Morgunblaðið - 05.07.1984, Blaðsíða 26
26
ro
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1984
Það var vel mætt í Árbæjarsafn í gær, er bandarísku sendiherrahjónin héldu upp á þjóðhátíðardag Bandaríkjanna undir berum himni. (LJósm. Mbl. Kristján Einarsson.)
Þjóðhátíðardagur
Bandaríkjamanna
í Árbæjarsafni
ÞRÁTT fyrir að gleymst hefði að
ganga frá samningum við veð-
urguðina, varð ekki annað séð
en að jafnt gestir sem gestgjafar
væru glaðbeittir og yndu sér vel í
hófi því, sem sendiherra Banda-
ríkjanna á íslandi, Marshall
Brement, og kona hans, Famela,
héldu undir bemm himni í Ár-
bæjarsafni í gær, á þjóðhátíðar-
degi Bandaríkjanna.
Margt manna safnaðist
þarna saman til þess að halda
upp á daginn, ásamt sendi-
herrahjónunum og löndum
þeirra, og gat að lita fulltrúa
hinna vmsu sviða þjóðlífsins
meðal Islendinganna.
Undir tjaldhimni lék hljóm-
sveit bandaríska sveitatónlist
og gestir, sem flestir voru vel í
stakk búnir til þess að mæta
rigningarúða og léttum strekk-
Thor Vilhjálmsson, rithöfundur
Þeir Ragnar Halldórsson, Gunnar G. Schram og Sigmar B. Hauksson ræddu þjóðmál á túninu.
ingi, gæddu sér á maísstöngl-
um og pylsum, sem skolað var
niður með bjór og öðrum til-
heyrandi veigum. Einhver
hafði á orði, að það væri nokk-
uð djarft að efna til úti-
skemmtunar á erlendum þjóð-
hátíðardegi, þegar kunnugt
væri hvernig veðrið léki ís-
lendinga oft og tíðum á þeirra
eigin tyllidögum. En bætti síð-
an við, að af þessu mætti
draga þann lærdóm, að það
væri um að gera að storka veð-
urguðunum með góðu skapi og
skjólklæðnaði og mætti gjarn-
an gera meira af svo góðu.
— hhs.
Við bjóðumbér \ikuferð
" London
ámárni-
daghm
kemur!
frá kr. 15.573.- pr. mann.
Innifalið ílug, gisting og morgunmatur.
Ferðaskrifstofan Farandi verður
með sérstakar vikufeiðir (pakkaferðir)
til Lundúnaborgar á hverjum mánu-
degi í alit sumar.
Verðið er afskaplega gott, — frá kr.
15.834.-pr. mann. Innifalið í verðinu
er flug, gisting og morgunmatur. Auk
þess útvegum við aðgöngumiða á
hljómleika, í leikhús, á íþróttaleiki
næturklúbba o.m.fl.
Hægt er að velja á milli eftirfarandi
hótela: Cavendish, Regent Crest,
Leinster Towers, Park Lane.
Komið og rabbið við okkur sem
fyrst Pað er alltaf gaman að fá gott
fólk í heimsókn.
ífavandi
Vcsturgötu 4, si'mi 17445
Langanesganga ’84:
Friðarganga gegn fyrir-
huguðum hernaðarfram-
kvæmdum á Norðausturlandi
FRIÐARSAMTÖK kvenna á Þórshöfn og nágrenni gangast fyrir friðargöngu
gegn fyrirhuguðum hernaðarframkvæmdum á Norðausturlandi nk. laugar-
dag, 7. júlf, og hefst hún kl. 14.
Safnast verður saman við flug-
völlinn á Langanesi og mun Dagný
Marinósdóttir húsfreyja á Sauða-
nesi flytja ávarp. Þaðan verður
gengið að Gunnlaugsá, þar sem
haldinn verður stuttur fundur.
Göngunni lýkur við félagsheimilið
Þórsver á Þórshöfn, þar sem aðal-
samkoma dagsins fer fram. Meðal
þeirra sem koma fram eru Berg-
þóra Árnadóttir frá Reykjavík,
Stefania Þorgrímsdóttir frá Garði
í Mývatnssveit, Kristján Þórarins-
son frá Tjörn í Svarfaðardal og
Brynjólfur Gíslason kennari á
Þórshöfn. Einnig koma fulltrúar
Austfirðinga og Vestfirðinga og
flytja ávörp
JC-félog:
Árleg sumarferð á morgun
ÁRLEG sumarferð JC-félaganna á
Reykjavíkursvæðinu verður farin á
morgun. Lagt verður af stað frá
Nesti á Ártúnshöfða kl. 19 og haldið
f Húsafell. Þeim sem heldur kjósa
sjóleiðina er bent á að Akraborgin
fer frá Reykajvík á sama tíma.
Ferð JC-félaganna stendur fram
á sunnudag og ætlar JC-fólk m.a.
að planta um 100 trjáplöntum og
halda grillveislu við varðeld.
Leiðrétt nöfn jökulfaranna
1 baksíðufrétt Morgunblaðsins í
gær þar sem sagt var frá björgun
nokkurra Borgfirðinga á flaki
bresku flugvélarinnar af Eiríksjökli
misrituðust nöfn tveggja mannanna,
Snorra Kristleifssonar á Sturlu-
Reykjum og Snorra H. Jóhannesson-
ar á Augastöðum, en nöfn þeirra
voru hinsvegar rétt tilgreind f frétt
um björgunina á bls. 2.