Morgunblaðið - 05.07.1984, Síða 2

Morgunblaðið - 05.07.1984, Síða 2
* ‘TíroWGítJNBL’ÁÐIÐ/PrMMTUDAGUR'B. DUL11984 Kirkjuinnbrotið og fleiri þjófnaðir upplýstir: Gæsluvarðhalds kraf- ist yfir fimm ungmennum Gufuholan í Eldvörpum á Reykjanesi. Mynd frá Víkur-fréttum. Jákvæðar prófanir með gufuholu í Eldvörpum: Gefur meiri orku en Kröfluvirkjun „VIÐ höfum kallað hana næststærstu gufuholu heims,“ sagði Geir Þór- oddsson, stöðvarstjóri varmaorkuvers Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi, er blm. Mbl. ræddi við hann í gær um borholuna í Eldvörpum, um 6 km vestur af Svartsengi. Tilraunum við holuna er nú lokið að sinni og hefur henni verið lokað þar til nánar verður ákveðið með framhaldið. Að sögn Gísla Júlíusson- ar, verkfræðings hjá Landsvirkjun, gefur holan um 25 MW orku. Gísli sagði ennfremur, að þótt holan væri kraftmikil þyrfti enn miklar framkvæmdir, m.a. raflínur, til þess að hægt væri að hefjast handa við virkjun hennar. Aðeins ein hola á landinu er öfl- ugri en umrædd hola í Eldvörpum og er hún nokkru vestar á Reykja- nesinu. Hún gefur orku upp á 30 MW. Sú orka, sem nú er virkjuð í Flugfélag Noröurlands: Ný vél keypt FLUGFÉLAG Norðurlands hefur keypt nýja vél í stað þeirrar sem hlekktist á á Bíldudalsflugvelli fyrir tveimur vikum. Að sögn Sigurðar Aðalsteins- sonar, framkvæmdastjóra Flugfé- lags Norðurlands, varð vél af sömu gerð fyrir valinu, eða tveggja hreyfla vél af gerðinni Piper Chieftain. Vélin var keypt fyrir tæpri viku og var kaupverð hennar 2,6 milljónir króna. Hún mun hefja áætlunarflug síðar í þessari viku. Svartsengi, er heldur minni en orkan úr holunni i Eldvörpum. Til þess að gefa hugmynd um hversu kaftmikil holan i Eldvörpum er má nefna, að orkan úr henni er meiri en úr öllum tengdum holum við Kröflu. Holan í Eldvörpum var boruð sameiginlega á vegum Landsvirkj- unar og Hitaveitu Suðurnesja í fyrrasumar en var í prófunum fram undir vor. „Miðað við þá tækni, sem nú er fyrir hendi við framleiðslu raforku, er þetta 25 Megawatta hola,“ sagði Gísli. Sagði hann guíuna um 260 gráða heita í Eldvörpum. Hún væri 240 gráður í Svartsengi, en 290 í ystu holunni á nesinu. Gísli bætti því við, að komin væri til sögunnar ný tækni í gufu- hverflum. Með henni væru gufu- skiljur óþarfar og orkan nýttist því betur um leið en verið hefði. Hvort tekið yrði til við virkjun þessarar holu byggðist nokkuð á framvindu raforkumála í landinu. „Þótt komin sé nokkuð góð mynd af afköstum þessarar holu þarf e.t.v. að framkvæma frekari mæl- ingar áður en ráðist verður í virkj- un,“ sagði Gísli Júlíusson. Rannsóknarlögregla ríkisins hef- ur krafizt gæzluvarðhaldsúrskurðar yfir fimm ungmennum, þremur stúlkum og tveimur piltum, vegna innbrota að undanfiirnu. Annar pilt- anna hefur játað að hafa verið að verki er brotizt var inn f kirkju Óháða safnaðarins í Reykjavík um síðustu helgi og í fyrirtæki við Snorrabraut. Hinir munu tengjast þessum innbrotum og fleirum, sem RLR hefur unnið við að upplýsa að undanlornu. Ekki mun allt þýfið enn vera komið til skila og er áfram unn- ið að rannsókn málsins. Auk innbrotsins í kirkju óháða safnaðarins, þar sem stolið var 130 silfurbikurum, tengjast þessi fimm ungmenni fleiri innbrotum og má þar nefna innbrot í íbúð sænska sendiherrr.ns, innbrot í íbúð í Vatnsholti, þar sem m.a. var stolið skartgripum, innbrot í húsakynni Osta- og smjörsölunn- ar, auk ýmissa fleiri innbrota, sem unnið hefur verið að rannsókn á. Hluti af kirkjuþýfinu fannst eftir ábendingu í nágrenni kirkj- unnar og að sögn fulltrúa hjá RLR eru mál þessi nú að mestu upplýst og nokkuð af öðru þýfi einnig komið í leitirnar, en RLR vinnur nú að því að upplýsa mál þessi að fullu. Ungmennin fimm tengjast málum þessum misjafnlega mikið, en öll munu þau áður hafa komið við sögu á spjöldum lögreglunnar, meðal annars vegna fíkniefna- mála. RLR hefur farið fram á gæslu- varðhaldsúrskurð yfir fjórum ungmennanna til 1. ágúst nk. og yfir einu til 11. júlí. Dómari tók sér frest til dagsins í dag til að kveða upp úrskurð um gæzluvarð- hald í málinu. Hluti af kirkjugripunum, sem fundust eftir ábendingu í nágrenni kirkjunnar. <Morgunblaíið/Júltus.) Húsnæðisstofnun ríkisins: 115 milljóna króna lán samþykkt í gær Á stjórnarfundi Húsnæóisstofnunar rikisins ( gær var samþykkt aó hefja greiðslu á sex lánaflokkum, sem nema samtals 115 milljónum króna og koma til útborgunar á næstu vikum allt fram til miðs ágústmánaðar. Að sögn Sigurðar E. Guðmunds- sonar, framkvæmdastjóra Hús- næðisstofnunar, var í fyrsta lagi samþykkt að greiða út frá og með 10. júlí nk. frumlán þeim til handa sem gerðu fokhelt í apríl og eru að eignast sína fyrstu íbúð, samtals að upphæð 11 milljónir króna. I annan stað var samþykkt lán- veiting, samtals upp á 14 milljónir króna, sem kemur til greiðslu fyrir 20. júlí nk. og eru það frumlán til þeirra er gerðu fokhelt í maímán- uði og eru að eignast sína fyrstu íbúð. Einstakar vörutegundir lækkað um allt að 75 % u ,Vafalítið hægt að gera enn bet- ur,” segir Jónas Ragnarsson í heild- versluninni Impex í Keflavík HEILDVERSLUNINNI Impex í Keflavík, sem sett var á laggirnar með það fyrir augum að þjóna fyrst og fremst „kaupmanninum á horn- inu“, hefur tekist að lækka verð á einstökum vörutegundum um allt að 75%. Fyrsta sending fyrirtækis- ins kom í maíbyrjun en von var á þeirri fimmtu í gærkvöld. Alls eru vörutegundirnar um 50 talsins, sem Impex fiytur inn. Heildsalan kaupir allar vörur sínar frá þýska fyrirtækinu Edeka. Það var á sín- um tíma stofnað með sama markmiði og Impex. Að sögn Jónasar Ragnarsson- ar, sem rekur heildverslunina í samvinnu við tvo aðra aðila, lofa fyrstu undirtektir kaupmanna góðu. „Það tekur auðvitað alltaf sinn tíma að kynna nýjar vörur jafnvel þótt þær standi þeim, sem fyrir eru á markaðnum, ekkert að baki. Slíkt er aðeins eðlilegt. Við höfum ekkert aug- lýst þessar vörur enn en munum Morgunblaðiú/KEE. Nokkrar þeirra vörutegunda, sem komið hafa hvað hagstæðast ÚL gera það f náinni framtíð. Seinna meir gerum við okkur vonir um að ná samkomulagi við kaupmenn um frekari kynningu á Impex-vörunum,“ sagði Jónas. Á meðal þeirra vörutegunda, sem komið hafa hvað best út hjá heildsölunni má t.d. nefna hrísgrjón og kókómalt. Hvoru tveggja er um 75% ódýrara út úr búð miðað við sambærilegt magn annarra vörutegunda. Þá má einnig nefna, að komflögur, sem Impex flytur inn, eru 68% ódýrari en þekkt tegund korn- flaga á markaðnum, blandaður ávaxtasafi í lítrafernum 43% ódýrari, sinnep 50% ódýrara og „instant“-kaffi 10—60% ódýr- ara. Ekki hafa þó allar vörurnar, sem Impex flytur inn, náð því að vera undir markaðsverði. T.d. má nefna þekkta tegund tómat- sósu, sem er á sama verði og ver- ið hefur. Svo mun einnig um nokkrar aðrar vörutegundur, sem heildverslunin flytur inn. Þær eru þó aðeins brot af úrval- inu. „Vafalítið væri hægt að gera enn betur, t.d. með því að kaupa vörurnar inn í stærri einingum," sagði Jónas. „Það hefur vakið nokkra undrun í Þýskalandi hjá Edeka hvað við kaupum margar vörutegundir í litlum einingum. Slíkt er að sjálfsögðu óhagstæð- ara. Eiginlega þyrftum við að kenna viðskiptavininum að byggja upp sinn eiginn vörulager innan heimilisins. Það myndi margborga sig.“ I þriðja lagi var samþykkt lánv- eiting að upphæð 22 milljónir króna, sem á að koma til greiðslu eftir 15. ágúst. Hér er um að ræða frumlán til þeirra sem gerðu fok- helt á tímabilinu janúar til mars 1984 og eiga íbúð fyrir. f fjórða lagi var ákveðið 33 millj- óna króna miðhlutalán, sem koma til greiðslu eftir 15. júlí nk. og eru þeim til handa sem fengu frumlán- in útborguð eftir 5. desember á síð- asta ári. í fimmta lagi er um að ræða lokalán eða þriðja hluta venjulegra byggingarlána er koma eiga til greiðslu eftir 1. ágúst þeim til handa sem fengu fyrsta hlutann eða frumlánin borguð 5. júlí 1983. Lánveitingin er samtals að upphæð 22,1 milljón króna. í sjötta og síðasta lagi var sam- þykkt að hefja lánveitingar að fjár- hæð 12 milljónir króna og koma til útborgunar eftir 15. ágúst næst- komandi. Þær eru þeim til handa sem hafa verið með viðbyggingar sem fokheldar hafa orðið á tímabil- inu janúar til mars síðastliðinn. Ennfremur eiga þeir, sem sótt hafa um lán til meiriháttar viðgerða og endurbóta fyrir 1. apríl 1984, rétt á umræddu láni. Að sögn Sigurðar E. Guðmunds- sonar hefur útborgun lána til þeirra sem eru að eignast sína fyrstu íbúð seinkað. Þannig hafa liðið um sjö til átta mánuðir á milli útborgana lokalána og miðhluta- lána, en ættu með réttu að greiðast á hálfs árs fresti. Skemmtilegt, en þrælerfitt sagði Björn Magnússon, sem fékk 15 punda flugulax í Elliðaám í gærdag „ÞETTA var ósköp skemmtilegt, en þrælerfitt á svona einhendisstöng," sagði Björn Magnússon, sem í gær veiddi stærsta lax á flugu, sem kom- ið befur úr Elliðaám það sem af er sumri. Hann vó 15 pund og var 93 sm að lengd, eða einum sm lengri en 15 punda laxinn sem áður var kom- inn. Björn veiddi laxinn á flugu, sem kölluð er „svarti skröggur" og tók hann á klukkan 15.35 og orrust- unni lauk klukkan 16.24, en Björn hélt nákvæma skrá yfir tilfær- ingarnar við veiðarnar. „Ég vona að þetta verði sá stærsti í sumar, það er alltaf gaman að eiga heið- urinn af slíku,“ sagði Björn enn- fremur. Björn sagði að vel hefði veiðst í Elliðaám þennan dag, alls 37 laxar, en allir hinir voru veiddir á maðk. „Sá stóri var nóg fyrir mig,“ sagði Björn, sem kvaðst allt- af fara í Elliðaárnar 4. júlí ár hvert í hálfan dag. Björn Magnússon, glaðhlakkalegur á svip, með þann stóra sem hann veiddi í Elliðaánum í gærdag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.