Morgunblaðið - 26.07.1984, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
169. tbl. 71. árg.
FIMMTUDAGUR 26. JÍJLÍ 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reagan leyfir Rússum
að veiða í landhelginni
WuhinKton, 25. júlf. AP.
REAGAN Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að aflétta banni við fiskveiöum
Sovétmanna innan bandarískrar fiskveiðilögsögu að sögn embaettismanna í
bandaríska utanríkisráðuneytinu.
Hefur Bandaríkjastjórn í
hyggju að leyfa Sovétmönnum að
veiða 50 þúsund tonn árlega, en
bann við fiskveiðum þeirra var
sett eftir innrás þeirra inn i Afg-
anistan.
Chris Koch ráðgjafi repúblik-
ana í fiskveiðimálum sagði að Sov-
étmönnum yrði heimilt að veiða á
Norður-Kyrrahafi og Berings-
sundi á þessu ári. Hann sagði
ennfremur að Sovétmenn hefðu
fallist á að kaupa meira magn af
fiski frá Bandaríkjunum en áður í
staðinn fyrir veiðiheimildirnar.
Mætti gera ráð fyrir að verðmæti
fisksölu til Sovétmanna yxi um
átta milljónir dollara í kjölfar af-
léttingar fiskveiðibannsins.
Samkvæmt bandarískum lögum
er Sovétmönnum einungis heimilt
að veiða innan hinnar 200 mílna
fiskveiðilögsögu, þar sem banda-
rískum veiðiskipum er ekki til að
dreifa. Sovésk skip mega stunda
veiðar upp að þriggja mílna mörk-
um Bandaríkjanna, en fá ekki að
veiða á svæðum þar sem banda-
rískir kjarnorkukafbátar af Tri-
dent-gerð eru að æfingum.
Bretland:
Kinnock vinnur sigur
á vinstri öfgamönnum
Undon. 25. iúlí. AP. * ^
London, 25. júlí. AP.
NEIL Kinnock, formaður breska
verkamannafiokksins, sigraði hinn
róttæka vinstri arm fiokksins í at-
kvæðagreiðslu um tillögu, sem hann
kvað mundu tryggja aukið Ivðræði
við val á frambjóðendum fiokksins (
þingkosningum.
Stjórn flokksins samþykkti með
15 atkvæðum gegn 12 tillögu
Kinnocks, sem felur i sér, að félag-
ar flokksdeilda í hverju kjördæmi
greiði atkvæði um hvort þeir vilja
styðja endurkjör þingmanns þess.
Fram að þessu hefur sá háttur
verið hafður á að framkvæmda-
nefndir í sérhverju kjördæmi, en
róttækir vinstri menn i flokknum
eru þar víðast hvar i meirihluta,
taka ákvörðun um hvaða þing-
menn skuli valdir til endurkjörs.
Einn þingmaður Verkamanna-
flokksins, Jack Stram, sagði að til-
laga Kinnocks, sem var samþykkt,
hefði ekki mikil áhrif, en væri
táknræn. Málið hefði snúist um
hvort Verkamannaflokkurinn ætl-
aði af alvöru að reyna að sigra í
kosningum, og þvi kæmi sigur
Kinnocks honum vel.
ítrekuð var á fundinum sú
stefna flokksins að berjast fyrir
því að loka bandarískum herstöðv-
um og leggja niður kjarnorkuher-
afla Breta. Stefna flokksins i
Neil Kinnock, formaður
mannafiokksins.
Verka-
varnarmálum hefur aldrei verið
eins ótviræð.
Rabbíinn Meir Kahane, leiðtogi flokks öfgasinnaðra hægrimanna í Israel, er
borinn af æstum stuðningsmönnum sínum um götur Jerúsalem eftir að úrslit
þingkosninganna voru birt. Flokkurinn fékk einn þingmann kjörinn.
fsrael:
Verkamannaflokkur til
viðræðu um þjóðstiórn
Tel AtW, 25. júlí. AP.
TALSMENN Verkamannafiokks-
ins í ísrael sögðu í dag, að flokk-
urinn tæki ef til vill þátt í
samsteypustjórn með Likud-
bandalaginu, en hingað til hefur
leiðtogi hans, Shimon Perez, ver-
ið því mótfallinn.
Verkamannaflokkurinn gerir
þó að skilyrði, að Perez fái
forsætisráðherraembættið, en
ekki formaður Likud-banda-
lagsins, Yitzhak Shamir for-
sætisráðherra.
Talsmennirnir sögðu að litlar
líkur væru á því að Shamir af-
sali sér forsætisráðherraem-
bættinu og gáfu í skyn að af-
stöðunni til samstarfs við
Likud-bandalagið hefði ein-
vörðungu verið breytt til að
sýna almenningi að Verka-
mannaflokknum væri umhugað
Ofurmannlegt afrek Austur-Þjóðverja í dynjandi skothríð:
Kleif 3 víggirðingar og
sjálfan Berlínarmúrinn
Berlín, 25. júlf. AP.
22 ÁRA Austur-Þjóðverji flýði frá Austur-Berlin til Vestur-Berlínar í nótt
með svo ævintýralegum hætti að aðrar flóttatilraunir falla næstum í
skuggann. Komst maðurinn yflr, í gegnum og fram hjá hverri viggirðing-
unni af annarri á stað sem er hvað best gætt af austur-þýska hernum,
nærri Bernauer-stræti. Mikil skothríð austur-þýskra landamæravarða
fylgdi manninum alla leiðina ( frelsið, en heppni hans reið ekki við
einteyming, ein kúla straukst við annan olnboga hans, að öðru leyti
sakaði hann ekki.
Fyrst varð maðurinn að príla
yfir lágan vegg og þá þegar
komu landamæraverðir auga á
hann, skipuðu honum að gefast
upp, en maðurinn lét það sem
vind um eyru þjóta og hljóp
áfram. Hófu verðirnir þá skot-
hrið, en maðurinn hljóp sem
fætur toguðu að næstu fyrir-
stöðu sem var há og illkleif
gaddavírsgirðing. Yfir hana
nánast flaug pilturinn, en þá tók
við löng spilda, skjóllaus, upp-
ljómuð af Ijóskösturum Austur-
Þjóðverja. Ekki gómuðu þeir pilt
þar þrátt fyrir að þeir beindu að
honum ótal byssum og hleyptu
af í gríð og erg. Hljóp pilturinn
yfir flötina í dynjandi skothríð
og kom að einni gaddavirsgirð-
ingunni til viðbótar og i þessari
voru sjálfvirkar byssur og ýmis-
legt af bestu tækjum sem
Austur-Þjóðverjar ráða yfir til
að sporna við flóttafólki. En ekk-
ert hreif, pilturinn kleif upp háa
girðinguna eins og hann væri
með sogskálar húsflugu á fótum,
hélt síðan áfram hlaupinu. Sið-
asta hindrunin var ekki af auð-
veldara taginu, sjálfur Berlín-
armúrinn, brattur og kaldur
steinveggur. En yfir hann kleif
pilturinn og alltaf i sömu kúlna-
hríðinni.
Pilturinn gaf sig fram við
vestur-þýska lögreglumenn sem
afhentu hann frönskum herlög-
reglumönnum sem ráða rikjum á
þvi svæði Vestur-Berlinar sem
flóttinn fór fram. Var hann í
haldi fyrst um sinn og yfirheyrð-
ur rækilega, enda þótti flótta-
saga hans hin ævintýralegasta.
Nafn hans hefur ekki verið gefið
upp til þess að vernda ættingja
hans í Austur-Þýskalandi.
um þjóðareiningu eftir hinar
óljósu niðurstöður kosn-
inganna, þar sem hvorugur
stóru flokkanna fór með sigur
af hólmi.
Ónafngreindur aðstoðarmað-
ur Shamirs sagði i dag, að ekki
kæmi til greina að Likud-
bandalagið tæki þátt í sam-
steypustjórn með Verka-
mannflokknum undir forsæti
Perezar.
Þrátt fyrir orðróm um
hugsanlegt stjórnarsamstarf
hinna tveggja stóru flokka
héldu formælendur þeirra
beggja áfram að ræða við full-
trúa smáflokkanna um stjórn-
armyndun.
Enn er talningu atkvæða
ólokið, en Verkamannaflokkur-
inn virðist hafa fengið 45 þing-
sæti og Likud-bandalagið 42.
Búist er við að lokaniðurstöð-
urnar verði kunngerðar í lok
þessarar viku.
Fyrsta konan
í geimgöngu
Moskvu, 25.júli. AP.
Sovézki geimfarinn Svetl-
ana Savitskaya fór úr geim-
stöðinni Salyut 7 í dag og í
svokallaða geimgöngu. Kona
hefur aldrei áður farið í göngu
í geimnum.