Morgunblaðið - 27.06.1984, Blaðsíða 30
70
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1984
Ómerkileg gagnrýni
— eftir Jón
Hjaltason
Framleiðandi
sannleikans
Gagnrýni Jónasar Kristjánssonar
á veitingahúsinu „í Kvosinni"
gæti verið samantekt á sorpblaða-
mennsku, til varnaðar í blaða-
mannaskóla. Hún hefst á að höf-
undur fer rangt með nafn veit-
ingahússins og endar á því að
hann tilkynnir eigendaskipti sem
aldrei hafa orðið. Kjarni þess sem
á milli stendur eru svívirðingar og
ósannindi. Sannkölluð kamarskrif.
Sýnishorn af náðhúsinu
Matseðillinn, eins og í miðevr-
ópsku hóruhúsi. Kvosin er fallegar
umbúðir utanum ekki neitt. Mál-
skrúð og lygi. Kannski er vertinn
að gefa í skyn að hinir réttirnir
séu síður en svo ógleymanlegir.
Dýrasta veitingahús landsins og
þótt víðar væri leitað. Matseðill
Kvosarinnar endurspeglar fúskið í
eldhúsinu. Sennilega er kokkurinn
frekar nískur. Þaðan komu réttir,
sumir ómerkilegir, aðrir beinlínis
vondir. Verðið væri of hátt þótt
kokkinum væri ekki illa við gest-
ina.
Uppljóstrari okursins
Jónas gerir svo barnalegar til-
raunir til verðrannsókna að með
ólíkindum er hjá grönvöxnum
manni. Hér er tilbúið dæmi um
það sem hann kallar miðjuverðs
útreikninga.
Veitingahús A:
Lauksúpa 90,-
Kjötseyði með grænmeti 95,-
Sveppasúpa 100,-
samtalskr. 285,-
Miðjuverðkr. 95,-
Veitingahús B:
Kjötseyði með eggi og koníakil20,-
Skjaldbökusúpa 108,-
Humarsúpa 190,-
Samtals kr. 490,-
Miðjuverð kr. 163,-
Samkvæmt sannfæringu Jónas-
ar stendur veitingahús B að okri,
þótt menn með staðgóða þekkingu
á mat og reikningi leggi þau að
jöfnu. D.V. Dagfari er ólíkt
gleggri en offari, er hann segir í
grein sinni: „Könnun verðlags-
Kosangasið á gulu kútunum fæst nú í Skeljungsbúðinni
Síðumúla 33 og á öllum helstu SHELL-stöðvum, bæði á
höfuðborgarsvæðinu og út um land.
Kosangasið er fáanlegt alls staðar í 2ja, 5 og 11 kílóa
kútum, en 17 og 33ja kílóa kúta þarf sumstaðar að panta með
örlitlum fyrirvara.
Athugið að tómum hylkjum er veitt móttaka
á öllum sölustöðum Kósangass og umframhylki eru keypt
af viðskiptavinum gegn staðgreiðslu.
Gleymið ekki þeim gulu í sumar!
stofnunar er góð að því leyti að
hún vekur athygli á óeðlilegum
verðum".
Enda kemur í ljós að í könnun
verðlagsstofnunar fá veitingahús
sem Jónas hefir prísað fyrir lágt
verð, annan dóm og öfugt.
Þekking og
sleggjudómar
Greinarhöfundur segist hafa
borðað smálúðu með mangó. Ekki
heitir það mangó sem á diskinum
var, heldur grasker. Vekur það
undrun og blendna aðdáun ef
þekking Jónasar Kristjánssonar á
hóruhúsum reynist meiri en á
matvælum.
Annars staðar lýsir Jónas
Strass-kristalljósakrónum sem
glerbútum. Hvort þarna eru á
ferðinni frekari ódrengskrif eða
þekkingarskortur er óhægt um að
segja. I ljósi ofanritaðs er seinni
skýringin þó liklegri.
Á enn öðrum stað munar höf-
undinn ekkert um að sverja inn í
húsið hanastélsglundri sem aldrei
hefir þangað komið.
Þá notar Jónas langhund til að
lýsa vanþóknun á heitum rétta. í
annarri grein segir áhugamaður-
inn frá því er hann borðar
Púrtvínssveppi. Væri fróðlegt að
frétta frá orðsins útúrsnúninga-
manni hvort hann hafi þarna upp-
götvað nýja sveppategund.
Gagnrýni
Raunsæja, efnislega gagnrýni
ber að þakka. Getur Jónas í því
efni lært verulega af ómari Ragn-
arssyni, bifreiðagagnrýnanda.
Hlutgengur gagnrýnandi veitinga
þarf umfram allt að hafa fágaðan
eðlislægan smekk. Næmni hans og
þekking nær óraveg útfyrir að
þykja eitthvað gott, vont eða
sæmilegt. Salt, sætt eða súrt. Til-
raunir Jónasar til skrifa um veit-
ingahús, undir nafni, eru mjög
vanhugsaðar í ekki stærra þjóðfé-
lagi. Komur hans vekja augljós-
lega upp óeðlilegt ástand. Hann
fær því aldrei rétta mynd af því
sem dagfarslega fer fram, sem
ætti þó að vera tilgangurinn þegar
verið er að diska út óbrotgjörnum
dómum til almennings. Líta ber á
hlut gagnrýnenda sem þátttak-
enda í uppbyggingu og framvör
þess sem um er fjallað. Eru per-
sónulegar sjálf-farir og kamarskr-
if harla lítið innlegg þar til.
Ágætur gagnrýnandi veitinga
og beina kemur og fer. Með sann-
an penna og frið í sál.
Jón Hjaltason er framkræmda-
stjóri í Reykjavík.
Kvosin
í GREIN í DV, 9. júní sl., ritar Jónas
Kristjánsson DV-ritstjóri um Kvos-
ina, undir yfirskriftinni „Ómerkileg
matreiðsla“.
Félag mitt, JC-Vík, hefur sl.
starfsár haldið alla sína félags-
fundi i Kvosinni og að auki jóla-
fund í desember og lokahóf í maí.
Allur matur og þjónusta hefur
verið til mikillar fyrirmyndar og
fær Kvosin okkar bestu meðmæli
fyrir ljúffenga rétti, frábæra
þjónustu og sérlega vistleg húsa-
kynni.
Færum við eigendum staðarins
og þjónustufólki okkar bestu
þakkir fyrir samstarfið.
Fh. stjórnar JC-Víkur,
Guðrún Skúladóttir,
forseti.
KUNGER
Gæðavara á góðu ver%!
Við eigum nú til á lager
8 stærðir af KLINGER
kúlulokum frá V4"
til 2".
Mjög hagstætt
verð.
Heildsala —
Smásala
Allt
til pípulagna
Burstafell
Byggingavöruverslun
Bíldshöföa 14
Sími 38840
Skeljungur h.f.
» Gódan daginn!