Morgunblaðið - 05.07.1984, Síða 16

Morgunblaðið - 05.07.1984, Síða 16
r i 16 M»Pr ) n>í » nrT') / nTrrv'f«T<ar mn « inr/-rT'"<CTri*» MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1984 ■ i- Viö undirritaöir lögmenn, áöur til húsa aö Klapparstíg 40 og Barónsstíg 5, Reykjavík, tilkynnum aösetursskipti. Frá og meö 3. júlí 1984 veröum viö til húsa aö Pósthússtræti 13, Reykjavík. LÖGMENN VIÐ AUSTURVÖLL OTHAR ÖRN PETERSEN HRL. SKARPHÉÐINN ÞÓRISSON HRL. GlSLI BALDUR GARÐARSSON HDL. Pósthússtræti 13, pósthólf 476, 121 Reykjavík, sími 28188 1 -S B Hemlar og hemlakerfi er mikilvægasti öryggisþátturinn í öllum akstri og meðferð ökutækja og vinnuvéla. Þetta vita allir. því sambandi skiftir mestu, sé fyllsta öryggis gætt; að vel sé séð fyrir viðhaldi og umhirðu allri. Þetta vita líka allir. Við erum sérfræðingar í allskyns hemlum og hemlakerfum. Orginal hemlahlutir í allar tegundir bifreiða ÓTRÚLEGA HAGSTÆTT VERÐ. NOTtt) ÞJÓNUSTU FAGMANNA, ÞAÐ TRYGGIR ÖRYGGtt). LLINGf Sérverslun með hemlahluti. Skeifunni 11 Sími: 31340,82740, Athugasemd um laxagegnd — eftir dr. Björn Jóhannesson Sem kunnugt er voraði vel hér- lendis á þessu ári, og því var gróð- ur jarðar og önnur lífsstarfsemi náttúrunnar fyrr á ferð en verið hefur undanfarið. M.a. gekk lax- inn óvenju snemma að landinu og í árnar, enda veiddist yfirleitt vel á fyrstu dorg-dögum stangveiði- manna. Vegna þessarar hagstæðu byrjunar glæðast vonir um gott laxveiðisumar, og er óskandi að þær rætist. En í þessu sambandi langar mig til að vekja athygli á eftirfarandi. I. Veðrátta sumarsins 1984 hefur ekki áhrif á þann laxafjölda sem gengur að landinu á þessu sumri. Heildar-laxaganga að landinu sumarið 1984 er háð þessum þátt- um: 1. Fyrir smálax (1 árs lax f sjó): (a) Magn og „gæði“ (stærð og hreysti) sjógönguseiða sem hurfu úr ánum sumarið 1983; (b) Uppvaxtarskilyrði í hafinu; og (c) Hve mikið af árganginum varð ránfiskum og úthafsveiðum að bráð. 2. Fyrir „vænan“ lax (2ja ára lax í sjó): (a) Magn og „gaeði" sjógönguseiða sem hurfu úr ánum sumarið 1982; (b) og (c) Sömu þættir og um get- ur undir 1. að ofan. Það er svo væntanlega að miklu leyti háð hita og ástandi sjávar, hvenær laxinn gengur að landinu, svo og ástandi ánna, hvenær hann gengur í ferskt vatn. í þessu sam- bandi má geta þeirrar visbend- ingar, að kynþroska lax af hafi gangi í „sams konar“ vatn að því er hitastig og eiginleika varðar (t.d. seltu) eins og var á þeirri stundu sem viðkomandi göngu- seiði hvarf til hafs. Það sýndi sig, t.d., f athugun sem ég gerði í Straumsvík, að seiði hurfu til hafs úr ferskvatni sem var aðeins 4 gráðu heitt og gekk sem kyn- þroska fiskur í sams konar vatn ári síðar. Sé þessi tilgáta rétt, gengur lax þeim mun fyrr í til- tekna á, sem vatnshiti árinnar var lægri þegar viðkomandi göngu- seiði hélt til sjávar. En gangi maður út frá því, að tiltekinn laxafjöldi, t.d. 1000 fisk- ar, komi upp að landinu til þess að ganga í og hrygna í tiltekinni á, þá er það að sjálfsögðu að talsverðu leyti háð veðri og vindi, hvenær að sumrinu laxinn gengur í ána, og einnig í hve ríkura mæli hann læt- ur ginnast af veiðibrellum manns- ins. Varðandi síðara atriðið mætti nefna eftirfarandi tölur fyrir Ell- iðaárnar: Fyrir árin 1935—1973 veiddust að meðaltali á stöng tæp 37% af þeim löxum sem gengu í ^bíeitö bjúfmetb i QÍadeaimu _ c ælkeraverslunin atarmikil braud- (__J Kjötbær, Laugavegi 34a, hefur ávallt gott úrval heitra rétta í hádeginu. Pað kemur sér vel fyrir virmandi fólk og vegfarendur að geta valið á milli 5 heitra rétta hvern virkan dag í hádeginu. 'sneið íhádeginu ogmeð kaffinu. * Hvem virkan dag tilreiða matreiðsluT meistarar Kjötbæjar ríkuleg og gimileg salöt, með besta fáanlega hráefni. Þá má ekki gleyma álegginu. Að minnsta kosti 25 áleggsgerðir em í boði. Þetta er eitthvað ofan á brauð! / júfmeti Kjötbæjar léttir dagsverkið. JLJ Viðskiptavinir Kjötbæjar geta snætt C/i jötbær er „delikatessen" sniðirm heitt Ijúfmetið í versluninni, /V eftir þýskri fyrirmynd. Kjötúrvalið - þar er andrúmsloft sem fellur í Kjötbæ er með ólíkindum gott: sælkerum vel í geð. Safaríkar pylsur og steikur. ^ Eins er hægt að fá matinn í sér- stökum umbúðum sem halda honum heitum. Þessir Ijúfmetisbakkar tryggja góða meðferð á góðum mat. ffijotltœr Laugavegi 34a-Siml 14165 34a wm. p b „Miðað við síðastliðin sumur, sem hafa verið tiltölulega köld, má því búast við, að verði veðr- átta hagstæð út sumarið 1984, stuðli það að öðru jöfnu að góðri veiði smálax sumarið 1986 og á vænum laxi sumarið 1987.“ árnar. Minnsta veiðiálagið var hins vegar 20% en hið mesta 58%. Af framangreindum atriðum er ljóst, að litlu verður spáð um heildarlaxveiði sumarsins, enda þótt hún byrji vel og snemma. II. Hagstæó veðrátta sumarið 1984 eykur að öðru jöfnu laxagengd sum- urin 1986 og 1987. Þau laxaseiði sem á komandi hausti ná ca. 11 sm eða meiri lengd, hverfa til sjávar sem gönguseiði vorið eða sumarið 1985. Það er auðsætt, að í hlýju sumri verður tiltölulega mikil áta og til- tölulega hagstæð vaxtarskilyrði fyrir laxaseiði í ánum, og því verða fleiri seiði sem ná 11 sm lág- marksstærð en í köldu sumri. Þessi áhrif veðráttu komu berlega í Ijós í athugunum sem Veiði- málstofnunin gerði á hlýju sumr- unum 1938 og 1939 og á öðrum kaldari tímabilum. Miðað við sfð- astliðin sumur, sem hafa verið til- tölulega köld, má þvi búast við, að verði veðrátta hagstæð út sumarið 1984, stuðli það að öðru jöfnu að góðri veiði smálax sumarið 1986 og á vænum laxi sumarið 1987. Dr. Björn Jóhannesson var um ára- bil starfsmaður FAO. Opið hús í Norræna húsinu: Fyrirlestur um ísland AÐ VANDA verður opið hús f Nor- ræna húsinu í kvöld, 5. júlf. Þá flytur Haraldur Ólafsson, lektor, erindi um ísland og kallar það Island igár, idag, imorgon. Erindið verður flutt á sænsku. Að loknu kaffíhléi sýna fé- lAgar úr glímudeild íþróttafélagsins Ármanns íslenska glímu, og kemur þessi glímusýning f stað hinnar hefðbundnu kvikmyndasýningar. Opið hús hefst kl. 20.30 og lýkur um 22.30. Bókasafn og kaffistofa hússins eru opin meðan dagskrá stendur. í anddyri Norræna hússins er nú sýning á búningateikningum eftir sænska búningahönnuðinn UUu-Britt Söderlund, sem hann- aði búningaNA f kvikmyndunum Rauða sklkkjan og Paradfsar- heimT, sem teknar voru hér á landi. I bókasafni er sýning á hefðbundnu íslensku prjóni. Sumarsýning Norræna hússins að þessu sinni kallast Landið mitt ísland. Þar lýsa fslensk grunn- skólabörn landi sínu f teikningum. Sumarsýningin er opin daglega milli kl. 14 og 19, og stendur^til 22. júlf. Opið hús verður í Norræna hús- inu alla fimmtudaga fram til 16. ágúst. Dr. Eyþór Einarsson flytur fyrirlestur 12. júlí r.k. um Flóru íslands og sýndar verða myndirn- ar Smávinir fagrir og Þórsmörk. Nanna Hermannsson, safnvörður Árbæjarsafns, flytur fyrirlestur 19. júlí nk., sem nefnist Reykjavík förr och nu, og síðan verður sýnd mynd um Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.