Morgunblaðið - 14.07.1984, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 1984
31
félk í
fréttum
Koo Stark
á leiðinni upp
að altarinu
+ Koo Stark, scm varð heimskunn fyrir kunningsskap
sinn við Andrew prins, ætlar að giftast í október nk.
Heitir mannsefnið hennar Tim Jefferies, 22 ára gamall
milljónanueringur og sex árum yngri en Koo.
Ríkidæmið hans Tims kemur frá frímerkjum, en
afi hans stofnaði á sínum tíma frímerkjaverslun,
sem nú er sú stærsta í Englandi. Tim situr þó ekki
með hendur í skauti og bíður eftir arfinum. Þvert á
móti þykir hann mjög duglegur og hefur frá 19 ára
aldri unnið í verslun með hljómflutningstæki.
Þau Tim og Koo hittust fyrir fjórum mánuðum og
hafa síðan verið óaðskiljanleg. Hún sækir hann
daglega í vinnuna á rauða Ferrari-bílnum hans, sem
kostaði um 1.300.000 kr. ísl., og nú fyrir nokkru komu
þau fyrst fram saman opinberlega. Brúðkaupið verð-
ur í október eins og fyrr segir og þar sem Koo er
áhugamaður um ljósmyndun vill hún, að vel verði
vandað til myndatökunnar við það tækifæri. Þess
vegna hefur hún fengið til þess ljósmyndarann
Norman Parkinson, eftirlætisljósmyndara Elísabet-
ar drottningar.
Lýðveldis-
stofnunar
minnst
í Póllandi
+ Pólsk-íslenska vináttufélagið í Varsjá í Póllandi
minntist þess nú nýlega, að 40 ár eru liðin frá lýðveld-
isstofnun á íslandi. Var af því tilefni efnt til tónleika og
Ijóðalesturs í höggmyndasafninu í Lazienki í Varsjá.
Á tónleikunum fluttu píanóleikarinn Joanna Wi-
eczorek og fiðluleikarinn Jaroslaw Pietrzak verk eft-
ir íslensku tónskáldin Karl Ottó Runólfsson, Helga
Pálsson og Hallgrím Helgason og til að leggja
áherslu á vináttu þjóðanna voru einnig flutt verk
eftir Chopin, eitt merkasta tónskáld Pólverja. Barri-
tónsöngvarinn Stanislaw Kliczkowski söng einnig
óperuaríur eftir S. Moniuszko, sem er starfandi
tónskáld við pólsku þjóðaróperuna.
Alexandra Zawieruszanka, leikkona við Þjóðleik-
húsið í Varsjá, las upp úr ljóðum íslenskra skálda,
þeirra Jónasar Hallgrímssonar, Stephans G. Steph-
anssonar og Davíðs Stefánssonar, og þótti lestur
hennar mjög eftirminnilegur sem og tónleikarnir.
Á meðfylgjandi mynd er A. Zawieruszanka, leik-
kona, sem flutti ljóð íslenskra skálda, og S. Ziet-
owski, formaður Pólsk-íslenska vináttufélagsins.
COSPER
Nú skal ég segja þér hvernig ég fer að því að svíkja
undan skatti.
+ Boy George og hljómsveitin
hans, Culture Club, sóttu nú ný-
lega um leyfi til hljómleikahalds í
Sovétríkjunum en fengu stutt og
laggott nei sem svar við umsókn-
inni. „Gömlu mennirnir í Kreml
eru hræddir um, að sovéskur
æskulýður komist að raun um
hvers hann fer á mis,“ sagði Boy,
scm nú er nýkominn frá því að
leggja Ástralíubúa að fótum sér.
Geðhjálp með síma-
þjónustu í haust
GEÐHJÁLP hefur ákveðið að taka
upp símaþjónustu nú ( haust. Hug-
myndin með þessari þjónustu er að
gefa fólki kost á að hringja og tjá sig,
liggi því eitthvað á hjarta.
Þetta kemur fram í frétt frá
stjórn Geðhjálpar, þar sem enn-
fremur segir að nokkrir félagsmenn
hafi lengi sýnt þvf áhuga að koma
slíkri símaþjónustu á og einnig
svonefndu heimsóknarliði, sem
mundi m.a. vitja fólks í heimahús.
Þá segir í fréttinni að Flugleiðir
veiti þeim sem hafa 75% örorku eða
meira afslátt af fargjöldum innan-
lands.
I sömu frétt er greint frá áhuga
félagsmanna á að gefa út félagsblað,
sem innihaldi ýmiskonar gagnrýni,
sögur og fleira og er þeim sem hafa
áhuga á að fá efni birt í blaðinu
bent á að hafa samband við Ólav
Lindtveit að Austurgötu 29 í Hafn-
arfirði.
Lækning
— Lausn
— Frelsi
Lynn Carey frá Kanada pre-
dikar og biöur fyrir sjúkum á
samkomum okkar í Brautar-
holti 28, laugardag-, sunnu-
dags- og þriðjudagskvöldið
nk„ öll kvöld kl. 20.20. Not-
aöu tækifæriö því Jesús er
svariö.
Nýtt líf
Kristið samfélag
VINNAN
SÍÐUMÚLA 29 - SÍMI34411