Morgunblaðið - 25.07.1984, Síða 61

Morgunblaðið - 25.07.1984, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1984 61 • Símon Þór, sundmaður frá Bolungarvik, setfi fslandsmet í 100 metra flugsundi á aldursflokkameistaramótinu í Vestmannaeyjum um helg- ina. Var auövitaö ánægður — sagði Símon Þór Jónsson frá Bolungarvík Símon Þór Jónsson frá Bolung- arvík setti eitt íslandsmet á ald- ursflokkamótinu í sundi sem fram fór um helgina í Vestmanna- eyjum. Hann synti 100 metra flugaund á 1:09,10 og er þaó fs- landsmet í þessari vegalengd, en fyrra drengjametió átti Smári Haröarson frá Vestmannaeyjum og var tími hans 1:09,20. Fréttaritari Mbl. á Bolungarvík náöi tali af Símoni þegar sund- kapparnir komu til Bolungarvíkur á mánudagskvöldiö og spuröi hann fyrst hvernig honum heföi veriö innanbrjósts er Ijóst var aö hann haföi náö þvi aö setja fslandsmet. „Ég veit þaö ekki, ég varö auö- vitaö ánaegöur,“ sagöi Símon og var hinn hlédrægasti. — Hvaö er framundan eftir þetta mót? „Þaö veröur núna mánaðarfrí hjá okkur frá æfingum, en síöan byrjum viö aftur af fullum krafti aö byggja upp fyrir næstu törn.“ Símon sagöi aö hann heföi ekki æft neitt sérstaklega fyrir mótiö í Eyjum, hann hefði handlegsbrotn- aö um miöjan maí þegar hann heföi veriö aö æfa fimleika fyrir vígslu íþróttahússins hérna og því heföi hann ekki getað stundaö sundæfingar í um mánaöartíma. Hann kvaöst þó hafa reynt aö halda þrekinu viö á meðan með því aö hlaupa mikiö og einnig heföi Hugi Haröarson reynst sér mjög vel á þessu tímabili. „Ég vil nota tækifærið og þakka Huga fyrir alla leiösögnina sem hann hefur veitt mér og ööru sund- fólki hér á Bolungarvík og jafn- framt forustumönnum sunddeild- arinnar hér á Bolungarvík fyrir öll þau tækifæri sem okkur sundfólk- inu hafa veriö sköpuö," sagöi þessi 14 ára efnilegi sundmaður aö lok- um og sneri sér aö því að neyta þeirra veitinga sem bæjarstjórn Bolungarvíkur haföi á boöstólum fyrir sundfólkiö þegar þaö kom vestur eftir erfiöa en sigursæla ferö. Fagnað á Bolungarvík Þaö yljaöi Bolvíkingum um hjartarætur er hinn frábæri árangur sundfólks þeirra á ald- ursflokkameistaramótinu í Vest- mannaeyjum kom í Ijós, en bol- víska sundfólkinu tókst aö stööva margra ára sigurgöngu hinna miklu sundkappa ( sundfélaginu Cgi. Á mónudaginn blakti vfóa fáni viö hún á Bolungarvrk sund- fólkinu til heiöurs. Keppendurnir og fylgdarfólk þeirra komu til Bolungarvfkur meö rútu skömmu fyrir miönætti á mánudagskvöld- iö eftir um 18 klukkustunda feröalag frá Vestmannaeyjum. Keppendur frá Bolungarvík voru rúmlega 30 talsins á aldrinum 10 til 16 ára, en alls munu hafa fariö um sextiu manns frá Bolungarvík til aö fylgjast meö mótinu í Vestmanna- eyjum. Bæjarbúar tóku á móti sund- fólkinu í íþróttahúsi Bolungarvíkur á mánudagskvöldiö þegar rútan renndi í hlaö ásamt nokkrum öör- um bifreiöum og óku þeir um götur bæjarins þeytandi horn sín. Bene- dikt Kristinsson, varaforseti bæj- arstjórnar, flutti árnaöaróskir til keppenda frá bæjarbúum og bæj- arstjórn. Kristín Pálmadóttir flutti nokkur orö fyrir hönd foreldra og Aðalsteinn Kristjánsson, einn af fararstjórum sundfólksins, þakkaði góðar móttökur. Aö síöustu bauö bæjarstjórnin upp á veitingar. Hvemig litíst þér á sumarleyfísdvöl á fallegu baðstrandarhóteli Þeim fer sífellt fjölgandi farþegum Faranda, sem hafa farið í ánægjulegar sumarleyfisferðir til Grikklands. Við höfum útvegað farþegum okkar góð hótel í Aþenu eða á baðströndum skammt frá borginni. Við mælum sérstfiklega með Grikk- landsferð í sumar. Ferðamöguleikar með flugi alla föstudaga. Hafið samband sem fyrst. Ifaiandi Vesturgötu g, sími 17445 SKYRTU-TILBOÐ Þarft þú ekki að fá þér skyrtu á góðu verði? Nú er tækifærið Aðeins í nokkra daga Snorrabraut Simi 13505 Glæsibæ Simi 34350

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.