Morgunblaðið - 25.07.1984, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 25.07.1984, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1984 59 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS nriMnm’UM-u Lf Bréfritari er ekki allskostar ánægður með óhreinlætið í Sundlaug Laugardals. Ohreinlæti í Sund- laug Laugardals 1031-7738 skrifar: Velvakandi vinur. Nú rignir yfir þig hverri grein- Tímabær grein Sigrún Ingimarsdóttir skrif- ar: Kæri Velvakandi. Mig langar til að vekja at- hygli lesenda á grein eftir Þorstein Þorsteinsson sem birtist í tímaritinu „Þroska- hjálp“, 2. árg. 1984, og bar heitið „Um tímasprengjur". Langar mig jafnframt til að þakka Þorsteini fyrir þessi orð, sem voru vel i tíma og hreint eins og úr mínum munni töluð. En þrátt fyrir að greinin hafi verið stórgóð mætti ýmsu við hana bæta eins og t.d. hvað allt væri betra og auðveldara í þessum heimi ef hlýja og samúð réðu ríkjum í samskiptum manna á milli. Hvet ég Þorstein til að láta frá sér heyra og þá í dagblöð- um sem hafa yfir stórum les- endahóp að ráða. Með bestu kveðju. inni á fætur annarri, þar sem sundlaugargestir Vesturbæjar- laugar geysast yfir ritvöllinn, og ausa úr skálum reiði sinnar. Ég verð víst að teljast einn sundlaug- argesturinn enn, en ég er þó ekki fastagestur í Sundlaug Vestur- bæjar heldur í Sundlaug Laugar- dals. Það sem mér liggur á hjarta er allt annars eðlis en bréf hinna sundlaugargestanna hafa verið. Þannig er mál með vexti að ég hef verið fastagestur í S.L. í tíu ár og kann því vel. Þó er einn galli á gjöf Njarðar, og hann er sá að hrein- lætið í laugunum virðist alltof oft fara fyrir ofan garð og neðan hjá starfsfólki hennar. Veit ég fátt ógeðslegra en koma úr sturtu og stiga beint í sandhaug í búnings- klefunum, sem allt of oft er raun- in. Ekki virðast „ræstitæknar" laugarinnar heldur hirða um að þrífa búningsskápana sjálfa og forðast ég eftir fremsta megni að hengja hvíta flík inn í þá. Svo ég tali nú ekki um salernin, sem sjaldan eru hrein og verð ég að viðurkenna að oft hefur mér ofboðið sóðaskapurinn. Er mikill munur á öllu hrein- læti í Sundlaug Laugardals og Sundlaug Vesturbæjar, þar sem hann er til hreinnar fyrirmyndar. í Vesturbæjarlaug eru öll gólf sprautuð með vatni og skrúbbuð vandlega svo aldrei sést í óþrif. Meira að segja sturtuveggirnir eru þvegnir dag hvern. Væri þess nú óskandi að starfsfólk S.L. tæki sér starfsfólk S.V. til fyrirmyndar, og ég veit að þorri þeirra sundlaug- argesta sem ég þekki sammælist mér í þessum pistli. Meira að segja laugin og pottarnir í S.L. eru að margra mati aldrei nógu hrein- ir. Eina ástæðan fyrir því að ég hef ekki gerst fastagestur í annarri laug er sú að ég bý í hverfi Sund- laugar Laugardals og hef ekki tök á að fara annað, þar sem ég er bíllaus og vinn lengi. Einnig syndi ég mikið dag hvern og þykir betra að synda i stórri laug. Vona ég af heilum hug að starfsmenn laugarinnar vakni nú upp af svefninum og taki fram ræstitækin með bros á vör, svo gestir laugarinnar þurfi ekki að finna sig knúna til að kvarta und- an óhreinlæti eða öðru. Persónu- lega leiðist mér fátt eins mikið og að þurfa að kvarta undan ein- hverju, en því miður var svo komið að ég gat ekki lengur orða bundist. Með vinsemd. Gagnkvæmt traust mikilvægt Vilhjálmur Alfreðsson skrifar: Kæri Velvakandi. I dálkum þínum þann 18. júlí birtist bréf frá Sigurði nokkrum Haraldssyni undir fyrirsögninni „Opinberir starfsmenn eiga að vera til fyrirmyndar", sem er svar við bréfi mínu sem birtist í Vel- vakanda þann 12. júlí sl. undir fyrirsögninni „íslensk embætt- ismannastétt". Mig langar til að benda Sigurði þessum á að opinberir starfsmenn eru til fyrirmyndar. Það er athygl- isvert hvernig Sigurður skrifar um stofnun sem veitir aðstoð (Tryggingastofnun ríkisins). Hvernig skyldi hann skrifa um stofnanir eins og Gjaldheimtuna i Reykjavík eða Tollstjóraembætt- ið, sem lögum samkvæmt þurfa að innheimta fé? Þær tilvitnanir Sigurðar úr bréfi mínu: „aðdróttanir í garð góðra starfsmanna" og „þekk- ingarskortur á því efni sem til um- fjöllunar er“, voru yfirlýsingar lagðar fram af minni hálfu, í þeirri trú að sá sem læsi, reyndi einnig að skilja. Sífellt er fólk að þrasa um það að meiri kröfur þurfi að gera til opinberra starfsmanna, en þrátt fyrir það þurfa þeir sífellt að þola skitkast Brottfluttur Húsvíkingur skrifar: Kæri Velvakandi. Ég heyrði fyrir nokkru að starfsmenn sýsluskrifstofunnar á Húsavík hefðu farið í ólöglegt verkfall, vegna þess að ekki hafði borist teikning af nýrri sýsluskrif- stofu á Húsavik. öðruvísi mér áður brá, Þingey- ingar góðir. Ég vil i fáum orðum benda ykkur og þó sérstaklega dómsmála- og fjármálaráðuneyti á lausn þessa máls, sem ég heyrði hér heima: Byggið við og ofan á þá og ónot frá viðskiptavinum. Gamalreyndur embættismaður sagði eitt sinn: „Góð viðskipti byggjast á gagnkvæmu trausti." Vil ég benda lesendum á, að slíkt verður að hafa vel i huga í sam- skiptum allra manna í þessu þjóð- félagi. skrifstofubyggingu sem nú er. Fyrirmyndin er góð, hvernig Póst- ur og sími leysti sin bygginga- vandamál. Starfsmenn góðir, gerið kröfu um að þetta verði framkvæmt, því það tekur minni tíma, það kostar minna og þið fáið fyrr það sem þið óskið eftir. Nýja húsnæðið yrði rýmra og ekki „heilsuspillandi" eins og þið teljið ykkur nú búa við. Á ekki að sýna hagsýni og spara í dag? Hér er ein lausnin fyrir sparnaðarnefndina að athuga. Öðruvísi mér áður brá Innilegar þakkirfœri ég öllum þeim er heiðruðu mig og glöddu með heimsóknum, gjöfum og heiUaskeytum á 60 ára afmœli mínu. Guð blessi ykkur öU, María Þorsteinsdóttir, Nja rð vík urhraut 19, Innri-Njarðvík. — ÖUum þeim, sem minntust mín á sjötugsafmæli mínu 9. júlí sL sendi ég mínar beztu kveðjur og þakklæti. Lifið heil. Axel Jónsson íslensk fyrirtæki í viðskiptum við Danmörk íslendingur búsettur í Kaupmannahöfn tekur aö sér vörupantanir, markaðsleit, útréttingar o.fl. Þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þessa þjónustu vinsamlega leggið nöfn og símanúmer inn á augl. deild Mbl. merkt: „Danmörk — 576“. Lokað vegna sumarleyfa frá 28. júlí—3. september. Bón og þvottastöðin hf, Sigtúni 3. HJólsagir með 2ja HP mótor 12“ hjólsagarblaðL — Stillanlegu — Verd kr. 12.970,- Einnig WM ■■■■■■ ■ sambyggðar trésmíöavélar -I • hTl n bandsagir fræsarar spónasugur SJÖBERGS hefilbekkir í stærðum 130 sm, 150 sm. 190 sm, 220 sm. Luna-bandsagir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.