Morgunblaðið - 25.07.1984, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 25.07.1984, Qupperneq 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLl 1984 „Ef þú vilt fcunx, þá. siend ég eklKi' í \Jcgi tynr pér." ást er ... eitthvað sem gerist af sjálfu sér. TM Refl U S Pat Off — rights reserved Los Angeles Times Syndicate Fyrir 12 árum byrjaði hann á neð- anjarðargöngum og síðan hef ég ekki séð hann. Ofbauð ósyífnin H.M. skrifar: Kæri Velvakandi. Sunnudaginn 15. júlí sl. skrifaði Páll Þór Pálsson grein i dálka þina þar sem hann skýrði frá und- arlegri framkomu „rudda í Vest- urbæjarlauginni**. Þann 19. júlí birtist svo grein eftir mann sem kallar sig „laugargest" og virðist hann ekki á sama máli og Páll, og spyr jafnvel hvort hann fari ekki með fleipur. Ég var stödd I heita pottinum á þessum umrædda degi og sá hvað fram fór. í stuttu máli sagt óð „laugargesturinn" ofan i pottinn, gekk rakleitt að Páli og snaraði honum i burtu frá nuddtækinu. Síðan stjakaði hann við vinum Páls, sem i hræðslu sinni færðu sig frá og settist sjálfur við nudd- stútinn. I grein sinni segir „laugargest- urinn“: „12 ára barn situr I róleg- heitum við nuddstútinn og lætur nuddið dynja á baki sér. Potturinn er yfirfullur af fólki og a.m.k. einn maður bíður eftir að komast að nuddinu. En barnið á bara sætið við nuddstútinn. Það á enginn sætið við nudd- stútinn. Mönnum ber að nudda sem fljótast þá vöðva, sem þurfa nudd, en vlkja síðan frá til að aðr- ir komist að. Það ætti enginn að sitja í rólegheitum og láta „nudd- ið„ dynja á baki sér.“ Ég get frætt laugargest um það að enginn virtist vera að bíða eftir að komast að nuddtækinu, heldur sat fólkið í rólegheitum, þar á meðal Páll. Það skal tekið fram að hann hafði aðeins setið örskamma stund við nuddtækið og hver veit nema drengurinn sé bakveikur. Það vekur undrun „laugargests" að Páll skuli kalla sætið sitt, og í því sambandi vil ég benda á að fólk talar oft um hluti sem sína eign, þó að eiginleg merking liggi vitanlega ekki að baki s.s. skólinn minn, landið mitt o.s.frv. Laugargestur segir einnig að það myndi enginn komast upp með slfkt í ásýnd annarra. I fyrstu misstu sundlaugargestirnir í pott- inum andlitið og varð öllum star- sýnt á „sundlaugargestinn". Loks gat kona ein, sem ég held að hafi skrifað greinina „Börn eru líka menn“, sem birtist í dálkum Vel- vakanda þann 22. júli sl., ekki orða bundist og minnti manninn á að drengirnir hefðu borgað sig inn 1 laugina rétt eins og hann og hefðu því fullan rétt á því að notfæra sér nuddstútinn. Laugargesturinn virti konuna ekki viðlits en lét nuddið áfram dynja á líkama sín- um. Mér ofbauð svo ósvífnin í manninum að ég yfirgaf pottinn. . v '-.c > - ----------- Aldrei er of varlega farið í umferðinni og vill bréfritari að bflstjórar strætisvagna hugsi slíkt hið sama. Þessir hringdu . . . Bflstjórar strætisvagna aki gætilegar EJ. hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: Ég var að hlusta á það í út- varpi að verið var að áminna- fólk um að fara varlega, þegar farið er út úr strætisvögnunum og er víst aldrei of varlega farið. En það þyrfti líka að áminna strætisvagnabílstjórana um að keyra gætilegar en þeir gera sumir hverjir. Þeir ættu að hugsa um það að þeir eru með fólk í vögnunum en ekki einhverjar vörur. Það hafa allt of mörg slys hlotist af völd- um strætisvagna og sum hver mjög slæm, sem rekja má til ógætilegrar keyrslu. Þessu þarf að breyta strax. Hver er réttur barna? Þröstur Magnússon hringdi og hafði eftirfarandi að segja: í sambandi við skrif laugar- gests um Pál Þór Pálsson, sem birtust hér í Velvakanda 19. júlí sl., langar mig til að koma hér með dálitla athugasemd. Laugargestur segir í grein sinni að 12 ára barn hafi setið I rólegheitum við nuddstútinn i Vesturbæjarlauginni. Það er ekki rétt, því barnið (Páll Þór) var nýsest við stútinn þegar þessi ruddi kom og þeytti því frá. Einnig talar hann í greininni um föðurlega umhyggju og í því sambandi verð ég að segja að ég vorkenni börnum hans, ef hann á einhver. Laugargesturinn segir einnig að börn hafi ekkert að gera við stútinn, því hann sé til að lækna vöðvabólgur og harðsperrur. Mig langar til að benda þessum manni á að Páll Þór, 12 ára, þjá- ist af vöðvabólgu og hefur því sama rétt og aðrir á því að not- færa sér nuddstútinn í Vestur- bæiarlaug. Ég tek því heilshugar undir með öðrum laugargesti sem skrifaði í Velvakanda 22. júlí sl., að börn eru lika menn. Frábær þjónusta 5326-4212 hringdi og hafði eft- irfarandi að segja: Ég fór um daginn hringferð I kringum landið og eins og oft vill verða bilaði billinn hjá okkur á Egilsstöðum. Þetta var á sunnu- degi og ég sá því I hendi mér að ekkert viðgerðarverkstæði myndi verða opið. En viti menn, varahlutaversl- un ein að Selási 1 var opin og afgreiðslumaðurinn þar bauðst til að aðstoða okkur. Var hann ótrúlega almennilegur og hjálp- samur og gerði við bílinn á svipstundu. Langar mig enn og aftur að koma þakklæti minu á framfæri við þennan alúðlega mann. Ennfremur langar til mig að koma hér einni hugmynd á framfæri við Mjólkursamsöluna. Á Egilsstöðum er alveg einstakt mjólkurbú, sem framleiðir það besta skyr og rjóma sem ég hef bragðið. Legg ég til að Mjólkur- samsalan sendi mann austur til að læra af þeim skyr-, rjóma- og smjörgerð því eins og allir vita fáum við borgarbúar ævinlega gamalt og vont smjör og dósa- skyrið er ekki borðandi. Hef ég hér með komið hugmynd minni á framfæri og vona að samsölu- menn bregðist vel við henni. Fór húsavillt Asdís hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: Mig langar til að koma hér að leiðréttingu í sambandi við grein sem birtist I Velvakanda 20. júlí sl. eftir Elísabetu, starfsstúlku Kvennaathvarfsins, undir fyrir- sögninni „Undarlegar upplýs- ingar“. Élísabet gerir þar athugasemd við greinarkorn eftir mig sem birtist I Velvakanda 7. júlí sl. undir fyrirsögninni „Að afmenn- inga þjóðina“. Ég vil biðja Elísabetu afsök- unar, en misskilningur minn var fólginn I þvf að ég fór húsavillt með vandlæti mitt á gáleysisleg- um uppátækjum atorkusamra kvenna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.