Morgunblaðið - 26.07.1984, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1984
Afkræmi DrlfU 3974 frá Lekjarkoti vtíktu athygli fyrir myndarskap og gott tölt og brokk Þrátt fyrir það hlaut hún
ekki háan dóm og mun ástæftan fyrir því vera skeiðleysi afkvemanna. En skeiftlaus hross eiga alltaf erfitt uppdráttar
I kynbótadómi þar aem skeiðið vegur Rtórt LjAsmynd Valdimar Kriatinaaon.
Hvanneyri og Golu 4457 frá
Innra-Leiti. Drottning er að visu
ekki með rokháa einkunn en henn-
ar styrkur liggur fyrst og fremst í
þvi hversu gott jafnvægi er á milli
byggingar og hæfileika, þ.e.
hversu lítill munur er þar á milii
einkunna. Fyrir byggingu fær hún
8,35 og hæfileika 8,22 og aðalein-
kunn 8,29. Er ekki ósennilegt að
hér sé á ferðinni mikið kynbóta-
hross sem eigi eftir að skila sér vel
i ræktunarstarfinu ef hún fær
verðuga stóðhesta til afnota. önn-
ur varð Hvöt 5549 frá Sigmundar-
stöðum sem er undan Borgfjörð
909 frá Hvanneyri og Drottningu
4150 frá Árgerði, sem var sýnd
þarna með afkvæmum. Hvöt hlaut
1 einkunn 8,08, sömu einkunn fyrir
byggingu og hæfileika. Þriðja i
þessum flokki varð svo Eik 5937
frá Kóngsbakka með einkunn 8,04.
Eik þessi er undan Sörla 876,
Stykkishólmi og Svörtu-Stjörnu,
Ytri-Kóngsbakka. Af fimm vetra
hryssum varð efst Píla 5924 frá
Stakkhamri, en hún er undan
Sörla 876 og Snældu 3578, Stakk-
hamri. I einkunn hlaut hún 8,02,
fyrir byggingu 7,85 og fyrir hæfi-
leika 8,18. Að sögn hrossaræktar-
ráðunautsins kom þessi hryssa
talsvert betur fyrir í forskoðun en
á mótinu og kvaö hann að dóm-
nefndarmenn hafi ekki verið alveg
sáttir við hana i fyrsta sæti eins
og hún kom fyrir og þeir reynt að
klípa af henni eins og mögulegt
var án þess þó að fella hana í 2.
verðlaun, en allt kom fyrir ekki,
Mörgum þótti Dreyri 834 frá Álfsneai hart dæmdur, en hann fékk 2. verftlaun fyrir afkvæmi sín og lenti f þriftja sæti. Tttldu ýmsir aft bonum bæri 1. verftlaun
enda komu afkvæmi hans vel út í sýningunni. Dreyri sjálfur er lengst til vinstri og knapi Svavar Jensson, formaftur hrossaræktarsambands Dalamanna, sem
er eigandi hestsins.
Hinir fjórir hestarnir hlutu all-
ir sömu einkunnina, 7,89, og verð-
ur það aö teljast athyglisverð til-
viljun og ósanngjörn. Einn kunnur
blaðamaður hjá ónefndu tfmariti
skrifaði eftir Landsmótiö 1982 aö
meginþorri áhorfenda hafi taliö
úrslit i einni keppnisgrein mótsins
ósanngjarna og fór það saman við
skoðun umrædds blaðamanns og
var hann siðan fram eftir hausti
að svara skotum sem hann hlaut
fyrir þessa fullyrðingu.
Ekki er fritt við að mann langi
að setja fram slika fullyrðingu nú
eftir að hafa fylgst með þessum
fjórum afkvæmahópum og þeirri
ósvinnu að setja afkvæmi Dreyra i
hóp með afkvæmum þeirra
Glanna 917 frá Skáney, Leiknis
875 frá Svignaskarði og Þráðar
912 frá Nýja-Bæ. Læt ég hér þó
nægja að segja að allir þeir sem
undirritaður ræddi við um þessa
dóma voru sammála um að Dreyra
bæri fyrstu verðlaun. Enda kom
fram f máli Þorkels þegar dómum
var lýst að ekki hafi verið eining i
dómnefndinni og hafi menn kom-
ist að samkomuiagi um röðun sem
hér segir: Hlynur 910 númer eitt,
Leiknir 875 annar og Dreyri 834
þriðji og Þráður 912 ( fjórða sæti.
Áður en skilið er við stóðhestana
má skjóta að þeirri skoðun undir-
ritaðs að ekki verði islenskri
hrossarækt unninn skaði þótt þeir
Leiknir, Glanni og Þráður verði
geitir nema siður sé.
Eins og alltaf var hryssusýning-
in það besta af kynbótasýning-
unni, en þó á það eingöngu viö um
elstu hryssurnar, þ.e. sex vetra og
eldri, þvi fimm vetra hryssurnar
voru ekkert sérstakar og þær
yngstu sérlega ljótar og ekki getu-
miklar.
En af þeim bestu stóð efst
Drottning 5391 frá Stykkishólmi,
en hún er undan ófeigi 818 frá
hún lenti i efsta sæti. Ástæðan
fyrir þvi hvernig hryssan kom nú
fyrir sjónir mun vera sú að eig-
andi fór með hana i ferðalag og þá
væntanlega riðið henni á mótsstað
sem að sjálfsögðu er óviturlegt
með ekki eldra hross. Vonandi
gefst mönnum kostur á að sjá
þessa hryssu seinna f betra formi
svo menn dragi ekki orð ráðu-
nautsins i efa að óþörfu.
Ekki er vert að eyða hér plássi i
fjögurra vetra hryssurnar þvi eins
og einkunnirnar bera með sér eru
þær i lágum gæðaflokki og var það
einkum byggingin sem manni varð
starsýnt á. Þrjár fjögurra vetra
hryssur voru sýndar og var meðal-
einkunn þeirra þriggja 7,61.
Valdimar Kristinsson
Fjórðungsmótið
á Kaldármelum
III. grein
Övenju mikil gróska ( afkvæma-
sýningum hefur sett mikinn svip á
fjórðungsmótin tvtt sem haldin hafa
verið í sumar. Fimm stóóhestar voru
sýndir meft afkvæmum á Kaldármel-
um og tólf hryssur. Er þetta heldur
meira en maftur befur átt aft venjast
á fjórðungsmótum og aft sjálfsttgftu
er þetta ánægjuleg þróun því þetta
sýnir aft menn leggi orðift meira upp
úr afkvæmadómi en áftur var gert.
Aöeins einn stóðhestur hlaut 1.
verðlaun fyrir afkvæmi Hlynur
910. Þessi hestur var sýndur fjög-
urra vetra á Landsmótinu 1978 og
hlaut þá fyrstu verðlaun og hafði
hrossaræktarráðunautur orð á þvi
þá að ekki væri venjan að gefa svo
ungum hestum 1. verðlaun, en
ekki annað verið hægt þvi folinn
væri svo góður. Síðan þetta gerð-
ist hefur Hlynur verið í miklu áliti
og m.a. kom hann vel út úr af-
kvæmarannsókn á sinum tfma.
Virtist nokkuð ljóst að hann hlyti
1. verðlaun fyrir afkvæmi nú enda
er hann með sterka einstaklinga i
dómnum og má þar nefna Verð-
anda 957 frá Gullberastöðum og
Hólma 959 frá Stykkishólmi, en
þessir hestar tveir voru ekki með i
sýningunni að þessu sinni. Stóð-
hestarnir voru sýndir bæði
laugardag og sunnudag og verður
það að segjast eins og er að þar
stal 2. verðlaunahesturinn Dreyri
834 frá Álfsnesi senunni. Af þeim
hópum sem þarna voru sýndir
báru afkvæmi Dreyra og hann
sjálfur af sem eir af gulli. Af-
kvæmi Hlyns eru að því virðist
ágætis reiðhross en óneitanlega
finnst manni þau vanta skörungs-
og myndarskap og svo verður aö
taka það með i reikningin, eins og
áður er getið, að í sýninguna vant-
aði tvö sennilega bestu afkvæmi
Hlyns.
Ófeigur 818 svo gott sem
kominn í heiðursverðlaun
— eftir góða frammi-
stöðu afkvæma
hans á Kaldár-
melum og Fornu-
stekkum
Hestar
Sjö afkvæmahryssur
í 1. verðlaun
Eins og áður kom fram var mik-
il gróska f afkvæmasýningum.
Alls voru tólf hryssur sýndar með
afkvæmum sfnum og náðu sjö
þeirra 1. verðlaunum sem eru
ánægjuleg tiöindi og virtist manni
það mjög sanngjörn úrslit. Þessar
hryssur sem 1. verðlaun hlutu eru
Blika 5883 frá Vallanesi með 8,05,
Brúnka 5398 frá Innra-Leiti með
7,99, Ósk 3615 frá Nýja-Bæ með
7,95, Flugsvinn 3513 frá Hvann-
eyri með 7,93, Drottning 4150 frá
Árgerði með 7,91, Snælda 3578 frá
Stakkhamri með 7,91 og Stjarna
3592 frá Eskihoiti með 7,90. Af-
kvæmadómur er hinn endanlegi
kynbótadómur og er það ánægju-
legt hvað menn leggja orðið mikla
áherslu á að sýna kynbótahross
sin á þann hátt.
Bestu knapar mótsins
Ekki er alltaf gott að skera úr