Morgunblaðið - 26.07.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.07.1984, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 169. tbl. 71. árg. FIMMTUDAGUR 26. JÍJLÍ 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Reagan leyfir Rússum að veiða í landhelginni WuhinKton, 25. júlf. AP. REAGAN Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að aflétta banni við fiskveiöum Sovétmanna innan bandarískrar fiskveiðilögsögu að sögn embaettismanna í bandaríska utanríkisráðuneytinu. Hefur Bandaríkjastjórn í hyggju að leyfa Sovétmönnum að veiða 50 þúsund tonn árlega, en bann við fiskveiðum þeirra var sett eftir innrás þeirra inn i Afg- anistan. Chris Koch ráðgjafi repúblik- ana í fiskveiðimálum sagði að Sov- étmönnum yrði heimilt að veiða á Norður-Kyrrahafi og Berings- sundi á þessu ári. Hann sagði ennfremur að Sovétmenn hefðu fallist á að kaupa meira magn af fiski frá Bandaríkjunum en áður í staðinn fyrir veiðiheimildirnar. Mætti gera ráð fyrir að verðmæti fisksölu til Sovétmanna yxi um átta milljónir dollara í kjölfar af- léttingar fiskveiðibannsins. Samkvæmt bandarískum lögum er Sovétmönnum einungis heimilt að veiða innan hinnar 200 mílna fiskveiðilögsögu, þar sem banda- rískum veiðiskipum er ekki til að dreifa. Sovésk skip mega stunda veiðar upp að þriggja mílna mörk- um Bandaríkjanna, en fá ekki að veiða á svæðum þar sem banda- rískir kjarnorkukafbátar af Tri- dent-gerð eru að æfingum. Bretland: Kinnock vinnur sigur á vinstri öfgamönnum Undon. 25. iúlí. AP. * ^ London, 25. júlí. AP. NEIL Kinnock, formaður breska verkamannafiokksins, sigraði hinn róttæka vinstri arm fiokksins í at- kvæðagreiðslu um tillögu, sem hann kvað mundu tryggja aukið Ivðræði við val á frambjóðendum fiokksins ( þingkosningum. Stjórn flokksins samþykkti með 15 atkvæðum gegn 12 tillögu Kinnocks, sem felur i sér, að félag- ar flokksdeilda í hverju kjördæmi greiði atkvæði um hvort þeir vilja styðja endurkjör þingmanns þess. Fram að þessu hefur sá háttur verið hafður á að framkvæmda- nefndir í sérhverju kjördæmi, en róttækir vinstri menn i flokknum eru þar víðast hvar i meirihluta, taka ákvörðun um hvaða þing- menn skuli valdir til endurkjörs. Einn þingmaður Verkamanna- flokksins, Jack Stram, sagði að til- laga Kinnocks, sem var samþykkt, hefði ekki mikil áhrif, en væri táknræn. Málið hefði snúist um hvort Verkamannaflokkurinn ætl- aði af alvöru að reyna að sigra í kosningum, og þvi kæmi sigur Kinnocks honum vel. ítrekuð var á fundinum sú stefna flokksins að berjast fyrir því að loka bandarískum herstöðv- um og leggja niður kjarnorkuher- afla Breta. Stefna flokksins i Neil Kinnock, formaður mannafiokksins. Verka- varnarmálum hefur aldrei verið eins ótviræð. Rabbíinn Meir Kahane, leiðtogi flokks öfgasinnaðra hægrimanna í Israel, er borinn af æstum stuðningsmönnum sínum um götur Jerúsalem eftir að úrslit þingkosninganna voru birt. Flokkurinn fékk einn þingmann kjörinn. fsrael: Verkamannaflokkur til viðræðu um þjóðstiórn Tel AtW, 25. júlí. AP. TALSMENN Verkamannafiokks- ins í ísrael sögðu í dag, að flokk- urinn tæki ef til vill þátt í samsteypustjórn með Likud- bandalaginu, en hingað til hefur leiðtogi hans, Shimon Perez, ver- ið því mótfallinn. Verkamannaflokkurinn gerir þó að skilyrði, að Perez fái forsætisráðherraembættið, en ekki formaður Likud-banda- lagsins, Yitzhak Shamir for- sætisráðherra. Talsmennirnir sögðu að litlar líkur væru á því að Shamir af- sali sér forsætisráðherraem- bættinu og gáfu í skyn að af- stöðunni til samstarfs við Likud-bandalagið hefði ein- vörðungu verið breytt til að sýna almenningi að Verka- mannaflokknum væri umhugað Ofurmannlegt afrek Austur-Þjóðverja í dynjandi skothríð: Kleif 3 víggirðingar og sjálfan Berlínarmúrinn Berlín, 25. júlf. AP. 22 ÁRA Austur-Þjóðverji flýði frá Austur-Berlin til Vestur-Berlínar í nótt með svo ævintýralegum hætti að aðrar flóttatilraunir falla næstum í skuggann. Komst maðurinn yflr, í gegnum og fram hjá hverri viggirðing- unni af annarri á stað sem er hvað best gætt af austur-þýska hernum, nærri Bernauer-stræti. Mikil skothríð austur-þýskra landamæravarða fylgdi manninum alla leiðina ( frelsið, en heppni hans reið ekki við einteyming, ein kúla straukst við annan olnboga hans, að öðru leyti sakaði hann ekki. Fyrst varð maðurinn að príla yfir lágan vegg og þá þegar komu landamæraverðir auga á hann, skipuðu honum að gefast upp, en maðurinn lét það sem vind um eyru þjóta og hljóp áfram. Hófu verðirnir þá skot- hrið, en maðurinn hljóp sem fætur toguðu að næstu fyrir- stöðu sem var há og illkleif gaddavírsgirðing. Yfir hana nánast flaug pilturinn, en þá tók við löng spilda, skjóllaus, upp- ljómuð af Ijóskösturum Austur- Þjóðverja. Ekki gómuðu þeir pilt þar þrátt fyrir að þeir beindu að honum ótal byssum og hleyptu af í gríð og erg. Hljóp pilturinn yfir flötina í dynjandi skothríð og kom að einni gaddavirsgirð- ingunni til viðbótar og i þessari voru sjálfvirkar byssur og ýmis- legt af bestu tækjum sem Austur-Þjóðverjar ráða yfir til að sporna við flóttafólki. En ekk- ert hreif, pilturinn kleif upp háa girðinguna eins og hann væri með sogskálar húsflugu á fótum, hélt síðan áfram hlaupinu. Sið- asta hindrunin var ekki af auð- veldara taginu, sjálfur Berlín- armúrinn, brattur og kaldur steinveggur. En yfir hann kleif pilturinn og alltaf i sömu kúlna- hríðinni. Pilturinn gaf sig fram við vestur-þýska lögreglumenn sem afhentu hann frönskum herlög- reglumönnum sem ráða rikjum á þvi svæði Vestur-Berlinar sem flóttinn fór fram. Var hann í haldi fyrst um sinn og yfirheyrð- ur rækilega, enda þótti flótta- saga hans hin ævintýralegasta. Nafn hans hefur ekki verið gefið upp til þess að vernda ættingja hans í Austur-Þýskalandi. um þjóðareiningu eftir hinar óljósu niðurstöður kosn- inganna, þar sem hvorugur stóru flokkanna fór með sigur af hólmi. Ónafngreindur aðstoðarmað- ur Shamirs sagði i dag, að ekki kæmi til greina að Likud- bandalagið tæki þátt í sam- steypustjórn með Verka- mannflokknum undir forsæti Perezar. Þrátt fyrir orðróm um hugsanlegt stjórnarsamstarf hinna tveggja stóru flokka héldu formælendur þeirra beggja áfram að ræða við full- trúa smáflokkanna um stjórn- armyndun. Enn er talningu atkvæða ólokið, en Verkamannaflokkur- inn virðist hafa fengið 45 þing- sæti og Likud-bandalagið 42. Búist er við að lokaniðurstöð- urnar verði kunngerðar í lok þessarar viku. Fyrsta konan í geimgöngu Moskvu, 25.júli. AP. Sovézki geimfarinn Svetl- ana Savitskaya fór úr geim- stöðinni Salyut 7 í dag og í svokallaða geimgöngu. Kona hefur aldrei áður farið í göngu í geimnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.