Morgunblaðið - 26.07.1984, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1984
Noregur:
Nauðungaruppboðum
á fískibátum fjölgar
UPPBOÐSKRÖFUM á
norskum fískibátum fer nú
fjölgandi vegna fjárhagslegra
erfíðleika eigenda þeirra.
Norska blaðið Fiskaren segir
nýlega frá því, að á tímabil-
inu 1. maí til 21. júní hafí
nauðungaruppboðs verið
krafizt á 17 fískiskipum þar í
landi.
Blaðið segir, að eigendurnir geti
ekki staðið við fjárhagslegar
skuldbindingar og þvi hafi nauð-
ungaruppboðs verið krafizt, aðal-
lega af bönkum, sjóðum og opin-
berum aðilum. { 13 þessara tilfella
var það Fiskveiðasjóður norska
ríkisins, sem krafðist uppboðs, í
tveimur tilfellum einkabankar, í
einu bæjarfélag og einu skipa-
smíðastöð.
Átta þessara skipa eru frá
Finnmörk, fjögur frá Troms, fjög-
ur frá Nordland og eitt frá Syðra
Þrændalagi.
Fíkniefnasmygl
frá Búlgaríu
WaNhington, 25. júlí. AP.
STJÓRNVÖLD í Búlgaríu
halda áfram að beita sér fyrir
fíkniefnasmygli til Vestur-
Evrópu og Bandaríkjanna,
þótt harðnandi samkeppni
hafí sennilega dregið úr
hlutdeild landsins á þessu
sviði.
Skýrði John Lawn, einn af yf-
irmönnum bandaríska fíkniefna-
eftirlitisins, frá þessu á fundi
með utanríkismálanefnd full-
trúadeildar Bandaríkjaþings.
„Það er skoðun okkar, að
stjórn Búlgaríu eigi samvinnu
við og flýti fyrir skipulögðu
fíkniefnasmygli þaðan,“ sagði
Lawn.
Fréttir hefðu þó borizt af vax-
andi heróínframleiðslu í Tyrk-
landi og Pakistan og það hefði
sennilega dregið úr þýðingu
Búlgaríu á þessu sviði.
AP-símamynd
Sjúkraliði hlúir hér að ungum pilti sem særðist er hann varð fyrir kúlu úr byssu fjöldamorðingjans í síðustu viku.
Eftirköst blóðbaðsins
farin að koma í ljós
Sao Ysidro, 25. júlí. AP.
Indira Gandhi:
Trúarmiðstöð aldrei
aftur staður átaka
Nýju Delhí, 25. júlf. AP.
INDIRA Gandhi, forsætis-
ráðherra Indlands, tilkynnti í
þingræðu á þriðjudag, að hún
Rússar
sprengja
Stokkbólmi, 25. júlL AP.
Hagfors-rannsóknastofnunin segir
að árla á laugardag hafi veríð sprengd-
ar þrjár kjarnorkusprengjur neðanjarð-
ar syðst ■ Úralfjöllum í Sovétríkjunum.
Frá því 1981 hafa fimm fjölda-
sprengingar af þessu tagi komið
fram á mælum í Svíþjóð. Attu þær
sér allar stað á svæði norður af
Kaspíahafi.
myndi aldrei aftur leyfa að trú-
armiðstöð yrði gerð að höfuð-
stöðvum vopnaðra uppreisnar-
manna.
Frú Gandhi hafnaði á ný tillögu
um sérstakt ríki síkha á Indlandi,
en öfgamenn síkha sem létust í
árás hersins á Gullna musterið
höfðu krafist þess. Frú Gandhi
var ekki eins harðorð er hún varði
„hvítu skýrsluna" sem stjórnin lét
gera um uppreisnina í Punjab, en
skýrslan hefur verið mikið gagn-
rýnd. Hún kallaði skýrsluna „kerf-
isverk" sem ekki tækist á skýran
hátt að skilgreina flókið ástandið í
Punjab.
Frú Gandhi yfirgaf salarkynni
þingsins er hún hafði lokið ræð-
unni og neitaði að svara spurning-
um fréttamanna.
Félagsráðgjafar segja að fólkið
sem lifði af blóðbaðið í mat-
sölustaðnum í fyrri viku, sé farið að
fá eftirköst eftir þennan hryllilega
atburð.
Tólf ára drengur getur ekki sof-
ið eftir að bróðir hans var skotinn
til bana af fjöldamorðingjanum
sem réðst inn á McDonalds-ham-
borgarastaðinn í fyrri viku og
skaut 21 til bana og særði 19. Ann-
ars konar eftirköst, s.s. martraðir,
hræðsla, örvænting og sektar-
kennd hrjá alla sem annað hvort
voru vitni að atburðinum, eða
komu að seinna. „Við höfum öll
tilhneigingu til að finna fyrir
sektarkennd, ef einhver náinn
deyr, en við fáum að lifa áfram,"
sagði yfirmaður geðdeildar spítal-
ans í San Ysidro.
„Mér finnst ég enn vera tómur
að innan,“ sagði einn lögreglu-
þjónanna sem sat um ham-
borgarastaðinn þegar atburðurinn
átti sér stað. Sumum lögreglu-
þjónunum fannst sem þeir sæju
sín eigin börn meðal líkanna og
gátu vart beðið þar til þeir komust
heim og gátu faðmað börnin að
sér.
Eiginkona morðingjans, James
Huberty, sagði á þriðjudag að hún
myndi selja útgáfurétt að bók um
líf hennar og Hubertys. „Ég á tvö
börn sem verður að ala upp. Ég fór
að hugsa — af hverju að vera
heimsk? Að gefa réttinn frá sér er
heimskt."
Forseti alþjóðlegu Ól-nefndarinnar:
Pólitískar aðgerðir
eyðileggja leikana
Loh Anjfeles, 25. jálí. AP.
JUAN Antonio Samaranch, forseti
alþjóðlegu Ólympíunefndarinnar,
sagði í ræðu á þriggja daga fundi
nefndarinnar í dag, að ef fleiri ríki
hættu við þátttöku á Ólympíu-
leikunum af pólitískum ástæðum,
gæti það eyðilagt gildi leikanna og
riðið Ölympíuhreyflngunni að fullu.
Forsetinn kallaði ólympíuleik-
ana einn mesta sameiningarmátt
okkar tíma og sagði að aðgerðir
Sovétmanna nú og Bandaríkjanna
fyrir fjórum árum væru algerlega
óviðunandi. „Af ýmsum ástæðum,
sem yfirleitt eru af pólitískum
toga, er fólkið sem þessir leikar
eru gerðir fyrir, íþróttafólkið sem
unnið hefur baki brotnu að þjálf-
un fyrir leikana, útskúfað frá
sjálfum viðburðinum,“ sagði Sam-
aranch.
Ekki talaði Samaranch beint
um tillögu sem liggur fyrir alþjóð-
legu ólympíunefndinni um að
refsa þeim ríkjum sem hætta við
þátttöku, en hvatti nefndina til að
hefja uppbyggingu Ólympíuhreyf-
ingarinnar að loknum leikunum í
Los Angeles til að verja ólympíu-
leikana og koma í veg fyrir að
„slík óheppileg atvik" eigi sér stað
ár eftir ár.
Refsiákvæðið sem lagt verður
fyrir, felur í sér að þeim ríkjum
sem hætta við þátttöku í leikun-
um, verði meinað að taka þátt í
næstu leikum eða tveimur á eftir.
Nýjar kenningar um uppruna mannsins:
Simpansinn nánasti
frændi mannsins?
Nairébf, Krnja. 23. júlí. AP.
BANDARÍSKUR prófessor í líffræði, Jerold Lowenstein, gerði heyrum-
kunnugt á ráðstefnu stéttarbræðra sinna í Kaliforníu í dag, að athuganir
sem hann hefði gert bendi eindregið til þess að simpansar séu mun
skyldari manninum heldur en górillur og órangútanapar eins og jafnan
hefur verið talið. Niðurstöðu þessa fékk Lowenstein með samanburði i
tveimur efnum sem eru í blóði flestra spendýra, albumin og transferrin.
Kína vill halda
Ó1 árið 2000
Kenning Lowensteins gengur í
berhögg við þær skoðanir að gór-
illur og órangútanar séu þeir ap-
ar sem skyldastir eru mannin-
um. Kenningar sem settu stóru
apana tvo nær manninum byggj-
ast á ýmsum líffræðilegum
skyldleikum, en Lowenstein full-
yrðir að marktækari séu erfða-
þættir og efnafræðileg tengsl.
Eru margir á sömu skoðun og
Lowenstein prófessor.
Lowenstein segist vera næsta
öruggur um, að menn og simp-
ansar hafi átt sameiginlega for-
feður sem hafi ekki horfið sjón-
um fyrr en fyrir 4,5 milljónum
ára. Segir hann að górillur og
órangútanar hafi klofnað frá
sömu forfeðrum talsvert fyrr, en
síðan hafi forfeðurnir sameigin-
legu horfið er maðurinn þróaðist
í eina átt og simpansar í aðra.
Það er skoðun Lowensteins og
þeirra sem hallast að kenningum
hans, að niðurstöður þessar
svari ýmsum áður ósvöruðum
spumingum. Til dæmis bendi
þær til að forfeður apa og manna
hafi gengið með aðstoð hnúa
sinna rétt eins og apar og górill-
ur gera í dag. Þá bendi niður-
stöðurnar til að simpansar séu
bestu dýrin til að miða hegðun
og lifnaðarhætti frummanna við
og einnig megi nota simpansa til
að svara mörgum spurningum
um hegðun nútímamanna, ýmsu
hegðunaratferli sem á rætur að
rekja tii upprunans.
Los Aageldi, 25. júlf. AP.
KÍNVERJAR vonast nú til þess að
þeir fái að halda Ólympíuleikana árið
2000, að þvf er Lu Jindong, varafor-
maður kínversku ólympíunefndarinn-
ar, sagði á fréttafundi í dag.
Jindong sagöi að Kfna óskaði eft-
ir að halda Asíuleikana árið 1990 og
ef allt gengi aö óskum, vildu þeir
gjarnan halda Ólympíuleikana tíu
árum síðar. Jindong sagði að sér
væri kunnugt um að nokkrar borgir
hefðu nú þegar sótt um að halda
leikana árið 1992 og árið 1996 verða
leikarnir 100 ára, svo þá yrðu þeir
sennilega haldnir i Grikklandi.
Kína sendi 225 íþróttamenn á
ólympíuleikana i ár og er það
stærsti hópurinn á leikunum. Þetta
er í fyrsta sinn siðan 1952 að Kína
tekur þátt i sumarólympíuleikum.