Morgunblaðið - 05.07.1984, Blaðsíða 14
81
NTC/ IJTÍL .?■ HUDAGUTKWN .GIUAJHPTJDflOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1984
ífv ín
Eins og sjá má tók fólk á öllura aldri þátt í söngnum á kvöldvökunum.
Kjalamesprófastsdæmi:
Kristín Siguróardóttir flokksforingi og Páll Zophoníasson, sem setti mótið.
Fjórðungsmót skáta
ágætlega heppnað
SKÁTAR I Kjalarnesprófastdemi
béldu um helgina fjölmennt fjórð-
ungsmót I Vestmannaeyjum. Mótið
hófst á fimmtudagskvöld og stóð til
hádegis á sunnudag.
Morgunblaðið hafði samband
við Kristínu Sigurðardóttur, for-
ingja I skátafélaginu Faxa í Vest-
mannaeyjum og var hún spurð
hvernig undirbúningi mótsins var
háttað. Hún sagði að undirbúning-
ur hafi hafist í mars og voru það
skátar úr skátafélögum á Suður-
og Vesturlandi sem sáu um hann.
Kristín sagði að upphaflega hafi
Bandalag íslenskra skáta rætt um
að hafa fjórðungsmót í hverjum
landsfjórðungi á þessu ári, en af
því verður ekki að þessu sinni. Að-
eins tvö mót verða haldin og verð-
ur næsta mót um næstu helgi á
Norðurlandi. Þetta er í fyrsta sinn
sem svona fjórðungsmót eru hald-
, >
i 1 • J.ÍX: I
Eitt af verkefnunum á mótinu var að fera þessa tunnu eftir spírum, sem
komið var fyrír yfir tjörninni.
TUhandhafa
gjafabréfa
Nú er komið að síðasta gjalddaga gjafabréfa SÁÁ, sem seld voru til að fjármagna
byggingaframkvæmdir við sjúkrastöðina Vog.
Um leið og við minnum handhafa gjafabréfanna á lokaátakið, viljum við þakka
þeim svo og öðrum velunnurum SÁÁ, sem lagt hafa sitt af mörkum til að
sjúkrastöðin Vogur yrði að veruleika.
Dregið verður úr númerum allra gjafabréfanna 5. júlí.
Gera má skil hjá öllum bankastofnunum
og á skrifstofu SÁÁ.
Stjórn SÁÁ
in og hefur ekki verið ákveðið
hvernig framkvæmd þeirra verður
háttað I framtíðinni. Landsmót
skáta verður haldið á næsta ári.
Kristín sagði að mótið hafi farið
vel fram i alla staði og voru allir
ánægðir með hve allt gekk vel.
Mikil þátttaka var i öllum dag-
skráratriðunum, sem stóðu yfir
allan daginn. Veðrið var mjög gott
allan timann, serstakiega á
sunnudeginum og hafði það mikið
að segja fyrir mótsgesti.
Að sögn Bjarna Sighvatssonar,
sem var á mótinu á vegum Hjálp-
arsveitar skáta i Vestmannaeyj-
um, virtust allir skemmta sér hið
besta á mótinu. Bjarni sagði að
um 700 manns hafi verið á mótinu
þegar flest var. Mest var um unga
skáta, en einnig var töluvert af
fjölskyldufólki. Settar voru upp
fjölskyldubúðir og er talið að þar
hafi verið um 150 manns.
Á mótinu fór fram flokkakeppni
og einstaklingskeppni i ýmsum
greinum. Ýmis verkefni voru lögð
fyrir skátana, svo sem í skyndi-
hjálp, sprangi, gönguferðum á
eldfjallið o.fl. Fólki var boðið upp
á námskeið I skyndihjálp og
sprangi og margt fleira var a
dagskrá mótsins. Kvöldvökur voru
haldnar öll kvöldin. Var sungið,
farið i leiki og ýmis skemmtiatriði
voru á boðstólum. Virtust allir
skemmta sér vel á þessum kvöld-
vökum. Bjarni gat þess að eftir að
mótinu lauk var strax hafist
handa við að hreinsa mótssvæðið
og á sunnudagskvöldið var ekki
hægt að sjá að þarna hafði farið
fram fjölmennt mót.
Bjarni bað að lokum fyrir
þakklæti til allra þeirra fyrir-
tækja i Vestmannaeyjum sem
veittu aðstoð við undirbúning
mótsins.