Morgunblaðið - 25.07.1984, Page 3

Morgunblaðið - 25.07.1984, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLl 1984 3 Fjalakötturinn minnkar mei degi hverjum. Morgunblaðið/Júlíus. Samtökin Níu líf um niðurrif Fjalakattarins: „Menningar- sögulegt slys“ MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá samtökunum Níu lífum, þar sem þau lýsa yfir harmi sínum vegna þess, „að svo virðist sem eijandi Fjala- kattarins hafi stigið afdi iiaríkt skref í þá átt að rífa húsið.“ Fer fréttatilkynning samtak- anna hér á eftir: Samtökin Niu lif harma þaö mjög, að svo virðist sem eigandi Fjalakattarins hafi stigið afdrifa- ríkt skref í þá átt að rífa húsið. Samtökin hafa ítrekað reynt að komast að samkomulagi við eig- anda hússins. Á fundi með eigand- anum 8. mai sl. lýsti hann fyrst yfir því, að húsið og lóðin væru ekki til sölu, en hins vegar myndi hann ekki ráðist í niðurrif að svo Flugvöllur í Borgarnesi Borgarnesi, 23. júlí. NOKKRIR flugáhugamenn í Borg- arnesi hafa hafið gerð flugvallar f Kárastaðalandi skammt fyrir ofan Borgarnes. Enginn flugvöllur er fyrir í Borgarnesi. Að sögn Theódórs Þórðarsonar lögreglumanns i Borgarnesi verð- ur þetta grasbraut, 500 m löng, en með möguleikum á lengingu. Er nú unnið að þurrkun og plægingu og vonaðist hann til að hægt yrði að sá í brautina i sumar. Theódór sagði að ekki væru neinar flugvél- ar í Borgarnesi, enda engin aö- staða þar til en nokkrir menn hefðu sólópróf og fleiri volgir. Sagði hann að þessi hópur sem ynni að flugvallargerðinni myndi væntanlega stofna með sér félag um flugvöllinn þegar hann væri lengra kominn og jafnvel um byggingu flugskýlis og kaup á flugvél. Fyrsta lendingin á Kára- staðavelli átti sér stað fyrir skömmu er þar lenti véldreki frá Laxárholti á Mýrum. HBj. stöddu. Samtökin komu þá fram með tvær hugmyndir til bjargar þessu máli. í fyrsta lagi að sam- tökin tækju húseignina á leigu til skamms tíma, þannig að eigand- inn yrði ekki fyrir fjárhagsútlát- um vegna eignar sinnar. Hins veg- ar, ef stefnt yrði að niðurrifi eigi að síður, að því yrði hagað á þann veg, að fjalirnar yrðu ekki skemmdar, þannig að ekki yrði útilokaður sá möguleiki að hægt væri að koma húsinu upp aftur, þó að annars staðar yrði. Þessum hugmyndum var komið á fram- færi bréfleiðis, en formleg svör hafa aldrei borist. Af hálfu samtakanna liggur fyrir verkáætlun og fjárhagsáætl- un, ef þannig yrði staðið að verki, sem samtökin höfðu lagt til, en aldrei var gefið færi á í viðræðum um þessa hugmynd og ekkert vil- yrði af hálfu eiganda. í gær lýsti talsmaður eiganda yfir því, að ljóst væri, að ekki yrði komið til móts við sjónarmið samtakanna og að tilmælum þeirra yrði ekki svarað. Samtökin Níu líf harma það, að hér á sér stað menningar- sögulegt slys. Hlýtur að vera rétt — segir Birgir Einarson, hæsti skattgreiðandi í Reykjavík „ÞETTA hlýtur að vera rétt, annars var ég rétt í þessu að frétta hvað ég bef í skatta, ég heyrði það í útvarp- inu,“ sagði Birgir Einarson, lyfsali, þegar blaðamaður Morgunblaðsins spurði hann hvernig honum litist á þau opinberu gjöld er honum er gert að greiða, en hann er skatt- hæsti einstaklingurinn í Reykjavík. „Mér líst ekki beint vel á að borga, en síðasta ár var ágætt fyrir okkur lyfsala — mikil sala. Hins vegar getum við ekki, vegna þess að við rekum lyfjabúðirnar í eigin nafni, lagt neitt til hliðar, i sjóði líkt og hlutafélög geta gert. Og okkur er meinað að stofna hlutafélög um lyfjasölur. Þá er lyfsölum einnig bannað að færa eigin laun á rekstrarkostnað, þannig að það má alltaf búast við háum sköttum,“ sagði Birgir Ein- arson að lokum. „Ég er tiltölulega ánægður, enda hef ég undanfarin ár verið með skatthæstu einstaklingum í Reykjavík, þó aldrei eins hár og nú. Ég hef aldrei séð eftir pening- um í almennan þjóðarrekstur," sagði Gunnar Snorrason, kaup- maður, er blaðamaður Morgun- blaðsins innti hann eftir áliti hans á þeim sköttum sem lagðir Birgir Einarson voru á hann, en Gunnar er annar skatthæsti einstaklingurinn í Reykjavík. „Annars sýnir þetta að Hóla- garður, verslunin sem ég rek, stendur á traustum grunni, enda hefur fólk kunnað að meta þá þjónustu, sem þar er til staðar. Það eina, sem ég hef út á álagn- inguna að segja er aðstöðugjald- ið, sem er veltuskattur, alls óháð Gunnar Snorrason því hver hagnaður fyrirtækisii.s er. Og sá skattur sem mér og starfsbræðrum mínum e. 'ert að greiða, skattur á vert n og skrifstofuhúsnæði, er innig ranglátur þó núverandi fjá íála- ráðherra hafi lækkað hann. »-á vil ég einnig benda á að verslunin greiðir 3V4% launaskatt, sem er mun hærra en aðrir þurfa að greiða. Álögd gjöld á Reykjanesi hækka um 52,63 % milli ára ÁLÖGÐ gjöld í Reykjaneskjördæmi hækkuðu um 52,63 % á milli ára, og nema alls um 2,2 milljörðum króna. Ólafur Björgúlfsson tannlæknir er hæsti skattgreiðandinn með samtals 2.973.064 krónur. f öðru sæti er Guð- bergur Ingólfsson, framkvæmda- stjóri, með 2.333.933 milljónir króna. Fast á eftir eru Benedikt Sig- urðsson, Keflavík, Sverrir Magnús- son, Garðabæ og Matthías Ingi- bergsson, Kópavogi. Alagning á einstaklinga er um 1,8 milljarður króna, en lögaðilum er gert að greiða rúmar 385 millj- ónir króna. Fjöldi lögaðila er 1.714 en einstaklingar eru 40.802, þar af 2.189 börn undir 16 ára aldri. Stúlka slasast í Loðmundarfirði Seyðisfirði, 24. júlf. UNG stúlka slasaðist í Loðmund- arfirði seinnipart sunnudagsins, er hún féll af hestabaki. Hjálpar- beiðni barst til Seyðisfjarðar og fóru félagar úr björgunarsveitinni ísólfi og læknir með hraðbát á staðinn. Stúlkan var flutt inn til Seyðisfjarðar og síðan á sjúkrahús í Reykjavík. Líðan hennar er eftir atvikum. Ólafur Már. Eining segir upp Verkalýðsfélagið Eining á Akur- eyri samþykkti samhljóða á almenn- um félagsfundi, sem haldinn var í fyrrakvöld, að gefa stjórn og trúnað- armannaráði heimild til að segja upp launaliðum samninga frá og með 1. september. Tillaga kom fram um það á fundinum að efna til allsherjar- atkvæðagreiðslu um uppsögn samninga, en hún var felld með þorra greiddra atkvæða gegn 9. Milli 60 og 70 manns sátu fundinn. Við erum komnir í Olympíu- liðið FUJI-liðið er kátt núna. Framkvæmdanefnd Olympíu- leikanna í Los Angeles 1984 hefur valið FUJI filmur fyrir allar myndatökur i sambandi við Olympiuleikana 1984 Á Olympiuleikunum eru aðeins þeir bestu - þeir sem skara fram úr, - í þeim hópi er FUJI. Nýlega kom á markað ný FUJI filma - FUJICOLOR HR, sem gefur þér bjartari skarpari og litrikari myndir en áður hefur þekkst. Nýja FUJICOLOR HR filman markar timamót i litfilmuframleiðslu og er örugglega skarpasta filma, sem þú átt kost á. Þess vegna á FUJI vel heima á OLympiuleik- unum - þvi þar eru aðeins þeir bestu. til'l Jjm1 • HiGHRESOLUTI0I j fUjicol 0* HR10(L R ij. Offidal FHm of Ife the Los Angetes Sl 1984 Otyrnpics L A Oíyrnp.c Symöo* O tMO L A Oy Com m HtGH RESOLUTION FUJI PHOTO FILM CO„ LTD. Tokyo, Japan \ 1983 / Ný m-Í____FUJICOLOR ontaaamaiina TIIITIa HR100/HR400 SKIPHOITI31 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.