Morgunblaðið - 26.07.1984, Side 24

Morgunblaðið - 26.07.1984, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1984 Undarleg eru atvikin. Við sátum á Saint-Michel-torg- inu í París og elfur mann- lífsins og umferðinnar hrísluðust þvers og kruss. Við vorum að tala um Erró, Guðmund Guðmundsson, og ég hafði á orði að ég þyrfti að hringja í hann til þess að afla í blaðagrein. í sömu mund gengur Erró á torgið ásamt konu sinni nýkominni fra Thailandi og listamaðurinn staldraði við. Við mæltum okkur mót RABBAÐ VIÐ ERRÓ Á VINNUSTOFUNNI í PARÍS Set þúsund hluti saman á minn hátt Maoet — úr (ýningarikrá frá einnl af •tóraýningum Erró (Frakklnndi um þeranr mundir. á vinnustofu hans. Að undanförnu hefur Errð verið með fjöl- margar sýningar í gangi, síðast þrjár stórar sýningar í Frakklandi, eina stóra sýningu í Sviss auk þátttöku í ýmsum sýn- ingum svo sem á Kjarvalsstöð- um þar sem fimm stórar myndir Erró taka á móti gestum þegar þeir ganga i húsið. Það kennir margra grasa á sýningum Erró, pólitísku myndirnar eru á einum stað, erótísku myndirnar eru á sýningu í fornu klaustri og þar hanga þær uppi í svefnherbergj- um munkanna. Að undanförnu hefur Erró unnið talsvert við málverk af meisturum ýmissa greina lista, vísinda og stjórn- mála og að baki liggja liðlega 80 stór málverk af andlitum, sögu mannanna, lífi þeirra, vinum þeirra og stundum flæðir tónlist eða annað tilheyrilegt inn i myndirnar. Þá hefur staðið yfir í Frakklandi sýning á öllum klippimyndum Erró, þ.e. módel- in hafa verið sýnd ásamt full- unnum myndum. „Það er nóg að gera,“ sagði Erró, „ég var að byrja á nýrri myndaröð um geimöld en megin- tíminn nú fer í að vinna fjórar mjög stórar myndir fyrir Ren- ault-bílaverksmiðjurnar. Þeir pöntuðu þessar myndir og ég tek fyrir vélina í heild, tek þetta allt i sundur i þúsund hluti og set saman á minn hátt. Ég reikna með átta mánaða vinnu i þessar myndir, en þær verða sýndar i Frakklandi næsta sumar." Erró Ljótmyndir Ámi JohnMn. Erró hefur vinnustofur á þremur stöðum. „Já, ég er á Spáni i tvo mánuði á vorin, til Thailands fer ég á sama degi ár hvert eins og gamall Englend- ingur og svo er það París. Nei, ég hef ekki málað mikið af íslandi upp á siðkastið, það er búið að mála allt ísland og það er meira af landslagi innandyra á íslandi en utan, málverkin væru líklega lengri en strand- lengjan ef þau væru sett saman öll. Ég reyni þó að halda eins góðum tenglsum heim og ég get og nú eru fimm myndir á Kjar- valsstöðum, allar nýjar nema fiskalandslagið. Þetta eru mis- munandi myndir og sýna ákveðna þætti. Það er gott að geta sent stórar myndir heim, gaman að sýna stórar myndir þar. Ég vildi helzt vinna allar myndir á 3 x 6 metra, en það er svo erfitt að flytja svo stórar myndir, 2x3 metrar kemst hins vegar um allar dyr. Ég vonast til þess að koma heim með sýningu einhverntíma i rólegheitum, ef til vill á næsta ári. Eg gæti þess að koma aðeins heim með góðar myndir, það bezta, fólk dæmir svo hart, hefur góð augu. Ég geri þetta í rólegheitum, en þegar ég lýk við syrpu af myndum vel ég það bezta úr og geymi það til sýningar heima. Jú, þetta gengur vel hjá mér, ekki eins vel og maður vildi, en þetta er vinna og aftur vinna og það dugar ekkert minna en að standa uppi 10—12 tíma á dag við málverkið. Launin til lengdar eru þvi ekkert til að hrópa húrra fyrir og það eru tímabil sem eru erfið hér i Evrópu, í Frakklandi eru 40 þúsund listmálarar og samkeppnin er mikil. Maður verður því að vera þéttur og fastur fyrir og þannig byggist þetta upp fyrir manni. Fólk treystir á mann og það hefur þannig mikið að segja að vinna markvisst og mér finnst það einnig skipta miklu máli að vinna ekki aðeins i Frakklandi, heldur einnig viða um heim og skapa þannig ákveðinn takt- slátt." Erró fyrir framan eina af stóru mjndnnum fyrir Reno aem hann er nýbyrjaður á. Erró með eina af nýju mvndunum sínum, aust- ræna fegurð. Erró hugar að tveimur málverkum á vinnustofu sinni (Paris, vestrænu og austrænu myndefni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.