Morgunblaðið - 25.07.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.07.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1984 Ljósm./ FriÖþjófur. Þrjár af fjórum flugvélum sem lentu á Akureyrarflugvelli vegna þoku í Reykjavík og Keflavík á mánudagskvöld. Þröng á þingi á Akureyri Viðeyjarhátíð: Endanlegt leyfi gefíð út í dag ÞOKA varð þess valdandi að flug- vellirnir í Reykjavík og Keflavík lok- uðust á mánudagskvöldið og var allri flugumferð beint til Akureyrar. Þangað komu 4 flugvélar, tvær Boeing-þotur og tvær F-27 vélar. Ein þessara véla var kvöldvélin frá Ak- ureyri, sem þurfti að snúa við og lenti hún aftur á Akureyri um kl. 22.30. í þessari vél voru margir Ak- ureyringar sem gátu farið inn í bæ, þegar séð var að ekki yrði reynt að fljúga fyrr en í gærmorgun. Stuttu seinna lenti Boeing-þota Flugleiða frá Narssarssuaq með um 70 farþega og rétt fyrir kl. 23.00 lenti F-27 vél sem var að koma frá Kulusuk með 40 farþega. Að sögn Gunnars Odds Sigurðs- sonar stöðvarstjóra Flugleiða á Akureyri var orðin þröng á þingi þegar hér var komið sögu vegna þess að fyrir voru á vellinum vélar frá Flugvélagi Norðurlands og ein erlend þota. Síðasta flugvélin, áætlunarflugvél frá Kaupmanna- höfn og Osló, lenti um kl. 1 eftir miðnætti. I henni voru 65 farþegar og varð að leggja henni utarlega LANDSVIRKJUN hefur tekið 622 milljóna króna lán í Japan til að greiða upp eldri og óhagstæðari lán vegna virkjunarframkvæmda Landsvirkjunar. Samningurinn var undirritaður í London milli Landsvirkjunar og Mitsui Trust & Ranking Co. Ltd., og ellefu ann- arra japanskra banka og lána- stofnana. í japönskum yenum er lánið að fjárhæð 5 milljarðar. Af hálfu Landsvirkjunar und- irrituðu samninginn Halldór Jónatansson, forstjóri fyrirtæk- isins, og Árni Grétar Finnsson, hrl., sem situr í stjórn Lands- Hafnarfjörður: Alvarlegt umferðarslys ALVARLEGT umferðarslys varð um kl. 10.30 í gærmorgun þegar bifreið, sem ekið var norður Reykjanesbraut, var ekið á Ijósastaur á móts við Víði- dal. Eftir að hafa ekiö á staurinn fór bifreiðin yfir nokkurt stórgrýti áður en hún féll hálfan fimmta metra ofan í húsagarð. Ökumaðurinn, 57 ára gömul kona, sem var ein í bifreiðinni, slasaðist mikið. Hlaut m.a. skurði í andliti auk þess sem bringubein brotnaði. Konan var flutt rakleiðis á slysa- deild. Tildrög slyssins eru óljós en bifreiðin er talin vera gerónýt. við flugbrautina, því ekki var pláss við flustöðvarbygginguna. „Starfsfólk Flugleiða á Akur- eyrarflugvelli var á vakt í alla nótt og reyndi eftir megni að gera dvöl farþegana þægilega og veita mat og drykk að vissu marki. Ekk- ert pláss var á hótelunum á Akur- eyri svo farþegarnir urðu að dvelja annað hvort í flugstöðvar- virkjunar. Lánstíminn er tíu ár og vextir 8,1% á ári. byggingunni eða i þotunum. Það var lán í óláni að þoturnar voru ekki fullsetnar og gátu því flestir farþegarnir fengið eina sætaröð og lagt sig,“ sagði Gunnar Oddur Sigurðsson. „Fólkið tók þessu vel, enda er það svo að þegar um veður er að ræða skilur fólk að það er ekkert í okkar valdi, sem hægt er að gera til þess að breyta því.“ Á árinu 1983 voru rúmlega 77 þúsund tonn af fljótandi áli fram- leidd i kerskálunum, en það er 87,5% af afkastagetu. Steypuskál- inn framleiddi rúmlega 44 þúsund tonn af hleifum og tæplega 32 þús- und tonn af börrum eða samtals 76.077 tonn af söluframleiðslu. Heildarsölur áls námu 82.523 tonnum. Útskipað var tæpum 107 þúsund tonnum, þar af voru 66,8% flutt út til landa Efnahagsbanda- lagsins, 27,4% til EFTA-landa og 5,8% til annarra landa. Skipað var út um 30 þúsund tonnum af áli sem safnast höfðu upp og að mestu verið seld á undanförnum tveimur árum. Hreinar sölutekjur GERT er ráð fyrir að lógreglan í Reykjavík gefi í dag út formlegt og endanlegt leyfi til skemmtanahaldsins í Viðey um verslunarmannahelgina. Mótshaldararnir, Magnús Kjartans- son og Eggert Sveinbjörnsson, munu fyrir hádegið í dag leggja fram þá 200 þúsund króna tryggingu fyrir lög- gæslukostnaði, sem embætti lög- reglustjóra hefur gert að skilyrði fyrir leyfisveitingunni, að því er þeir sögðu í samtali við blaðamann Mbl. í gær- kvöld. Hátíðargestir munu væntanlega byrja að koma í eyjuna upp úr há- degi á föstudaginn 3. ágúst. Þá um kvöldið verður dansleikur fram eftir nóttu. Á laugardaginn verða sam- felldir tónleikar allan daginn, skrykkdansarar keppa sín á milli og um kvöldið verður varðeldur, flug- eldasýning og dansleikur. Á sunnu- daginn er fyrirhugað að hafa sér- staka hátíðardagskrá og þá geta gestir fylgst með hópsiglingu smá- báta, seglbrettamenn sýna kunnáttu sína og sjóskíðamenn bregða á leik. Verið er að byggja skemmtipalla námu tæpum 2,6 milljörðum ís- lenskra króna. Rekstrarreikning- ur fyrir allt árið 1983 sýnir rúm- lega 325 milljóna króna tap eftir gjaldfærslu framleiðslugjalds. Af- skriftir nema rúmum 533 milljón- um króna og launakostnaður er tæplega 304 milljónir króna. I árslok 1983 voru starfsmenn ÍSAL 609 talsins, þar af 109 við stjórnun og skrifstofustörf, 482 fastráðnir í verksmiðju, 5 nemar og 13 ráðnir tímabundið. Á aðalfundi íslenska álfélags- ins, sem haldinn var 27. júlí 1983, sagði dr. Paul H. Miiller sig úr stjórn félagsins. í stað hans var dr. Dietrich N. Ernst skipaður í stjórnina. Dr. Ernst Bosshard var skipaður stjórnarmaður í stað Wolfgang Capitaine sem lést á ár- inu. A aðalfundinum rann út um- boð Ragnars Árnasonar, en í hans stað skipaði iðnaðarráðuneytið Magnús Oskarsson. á austanverðri eynni og merkja tjaldstæði, að því er Magnús Kjart- ansson sagði í gær. „Við eigum að geta tekið á móti allt að þúsund tjöldum en vegna þess hve hátíð- arsvæðið er skammt frá borginni og samgöngur verða tíðar teljum við ekki ólíklegt að ýmsir muni gista heima og vera í Viðey á daginn,“ sagði hann. Magnús sagði að svo að hátíðin stæði undir sér þyrftu gestir að verða um tvö þúsund. Aðgöngu- miðaverð fyrir alla dagana verður 1200—1400 krónur. Iðnaðarbankinn: Ragnar Önund- arson ráðinn bankastjóri BANKARÁÐ Iðnaðarbanka íslands hf. ákvað á fundi sínum síðastliðinn föstudag að ráða Ragnar Önundar- son í stöðu bankastjóra frá fyrsta ágúst næstkomandi. í frétt frá Iðn- aðarbankanum segir, að ákvörðun þessi sé undanfari frekari skipu- lagsbreytinga hjá Iðnaðarbankan- um, sem aukning umsvifa bankans síðustu misserin kalli á. Þá segir í frétt bankans, að Ragnar hafi hafið störf í hagdeild bankans 1976 að loknu námi í viðskiptadeild Háskóla íslands. Hann hafi verið ráðinn aðstoðar- bankastjóri Iðnaðarbankans árið 1979. Ragnar er 31 árs, kvæntur Áslaugu Þorgeirsdóttur og eiga þau tvo syni. Náttúruvemdarráð: Samstarf um málefni friðlands Hornstranda ávallt verið gott Athugasemd vegna ályktunar sýslunefndar N-ísafjarðarsýslu NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ hefur sent Mbl. athugasemd vegna ályktunar sýslunefndar N-ísafjarðarsýslu. Náttúruverndarráð bendir á að sam- kvæmt lögum nr. 47/1971 um náttúruvernd getur Náttúruverndarráð ekki friðlýst landsvæði einhliða né breytt reglum um friðlýst svæði nema í samráði og með samþykki landeigenda og annarra rétthafa viðkomandi landsvæðis. Þegar Hornstrandafriðland var stofnað 1975 höfðu því farið fram ítarlegar viðræður við landeigendur, sem stofnuðu m.a. með sér félagsskap, Land- eigendafélag Sléttu- og Grunna- vikurhrepps (LSG), til viðræðna við Náttúruverndarráð um und- irbúning að stofnun friðlands. Allt frá stofnun friðlandsins hefur ávallt verið gott samstarf milli þessara aðila um málefni friðlandsins. Á sameiginlegum fundi Nátt- úruverndarráðs og stjórnar LSG 1983 var samþykkt að taka regl- ur friðlandsins til endurskoðun- ar m.a. í ljósi síaukins ferða- mannastraums um svæðið og til að tryggja enn betur en verið hefur virkt samband þessara að- ila og rétt landeigenda. Var sam- þykkt að auglýsa eftir athuga- semdum í Lögbirtingablaðinu og birtist auglýsingin þann 4. apríl sl. f niðurlagi hennar segir orð- rétt: „Samkvæmt 36. gr. náttúru- verndarlaga er hverjum þeim, sem verður fyrir fjárhagstjóni vegna náttúruverndaraðgerða, veittur réttur til skaðabóta. Náttúruverndarráði er jafn- framt, samkvæmt 30. og 31. gr. laganna, skylt að gefa landeig- endum, ábúendum og öðrum rétthöfum kost á að kynna sér friðlýsingu, og koma á framfæri mótmælum eða gera bótakröfur. Er það nú gert með þessari aug- lýsingu og skulu kröfur hugsan- legra rétthafa berast skrifstofu Náttúruverndarráðs innan fjög- urra mánaða frá birtingu aug- lýsingar þessarar." Tími til að skila inn athuga- semdum rennur því út 4. ágúst nk. og mun Náttúruverndarráð í samráði við stjórn LSG fara yfir þær athugasemdir sem borist hafa. Þá er hugsanlegt að regl- urnar breytist í samræmi við óskir landeigenda eða vegna þess að sýnt þyki að þær muni á ein- hvern hátt ganga á eignarrétt manna umfram þeirra eigin óskir. Ljóst er að það er þessi aug- lýsing sem er undirrótin að fyrr- nefndri ályktun sýslunefndar N-Isafjarðarsýslu. Náttúru- verndarráð leyfir sér hins vegar að láta öðrum eftir að dæma um réttmæti hennar og hvort i henni felist „Ofstjórnartilhneig- ing , heimild um „nánast óbundnar hendur um setningu reglna" eða að Náttúruverndar- ráð hafi „óhæfilegt vald“. Tap ÍSAL 1983 rúmlega 325 millj. ÁSTAND á álmarkaði batnaði verulega á árinu 1983 og mark- aðsverð áls, sem fallið hafði stöðugt frá 1980, hækkaði ört á fyrsta ársfjórðungi, en náði þó ekki hæsta verði ársins 1980. Þetta kemur m.a. fram í ársskýrslu íslenska álfélagsins hf. fyrir árið 1983 og ennfremur kemur fram, að tap félagsins það ár, samkvæmt rekstrarreikningi, var rúmlega 325 milljónir króna. 622 milljóna kr. lán til að borga skuldir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.