Morgunblaðið - 05.07.1984, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
STOFNAÐ 1913
151. tbl. 71. árg.
FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ný sókn Rússa í
nágrenni Kabúl
lslamabad, 4. júlí. AP.
FRÉTTIR hafa borist af miklum árásum Sovétmanna á bæinn Kohe Safi, um
40 km norðvestur af Kabúl í Afganistan, en þar höfðu nokkur hundruð
frelsissinnar hreiðrað um sig.
Bærinn hefur verið undir stöð-
ugum árásum síðan 24. júní og
voru enn bardagar þar, þegar síð-
ast bárust fréttir þaðan á sunnu-
dag. Ekki er enn Ijóst hvor hefur
yfirhöndina í bardögunum.
Frelisliðar halda því fram að
árásir Sovétmanna séu hefnd fyrir
árás þeirra á bækistöð Rússa utan
við Kabúl fyrir tveimur mánuðum,
þar sem þeir segjast hafa eyðilagt
a.m.k. nokkra tugi flugvéla.
íranir efla
brynlið sitt
Wishington, 4. jnlí. AP
ÍRAN hefur eflt skriðdrekalið sitt
Heimildir innan frelsissamtak-
anna herma að lið Sovétmanna i
árásinni sé skipað um 15.000 her-
mönnum, 1.000 skriðdrekum og
auk þess hefðu Sovétmenn vernd
úr lofti.
Ekki hafa borist fréttir af
mannfalli innan frelsishersins, en
heimildir þar segja að frelsissinn-
ar hafi skotið niður eina flugvél
Rússa og um 100 manns hafi fallið
innan hersveita Sovétmanna.
Samkvæmt fyrri fréttum, tóku
frelsissveitir Afgana 20 sovéska
hermenn til fanga í árásum á her-
flutningalestir Rússa nærri landa-
mærum Pakistan í júnímánuði.
Að sögn vestrænna sendifulltrúa,
hefndu Rússar þessa með loftárás-
um á þorp á sömu slóðum.
Herinn tekinn við í Beirút
Líbanskir hermenn mættu engri andspyrnu er þeir tóku sér stöðu í borgarhlutum kristinna manna og
múhameðstrúarmanna í gær. Þar með hófst þriggja daga áætlun um að koma á friði í Beirút.
AP/Sfmamynd.
Anatoly Dobrynin, sendiherra Sov-
étríkjanna í Washington, á Lund-
únaflugvelli í gær, þar sem hann
hafði viðkomu á leið sinni til
Moskvu, þar sem hann gaf ráða-
mönnum skýrslu um viðræður sínar
við bandaríska ráðamcnn um geim-
vopnabann.
verulega á hernaðarlega mikilvæg-
um stöðum á víglínunni og gæti það
gefið til kynna að sóknin mikla, sem
spáð hefur verið, sé nú í vændum,
samkvæmt heimildum leyniþjónustu
Bandaríkjanna.
Heimildamennirnir voru þó
tregir til að spá nokkru um tíma-
setningu sóknarinnar, en gáfu í
skyn að nú væri rétti tíminn fyrir
írani að hefjast handa, þar sem
Ramadanmánuði múhameðstrú-
armanna væri lokið.
Skriðdrekalið Írana mun hafa
verið dregið saman við víglínuna
suður af einni aðalborg írana,
Basra.
I Bahrain fóru fram viðræður
milli forsætisráðherra íraks og
Kuwait um leiðir til að koma I veg
fyrir að átökin við Persaflóa
magnist. Fréttir herma að Írak
sækist nú eftir stuðningi Kuwait
gegn írönum. En Kuwaitmenn
munu líklega neita, þar sem þeir
vilja ekki dragast inn i átökin.
A sama tima fréttist að stjórn
Íraks væri að endurnýja tilboð sitt
til Kuwait um að taka á leigu tvær
eyjar ríkisins undir herstöðvar.
Minniháttar átök urðu á landa-
mærum Iraks og íran sl. tvo daga.
írakar segja að þeir hafi fellt um
25 iranska hermenn, en Íranir
segjast hafa fellt um 60 manns.
Viðræður um
geimvopnum
Moskvu, 4. júlf. AP
ANATOLY Dobrynin, sendiherra Sovétríkjanna, kom til Moskvu í dag, eftir
heimsókn sína til Washington. Sagói hann í samtali við fréttamenn að
Bandaríkin og Sovétríkin væru að semja um hvort viðræður um geimvopna-
bann skyldu hefjast í Vín í haust. „Ég vona það besta, en er enginn
töframaður,** sagði Dobrynin.
Sovétmenn hafa fordæmt
Bandaríkin fyrir að vilja tengja
saman viðræður um kjarnorkju-
vopn og vopn i geimnum, en enn
hefur ekki verið gefin út yfirlýsing
um hvort Sovétríkin muni ekki
taka þátt i viðræðunum i Vin
vegna þessa.
Yfirvöld i Bandarikjunum sögðu
á þriðjudag að undirbýningur
væri hafinn fyrir viðræður við
Sovétmenn i haust, en fulltrúar
þeirra myndu einnig ræða um
kjarnorkuvopn, hvort sem sovéska
samninganefndin hlustaði á þá
eða ekki.
Utanrikisráðherra Bretlands,
Sir Geoffrey Howe, hvatti til þess
i neðri málstofu breska þingsins i
dag, að viðræður og samskipti við
Sovétríkin yrðu aukin. „Hvorki við
né bandamenn okkar munum taka
nei fyrir gilt svar.“
Þó sagði Howe að viðbrögð
Rússa til þessa hefðu verið nei-
kvæð og valdið vonbrigðum. „Þeir
virðast ófúsir til að leggja nýtt
mat á alvöruna i umleitunum
Vesturveldanna."
Tveimur bandariskum sendi-
ráðsmönnum i Moskvu var haldið
föngnum í tvær klukkustundir á
miðvikudag, eftir að þeir voru
teknir höndum fyrir að tala við
sovéskan borgara.
ónefndur talsmaður bandariska
innanrikisráðuneytisins sagði að
sendiráðsmennirnir tveir hefðu
verið að ræða við mann, sem
tengdur er Solzhenitsyn-sjóðnum.
Væri litið á brottnám mannanna
sem frekari tilraunir Sovétmanna
til að koma i veg fyrir öll sam-
skipti útlendinga við heimamenn.
Veita stórt lán
til A-Þýskalands
Munrhrn. 4. júlí. AP.
FRANZ Josef Strauss tilkynnti á fundi
með fréttamönnum í dag að Ve.stur-
pjóðverjar myndu veita Austur-Þjóð-
verjum stórt lán innan skamms. Hann
tiltók ekki upphæð lánsins, en sagði að
nokkrir bankar hefðu tekið sig saman
og myndu veita nágrönnum sínum
a.m.k. 750 milljóna marka lán.
V-Þjóðverjar veittu A-Þjóðverj-
um lán upp á einn milljarð marka
fyrir um ári, og var lánið veitt með
skilyrðum um framkvæmdir í
mannréttindamálum í A-Þýska-
landi. Fjölmiðlar í V-Þýskalandi
sögðu í dag, að nýja lánið yrði veitt
vegna eftirgjafa a-þýskra yfirvalda.
Eitt skilyrði fyrir láninu er að
a-þýsk yfirvöld falli frá krðfum um
að V-Þjóðverjar þurfi að skipta
a.m.k. 25 mörkum daglega. Einnig
eru a-þýsk yfirvöld hvött til að liðka
á skilyrðum sem borgarar verða að
uppfylla, vilji þeir heimsækja vest-
urhluta landsins.
Talsmaður stjórnarinnar sagöi að
undanfarið hefðu A-Þjóðverjar gefið
nokkrar jákvæðar visbendingar, t.d.
hefðu nokkrar vélbyssur á landa-
rnærum ríkjanna verið fjarlægðar,
til að draga úr flótta úr austri I vest-
ur. Hann sagði einnig að samkomu-
lag heföi náðst um mál flóttamanna
frá A-Þýskalandi sem leituðu hælis f
sendiráði V-Þýskalands 1 A-Berlín.
Flóttamennirnir 50, sem dvalist
höfðu í byggingunni í nokkrar vikur,
yfirgáfu hana af sjálfsdáðum á
föstudag og þriðjudag, með loforð
upp á vasann um að umsóknir þeirra
um landvistarleyfi í V-Þýskalandi
yröu teknar til umfjöllunar. Enn eru
þó sex A-Þjóðverjar í sendiráðinu.
Kasparov
fær „Óskar“
skákmanna
B»rrek>n», 4. jálf. AP.
SOVÉZKI skákmaðurinn Gary
Kasparov tók í dag við skák-
óskarnum, sem samtök blaðam-
anna er skrifa um skák veittu hon-
um.
Þetta er i annað sinn sem
Kasparov hlýtur hina eftirsóttu
viðurkenningu.
Er Kasparov hafði veitt stytt-
unni móttöku lék hann fjöltefli
við átta skákblaðamenn, vann
fjóra þeirra en gerði fjögur
jafntefli.
Brasilísk
tvíbura í
Kíó de Janeiró, Brasilfu, 4. júlf. AP
FJÖRUTÍU og tveggja ára gömul
húsmóðir í Brasilíu átti tvíbura í tf-
unda sinn á þriðjudag.
Maria Moreira, sem er tvíburi
sjálf, byrjaði að eiga tvíbura
þrettán ára gömul og telur hún að
tvíburafæðingar gangi í ættinni.
Móðir hennar átti einnig tíu tví-
kona ól
10. sinn
bura og tvær dætra hennar eiga
hvor sitt parið af tvíburum.
Moreira sagði að uppskriftin að
tvíburum væri einföld. „Bara að
loka gluggunum og hafa algjört
myrkur þegar gengið er til náða,“
sagði hún og hló „alveg óbrigðult
ráð, það verða alltaf tvíburar úr!“
bann við
í haust?