Morgunblaðið - 26.07.1984, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚLl 1984
Ný bóluefni
fundin upp
VÍSINDAMENN í læknisfrædi
hafa fundið upp ný bóluefni gegn
margs konar sjúkdómum.
Nú hefur í fyrsta sinn tekist að
varna því, að börn fái hlaupabólu,
segir í New England Journal of
Medicine.
Læknar við Pennsylvaníuhá-
skóla og rannsóknastöð Merck
Sharp & Dohme í West Point í
Pennsylvaníu notuðu bóluefni,
sem þeir höfðu framleitt úr
hlaupabóluvírus, á 468 börn og
gáfu 446 börnum sprautu án bólu-
efnisins.
Á níu mánaða tímabili eftir
bólusetninguna fékk ekkert af
bólusettu börnunum hlaupaból-
una, en 39 úr samanburðarhópn-
um. Bólusetningunni fylgdu eng-
ar aukaverkanir.
„Ég býst fastlega við, að bólu-
efni þetta verði komið í mjög al-
menna notkun innan fárra ára,“
segir dr. Robert Weibel, sem
stjórnar rannsóknunum í Penn-
sylvaníuháskóla.
Þá er verið að framleiða bólu-
efni gegn lifrargulu B (hepatit-
is-B), eftir erfðatæknifræðilegum
aðferðum, og á það að veita jafn-
góða vernd og bóluefni það sem
búið er til úr blóðplasma.
Rit bandarísku læknasamtak-
anna segir frá því, að 12 sjálf-
boðaliðar, sem bólusettir voru
þrisvar á sex mánaða tímabili
með fyrrnefndu bóluefni, mynd-
uðu ónæmi án þess að verða fyrir
aukaverkunum. Er þetta fyrsta
tilraunin sem gerð er á mönnum
með bóluefni, sem framleitt er á
þennan hátt. Það voru vísinda-
menn hjá Merck-rannsókna-
stofnuninni, sem unnu að gerð
þess.
Aðilar innan heilsugæslu hafa
vaxandi áhyggjur af bólusetning-
um gegn kíghósta. Er það vegna
nokkurra tilfella, þar sem vart
varð við alvarlegar aukaverkanir,
m.a. heilaskemmdir.
Wyeth-rannsóknafyrirtækið
tilkynnti um miðjan júní, að það
væri u.þ.b. að hætta framleiðslu á
þessu bóluefni, þar sem málsókn-
um færi fjölgandi á hendur fyrir-
tækinu vegna meints skaða af
völdum efnisins.
Embættismenn í heilbrigðis-
þjónustunni benda hins vegar á,
að kostir kíghóstabóluefnisins
séu langtum þyngri á metunum
en gallarnir. I könnun, sem birt
er í fyrrnefndu riti læknasamtak-
anna, er því slegið föstu, að kíg-
hóstasjúklingum fækki úr u.þ.b.
356.500 í 34.000 á ári og dánartal-
an lækki úr 457 í 44, sé bóluefnið
notað.
Embættismennirnir segja, að
eina skynsamlega leiðin sé að
halda áfram að nota lyfið, en
hafa „fulla gát á, að út af geti
brugðið“.
Pappírsrúllu-
Pappírsrúllugluggatjöld beint frá Taiwan.
Stæröir: 76, 90, 120 og 150 sm.
Verö frá kr. 400.-
SKIPHOLTI 17A. SIMI 12323
Ver ke fnaáætlun
ríkisstjórnarinnar
Miðstjórn og þingflokkur Sjálfstæðisflokksins héldu fund sl. flmmtudag á
Laugarvatni, þar sem rædd var verkefnaáætlun ríkisstjórnarinnar, en viðræður
um hana hefjast um miðjan ágúst. Hér á eftir fara viðtöl við þær Ester
Guðmundsdóttur og Björg Einarsdóttur, sem eiga sæti í miðstjórn, og Albert
Kemp, sem er formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Austurlandi, um
verkefnaáætlunina.
Ester Guðmundsdóttir:
„Sparnaöar verði
gætt í ríkisrekstri“
„í fyrsta lagi verður að gæta
sparnaðar í ríkisrekstri og draga
verulega úr opinberum fram-
kvæmdum og jafnvel stöðva þær
um stundarsakir, en slíkt mundi
draga verulega úr þeirri þenslu
sem hefur orðið á vinnumarkaðin-
um hér á suðvesturhorninu," sagði
Ester Guðmundsdóttir, sem sæti á
í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins, er
blaðamaður Morgunblaðsins innti
hana eftir áliti hennar á því hvað
Sjálfstæðisflokkurinn ætti að
leggja áherslu á í viðræðum við
Framsóknarflokkinn um nýja
verkefnaáætlun.
„í annan stað verða sjálfðtæð-
ismenn að standa fastir fyrir og
koma í veg fyrir að lán verði tek-
in erlendis nema til arðbærra
framkvæmda, en ekki til eyðslu
eða neyslu. Þá verður að halda
fast við þá gengisstefnu sem
fylgt hefur verið undanfarið ár.
Vandi sjávarútvegsins er mik-
ill og hann verður að leysa fljót-
lega, þó það verði ekki með öllu
sársaukalaust. Hópur sjálfstæð-
ismanna er starfa að sjávarút-
vegi hefur verið að ræða leiðir til
úrbóta, og er það von mín að þær
verði raunhæfar og geti lagt
grunn að nýrri stefnu í sjávar-
útvegsmálum. Jafnframt verður
að gera mönnum kleift að fara
út í áhættuatvinnurekstur með
einhvers konar lánum og hvetja
til stofnunar fyrirtækja og gefa
atvinnurekstur frjálsari.
Vegna þess að búast má við
óróa á vinnumarkaðinum, er
nauðsynlegt að sjálfstæðismenn
haldi sömu stefnu og mótuð var
við síðustu kjarasamninga, þ.e.
að bæta hag þeirra lægst laun-
uðu og varðveita kaupmátt
Ester Guðmundsdóttir
launa. En síðast en ekki síst
verða sjálfstæðismenn að leggja
áherslu á breytta stefnu i land-
búnaðarmálum. Nú þegar hefur
nefnd innan flokksins gert til-
lögur að breytingum, það er
brýnt að Sjálfstæðisflokkurinn
leggi áherslu á að hrinda þeim í
framkvæmd,“ sagði Ester Guð-
mundsdóttir að lokum.
Albert Kemp:
Berum fullt traust
til okkar manna
„Við fyrir austan höfum auðvit-
að miklar áhyggjur af stöðu sjávar-
útvegs, en jafnframt berum við
fullt traust til okkar manna, að
þeir leysi þann vanda þannig að
hjólið stöðvist ekki,“ sagði Albert
Kemp, þegar blaðamaður innti
hann eftir áliti hans á stöðu út-
gerðarinnar, en Albert er formaður
kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokks-
ins í Austfjarðakjördæmi.
„Ég efast ekki um að ríkis-
stjórninni auðnist að finna leiðir
út úr ógöngunum, en það hvílir
einnig ábyrgð á herðum fyrir-
tækjanna, þau verða einnig að
taka til hendinni.
Ein leið sem ríkisstjórninni er
fær er að gefa oliuinnflutning og
sölu algjörlega frjálsa, þannig að
raunveruleg samkeppni verði
milli olíufélaganna. Þannig mun
verðlag þessara vörutegunda
lækka, og olíukostnaður útgerð-
arinnar þar af leiðandi einnig."
Aðspurður sagði Albert Kemp
Austfirðinga binda miklar vonir
við fyrirhugaða kísilmálm-
vinnslu á Reyðarfirði. Þá sagði
Albert að stóriðjunefnd undir
forustu Birgis ísleifs Gunnars-
sonar alþingismanns hefði unnið
Albert Kemp
stórgott verk, eins og nauðsyn-
legt var að gera eftir að hafa
misst úr fimm dýrmæt ár, þegar
Hjörleifur Guttormsson gegndi
embætti iðnaðarráðherra.
Björg Einarsdóttir:
Fylgja verður eftir með
raunhæfum aðgerðum
„Stórsigur ríkisstjórnarinnar að
ná á einu ári verðbólgunni úr um
130 stigum niður fyrir 20 er aðeins
áfangasigur sem fylgja verður eftir
með raunhæfum aðgerðum," sagði
Björg Einarsdóttir, sem á sæti í
miðstjórn Sjálfstæðisflokksins, er
blaðamaður Morgunblaðsins innti
hana álits á stöðunni í efnahags-
málum og þeim aðgerðum er hún
teldi nauðsynlegar að gerðar yrðu.
„Vísitðlubinding kaupgjaids
og verðlags á nýjan leik er skref
til baka í hringiðu þenslunnar,
sem við erum rétt búin að forða
okkur úr. Vísitölubindingu
skammtímalána verður einnig
að skera niður. Kaupmætti
launa verður að halda uppi með
bættum almennum kjörum, svo
sem hagstæðara verðlagi á nauð-
synjum. Þar skiptir miklu að
endurskoða verðmyndun á land-
búnaðarvörum.
Þá verður að halda fast við
stefnuna frá síðustu kjarasamn-
ingum, að þeir sem hafa lökust
kjörin beri meira úr býtum við
skiptingu þjóðartekna, hvort
sem það er gert með tilfærslu í
launastiga, breyttri reiknitölu í
afkastahvetjandi iaunakerfum,
gegnum tryggingarkerfið eða
með öðru móti. Einnig verður að
tryggja það öryggi sem eigið
íbúðarhúsnæði veitir með stuðn-
ingi við lánakerfi til húsbygg-
inga.
öllum ráðum verður að beita
til að veita fjármagni frá ríkis-
Björg Einarsdóttir
geiranum tii hins frjálsa mark-
aðar og þannig auknir möguleik-
ar til endurnýjunar og nýsköp-
unar atvinnulifsins. Og síðast en
ekki síst er nauðsynlegt að
fylgja eftir stefnunni í gengis-
málum sem árangur ríkisstjórn-
arinnar grundvallast á,“ sagði
Björg Einarsdóttir að lokum.