Morgunblaðið - 25.07.1984, Síða 49

Morgunblaðið - 25.07.1984, Síða 49
MORGUNBLADID, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1984 49 Minning: Gunnar S. Astvalds- son, Hafnarfirði Fsddur 11. september 1930 Dáinn 13. júlí 1984 Hví fölnar jurtin fríða og fellir blóm svo skjótt? Hvi sveipar barnið blíða svo brátt hin dimma nótt? Hví verður von og yndi svo varpað niður í gröf? Hví berst svo burt í skyndi hin besta lífsins gjöf? (B.H.) í dag kveðjum við kæran og góð- an afa, sem alltaf var svo hlýlegur og góður við okkur smáfólkið, þó oft væri hann mikið veikur, en aldrei lét hann á því bera við okkur. Alltaf hýrlegur og hlýr. Afi okkar fæddist í Hafnarfirði og ólst þar upp í stórum systkina- hópi. Hann var sonur hjónanna Sigríðar Benjamínsdóttur og Ástvalds Þorkelssonar. Hann var fjórði í röð sjö systkina. Sigríður langamma okkar er bú- in að sjá á eftir 3 börnum sínum yfir móðuna miklu. Sigrún, sem var einu ári eldri en afi, dó árið 1970 aðeins 41 árs. Gyða andaðist 27. október 1983, hún var einu ári yngri en afi, svo elsku langamma sér á eftir 2 börnum sínum á tæpu einu ári. Við langömmubörnin biðjum al- góðan guð að styrkja hana í henn- ar miklu sorg og veikindum. Elsku Svana amma, megi góður guð styrkja þig og börnin þín. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund.” (V.B.) Guð blessi minningu afa okkar. Barnabörn 1 dag fer fram frá Hafnarfjarð- arkirkju útför Gunnars Ást- valdssonar. Hann fæddist í Hafn- arfirði 11. sept. 1930. Foreldrar hans voru hjónin Sigríður Benja- mínsdóttir og Ástvaldur Þor- kelsson. Hann ólst upp í stórum systkinahópi, en systkinin voru sjö og er hann þriðji úr hópnum, er fellur frá. A bernskuárunum dvaldi hann í fjölmörg sumur í Skaftholti í Gnúpverjahreppi hjá móðurbróð- ur sínum Halldóri Benjamínssyni og konu hans Steinunni Jónsdótt- ur. Tengdist hann því heimili miklum vináttuböndum. Ungur hóf hann sjómennsku, lengst af á togurum. Snemma kom í ljós afburða dugnaður hans og kapp við öll störf. Fyrir um 30 ár- um veiktist hann alvarlega og bar aldrei sitt barr eftir það. Alltaf var hann þó kominn til starfa ef af Heræfingar Washington, 23. júlí. AP. FÁMENN sérsveit Bandaríkjahers tekur nú þátt f heræfingum, sem miða ad því undirbúa stjórnarherinn í Hondúras betur í baráttunni við skæruliða. í yfirlýsingu bandaríska varn- honum bráði, þó oft væri það meira af vilja en mætti. Er það hörð raun duglegum og kappsöm- um manni að missa heilsuna að- eins 25 ára gamall. Það var gæfa hans að ungur hafði hann kvænst góðri konu, Svanfríði Eyvindsdóttur frá Siglu- firði, og stóð hún traust og um- hyggjusöm við hlið hans alla tíð. Þau eignuðust fjögur börn og eru þau Steindór búsettur á Akranesi, kvæntur Hrefnu Halldórsdóttur og eiga þau þrjú börn, Katrín býr í Bandaríkjunum, gift John M. Jo- hnson og eiga þau einn son, Kol- beinn býr í Hafnarfirði, kvæntur Önnu Björnsdóttur og eiga þau einn son, og yngstur Eyvindur, sem dvelur í foreldrahúsum. Einn- ig ólst upp hjá þeim sonur Svan- fríðar, Örn Einarsson, sem búsett- ur er í Njarðvíkum, kvæntur Jónu Stígsdóttur og eiga þau einn son. Áður hafði Gunnar eignast dóttur, Súsönnu, sem búsett er í Reykja- vík, gift Einari Herbertssyni og á hún fjögur börn. Einlægar samúðarkveðjur eru sendar ástvinum Gunnars, móður hans, eiginkonum, börnum, tengdabörnum, barnabörnum og systkinum. Blessuð sé minning hans. Vinur ATHYGU skal vakin á þvi, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. í Honduras armálaráðuneytisins segir að þessar æfingar séu þær fyrstu af nokkrum, sem haldnar verða á næstu vikum, en Bandaríkjamenn hafa tekið þátt í mörgum svipuð- um heræfingum á undanförnum mánuðum i Hondúras. SVAR MITT eftir Billy Graham I deiglunni Ég missti manninn minn, tvo syni og dóttur á tveimur árum. í síðasta mánuði fórust tvö barnabörn mín í slysi? Ég er að reyna að vera kristin, en hvernig er hægt að skýra þetta? Meðan við erum á þessari jörð, er óhugsandi, að við getum útskýrt hin margvíslegu atvik og aðstæður, sem mannlífið er fléttað úr. Ég er viss um, að þér hafið lesið Jobsbók og gert yður ljóst, að Guð er hátt upp hafinn og leyfir, að menn hryggist og þjáist, en alltaf markast tilgangur hans af kærleika. Allar raunir geta orðið til blessun- ar, ef við myndum aðeins, að hann sér og þekkir alla hluti, hið liðna, nútímann og framtíðina, og að öll verk hans eru í kærleika gjörð, en ekki reiði, gagnvart þeim, sem eru hans. í heilagri ritningu segir: „Hver er slíkur guð sem þú sem eigi heldur fast við reiði sína eilíflega, heldur hefur unun af að vera miskunnsamur?" (Míka 7,18.) Annars staðar er okkur gefið þetta dásamlega fyrirheit: „Þú, hin vesala, hrakta, huggunarlausa, sjá ég legg rúbína sem steina í byggingu þína og hleð grunnmúra þína af safírsteinum." (Jes. 54,11.) Okkur vill gleymast, þegar við erum i deiglu, að ævi okkar öll er ekki nema brot af eilífðinni. Þegar Guð leyfir, að við verðum fyrir áföllum, sem hryggja okkur, sprettur það eingöngu af kærleiksríkri um- hyggju hans fyrir eilífri velferð okkar. Hann hefur heitið því, að „allt samverkar þeim til góðs, sem elska Guð.“ Minnizt þess, að þetta á aðeins við um þá, sem honum tilheyra, en við eigum öll kost á að öðlast þetta samband við hann fyrir trú á son hans, Jesúm Krist. Festið traust yðar á honum. Sá dagur rennur, að þér takið undir með spámanninum Míka: „Reiði Drottins vil ég þola — því að ég hefi syndgað á móti honum — þar til er hann sækir sök mína og lætur mig ná rétti mínum. Hann mun leiða mig út til ljóssins." (Míka, 7,9.) Eitt af því versta sem hent getur heiöarlegan súkkulaðiunnanda er að bíta í vitlaust súkkulaði. Til þess að komast hjá óþægindum ættu Pippaðdáendur að hafa neðantaldar upplýsingar á reiðum höndum. MteMirfe Veldu íslenskt. . . ef það er betra! Örþunnur en vandaður alsvlssneskur álpapplr. Súkkulaölð er mýkra undir tönn ef álpappírinn er fjarlægöur áður en bitið er í. Þaö þarf ekki mikla lestrarkunnáttu til þess aö þekkja Pipp. Tveir stafir duga: P og I. Hver einasti biti er stimplaður með nafni fyrirtækisins. Er þaö bæði gert til þess að varast eftirlíkingar og tryggja að enginn þurfi að taka áhættuna sem þvi fylgir að bíta i óþekkt súkkulaði ef umbúöirnar týnast. . Súkkulaðiö í Pippinu er framleitt samkvæmt hinni frábæru formúlu 7. Sú súkkulaðiformúla hefur gert garðinn frægann i ófáum fermingar- og jólaveislum um dagana i formi tertuhjúps enda er hún einnig seld undir nafninu Sirius hjúpsúkkulaói. Lystilega löguð piparmyntufylling. Rétt er að taka fram að framleiðandi mælir með því að súkkulaðið sé brotið i þar til afmarkaða bita og innbyrt i hæfilegum skömmtum oott rfn.K 4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.