Morgunblaðið - 26.07.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ1984
Sýning á sjálfvirkum sleppibúnaði bjórgunarbáta:
Stálvíkurbún-
aðurinn virkaði
ekki í tilraun
SLEPPIBÚNAÐUR fyrir björgun-
arbáta frá Stálvík í Garðabæ virk-
aði ekki í gær þegar framleiðendur
hans, Sigmunds-húnaoarins frá
Vestmannaeyjum og Olsen-búnað-
arins í Njarðvík efndu til sýningar
á framleiðslu sinni fyrir nefnd 9
þingmanna, sem skipuð var til þess
að fjalla um öryggismál sjómanna,
og rannsóknarnefnd sjóslysa að tíl-
hlutan Siglingamáiastofnunar
ríkisins. Bæði Sigmunds- og
Olsen-búnaðurinn virkuðu eðlilega
við sýninguna.
„Þetta var fróðlegt fyrir
nefndarmenn, sem sumir hverjir
höfðu aldrei séð þennan búnað,
sjálfsagt höfðu ekki allir séð
Hver bannaði framsalið?:
Skipstjórinn
færist undan
að svara
f SKÝRSLU, sem dómsmálaráðu-
neytið lét taka af skipstjóra þýska
skípsins Elizu Heeren er skipið
kom hingað til lands í síðustu viku
færist skipstjórinn á þýska skipinu
Elizu Heeren undan að skýra frá
því hvaða yfirvöld það voru, sem
bönnuðu honum að framselja
þýska fálkaeggjaþjófinn Miroslav
Peter Baly í hendur yfirvalda í
dönsku hafnarborginni Esbjerg á
sínum tíma.
Jóns Thors, deildarstjóri í
dómsmálaráðuneytinu, sagði
frásagnir blaðanna af þessu máli
að sumu leyti ítarlegri en skýrsl-
una, sem dómsmálaráðuneytið
lét taka. „Með því að leggja það
saman, sem blaðamenn fengu
upp úr skipstjóranum, og skýrslu
okkar fæst að ég held ágæt heild-
armynd af atburðarásinni," sagði
Jón.
„Skipstjórinn sagðist hafa tal-
að við ótilgreind yfirvöld í tal-
stoð, en bar ekki fyrir sig að þau
hefðu gefið sér einhverjar skip-
anir, þótt hann hafi sagt það við
Danina á sínum tíma," sagði Jón
ennfremur.
Trilluveiði-
bann um-
verslunar-
mannahelgina
ALLAR fiskveiðar báta undir 10
brúttólestum hafa verið bannaðar
um verslunarmannahelgi, frá 2.—6.
ágúst, að báoum dögum meðtöldum.
Samkvæmt bráðabirgðatölum Fiski-
félags íslands hafa bátar undir 10
lestum aflað nokkuð yfir viðmiðun-
armörk síðasta tímabils.
Samkvæmt reglugerð um
stjórnun botnfiskveiða hafa bátar
undir 10 lestum sameiginlegt
heildaraflamark er skiptist niður
á fjugur ttSSSÍAL J£ír.íramt er
ákveðið í reglugerðinni, að fari
afli á einu tímabili yfir mörkin
skuli veiðar á næsta timabili
stoðvaðar um sinn.
Reglugerðin tekur ekki til báta,
10 brúttólestir og stærri, sem
fengið hafa aflakvóta, að því er
segir í fréttatilkynningu frá sjáv-
arútvegsráðuneytinu.
gúmmíbjörgunarbát fara á flot,"
sagði Pétur Sigurðsson, formað-
ur þingmannanefndarinnar, við
blm. Mbl. í gær. „Um þá reynslu,
sem þarna kom fram, hefur ekk-
ert verið rætt í nefndinni ennþá.
Allur þessi búnaður hefur ein-
hverju sinni brugðist."
Að sogn Péturs fundaði nefnd-
in í húsi Slysavarnafélagsins eft-
ir sýninguna í gær og kemur
saman til fundar á næstunni og
mun þá m.a. fjalla um það, sem
fram kom á sýningunni í gær.
„Við í nefndinni verðum öll
þátttakendur á öryggismála-
ráðstefnunni, sem haldin verður
í haust, enda er beðið um það í
skipunarbréfi ráðherra, að við
látum í okkur heyra með fyrstu
tillogur áður en þing kemur sam-
an í haust," sagði Pétur Sigurðs-
son.
Horgunblaðið/Árni Sæberg.
Þingmannanefndin og rannsóknanefnd sjóslysa hlusta ásamt fleirum á útlistanir um Stilvíkur-búnaoinn í gær. Er
hann var reyndur nokkrum augnablikum síoar virkaði hann ekki.
Síöustu bflamir
sérstök lánakjör
Við bjóðum nú örfáa seinustu Suzuki Alto og Suzuki sendibíla
af árgerð 1984 með einstökum lánakjörum.
Helmingurínn lánaður
Suzuki Alto:
verð frá aðeins 226.000 kr.
Margfaldur (slandsmeistari
í sparakstri
Allir Suzuki bílar með
6 ára ryðvamarábyrgð
Suzuki sendibílar:
Háþe^ubíll
verðaðeinsl 94.000 kr.
Með hliðarrúðum
verðaðeins 217.000 kr.
Hvar færðu betri verð og betri kjör?
SVEINN EGILSSON HF,
SUZUKI