Morgunblaðið - 05.07.1984, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 05.07.1984, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1984 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JOHN F. BURNS Önugt hugarfar í Moskvu: Kann að endurspegla langtíma fjandskap Á þeim fjórum mánuðum sem liðnir eru síðan Konstantin Chernenko varð leiðtogi Sovétríkjanna, hafa valdhafarnir í Kreml tamið sér svo fjandsamlega afstöðu gagnvart Vesturlöndum, að leitun er á öðru eins frá því að kalda stríðið náði hámarki fyrir þremur áratugum. Aundanförnum mánuðum hefur mátt sjá, hvernig skorið hefur verið á tengsl við Vesturlönd og gripið til ráða, sem nálgast rudda- skap gagnvart opinberum gestum, er lagt hafa áherzlu á kurteisi og málamiðlun f samskiptum við Sov- étríkin. Heima fyrir hefur einnig átt sér stað uggvænleg þróun. Rétt eins og forystan teldi sig engu hafa að tapa til viðbótar i samskiptum sínum við Vesturlönd, þá hefur Andrei D. Sakharov — sá Rússi, sem veröldin hefur látið sig meiru varða en nokkurn annan mann í Rússlandi — verið sviptur síðustu tengslunum við umheiminn, sem hann hefur haft, frá því að hann var rekinn í útlegð til Gorki fyrir fjórum og hálfu ári. Þau hafði hann fyrir atbeina konu sinnar, Yelenu G. Bonner. Opinberlega hefur Chernenko og aðrir forystumenn eins og And- rei Gromyko utanríkisráðherra og Dmitri F. Ustinov marskálkur kennt stjórn Reagans Bandaríkja- forseta um versnandi sambúð. Lítið er þó vitað um starfshætti í Kreml undir stjórn Chernenkos. Sú skoðun er samt útbreidd á með- al vestrænna sendistarfsmanna, að viðhorfin í Kreml nú mótist að minnsta kosti að nokkru leyti af skapgerð hins nýja leiötoga Sov- étmanna. Hann er bóndasonur frá Síberíu, sem hefur sýnt þaö i tím- ans rás, að hann er í rfkum mæli gæddur þeim tilhneigingum, sem eignaðar eru flestum íhalds- sömum leiðtogum Rússa, þar á meðal djúpri tortryggni í garð Vesturlanda, ósveigjanlegu stolti með tilliti til Sovétríkjanna og fljótur til þess að fjandskapast út af öllu, sem taka má sem móðgun eða hótun. Br áðabi rgðaleiðtogi ? Þegar litið er um öxl, þá virðist lítill vafi á því, að Chemenko, sem er 72 ára að aldri, var valinn til þess að taka við af Yuri Andropov sökum þess, að yngri keppinautar hans gátu ekki komizt að sam- komulagi sín á meðal um eftir- mann Andropovs og hinir eldri, sem eru í tengslum við Ustinov og Gromyko, hafa viljað tryggja valdastöðu sina gagnvart leiðtoga, sem komið heföi úr röðum yngri manna. Þetta hefur fengið suma til þess að segja, að Chernenko sé ekki sterkur foringi, sem hafi ekki ann- að fram að færa en timabundna forystu fyrir voldugum flokksjöfr- um eins og Gromyko, sem hver um sig ráði öllu á sínu sviði. Vestræn- ir sendistarfsmenn, sem átt hafa samskipti við Gromyko í mörg ár, segjast aldrei hafa vitað hann jafn óþýðan í samskiptum og nú. Ein skoðunin er sú, að utanrík- isráðherrann, sem er 74 ára gam- all, sé aðal hvatamaðurinn að baki ósveigjanlegrar afstöðu Sovét- manna nú. Samkvæmt þessari skýringu hefur Gromyko meiri áhrif í utanríkismálum nú á vald- atíma Chernenkos en hann hafði nokkru sinni á valdaskeiði þeirra þriggja annarra flokksleiötoga, sem hann hefur starfað með á þeim 27 árum, sem hann hefur verið utanríkisráðherra, en það eru þeir Nikita Krushchev, Leonid Brezhnev og Yuri Andropov. Jafn- framt notfærir Gromyko sér nú aðstöðu sína á þessum vettvangi til þess að ná sér niðri á Banda- ríkjunum fyrir að láta kvíða manna út af mannréttindum, Af- ganistan og öðrum deilumálum hafa áhrif á stefnu sína. Gromyko sá sem talar Vestrænir sendistarfsmenn benda á, að Chernenko sé ekki heill heilsu og að hann hafi sést studdur af aðstoðarmönnum sín- um í Kreml. Þá hafi sá siður Chernenkos á fundum að lesa stutta tilkynningu en láta síðan Gromyko eftir að tala það sem eft- ir er, vakið athygli. Enn aðrir segja, að jafnvel lík- amlega veiklaður maður, sem gegni hinni áhrifamiklu stöðu að- alritara kommúnistaflokksins, sé þess megnugur að gefa tóninn, hindra stefnubreytingu, hefja vini sína til vegs og draga úr valdi þeirra, sem ekki eru í hans eigin hring. Samkvæmt skoðun þessara manna hefur Chernenko örugg- lega haft mikil ef ekki afgerandi áhrif í málum eins og samninga- viðræðunum um kjarnorkuvopn og á þá ákvörðun að taka ekki þátt i Ólympíuleikunum í Los Angeles. Á fyrstu valdadögum sínum, vakti Chernenko nokkrar vonir. Vestrænir leiðtogar, sem hittu hann við útför Yuri Andropovs, lögðu áherzlu á alúð hans og um- mæli um slökunartímabilið á ár- unum eftir 1970, er hann ferðaðist sem helzti ráðgjafi Brezhnevs til Bandaríkjanna og tók þátt i þeirri viðleitni að efla samskipti austurs og vesturs. I febrúar vonuðust vestrænir sendistarfsmenn til þess, að Chernenko tæki undir tilboð Reag- ans forseta um nýjar viðræður. Þessi von dvínaði þó fljótt við margar harðorðar ræður í Kreml, þar sem ítrekaðar voru kröfur Sovétmanna um brottflutning á kjarnorkueldflaugum Bandaríkja- manna frá Vestur-Evrópu sem skilyrði fyrir því, að Genfar-við- ræðurnar gætu hafi’.t að nýju. V arúðarráöstafanir harðlínumanna Sumir töldu þetta vera varúð- arráðstafanir af hálfu harðlínu- manna innan stjórnmálaráðsins og þá einkum Ustinovs marskálks gegn nokkrum tilslökunum gagn- vart Vesturlöndum. Enn aðrir álitu, að sú nákvæmni, sem sam- kvæmt siðvenju hefði einkennt út- förina, hefði skyggt á þann boð- skap, sem Chernenko vildi koma á framfæri. Margir vestrænir sendi- starfsmenn eru komnir á þá skoð- un, að hann hafi ekki verið að leita leiða burt af því öngstræti, sem valdhafarnir í Kreml voru búnir að skapa, er þeir hættu Genfar- viðræðunum, heldur hafi hann verið að mælast til þess, að tekin væri aftur upp slökunarstefna f samræmi við skilning sovézku valdhafanna, en hann er mjög á annan veg en skilningur manna á Vesturlöndum. Samkvæmt þessari skoðun er Chernenko fulltrúi þeirrar kyn- slóðar sovézkra forystumanna, sem tóku upp siökunarstefnu í þeirri trú, að samningar um tak- markanir á vopnabúnaði, aukin verzlun og önnur samskipti við Vesturlönd, sem efldu hagsmuni Sovétríkjanna, gætu náðst án nokkurra meiri háttar tilslakana Rússa sjálfra. Höfundur greinarinnar er t'rétíarit- ari rið The New York Times. tíreinin er birt nokkuð stytt. Chernenlco ásamt félögum. Mynd þessi var tekin 1979 og sýnir Brezhnev sitjandi en Chernenko næstan honum. Að baki standa m.a. fri vinstri: Gromyko, Dobrynin og Ustinov. Stigalisti Alþjóðaskáksambandsins: Fjórir fslendingar með yfir 2500 stig Skák Margeir Pétursson Alþjóðaskáksambandið, FIDE, hef- ur sent frá sér skákstigalita sem gild- ir frá 1. júlí til 31. desember 1984. Sovézki stórmeistarinn 21 árs gamli, Gary Kasparov, heldur efsta sæti sínu á listanum með 2715 stig, en heims- meistarinn Anatoly Karpov er í öðru sæti með 2705 stig. Nokkrir íslenskir skákmenn hafa hækkað mjög mikið frá því á síðasta lista, sem gefinn var út 1. janúar, og má að sögn sérfræð- inga þakka það frammistöðu þeirra á Búnaðarbankaskákmótinu, Reykja- víkurskákmótínu og mótunum í Grindavík og Neskaupstað, sem öll voru haldin á fyrri hluta þessa árs. Karpov og Kasparov eru í sérflokki Sovétmennirnir tveir, sem í sept- ember munu tefla einvígi um heimsmeistaratitilinn, bera höfuð og herðar yfir aðra af sterkustu skákmönnum heims. Samkvæmt listanum eru 22 öflugustu skák- menn heims þessir, í sviga er stiga- tala þeirra 1. janúar sl. 1. Kuparov, Sovétr. 2715 (2710) 2. Karpov, Sovétr. 2705 (2700) 3. Timman, Hollaodi 2650 (2610) 4. Portnch, Ungverjal. 2640 (2625) 5. Korchnoi, Svisa 2635 (2635) 6—7. I'olugajovsky, Sorétr. 2625 (2615) 6—7. Vaganjan, Sovétr. 2625 (2630) 8. Ljubojevk, Júgósl. 2615 (2635) »-10. Hiibner V Þýsltal. 2610 (2620) 9-10. Smyslov, Sovétr. 2610 (2600) 11—12. Tal, Sovétr. 2605 (2620) 11-12. Hort, Tékkóslóvakíu 2605 (2615) 13-14. Beljavslt;, Sovétr. 2600 (2565) 13—14. Ribli, llngverjal. 2600 (2610) 15—16. Anderason, Svíþjóð 2595 (2630) 15-16. Ftaenik, Tékkóslóv. 2595 (2570) 17-18. Spansk;, Frakklandi 2590 (2570) 17-18. Jusnpov, Sovétr. 2590 (2570) 19. P. Nikolic, Júgósl. 2585 (2570) 20—22. Adorjan, llngverjal. 2580 (2570) 20—22. Browne, Bandaríkj. 2580 (2585) 20—22. Petroojan, Sovétr. 2580 (2580) Hinum svonefndu „súper- stórmeisturum", þ.e. skákmönnum með 2600 stig og yfir, hefur fækkað úr 17 í 14 og bendir það í átt til aukinnar breiddar. Þeir Anders- son, Spassky og Englendingarnir Miles og Nunn hafa fallið úr þess- um hópi og aðeins Beljavsky komið í staðinn. Fjórir íslendingar eru í hópi ungra skákmanna sem sækja upp listann. Þeir Jóhann Hjartar- son og Helgi ólafsson eru í 54. til 58. sæti með 2520 stig, Margeir Pét- ursson er í 66. til 72. sæti með 2510 stig og Jón L. Árnason er í 73. til 86. sæti með 2505 stig. Á listanum 1. janúar voru aðeins Jón og Frið- rik Ólafsson í hópi 100 stigahæstu skákmanna í heimi. Aðeins fimm þjóðir eiga fleiri skákmenn en tslendingar í hópi hinna 100 stigahæstu. Eftirtaldar þjóðir eiga fulltrúa í þessum hópi: Sovétríkin 31, Bandaríkin 12, Júgó- slavía 10, Ungverjaland 8, England 7, ísland 4, Holland, V-Þýzkaland og Tékkóslóvakía 3, Svíþjóð, Kan- ada, Danmörk, Búlgaría og Argent- ína 2 og eftirtalin lönd eiga einn mann hvert: Sviss, Frakkland, A-Þýskaland, Filippseyjar, Kól- umbía, Finnland, Kúba, Rúmenía og Spánn. Vegna hinna tíðu móta hér á landi á fyrri hluta ársins hefur Is- lendingum á stigalista FIDE fjölg- að töluvert og eru nú 49 talsins, þar af eru þrjár konur á kvenna- listanum. Alls eru á milli 4.000 og 5.000 skákmenn á listanum, en á hann komast aðeins skákmenn sem hafa 2.200 stig og þar yfir. Margir Islendinganna hafa hækkað mjög verulega, Jóhann Hjartarson þó langmest, en á aðeins sex mánaða tímabili hefur stigatala hans hækkað um 105 stig. Þá hefur Helgi Ólafsson hækkað um 75 stig á sama tímabili og Margeir Pét- ursson um 45 stig. 20 stigahæstu Islendingarnir á listanum eru þess- ir, stigatalan frá 1. janúar er í sviga: 1—2. Jóhann Hjartaraon 2520 (2415) 1—2. Helgi Ólafæon 2520 (2445) 3. Margeir Pétureson 2510 (2465) 4. Jón L Árnaoon 2505 (2500) 5. Friórik Ólafsson 2485 (2495) 6. Guðm. Sigurjóns8. 2480 (2470) 7. Karl Þoreteins 2415 (2375) 8. Ingi R. Jóhannsson 2410 (2410) 9. Ingvar Ásmundsson 2400 (2400) lO.Pálmi R. Pétursson 2370 (n;r) 11. Haukur Angantýsson 2365 (2395) 12. Jón Kristinsson 2360 (2385) 13. Scvar Bjarnason 2345 (2375) 14. Björn Þorsteinsson 2325 (2325) 15—16. Elvar Guómundsson 2320 (2330) 15—16. Jón Þoreteinsson 2320 (2320) 17. Jóhannes G. Jónsson 2315 (2315) 18. Dan llansson 2305 (2320) 19. Linis Jóhannesson 2300 (nýr) Tímaritið Sagnir í nýjum búningi SAGNIR, tímarit um söguleg efni, sem nemendur í sagnfræði við Há- skóla íslands standa að, er nýkomið út og að þessu sinni í mjög veglegum búningi. Uppistaða ritsins er greinar, sem tengjast efninu „Reykjavík og hafið", og eru höfundar samtals fimmtán, sagnfræðingar og sagnfræðinemar. Að auki eru fjór- ar greinar í ritinu, sem ekki tengj- ast meginefni þess. Fram kemur í forspjalli rit- nefndar að á síðastliðnum vetri var haldið námskeið við heim- spekideild Háskóla íslands þar sem nemendur voru þjálfaðir í að semja læsilegan sagnfræðitexta „án þess að slaka á fræðilegum kröfum". Jafnframt hafi verið kennd almenn vinnubrögð við út- gáfu bóka og tímarita og hafi Helgi Þorláksson sagnfræðingur verið leiðbeinandi. „Þótti tilvalið," segir í forspjallinu, „að sameina þetta námskeið útgáfu 5. árgangs Sagna." Sem dæmi um efnisval í grein- unum um „Reykjavík og hafið" má nefna fyrirsagnir eins og: „Var hyskið í þurrabúðunum bjargar- laust með öllu?“, „Brennivínið fær á sig óorð“, „Matföng úr sjó“, „Fjörulallar í Vesturbæ", „Istaka SAGNIR j íbmeitm^Aydni ta-Yxrnfi (x. cw »> á Tjörninni" og „Halaveðrið og, heimili í vanda“. Björn Þorsteinsson prófessor á grein í ritinu sem nefnist „Aum- astir allra" og er fyrirlestur, sem hann flutti á árshátíð Sagnfræð- ingafélagsins; Eggert Þór Bern- harðsson skrifar um „Gullæðið í Reykjavík"; Gísli Kristjánsson um „Stríðsbrölt og stjórnfrelsi" og Bragi Guðmundsson um kennslu í Islandssögu í framhaldsskólum. Með ritinu fylgir efnisskrá 1.—5. árgangs Sagna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.