Morgunblaðið - 25.07.1984, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1984
61
• Símon Þór, sundmaður frá Bolungarvik, setfi fslandsmet í 100 metra
flugsundi á aldursflokkameistaramótinu í Vestmannaeyjum um helg-
ina.
Var auövitaö ánægður
— sagði Símon Þór Jónsson frá Bolungarvík
Símon Þór Jónsson frá Bolung-
arvík setti eitt íslandsmet á ald-
ursflokkamótinu í sundi sem
fram fór um helgina í Vestmanna-
eyjum. Hann synti 100 metra
flugaund á 1:09,10 og er þaó fs-
landsmet í þessari vegalengd, en
fyrra drengjametió átti Smári
Haröarson frá Vestmannaeyjum
og var tími hans 1:09,20.
Fréttaritari Mbl. á Bolungarvík
náöi tali af Símoni þegar sund-
kapparnir komu til Bolungarvíkur á
mánudagskvöldiö og spuröi hann
fyrst hvernig honum heföi veriö
innanbrjósts er Ijóst var aö hann
haföi náö þvi aö setja fslandsmet.
„Ég veit þaö ekki, ég varö auö-
vitaö ánaegöur,“ sagöi Símon og
var hinn hlédrægasti.
— Hvaö er framundan eftir
þetta mót?
„Þaö veröur núna mánaðarfrí
hjá okkur frá æfingum, en síöan
byrjum viö aftur af fullum krafti aö
byggja upp fyrir næstu törn.“
Símon sagöi aö hann heföi ekki
æft neitt sérstaklega fyrir mótiö í
Eyjum, hann hefði handlegsbrotn-
aö um miöjan maí þegar hann
heföi veriö aö æfa fimleika fyrir
vígslu íþróttahússins hérna og því
heföi hann ekki getað stundaö
sundæfingar í um mánaöartíma.
Hann kvaöst þó hafa reynt aö
halda þrekinu viö á meðan með því
aö hlaupa mikiö og einnig heföi
Hugi Haröarson reynst sér mjög
vel á þessu tímabili.
„Ég vil nota tækifærið og þakka
Huga fyrir alla leiösögnina sem
hann hefur veitt mér og ööru sund-
fólki hér á Bolungarvík og jafn-
framt forustumönnum sunddeild-
arinnar hér á Bolungarvík fyrir öll
þau tækifæri sem okkur sundfólk-
inu hafa veriö sköpuö," sagöi þessi
14 ára efnilegi sundmaður aö lok-
um og sneri sér aö því að neyta
þeirra veitinga sem bæjarstjórn
Bolungarvíkur haföi á boöstólum
fyrir sundfólkiö þegar þaö kom
vestur eftir erfiöa en sigursæla
ferö.
Fagnað á Bolungarvík
Þaö yljaöi Bolvíkingum um
hjartarætur er hinn frábæri
árangur sundfólks þeirra á ald-
ursflokkameistaramótinu í Vest-
mannaeyjum kom í Ijós, en bol-
víska sundfólkinu tókst aö stööva
margra ára sigurgöngu hinna
miklu sundkappa ( sundfélaginu
Cgi. Á mónudaginn blakti vfóa
fáni viö hún á Bolungarvrk sund-
fólkinu til heiöurs. Keppendurnir
og fylgdarfólk þeirra komu til
Bolungarvfkur meö rútu skömmu
fyrir miönætti á mánudagskvöld-
iö eftir um 18 klukkustunda
feröalag frá Vestmannaeyjum.
Keppendur frá Bolungarvík voru
rúmlega 30 talsins á aldrinum 10 til
16 ára, en alls munu hafa fariö um
sextiu manns frá Bolungarvík til aö
fylgjast meö mótinu í Vestmanna-
eyjum.
Bæjarbúar tóku á móti sund-
fólkinu í íþróttahúsi Bolungarvíkur
á mánudagskvöldiö þegar rútan
renndi í hlaö ásamt nokkrum öör-
um bifreiöum og óku þeir um götur
bæjarins þeytandi horn sín. Bene-
dikt Kristinsson, varaforseti bæj-
arstjórnar, flutti árnaöaróskir til
keppenda frá bæjarbúum og bæj-
arstjórn. Kristín Pálmadóttir flutti
nokkur orö fyrir hönd foreldra og
Aðalsteinn Kristjánsson, einn af
fararstjórum sundfólksins, þakkaði
góðar móttökur. Aö síöustu bauö
bæjarstjórnin upp á veitingar.
Hvemig litíst þér á
sumarleyfísdvöl á fallegu
baðstrandarhóteli
Þeim fer sífellt fjölgandi farþegum
Faranda, sem hafa farið í ánægjulegar
sumarleyfisferðir til Grikklands. Við
höfum útvegað farþegum okkar góð
hótel í Aþenu eða á baðströndum
skammt frá borginni.
Við mælum sérstfiklega með Grikk-
landsferð í sumar. Ferðamöguleikar
með flugi alla föstudaga. Hafið samband
sem fyrst.
Ifaiandi
Vesturgötu g, sími 17445
SKYRTU-TILBOÐ
Þarft þú ekki að fá þér skyrtu
á góðu verði? Nú er tækifærið
Aðeins í nokkra daga
Snorrabraut Simi 13505
Glæsibæ Simi 34350