Morgunblaðið - 25.07.1984, Side 63

Morgunblaðið - 25.07.1984, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1984 63 • Pétur Pétursson Haraldur ekki á Ólympíuleikana! — tilkynnti Ólympíunefnd í gær í bréfi. Óánægður með flokksstjóra sinn Atvinnuleyfi ekki fengist: „Forráöamenn Feyenoord ekki hræddir“ „ÉG HEF ekki fengið atvinnuleyfi hér í Hollandi en forráðamenn Feyenoord eru ekki hræddir um að þaö takist ekki. Þaö verður tekið fyrir af nefnd hjá knatt- spyrnusambandinu nú á næst- unni,“ sagði Pétur Pétursson, knattspyrnumaður frá Feyenoord í Hollandi í samtali við blm. Mbl. í gær. Feyenoord hefur leigt Pótur til eins árs frá Antwerpen í Belgíu eins og Mbl. greindi frá á dögun- um. „Eg á hús hér i Hollandi, keypti þaö er ég lék með Feyenoord fyrst, og hef greitt af því skatta hór í þrjú ár. Forráöamenn félagsins telja litl- ar líkur á því aö mér veröi bannaö aö starfa hér þegar óg á eignir í landinu. Pétur leigir Tahamata! PÉTUR Pétursson á hús í Rott- erdam í Hollandi eins og kemur fram í frétt hér á síöunni. Þess má geta að Pétur leigði nýlega Simon Tahamata, hollenska landsliðs- manninum, hús sitt til þriggja ára. Tahamata var keyptur I sumar til Feyenoord frá Standard Liege í Belglu. Meistaramót í tennis Meistaramót islands I tenn- is 1984 verður haldið á tennis- völlum TBR dagana 2. til 6. ág- úst næstkomandi. Keppt veröur í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarleik karla og kvenna ef næg þátttaka fæst. Þátttökutilkynningar skulu berast til TBR í síöasta lagi laugardaginn 28. júli nk. Bikarleikur í Kópavogi Síöasti leikur 8-liða úrslita bik- arkeppni KSÍ fer fram i kvöld. Breiðablik og ÍA leika i Kópavogi og hefst leikurinn kl. 20. Haraldur Ólafsson, lyftinga- maður frá Akureyri, tilkynnti Ólympíunefnd fslands i gær, að hann hefði ákveðið aö afsala sér rétti til þátttöku í Ólympíuleik- unum í Los Angeles. Bréf Har- alds til nefndarinnar var svo- hljóðandi. „Hæstvirta Ólympíunefnd. Ég, undirritaöur, tilkynni hér meö þá ákvöröun mína sem ég hefi tekiö aö vandiega íhuguöu máli, aö ég afsali mér þeim rétti mínum aö taka þátt í lyftinga- keppni Ólympíuleikanna í Los Angeles. Astæöurnar eru eftirfarandi: Stjórn LSÍ ákvaö á sínum tíma aöstoöarmann, eöa svokallaöan fararstjóra, mér til handa fyrir keppnina. Ég var ekki ánægöur meö þessa ákvöröun, þar sem þaö var vitaö aö umræddur far- arstjóri gæti ekki talist hæfur til aö ganga í gegnum hinn verklega þátt sem fullgildur aöstoöarmaö- ur í þeirri hörkukeppni sem Ólympíuleikar eru. (Hins vegar væri hann eflaust ágætur í hinum bréflega þætti.) Þar sem ég er eini lyftinga- maöurinn sem valinn haföi verið, þá haföi mér fundist eölilegt aö þjálfari minn, Ólafur örn Ólafs- son, sem lengi hefur aöstoöaö mig á mótum meó ágætis árangri, heföi fariö meö mór, eins og ætti aö vera i svona tilfellum. Til aö reyna aö fá þessu breytt á þennan veg þá haföi ég samband viö Gísla Halldórsson form. Ól- nefndar. Hann benti mér á aö þetta mál væri alfariö í höndum LSf. Lyftingaráö Akureyrar sendi þá bréf fyrir mina hönd til LSf og óskaöi eftir breytingu á farar- stjórn minni. Ekkert svar barst, haföi ég þá sjálfur samband við stjórnarmann úr LSÍ og ítrekaöi óskir mínar. Fékk óg þá góö orö fyrir því aö þessu yröi breytt, þar sem ástæöur mínar væru allgild- ar. Skömmu síöar birtist viötal viö umræddan fararstjóra, Guð- mund Þórarinsson, hæstvirtan form. LSf, i Morgunblaöinu. Sagöi hann þá m.a. aö hann væri aö hugsa um aö draga sig til baka og væri sjálfur meö þá til- lögu aö Garöar Gíslason yröi far- arstjóri og aðstoöarmaöur i sinn staö, og yröi þá jafnframt kepp- andi. Eftir langa þögn LSf haföi ég samband vió einn stjórnar- manna LSf. Sagöi hann aö þaö yröi kallaöur saman fundur hjá LSf fljótlega og yröi þá tekin ákvöröun um breytta fararstjórn. Myndi síöan veröa hringt í mig, en þá hringingu hef ég ekki enn heyrt. Nú nýveriö hef óg frétt eftir ýmsum leiöum aö LSf hafi ákveö- iö aö fararstjórn sé óhagganieg. Fyrst mér hefur veriö sýndur sá heiður aö mega lyfta á Ólympíuleikunum fyrir elskaöa ættjörö og þjóö vora, þá heföi ég gjarna viljað gjöra mitt besta á þeim vettvangi. Þar sem óskir mínar hafa nú verið virtar að vettugi, er slíkt ekki mögulegt, undir þeim kringumstæöum sem ákveönar hafa veriö mér (óhag. Því hefi ég tekiö þessa erfiöu ákvöröun aö hætta viö þátttöku í þessum Ólympíuleikum. Virðingarfyllst, Haraldur Ólafsson." • Haraldur Ólafsson hefur hætt við þétttðku é Ólympíuleikunum ( Los Angeles. Hann étti aö fara utan é morgun. „Ekki fjölskyldu- ferð fyrir Harald“ — segir Ólafur Sigurgeirsson, stjórnarmaður í LSÍ „MÁLIÐ er Iðngu fullrætt hjé Lyftingasambandinu. Það kom aldrei til greina af okkar hélfu að senda einhvern annan með Haraldi é leikana en Guömund — og það étti ekki aö vera nema brot af starfi Guömundar é leikunum aö aðstoða hann. Guömundur mun sitja þing Alþjóða lyftingasambandsins og það er aöalatriöið,“ sagði Ólafur Sigurgeirsson, stjórnarmaður í Lyftingasambandinu, í sam- tali við Mbl. vegna méls Haralds Ólafssonar. Haraldur vildi fá Ólaf bróöur sinn sem fararstjóra meö sér á leikana en Ólafur Sigurgeirsson sagöi stjórn LSi ekki ánægöa með hann. „Ólafur fór með Har- aldi á Evrópumeistaramótiö á Spáni í vor. Þar var tekin dóp- prufa af einum keppandanum (Gylfa Gíslasyni) og Ólafur gætti þess ekki aö taka niöur númerið á sýninu svo viö höngum (lausu lofti hvaö þaö varöar." Ólafur sagöí aö þegar fariö væri á Ólympíuleikana væri þaö viðkomandi sérsamband sem réöi mann til aö fara meö kepp- endum. „Hvaö varöar lyftingarn- ar er þaö þingiö sem mestu varö- ar. Þetta er stefnumarkandi þing næstu fjögur árin og þar fara fram allar lagabreytingar. Viö höfum því ekki gagn af því aö aðrir en menn sem vinna fyrir íþróttina og sitja í stjórn Lyft- ingasambandsins sitji á þinginu." Það hefur þé aldrei komið til greina að tveir flokksstjórar færu é leikana með Haraldi? „Nei, það er yflrþyrmandi della. Ég hélt aö þetta farar- stjóramál væri löngu útrætt. Þetta á ekki aö vera nein fjöl- skylduferö fyrir Harald Ólafsson, og hefur aldrei átt aö vera. Viö erum löngu búnir aö fá nóg af þessum bróöur hans. Hann hefur ólmast í Ólympfunefnd í marg- gang til aö fá fjárveitingar til aö fara meö Haraldi eitt og annað. Haraldur er sómamaöur og ég er alveg viss um aö þessi hugmynd er ekki komin frá honum,“ sagöi Ólafur. Ólafur bætti þvi viö aö Ólafur Ólafsson heföi aldrei á Ólympíu- leika fariö en Guömundur Þórar- insson heföi gert þaö. „Guö- mundur fór til Moskvu 1980 og stóö sig meö þeim ágætum i sambandi viö lyftingamennina þar aö þeir bera honum allir hiö besta orö. Reynslan er kannski dýrmætari en í hverju menn telja sig vera góða og reynsluna hefur Guömundur." Er ekki slæmt fyrir lyftingar hér é iandi að þetta skuli koma upp? „Þaö held ég ekki. Þetta er náttúrulega slæmt fyrir Harald. Og ef hann hefur aldrei ætlaö á Ólympiuleikana nema aö hafa Ólaf bróöur sinn meö sér heföi hann átt að ganga frá því strax og hann var valinn i Ólympíuliöiö. Þetta er náttúrulega eins og hver annar skepnuskapur — eins og þegar Rússar ákváöu aö hætta viö þátttöku á síöustu stundu og þegar Bandaríkjamenn gengu út, fyrir Ólympiuleikana í Moskvu. Þetta er ekkert annaö en virö- ingarleysi fyrir íþróttinni og Ólympíuhugsjóninni og öllu slíku. Aö láta fjölskylduhagsmuni ráöa frekar en þaö sem dýrmætast er af öllu," sagöi Ólafur Sigurgeirs- son.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.