205 cm) og Kevin McHale (206 cm), sem auk þess er meö lengstu hendur, sem sést hafa í bandarískum atvinnukörfuknattleik. Þeir tóku 20 sóknarfráköst á móti 9 hjá Lakers, en heildarfráköst voru 52 gegn 33 Celtics í hag. f hálfleik var staöan 58—52 Celt- ics í vil. Þaö var sigurstemmning í húsinu og var mönnum tíörætt um, aö Magic Johnson sýndi ekki sömu snerpu og fyrr í keppninni og Boston væri í slíkum ham þetta kvöld aö þeir yröu ekki auöunnir. f upphafi seinni hálfleiks var eins og Celtics hægöu á og hreyfanleik- inn hvarf úr leik liösins. Pat Riley, þjálfari Lakers, sá sér leik á boröi, kippti Magic Johnson út af og setti nýliöann, Byron Scott, inn á. Hugðist hann greinilega leika bragöiö úr sjötta leiknum og gera út um leikinn meö hraðaupphlaupum. Staöan var 75—72 fyrir Boston og um þaö bil átta mínútur liönar af seinni hálfleik. Svar K.C. Jones viö tilburöum Lakers-þjálfarans var ótrúlegt en snjallt. Hann tók stjörnuna, Larry Bird útaf. Larry haföi til þessa sýnl góöan leik og átt sinn þátt í aö halda frumkvæöi Celtics. En sóknarleikur- inn einskoröast um of viö aö koma Larry í skotfæri með takmörkuöum árangri. Celtics hysjuöu nú upp um sig buxurnar. Þegar Bird kom inn á aftur fjórum mínútum síöar, var staðan 91—78 Celtics í vil. Þetta geröi út um leikinn. Celtics léku mjög skynsamlega, nýttu sókn- irnar vel og náöu aö pressa Lakers í vörninni og dreifa þeim um völlinn. Cedric Maxwell, sem var kosinn leik- maöur mótsins 1981, þegar Boston unnu titilinn síöast, lék aöalhlut- verkiö á vellinum viö mikil fagnaöar- læti. Fyrirliöinn, Larry Bird, lék viö hvern sinn fingur á varamanna- bekknum og sté hvern stríösdansinn á fætur öörum meö handklæöi aö vopni. Lakers áttu ekkert svar viö þess- ari óvæntu árás. Þeir voru vonleysiö uppmálaö. Boston Celtics voru alls- ráöandi á vellinum. Er sex mínútur voru til leiksloka, var 17 stiga munur og þá var eins og Lakers áttuöu sig á því, í hvert óefni var komið. En tíminn var of naumur og Boston Ceitics auk þess ekkert á því, aö gefa eftir sigurinn. Staöan var 99—89, fimm mínútur eftir og Los Angeles komnir i gang. Þessar síö- ustu mínútur voru þrungnar spennu. Lakers komu muninum í þrjú stig 102—105, þegar ein mínúta var eftir en náöu ekki aö reka endahnykkinn. Þeir reyndu þriggja stiga skot, sem brast. Brotiö var tvívegis á Larry Bird, sem hitti úr öllum fjórum víta- skotum. Þá ætlaöi allt vitlaust aö veröa í Boston Gardens og var vandkvæöum bundiö aö Ijúka leikn- um. Dennis Johnson átti síöasta oröiö meö tveimur góöum víta- skotum. Þaö var táknrænt, því aö vítaskotin riöu raunverulega bagga- muninn í þessum leik. Boston tók 51 vítaskot og hitti úr 43 (84,3%). Denn- is Johnson hitti úr öllum 12 tilraun- um sínum. Larry Bird átti 8 tilraunir og hitti úr öllum. Cedric Maxweli hitti úr 14 af 17 og Robert Parish úr 6 af 9. Los Angeles á hinn bóginn hittu aöeins úr 18 tilraunum af 28, Glappaskotin á síöustu sekúndum annars og fjóröa leikjar stóöu sem opin svööusár. Johnson er ekki hinn óbrigöuli undramaöur. Hann er mannlegur eins og fleiri og mun væntanlega njóta meiri viröingar fyrir vikiö. Engin móttökunefnd beiö í Los Angeles, en Boston-borg réö ekki viö sig af kæti. Daginn eftir fóru leikmenn í opnum vagni um götur borgarinnar og taliö var, aö 300 þúsund manns heföu streymt út á göturnar til aö fagna meisturunum. Magnús Þrándur Þóróarson skrifar frá Kaliforníu • Kareem Abdul-Jabbar (t.h.) Gárungum þótti það akki góðs viti að hann væri ekki mað höfuðverk síöasta leikdaginn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.