Morgunblaðið - 26.07.1984, Page 42

Morgunblaðið - 26.07.1984, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚLl 1984 Ný bóluefni fundin upp VÍSINDAMENN í læknisfrædi hafa fundið upp ný bóluefni gegn margs konar sjúkdómum. Nú hefur í fyrsta sinn tekist að varna því, að börn fái hlaupabólu, segir í New England Journal of Medicine. Læknar við Pennsylvaníuhá- skóla og rannsóknastöð Merck Sharp & Dohme í West Point í Pennsylvaníu notuðu bóluefni, sem þeir höfðu framleitt úr hlaupabóluvírus, á 468 börn og gáfu 446 börnum sprautu án bólu- efnisins. Á níu mánaða tímabili eftir bólusetninguna fékk ekkert af bólusettu börnunum hlaupaból- una, en 39 úr samanburðarhópn- um. Bólusetningunni fylgdu eng- ar aukaverkanir. „Ég býst fastlega við, að bólu- efni þetta verði komið í mjög al- menna notkun innan fárra ára,“ segir dr. Robert Weibel, sem stjórnar rannsóknunum í Penn- sylvaníuháskóla. Þá er verið að framleiða bólu- efni gegn lifrargulu B (hepatit- is-B), eftir erfðatæknifræðilegum aðferðum, og á það að veita jafn- góða vernd og bóluefni það sem búið er til úr blóðplasma. Rit bandarísku læknasamtak- anna segir frá því, að 12 sjálf- boðaliðar, sem bólusettir voru þrisvar á sex mánaða tímabili með fyrrnefndu bóluefni, mynd- uðu ónæmi án þess að verða fyrir aukaverkunum. Er þetta fyrsta tilraunin sem gerð er á mönnum með bóluefni, sem framleitt er á þennan hátt. Það voru vísinda- menn hjá Merck-rannsókna- stofnuninni, sem unnu að gerð þess. Aðilar innan heilsugæslu hafa vaxandi áhyggjur af bólusetning- um gegn kíghósta. Er það vegna nokkurra tilfella, þar sem vart varð við alvarlegar aukaverkanir, m.a. heilaskemmdir. Wyeth-rannsóknafyrirtækið tilkynnti um miðjan júní, að það væri u.þ.b. að hætta framleiðslu á þessu bóluefni, þar sem málsókn- um færi fjölgandi á hendur fyrir- tækinu vegna meints skaða af völdum efnisins. Embættismenn í heilbrigðis- þjónustunni benda hins vegar á, að kostir kíghóstabóluefnisins séu langtum þyngri á metunum en gallarnir. I könnun, sem birt er í fyrrnefndu riti læknasamtak- anna, er því slegið föstu, að kíg- hóstasjúklingum fækki úr u.þ.b. 356.500 í 34.000 á ári og dánartal- an lækki úr 457 í 44, sé bóluefnið notað. Embættismennirnir segja, að eina skynsamlega leiðin sé að halda áfram að nota lyfið, en hafa „fulla gát á, að út af geti brugðið“. Pappírsrúllu- Pappírsrúllugluggatjöld beint frá Taiwan. Stæröir: 76, 90, 120 og 150 sm. Verö frá kr. 400.- SKIPHOLTI 17A. SIMI 12323 Ver ke fnaáætlun ríkisstjórnarinnar Miðstjórn og þingflokkur Sjálfstæðisflokksins héldu fund sl. flmmtudag á Laugarvatni, þar sem rædd var verkefnaáætlun ríkisstjórnarinnar, en viðræður um hana hefjast um miðjan ágúst. Hér á eftir fara viðtöl við þær Ester Guðmundsdóttur og Björg Einarsdóttur, sem eiga sæti í miðstjórn, og Albert Kemp, sem er formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Austurlandi, um verkefnaáætlunina. Ester Guðmundsdóttir: „Sparnaöar verði gætt í ríkisrekstri“ „í fyrsta lagi verður að gæta sparnaðar í ríkisrekstri og draga verulega úr opinberum fram- kvæmdum og jafnvel stöðva þær um stundarsakir, en slíkt mundi draga verulega úr þeirri þenslu sem hefur orðið á vinnumarkaðin- um hér á suðvesturhorninu," sagði Ester Guðmundsdóttir, sem sæti á í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins, er blaðamaður Morgunblaðsins innti hana eftir áliti hennar á því hvað Sjálfstæðisflokkurinn ætti að leggja áherslu á í viðræðum við Framsóknarflokkinn um nýja verkefnaáætlun. „í annan stað verða sjálfðtæð- ismenn að standa fastir fyrir og koma í veg fyrir að lán verði tek- in erlendis nema til arðbærra framkvæmda, en ekki til eyðslu eða neyslu. Þá verður að halda fast við þá gengisstefnu sem fylgt hefur verið undanfarið ár. Vandi sjávarútvegsins er mik- ill og hann verður að leysa fljót- lega, þó það verði ekki með öllu sársaukalaust. Hópur sjálfstæð- ismanna er starfa að sjávarút- vegi hefur verið að ræða leiðir til úrbóta, og er það von mín að þær verði raunhæfar og geti lagt grunn að nýrri stefnu í sjávar- útvegsmálum. Jafnframt verður að gera mönnum kleift að fara út í áhættuatvinnurekstur með einhvers konar lánum og hvetja til stofnunar fyrirtækja og gefa atvinnurekstur frjálsari. Vegna þess að búast má við óróa á vinnumarkaðinum, er nauðsynlegt að sjálfstæðismenn haldi sömu stefnu og mótuð var við síðustu kjarasamninga, þ.e. að bæta hag þeirra lægst laun- uðu og varðveita kaupmátt Ester Guðmundsdóttir launa. En síðast en ekki síst verða sjálfstæðismenn að leggja áherslu á breytta stefnu i land- búnaðarmálum. Nú þegar hefur nefnd innan flokksins gert til- lögur að breytingum, það er brýnt að Sjálfstæðisflokkurinn leggi áherslu á að hrinda þeim í framkvæmd,“ sagði Ester Guð- mundsdóttir að lokum. Albert Kemp: Berum fullt traust til okkar manna „Við fyrir austan höfum auðvit- að miklar áhyggjur af stöðu sjávar- útvegs, en jafnframt berum við fullt traust til okkar manna, að þeir leysi þann vanda þannig að hjólið stöðvist ekki,“ sagði Albert Kemp, þegar blaðamaður innti hann eftir áliti hans á stöðu út- gerðarinnar, en Albert er formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokks- ins í Austfjarðakjördæmi. „Ég efast ekki um að ríkis- stjórninni auðnist að finna leiðir út úr ógöngunum, en það hvílir einnig ábyrgð á herðum fyrir- tækjanna, þau verða einnig að taka til hendinni. Ein leið sem ríkisstjórninni er fær er að gefa oliuinnflutning og sölu algjörlega frjálsa, þannig að raunveruleg samkeppni verði milli olíufélaganna. Þannig mun verðlag þessara vörutegunda lækka, og olíukostnaður útgerð- arinnar þar af leiðandi einnig." Aðspurður sagði Albert Kemp Austfirðinga binda miklar vonir við fyrirhugaða kísilmálm- vinnslu á Reyðarfirði. Þá sagði Albert að stóriðjunefnd undir forustu Birgis ísleifs Gunnars- sonar alþingismanns hefði unnið Albert Kemp stórgott verk, eins og nauðsyn- legt var að gera eftir að hafa misst úr fimm dýrmæt ár, þegar Hjörleifur Guttormsson gegndi embætti iðnaðarráðherra. Björg Einarsdóttir: Fylgja verður eftir með raunhæfum aðgerðum „Stórsigur ríkisstjórnarinnar að ná á einu ári verðbólgunni úr um 130 stigum niður fyrir 20 er aðeins áfangasigur sem fylgja verður eftir með raunhæfum aðgerðum," sagði Björg Einarsdóttir, sem á sæti í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins, er blaðamaður Morgunblaðsins innti hana álits á stöðunni í efnahags- málum og þeim aðgerðum er hún teldi nauðsynlegar að gerðar yrðu. „Vísitðlubinding kaupgjaids og verðlags á nýjan leik er skref til baka í hringiðu þenslunnar, sem við erum rétt búin að forða okkur úr. Vísitölubindingu skammtímalána verður einnig að skera niður. Kaupmætti launa verður að halda uppi með bættum almennum kjörum, svo sem hagstæðara verðlagi á nauð- synjum. Þar skiptir miklu að endurskoða verðmyndun á land- búnaðarvörum. Þá verður að halda fast við stefnuna frá síðustu kjarasamn- ingum, að þeir sem hafa lökust kjörin beri meira úr býtum við skiptingu þjóðartekna, hvort sem það er gert með tilfærslu í launastiga, breyttri reiknitölu í afkastahvetjandi iaunakerfum, gegnum tryggingarkerfið eða með öðru móti. Einnig verður að tryggja það öryggi sem eigið íbúðarhúsnæði veitir með stuðn- ingi við lánakerfi til húsbygg- inga. öllum ráðum verður að beita til að veita fjármagni frá ríkis- Björg Einarsdóttir geiranum tii hins frjálsa mark- aðar og þannig auknir möguleik- ar til endurnýjunar og nýsköp- unar atvinnulifsins. Og síðast en ekki síst er nauðsynlegt að fylgja eftir stefnunni í gengis- málum sem árangur ríkisstjórn- arinnar grundvallast á,“ sagði Björg Einarsdóttir að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.