Morgunblaðið - 19.07.1984, Qupperneq 17
Afmæliskveðjæ
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 1984
17
hæsta gæöaflokki.
Einföld, formfögur hönnun.
Sænskt listahandbraqð eins og þaö gerist best.
Þolir þvott í vél, springur ekki né kvarnast. Hagstætt verö. Póstsendum
Kosta' ^ J r a Bodal v J
Bankastræti 10 — Sími 13122
Friðaráætlun
milli Araba
*
og Israela
Ammin, 17. júlf. AP.
YASSER Arafat, leiðtogi
Frelsisfylkingar Palestínu,
sagði í dag, að Javier Perez de
Cuetlar, aðalframkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna,
hefði á takteinum nýja friðar-
áætlun milli Israela og araba.
„Við höfum fallizt á þessa
áætlun og de Cuellar er nú að
ræða við stjórnvöld í Moskvu
um þessa áætlun," sagði Ara-
fat á fundi með fréttamönnum
í dag. Hann sagði það þó ekki
tímabært að svo stöddu að gera
grein fyrir einstökum atriðum
þessarar friðaráætlunar.
Eysteinn Tryggvason
jarðfræðingur 60 ára
Það er tæplega viðeigandi að
tefja lengi við skriftir þó að maður
mér kunnugur fylli tug. Þess hátt-
ar tímamót gefa þó tilefni til lítill-
ar kveðju, einkum ef kveðjan rúm-
ar einhver þau orð, sem ekki verða
sögð í daglegri önn, en mega
gjarna komast til skila á hátíðis-
degi.
Fáa menn þekki ég, sem dylja
sveimhugann í sjálfum sér betur
en Eystein Tryggvason. Þó grunar
mig að töfrar þingeyskrar náttúru
hafi átt drjúgan þátt f að móta
sálina í hlédrægum unglingi. Það
er andstætt lifsreglum Eysteins
Tryggvasonar að blaðra um það,
sem maður veit lítið eða ekkert
um, en einhver sagði mér að þessi
unglingur hafi vakið eftirtekt
kennara síns á Laugum fyrir sér-
staka hæfni í reikningi. Það er
tæplega i frásögur færandi ef ekki
fylgir önnur vitneskja. Kennarinn
við menntastofnun á íslenskum
útkjálka var nýorðinn doktor frá
stærðfræðiskólanum f Göttingen
og það á þeim tima, þegar þessi
skóli reiknaði heiminn inn i atóm-
öld. Vera má að Leifur Ásgeirsson
hafi flutt andblæ þeirrar sögu
norður f Reykjadal, þar sem mót-
tækilegur unglingur fór að hugsa
um að helga lff sitt vfsindum. Mér
er fullljóst að Eysteinn grettir sig
og kallar svona hugleiðingar óljós-
ar spekulasjónir, sem hafa lftinn
stuðning í mælanlegum stað-
reyndum. Rétt. Hinu getur Ey-
steinn ekki neitað að unglingur að
norðan, sem ákvað að fara f lang-
skólanám í náttúruvisindum um
það leyti sem lýðveldi var stofnað,
hlýtur að vera óforbetranlegur
sveimhugi, þrátt fyrir alla
stærðfræðilega rökvfsi.
Ætli það hafi ekki verið 1964
eða 1965 að ég gisti við annan
mann í tjaldi uppi í öskju og veðr-
ið með lakasta móti, að lokum svo
slæmt að við hörfuðum i skálann f
Herðubreiðarlindum. Þar var þá
fyrir hópur manna, sem lfka höfðu
flúið í skjól. Eysteinn Tryggvason
og hans menn voru að mæla hreyf-
ingar jarðskorpunnar f öskju.
Eysteinn kominn alla leið frá
Tulsa i Oklahoma, þar sem hann
gegndi prófessorsstöðu, en kom
heim á sumrin að mæla fóstur-
jörðina. Þetta voru fyrstu kynni
og skildu lftið eftir annað en upp-
lýsingar um staðreyndir mæling-
anna. Nokkrum árum seinna frétt-
ist að Eysteinn væri að koma
heim, alkominn, og fer að vinna
við Háskóla Íslands. Enn ein sönn-
un þess að maðurinn er óforbetr-
anlegur sveimhugi. Um sama leyti
var Norræna eldfjallastöðin sett á
laggirnar og ekki leið á löngu uns
Eysteinn var þangað kominn og
byrjaður að mæla Kröfluelda. Þá
fyrst hófust kynni mín af Eysteini
fyrir alvöru.
Engin stofnun er betri eða verri
en samanlagðir hæfileikar starfs-
fólksins gefa tilefni til. Aðrir
verða að dæma hvort stofnunin
hafi í heild sinni gegnt ætlunar-
verkinu með sómasamlegum
hætti. Þó er víst að hlutur Ey-
steins verður óhjákvæmilega
þungur á þeirri vogarskál og allt
til betri vegar. Hann sameinar f
senn hugkvæmni f verkefnavali og
við lausn erfiðra spurninga, og
ótrúlega þrautseigju og vinnu-
semi. Þegar þar við bætist skýr
hugsun og hæfilegt virðingarleysi
fyrir ríkjandi kenningum, ásamt
fyllstu virðingu fyrir mældum
stærðum, þá fer ekki hjá því að
afrakstur vinnunnar sé traustur
og mikill að vöxtum.
Starfsfólk og styrkþegar Nor-
rænu eldfjallastöðvarinnar taka
undir óskir um góðan afmælisdag
og afkastamikla framtíð.
Guðmundur E. Sigvaldason
Bindindismótið Galtalækjarskógi
Verslunarmannahelgin
3. — 6.ágúst 1984