Morgunblaðið - 05.07.1984, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 05.07.1984, Blaðsíða 39
^ei UCa ,a auoAQUTMMH .aiaAjanuoaoM MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1984 8£ 39 fclk í fréttum Jagger líkar ekki sölu- mennskan með dótturina + Mick Jagger kemur sér enn undan því aö kvænast barnsmóö- ur sinni, Jerry Hall, og raunar er hann ekki alveg sóttur við hana þessa stundina. Honum finnst hún nefnilega vera dálítið kr®f f sölumennskunni og varan, sem hún hefur til sölu, er dóttir þeirra, Elizabeth Scarlet. Jerry notar hvert tækifæri til aó selja myndir af dótturinni og hefur margoft sjónvarpsviótöl og þess háttar. Hún heldur þvi fram aó þaó sé ekki á vísan aó róa þar sem Mick Jagger er og þess vegna verói hún aó hafa úti öll spjót til j»ess aó tryggja framtfó sína og barnsins. Auk þess komi Jagger þetta ekk- ert við þvf aó meóan þau eru ekki gift sé hún forráöamaóur stelp- unnar. Elizabeth er ekkl fyrsta barn hans Jaggers því að hann á tvær dætur aðrar, Karis 13 ára, sem hann átti meö rokksöngkonunni Marsha Hunt, og Jade, 12 ára, með fyrrum konu sinni, Biöncu. Þegar þau slitu samvistum varð skilnað- urinn Jagger svo dýr, aö hann hét þvi aö kvænast aldrei aftur en þrátt fyrir það segja sumir, að þau Jerry hafi raunar látið gefa sig saman í maí í vor með mestu leynd. Hvorugt þeirra vill þó viöurkenna það. Stoltir foreldrar með frumburöinn. COSPER David Frost pabbi í fyrsta sinn + „Þetta er stærsta stundin í Iffi mínu,“ sagöi David Frost, sjónvarpsmaöurinn kunni, þegar hann lýsti hvernig þaó var aö vera viðstaddur fæöingu sonarins Miles Paradine, hans fyrsta barns. Móóirin er laföi Carina Fitzalan-Howard, 32 ára gömul dóttir hertogans af Norfolk, en David er 45 ára gamall. David var áöur kvæntur Lynne Frederic, ekkju Peter Sellers, og áttu þau barn í vændum en þvf miöur missti hún fóstriö. Skömmu síöar skildu þau. Þegar Carina gekk meö var David ákveöinn f að ekkert kæmi fyrir og var vegna þess vakinn og sofinn yfir velferð hennar allan tímann. Nú þegar barniö er komið í heiminn bíöa bleiurnar eftir honum og barnsgráturinn og segist David bara hlakka til. + David Taylor hefur þaö starf í Chessington-dýragaröinum í Eng- iandi aö hiröa fílana og þaö er hvorki lítiö verk né lööurmannlegt. Þeir þurfa t.d. aö fara reglulega í fótsnyrtingu því aö ef þaö er ekki gert aflagast á þeim hófarnir, sem eru fimm á hverjum fæti eöa 20 alls á hverjum fíl. Engar naglaklippur koma hér aö neinum notum, jafnvel þótt þær væru af stærstu gerö og þess vegna notar David smergel- skífu til aö snyrta á fílunum lappirn- ar. AQtaf á fóstudögiim Hinn nýi karlmadur — er hann til hér? — Sagt frá nýrri gerð karlmanna, sem eru orðin nokkuö áberandi í USA og þeirri spurningu velt fyrir sér hvort hina nýju gerð sé að finna á íslandi. Roman samur viö sig — Viötal við leikstjórann Roman Polanski og birtur úrdráttur úr ævisögu hans, sem er nýútkomin. Fornbílasýning í Frakklandi — sem blaðamaður Mbl. sótti á dögunum. Föstudagsblaðið ergott forskot á helgirta i___________________s s___________________ AUOLVSiNÖASTOFA KRtSTlNAR HF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.