Morgunblaðið - 25.07.1984, Page 57

Morgunblaðið - 25.07.1984, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1984 57 Meö nýju sætuefni Nutra-Svveel sem skilar sama gamla góöa appelsínubragðinu I án eftirkeims. SALUR 1 frumsýnir nýjustu myndlna eft- ir sögu Sidney Sheldon í kröppum leik ROGER MOORE ROD STEIGER ANNE ARCHER íNAKED FACE Splunkuný og hörkuspennandl úrvalsmynd, byggö á sögu eft- ir Sidney Sheldon. Þetta er mynd fyrir þá sem una góöum og vel geröum spennumynd- um. Aðahlutverk: Roger Mo- ore, Rod Steiger, Elliott Gould, Anne Archer. Lelk- stjórl: Bryan Forbes. Sýnd kL 5, 7,9, og 11. Bönnuö börnum innan 16 ára. Hækkaö verö. SALUR2 HETJUR KELLYS Hörkuspennandi og stór-1 skemmtileg stríösmynd frá | MGM, full af grini og glensi. Donald Sutherland og félagarl eru hér í sínu besta forml og [ reyta af sér brandara. Mynd i algjörum térflokki. Aöalhlut- verk: Clint Eaetwood, Telly SavalA, Donak) Sutherland, Don Rickles. Leikstjóri: Brian | G. Hutton. Sýnd kl. 5, 7.40 og 10.15. Hækkaö verö. Frumsýnir teinni myndina: EINU SINNI VAR í AMERÍKU 2 OHCE UPOH AIKE Aöalhlutverk: Robert De Niro.l Jamet Woods, Burt Young.l Treat Williams, Thuesdayl Weld, Joe Pesci, Ellzabeth I McGovern. Leikstjóri: Sergio| Leone. Sýnd kl. 5, 7.40 og 10.15. Hækkaö verð. Bönnuö börn- | um innan 16 éra. EINU SINNIVAR í AMERÍKU 1 (Once upon a time In Amerlca I Part 1) once uron a tirie Aöalhlutverk: Robert De Nlro, James Woods, Scott Tiler, I Jennifer Connelly. Lelkstjórl: | Sergío Leone. Sýnd kl. 5, 9 og 11. Hækkaö verö. Bönnuö böm- um innan 16 ára. TVIFARINN Sýnd kl. 7. Við sem heima sitjum með á nótunum plotur Arni Johnsen Við sem heima sitjum hefur alla þá kosti sem góð dægurlaga- og vísnasöngsplata þarf að hafa, hún býr yfir fallegum og góðum lögum, hún er vel útsett með mjög góðan hljóðfæraleik og all- ir söngvararnir skila sínu hlut- verki af mestu prýði þar sem textinn fær að njóta sín eins og vera ber. f stuttu máli, þetta er listilega góð plata og ég hygg að flestum fari á þann veg að þeir finni sig knúna til að syngja með þegar þeir hlusta á þessa ljúfu plötu. Það er sérstæð reisn yfir lögum Bjarna Hjartarsonar, tær blær, en lögin eru mjög fjöl- breytt og full að liprum takti og fögrum hljómhleðslum. Falleg- asta lagið finnst mér vera Meist- ari sungið af Önnu Flosadóttur og hennar ómþýða og fagra rödd nýtur sín vel í þessu lagi. Það er úrvalslið sem kemur við sögu á þessari plötu og skal þar fyrstan nefna Gunnar Þórð- arson sem hefur útsett með sín- um meistarahöndum tónlist Bjarna Eggertssonar. Það er satt að segja með ólíkindum hve Gunnar getur sífellt útsett á frumlegan og skemmtilegan hátt þá tónlist sem hann tekur upp á sína arma. Anna Flosadóttir og Pálmi Gunnarsson bera hita og þunga söngsins á plötunni, óað- finnanlega, en einnig syngja Bergþóra Árnadóttir, Þuríður Sigurðardóttir og Ólöf Halla Bjarnadóttir hver eitt lag, þær tvær fyrstnefndu eins og við var að búast af þjálfuðum og reynd- um góðsöngvurum og ólöf Halla stendur fyllilega fyrir sínu með galsafenginni og skemmtilegri túlkun á blússandi útsetningu lagsins við Karl faðir minn eftir Jóhannes úr Kötlum. Lögin á plötunni eru allt frá því að vera angurvær og blíð eins og vorvindar og til þess að vera eins og gneistandi fákar á sléttum vestursins eða taktfast tjútt. Sigurður Bjóla Garðarsson stjórnaði hljóðritun en stjórn upptöku var í höndum Gunnars Þórðarsonar, Pálma Gunnars- sonar og Bjarna Hjartarsonar og allir þeir listamenn sem leika á plötunni eru kunnir fagmenn. í heild er platan Við sem heima sitjum heillandi og hugljúf plata, skemmtileg og vel gerð. Það er eins og iögin á þessari plötu líði áfram svo látlaust og eðlilega, hún kemur skemmti- lega á óvart að því leyti að það er óþekkt fólk sam lagði grunninn að henni og fylgir henni fram af festu, þau Bjarni og Anna, en fyrst og síðast er fengur að þess- ari plötu. -c

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.