Morgunblaðið - 05.07.1984, Side 3

Morgunblaðið - 05.07.1984, Side 3
3 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚLl 1984 Unnur Ginarson Kawadry Islenzk kona apótekari í Frakklandi ÍSLENDINGUR, Unnur Kinarson Kawadry, varð hinn 1. júlí síðastlið- inn apótekari í Marigny-Champigny, litlum bæ um 50 km frá París. Unnur varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1967. Hún stundaði nám við Faculté de Medécine et de Pharmacie við Université de Clermont-Ferrand frá 1968 til 1972, síðan við Uni- versité de Paris Sud frá 1975 og lauk þaðan prófi 1978. Hún starf- aði sem lyfjafræðingur í apóteki í Orly. Maður Unnar er Chiass Kaw- adry, kjarnorkueðlisfræðingur, og eiga þau þrjú bðrn. Unnur er dótt- ir Onnu og Birgis apótekara Einarson. Saga Siglar við bryggju í vesturhöfninni í gær. Ragnar Thorset, formaður á Saga Siglar, ásamt syni sínum sem er átta ára og er með í förinni. Langaði til að fræðast meira um lff víkinganna Ef þú mólar með STEINAKRÝLI frá Málningu hf þarftu ekki að bíða eftir málningaweðrí! Frábærar niðurstöður fslenskra sértræðinga. Efnaverkfræðingar MÁLNINGAR h/f hafa staðið fyrir vlðtækum prófunum á STEINAKRÝLI í rúmlega þrjú ár. Niðurstöður þeirra eru m.a. þær, að STEINAKRÝL er haagt að nota á flestum árstímum og STEINAKRÝL er endingargóð útimálning. STEINAKRÝL er þvf einstaklega hæf fyrir íslenskar aðstæður. Duftsmitandl fletlr valda ekki tengur erfiðleikum. Með STEINAKRÝLI geturðu málað beint á duftsmitandi fleti án þess að eiga á hættu flögnun málningar, sem er óhugsandi með hefðbundinni plastmálningu. Rigningarskúr er ekkert vandamál. STEINAKRÝL er terpentínuþynnanleg málning, sem er óvenjulega hæf fyrir íslenskar aðstæður STEIN- AKRÝL endist. Rigningarskúr skiptir litlu máli, þú færð þér bara kaffisopa á meðan rigningin gengur yfir - og heldur svo áfram að mála; STEINAKRÝL þolir rigningu fljótlega eftir málun. Nú geturðu málað f frosti. Yfirburðakostur nýju útimálningarinnar frá MÁLNINGU h/f er einfaldlega sá, að þú þarft ekki lengur að hafa áhyggjur af veðrinu. STEINAKRÝL er akrýlbundin útimálning með sléttri áferð. Þú getur málað með STEINAKRÝLI við mjðg lágt hitastig. Jafnvel (10 gráðu frosti (celcius) ef þú endist til að mála I svo miklum kulda. STEINAKRÝL ENDIST! STEINAKRÝL - málningln sem andar málninghlf segir Ragnar Thorset um hnattsiglinguna á Saga Siglar KNÖRRINN Saga Siglar kom til Reykjavíkur i gærmorgun eftir 18 tíma siglingu frá Vestmannaeyjum. Ragnar Thorset, formaður á Saga Siglar, sagði við blaðamann Mbl. að ferðin hefði gengið mjög vel. En hvað fær menn til að leggja upp f hnattferð á eins litlu skipi og knörrinn er? „Hugmyndina fékk ég árið 1975 þegar ég sigldi á litlum fiskibát til Norður-Ameríku, sömu leið og Leif- ur Eiríksson forðum, þá heimsótti ég landnámsstaðina á Grænlandi og upp frá þvi má segja að Iff vík- inganna hafi tekið hug minn allan. Mig langaði til að fræðast meira um raunverulegt líf þeirra og eig- inleika knarrarins í svo löngum siglingum. Víkingarnir sigldu að vísu ekki kringum jörðina, en mig langar að sýna fjarlægum þjóðum að vikingarnir voru ekki einungis bardagamenn heldur einnig miklir sæfarar, einnig vil ég sýna fram á að þeir höfðu mikla möguleika að sigla reglulega milli Noregs og Norður-Ameríku,“ sagði Ragnar Thorset. Saga Siglar er eftirlfking af knerri sem fannst í Hróarskeldu- firði er byggður var f Noregi um 1000. Knörrinn ber allan nauðsyn- legan farm til lang-siglinga og er mjög lfklegt að Leifur Eiríksson og Eiríkur rauði hafi siglt á slfku skipi, að sögn Thorsets. Ahöfnin á knerrinum eru 8 menn, og meðal þeirra er sonur Thorset, sem er átta ára. Aðeins Thorset mun verða á knerrinum allan tfm- ann, en aðrir munu aðeins vera hluta af ferðinni og koma þá aðrir í þeirra stað. Kvikmyndatökumenn fylgjast með knerrinum, en eru á öðru skipi, Strandholm. Verið er að gera sjón- varpsþátt um líf víkinganna og hóf- ust kvikmyndatökur f upphafi ferð- arinnar og lýkur við Nýfundnaland. Frá Reykjavík halda „víkingarn- ir“ til Breiðafjarðar en þaðan halda þeir til Grænlands 15. júlí. Ef allt gengur að óskum mun Saga Siglar koma heim til Noregs f maf 1986. Þingskipuð öiyggisnefnd um Olsenbúnaðínn: Vill stöðvun á upp- setningu og rannsókn ÖRYGGISMÁLANEFND sjómanna, sem Matthías Bjarnason samgöngu- ráðherra skipaði á Alþingi í vetur og skipuð er sjö alþingismönnum, hefur farið fram á það við Siglingamálastofnun að stöðvuð verði uppsetning á sleppibúnaði björgunarbáta af Ólsengerð og fram fari rannsókn á búnaðin- um hjá hlutlausri stofnun. Pétur Sigurðsson alþingismaður og formaður Öryggismálanefndar sjómanna ritaði siglingamálastjóra bréf sem að sögn Magnúsar Jóhannessonar setts siglingamálastjóra barst honum um síðustu belgi. í bréfi Öryggismálanefndarinnar er bent á að gormar í Ólsenbúnaðin- um hafi reynst marg-brotnir og óskar Öryggismálanefndin eftir því að hlutlaus stofnun eða fyrirtæki rannsaki brotnu gormana, kraft og notagildi þeirra, öryggi umræddra gorma og þar af leiðandi búnaðinn í heild. Fer nefndin fram á það að uppsetning á þessum búnaði verði stöðvuð meðan rannsókn fer fram á búnaðinum í heild. Vegna þessara tilmæla Öryggis- málanefndar sjómanna snéri Morg- unblaðið sér til siglingamálastjóra, Magnúsar Jóhannessonar, og innti hann eftir þvf hvort ákvörðun um stöðvun á uppsetningu Ólsenbjörg- unarútbúnaðarins lægi fyrir. Magn- ús kvað svo ekki vera, en beðið væri eftir niðurstöðu rannsóknar Iðn- tæknistofnunar á gorminum sjálf- um. Aðspurður sagði Magnús að engar grunsemdir væru fyrir hendi, er gæfu tilefni til rannsókna á bún- aðinum í heild aðrar en gormurinn, en vildi ekki segja af eða á um hvort slíkt yrði gert, fyrr en að höfðu sam- ráði við Öryggismálanefnd sjó- manna. Að sögn siglingamálastjóra kom það mjög á óvart að gormarnir skyldu brotna. Magnús sagöi að tal- að hefði verið um þegar uppsetning Ólsenbúnaðarins hófst á sfðastliðnu ári að skipta um gorma, en ástæða fyrir því að það var ekki gert var að ekki fengust aðrir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.