Morgunblaðið - 05.07.1984, Page 36

Morgunblaðið - 05.07.1984, Page 36
 t^ei ÍJÚL .g aUOAaUTMMH .aiaAJHMUOJlOM T8 36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚLl 1984 + Eiginkona mín, móöir og tengdamóöir, FANNEY JÓNASDÓTTIR, Halgamagrastrsati 51, lést í Fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri 25. júní. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 6. júlí k(. 13.30. Siguröur Eiríksson, Styrkár og Laila, Hákon og Emma, Jónas og Hulda, Sigurjón og Bára, Ásta Svandís og Valur, Rósa Margrét og Ed. t : Maöurinn minn og faölr okkar, ÓLAFUR SIGTRYGGSSON, Vogagaröi 22, Vogum, 3 er látinn. Útförin fer fram frá Kálfatjarnarkirkju föstudaginn 6. júlí kl. 3 ■ síödegis. I Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á orgelsjóö Kálfatjarn- arkirkju. Árný Helgadóttir, Sigtryggur Ólafsson, Guöjón Þór Ólafsson, Inga Hafdís Ólafsdóttir. + i Móöir okkar, tengdamóöir og amma, HILDUR GESTSDÓTTIR frá V(k, sem lést f Sjúkrahúsi Hólmavfkur 30. júnf, veröur jarösungin frá Drangsneskapellu 7. júlf kl. 2 e.h. Börn, tengdabörn og barnabörn hinnar látnu. + Minningarathöfn um manninn minn og fööur okkar, VILHJÁLM BJARNAR, bókavörö, er lést f Ithacha, New York, í ágúst sl., veröur í Fríkirkjunni f Reykjavík, föstudaginn 6. júlí kl. 3. Dóra Bjarnar, Eirfkur, Jón Ingi og Svava. + Eiginmaöur minn, faöir okkar, bróöir og tengdasonur, EÐVARO GEIRSSON, flugvirki, ^ veröur jarösunginn f dag, fimmtudaginn 5. júlí, kl. 15.00 frá Frfkirkjunni f Reykjavfk. Jarösett veröur f Gufuneskirkjugaröi. Sassalja Hrönn Guómundsdóttir, Fjóla Eövarösdóttir, Gair Eðvarösson, Ingibjörg Sólvaig Eðvarösdóttir, Svala Ernestdóttir, Fjóla Siguröardóttir. + Bróöir okkar, mágur og frændi, GUDMUNDUR VIGFÚS ÁSMUNDSSON, bifreiöarstjóri, Búlandi 1, veröur jarösunginn frá Frfkirkjunni f Reykjavfk föstudaginn 6. júlf kl. 10.30. Ingibjörg Ásmundsdóttir, Richard Hannesson, Ragnhildur Ásmundsdóttir, Eyjólfur Guómundsson, Úlfar Ásmundsson, Birna E. Þóröardóttír og börn. + Útför eiginkonu minnar og móöur okkar, GUÐLEIFAR ÞÓRUNNAR GUÐJÓNSDÓTTUR, Hátaigsvagi 4, Raykjavfk, fer fram frá Voömúlastaöakapellu í Austur-Landeyjum, laugardag- Inn 7. júlí kl. 14.00. Guðmundur Guójónsson, Sævar Guömundsson, Helgi Þór Guómundsson. + Útför fósturmóöur minnar, ELÍNAR R. JÓNSDÓTTUR (ÖDDU), frá Höskuldsstööum, fer fram frá Fossvogskirkju 6. júlí kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuö en þeim sem vildu minnast hennar er bent á hjúkrunarheimiliö Sunnuhlíö Kópavogi. Margrát Ellartsdóttir. Minning: Jón Valgeirsson Ingólfsfirði Feddur 2. febrúar 1897 Diinn 31. maí 1984 „Slyngur sláttumaður" gengur um heim allan og „slær allt hvað fyrir er,“ og nú hefur hnigið í val- inn fyrir sigð hans, Jón Valgeirs- son, einn þeirra manna sem um langt skeið var einn af bestu bú- stólpum heimasveitar sinnar, Ár- neshrepps í Strandasýslu. Ævinlega vakna í brjósti manns viðkvæmar kenndir, þegar einhver af gömlu sveitungunum yfirgefur þennan frumlífshnött okkar og flytur til annarra heimkynna, og ekki síst verða þær tilfinningar áleitnar, þegar sá hinn sami hefur verið tengdur manni frændsemis- og vinaböndum. Jón andaðist hinn 31. maí sl. á Landakotsspítala eft- ir stutta legu þar, en hafði áður átt við þungbæra og langæja van- heilsu að stríða. Ég man vel eftir Jóni, þegar ég var drengur á Steinstúni. Hann var þá enn að nokkru í foreldra- húsum í Norðurfirði, en annars oft fjarverandi í atvinnuskyni. Ég kynntist honum ekki þá að ráði, enda aldursmunur mikill. En alltaf man ég hlýlegt viðmót hans í minn garð, ávallt er svo vildi til að leiðir okkar lægju saman. Það er svo ekki fyrr en löngu síðar að ég kynntist Jóni að ráði, hinum miklu mannkostum hans og einlægri hjartahlýju, sem alltaf var hans aðalsmerki. Mig langar hér að geta örfárra æviatriða Jóns Valgeirssonar: Hann var fæddur í Norðurfirði 2. febrúar 1897. Foreldrar hans, Valgeir Jónsson, (f. 18/4 1868, d. 6/1 1949), og Sesselja Gísladóttir (d. 30/10 1941, 66 ára), bjuggu þar allan sinn búskap og áttu 18 börn. Komust 14 til fullorðins ára. Jón var elstur þeirra, sem upp komust. Það varð því hlutskipti hans þegar á unglingsárum að leita sér at- vinnu á fjarlægum slóðum og gerðist sjómaður á fiskiskipum á vertíðum og mun aflahlutur hans þar hafa farið að mestu eða öllu leyti til að styðja og styrkja for- eldra hans við uppeldi og fram- færslu yngri systkina, enda mikil þörfin á, því ekki var auðvelt fá- tæku fólki á þeim árum að fram- fleyta stórum barnahóp. Átti því Jón sinn mikla þátt í að svo vel tókst til sem raun bar vitni, um afkomu heimilis foreldra hans. Og þessu fórnfúsa hjálparstarfi mun hann hafa haldið áfram, allt til þess er hann stofnaði eigið heim- ili. Það var árið 1925, að hann gekk að eiga Elísabetu Óladóttur (f. 29/12 1899. D. 23/11 1982.) Þau eignuðust 8 börn og komust 7 þeirra til fullorðinsára, 4 drengir og 3 dætur. Settust þau að á föð- urleifð hennar i Ingólfsfirði og hófust handa um að bæta jörðina á allan hátt. Með atorku og sam- heldni tókst þeim að byggja upp öll hús og rækta svo til hvern ræktanlegan blett. Jörðin er held- ur landlítil til ræktunar en þótti góð til beitar, hvort heldur var á sumri eða vetri. Var heimili þeirra rómað fyrir myndarskap og hirðu- semi. Gestrisni þeirra var slík að ekki varð á betra kosið, enda bæði létt í lund og hlý í viðmóti, og höfðu unun af að blanda geði við annað fólk. Var og oft gestkvæmt hjá þeim í Ingólfsfirði. Eftir 40 ára búskap á þessari jörð, sem þau höfðu lagt svo mikla rækt við, neyddust þau til að yfir- gefa þennan stað, þar sem þau höfðu notið bestu ára ævi sinnar. Voru þá bæði farin að eldast og heilsa Jóns tekin að bila. Fluttu þau þá suður á Akranes árið 1964 og áttu þar heima í 9 ár, en þangað höfðu áður flutt sum af börnum þeirra, svo að þau gátu þar notið nærveru þeirra og um- hyKRJusemi. Arið 1973 fluttu þau svo á Hrafnistu í Reykjavík, fyrst í smá íbúð í Jökulgrunni en nokkrum ár- um síðar inn í aðalbygginguna, þar sem þau áttu athvarf til hins síðasta. 1 Faöir okkar, tengdafaöir og afi. m TÓMAS GUÐBRANDSSON frá Skálmholti, veröur jarösunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 7. júlí kl. 1 e.h. Jarösett veröur í Villingaholti. Elín Tómasdóttir, Skúli Sigurgrfmsson, Hólmfrióur Tómasdóttír, Jón Guömundsson, Ásta Tómasdóttir, Carl Stafánsson, Anna Marfa Tómasdóttir, Gústaf Lilliandahl, Brynhiidur Tómasdóttir, Pátur Karlsson. t Útför fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa, JÓNS GUNNARSSONAR, fyrrv. ■krífstofustjóra, Hagamal 12, veröur gerö frá Neskirkju föstudaginn 6. júlf kl. 13.30. Helga Jónsdóttir, Erna Jónadóttir, Þóröur Gröndal, Edda Jónadóttir, Ólafur Briam, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum Innilega öllum þeim er sýndu okkur samúö og hlýhug viö andlát og útför elginkonu minnar, móöur okkar og tengdamóöur, GUORÚNAR SIGURBORGAR KRISTBJÖRNSDÓTTUR, Hólmgaröi 43, Raykjavík. Friöþjófur Jónsson, Bragi Friöþjófsson, Svala Jónsaóttir, Sigurborg Bragadóttir, Karl Helgaaon, Heiöar Þorlalfaeon, Hulda Þorvaldsdóttir. Það var árið 1960 síðast í júni, að ég lagði leið mína norður í Ár- neshrepp, svo sem oft áður. Kom ég gangandi i Ingólfsfjörð undir kvöld og naut gestrisni Jóns og El- ísabetar, svo sem vænta mátti. Dvaldist mér þar lengi við veit- ingar og ánægjulegar samræður enda þeim báðum einkar lagið að halda svo á málum, að gesti var unun að njóta nærveru þeirra og glaðværðar. Höfðu þau hjón Jón og Elísabet þá bætt jörðina á allan hátt, svo sem fyrr segir. Var auðsætt á öllu að hér hafði verið að verki fólk, sem lagt hafði fram vit og krafta til að búa svo í haginn fyrir fram- tíðina, að vel mætti við una. Þótt síðar hagaði svo til, með breyttum tímum og breyttum aðstæðum, að ekki yrði notið svo lengi, sem hug- ur þeirra hefði helst kosið. Setnt þetta umrædda kvöld bauðst Jón til að skjóta mér undir Hlöðurnar á trillunni sinni, en að Steinstúni hafði ferð minni verið heitið. Veður var yndislegt er við brunuðum út Ingólfsfjörðinn. Hnígandi sólin glampaði á haf- flötinn og vafði haf og hauður ljóma sínum. Jón stakk þá upp á því, hvort mér þætti ekki gaman að skreppa norður í ófeigsfjörð, úr því veðrið væri svona kyrrt og fagurt. Ekki gat ég slegið hendinni á móti svo góðu boði og var stefn- unni beint þangað. Lentum við þar um ellefuleytið. Eftir ánægjulega viðdvöl í Ófeigsfirði, veitingar og viðræður við húsbændur og aðra heimamenn, fórum við aftur af stað og lentum undir Hlöðunum þar sem ég fór í land, en Jón hélt heim á leið. Stóð ég lengi fullur þakklætis og horfði á eftir honum inn fjörðinn á litlu trillunni, sem klauf spegilfáðan vatnsflötinn óðum. Síðar, er þau hjón voru flutt á Akranes, áttum við Aðalheiður kona mín, þess kost að koma þar heim til þeirra eitt sinn og áttum með þeim ógleymanlega kvöld- stund. Alúð þeirra og hlýleiki er okkur enn í fersku minni. Ég átti þess og kost síðar að hitta þau nokkrum sinnum, eftir að þau fluttust til Reykjavikur, en þrátt fyrir elli og lasleika, var þar ávallt að mæta sömu hjartahlýj- unni og einlægninni og glaðværð- inni eins og alltaf áður. Elísabet er nú horfin af sviði jarðlífsins fyrir tveimur árum. Og nú hefur Jón, þessi góði drengur, haldið á sömu slóðir. Veit ég að hann muni uppskera svo sem hann hafði til sáð með umhyggju sinni og fórnfýsi, sem hann var svo ríkur af, og sem hann ávallt lét í té af heilum huga, þeim sem hann mátti lið veita á jarðlífsdögum sínum. Á landinu fagra í ríki alheims- ins, þar sem hann nú mun gista, hittir hann aftur gengna ástvini og fagnar nýrri og betri tilveru, þar sem kröm og krankleiki þekk- ist ekki en áfram er haldið til æ fegra lífs og til meiri þroska. Ég er þakklátur fyrir að hafa átt þess kost að kynnast að nokkru þessum góða frænda mínum, glað- værð hans og hlýlegu viðmóti, og ég votta afkomendum hans og nánum ættingjum samúð. Ég veit að við getum öll glaðst með honum eftir unna æviþraut og samfagnað með honum hinum nýja áfanga, sem hann nú hefur hafið á óþrotlegum framlífsferli. Ingvar Agnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.