Morgunblaðið - 25.07.1984, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1984
51
The Morida Man eftir Ross Thomas
Erlendar
bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Ross Thomas: The Morida Man
Útg. Penguin
Sumar hasar- og njósnasögur
hafa svo flókið „plot“, að það tekur
mig drjúgan tíma að átta mig á
öllum þeim persónum sem koma
við sögu. Að ekki sé nú minnst á
að í slíkum sögum er oftsinnis
mjög lagt upp úr aukapersónum,
og þegar líður á bókina uppgötvar
maður, aö flestar hafa þá ekki
skipt neinu máli í þræðinum. Höf-
undar eru misjafnlega lagnir við
að gera þessar bækur aðgengi-
legar lesendum sem eru ekki svo
næmir að skynja þetta allt á
fyrstu síðunum. Ross Thomas býr
til býsna flókið mál í upphafi: For-
setabróður í Bandaríkjunum er
rænt. Mannræningjarnir krefjast
þess að tiltekinn Felix verði látinn
laus í skiptum fyrir hann. Öllu
verra er, að þá hefur einn hópur
enn komið Felix fyrir kattarnef
svo að það er hægara ort en gjört
að verða að kröfunum. Líbýumenn
koma þarna við sögu og standa að
baki hinum verstu fólskuverkum,
undir forystu nýs leiðtoga. Khadd-
afi hafði sem sé látist úr hjarta-
slagi sex mánuðum áður en sagan
hefst, en ekkert bendir til að eftir-
maður hans sé vinsamlegri né
vitrari.
Aðalpersónan, sú sem á að leysa
málið, er Chubb nokkur Dunjee,
fyrrverandi fulltrúadeildarþing-
maður, sem hefur leiðst á refil-
stigu spillingar og mútuþægni.
Hann er þó sennilega rétti maður-
inn til að finna forsetabróðurinn.
Á stundum, og einkum framan af,
fannst mér The Morida Man ívið
of flókin en Ross Thomas tekst að
ná upp spennu og halda áhuganum
vakandi. Ágætis afþreyingarbók,
en ekki beinlínis uppörvandi né
jákvæð.
Að flýta
sér hægt
iillMi'iB
plútur
Siguröur Sverrisson
Eddi
Tvöfeldni
Stúdíó Bimbó
Eðvarð Vilhjálmsson heitir
ungur Keflvíkingur, sem sendir
nú frá sér sína fyrstu hljóm-
plötu. Um er að ræða 8 lög, öll
eftir hann sjálfan. Sjálfur semur
Eðvarð alla textana að einum
undanskildum. í ofanálag leikur
hann á öll hljóðfærin á plötunni
og það hafa ekki margir leikið
eftir hér á landi.
Svo vikið sé beint að kjarna
málsins er plata Eðvarðs e.t.v.
þokkaleg ef mið er t.d. tekið af
þeirri staðreynd, að þetta er
fyrsta platan hans. Þegar
Dúkkulísunum, sem einnig eru
að senda frá sér frumraun sína,
er stillt upp við hlið hans, er
samanburðurinn Eðvarði mjög i
óhag. Tvöfeldni stenst illa sam-
anburð við það besta í íslenskri
rokktónlist og við slíkt verður
alltaf miðað.
Veikleikar þessarar plötu eru
margir. Fyrir það fyrsta eru
flest lögin allt of veikburða til
þess að vera smellt beint á plötu.
Þau hefðu þurft að komast í
hendur góðs útsetjara áður en
rokið var í hljóðverið. Þá er
hljóðfæraleikurinn engan veginn
nægilega sannfærandi. Eðvarð
er mjög misfær á tóngjafana.
Loks má nefna að söngurinn
gæti verið mikið betri.
Af framansögðu má e.t.v. ráða
að Eðvarð sé alls varnar. Svo er
nú ekki alveg, en hann hefði
mátt flýta sér eilítið hægar við
þessa plötu. Gefa sér meiri tíma
til þess að vanda til laganna og
fá traustari hljóðfæraleikara í
lið með sér. E.t.v. má segja sem
svo að verið sé að spara með því
að láta Eðvarð sjá um allt sam-
an sjálfan en slíkt er vafasamur
sparnaður og lýsir ekki miklum
metnaði útgefandans.
Eðvarð á nokkra góða spretti á
þessari plötu en þeir eru ekki til-
takanlega margir né verulega
áberandi. Besta lagið finnst mér
vera Einkennileg veröld. Sumir
textanna eru ágætir, aðrir líka
afar slakir.
40 teknir af
lífí í íran
Parfs, 23. júlf. AP.
40 stjórnarandstæóingar, þar
meðal fyrrverandi fyrirliði íransk
landsliðsins í knattspyrnu, vor
teknir af lífi í fran i síðustu viku a
sögn samtaka íranskra stjórnai
andstæðinga, Mujahadeen, sem er
með aðsetur í París.
f yfirlýsingu samtakanna segi
að samkvæmt áreiðanlegum heim
ildum hafi fyrrum fyrirliði lands
liðsins, Habib Khabiri, sætt pynd
ingum og síðan verið tekinn af Hfi
Þar segir ennfremur að frá þv
að Khomeini komst til valda haf
40 þúsund manns verið liflátin of
um 120 þúsund sett i fangels
vegna stjórnmálaskoðana.
dynasylan
BSM 40
^VITRETEX
Ptastmálning
"SiSSSÉfil
monosilan
"AKMÁLNINO 51«7
decorolla
í.. ■
vorlitirnir slógu strax i gegn, þú leerö litakort i næstu lol<ar tyr'r vatnsstreymi inn i stein en lofar steini
\málningabúd. '» ’ ** samt að. hleypa raka út.
Vítretex hefur sýnt bædi á rannsóknastofum sem viö áratuga reynslu Viðurkennt af Rannsóknarstofnun Byggingaridnaðarins sem virk vörn
að fáar geröir málninga jatnast á viö hana ( endingu. Vitretex málning gegn Alkali-skemmdum.
........ . I ™ fl$| Jt, nppnnni ? \ *y,lir upp pi°fnur á ynrboröi eftir t.d. flögnun eöa
HFmPP? S Þnkmálning hefur veriö mest selda þakmálning á Is- UfaUUiWUUil aórar skemmdir. Auövelt i meöförum rúllad eöa
élUiili UU*» iandi / tjöida ára. Nú aukum við litaúrvalið. 4 nýjir ál- dregiö á meó spöóum.
stæltir litir eru á nýja kortinu. Reynslan sannar gæðin. Sömu gæöin Viðurkennt ai sænsku staöalstotnuninni som fylli og viögeröarefni á
aöeins fleiri litir. utanhús-stein.
Hafiö samband viö okkur og fáiö allar upplýsingar um frábæra málningu og viögeröaretm
I SHppfétagið í Reykjavík hf
Málningarverksmiðjan Dugguvogi
Sími 84255