Morgunblaðið - 26.07.1984, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1984
Jón Karl Helgason skrifar frá Róm
Knattspyrnu-
Árbærinn
í gegnum tíðina hefur ítölsk
knattspyrna einkennst af leiði-
gjörnum varnarleik, þar sem
markskot hafa næstum verið jafn
sjaldgæf og rauðhærðir línuverð-
ir. Það þótti því ganga kraftaverki
næst er ítalski landsliðsframherj-
inn Paolo Rossi tók upp á því að
skora mörk um miðbik síðustu
heimsmeistarakeppni og færa
þannig þjóð sinni heimsmeistara-
titilinn í knattspyrnu. Því stór-
fenglegra var afrek þessa smá-
vaxna undrabarns að það hafði
verið í banni frá íþróttinni mörg
misseri fyrir keppnina og átti þar
af leiðandi að skorta getu til að
standa sig sem skyldi. Síðan þetta
gerðist hefur knattspyrnan hér á
stígvéli Evrópu breyst mikið; ít-
ölsk lið komast í úrslit Evrópu-
keppna og deildarkeppnin hér nýt-
ur vaxandi alþjóðlegrar athygli.
Nú væri eðlilegast að ætla að bylt-
ing þessi stafaði af því að hin
snjalla uppfinning Rossi hefði
hrifið landa hans á knattspyrnu-
vellinum svo, að þeir fylgdu for-
dæmi hans í hópum. Þvi er þó ekki
að heilsa. Hann hefur sjálfur að
mestu látið af þessum ávana sín-
um eftir því sem leikreynsla hans
og æfing hafa aukist og ítalska
landsliðið hefur naumast unnið
Michel Platini
leik síðan það lagði hið þýska að
velli í úrslitunum á Spáni, sællar
minningar. Það er aukið fjármagn
sem breytt hefur „ítölsku knatt-
spyrnunni".
Innkaup á knatt-
spyrnumönnum
Á vorum dögum gengur æ erfið-
legar að aðgreina íþróttir og
viðskipti. Iþróttamenn eru í senn
hetjur og fyrirmyndir, áhrif
þeirra á almenning eru hátt metin
verslunarvara. Itölsku knatt-
spyrnuliðin hafa nýtt sé meðbyr
heimsmeistaratitilsins til fulln-
ustu, fjáfesta grimmt í erlendum
leikmönnum þannig að segja má
að ftalía sé nú farin að sverja sig í
ætt við Árbæjarsafnið okkar ást-
sæla, en í stað glæstra gamalla
húsa er á síðustu tveimur árum
búið að safna hér saman mörgum
fremstu knattspyrnumönnum ver-
aldar. Meðal ítala á líka engin
íþrótt öðru eins fylgi að fagna og
knattspyrnan nema ef vera skyldi
hveitilengjuát.
Frá því að síðasta keppnistíma-
bili lauk hefur mikið verið um fé-
lagsskipti; ítalska knattspyrnu-
sambandið gaf frá sér reglugerð
sem bannar kaup á nýjum leik-
mönnum á næstu tveim árum, svo
liðin áttu ekki annars úrkosti en
að gera sannkölluð helgarinnkaup.
Nú er öllu braski lokið í bili og
þess eins beðið að vertíðin hefjist
um miðjan september. Fyrstu
deilarliðin sextán reka verðmætar
hjarðir sínar á æfingavelli, þar
sem stirðleiki sumarleyfa er
kreistur úr kroppunum og vöðv-
arnir stæltir fyrir komandi átök.
Á knæpum dunda menn sér við
að spá um gengi liðanna, þráttað
er og karpað og sýnist sitt hverj-
um.
Sterkt liö á pappírnum
Eftir stórtækar breytingar still-
ir Napolí nú upp geysilega sterku
liði, á pappírnum séð. Hæst bera
kaupin á gullkálfinum marg-
umrædda, Diego Maradona frá
Barcelona en Napolíbúar trúa því
staðfastlega að þessi stutti Arg-
entínumaður komi til með að færa
þeim meistaratitilinn næsta vor.
Hann mun þó njóta dyggrar að-
stoðar í þeirri baráttu. Frá Fior-
entina var landi hans, Daniel
Bertoni, keyptur og er honum ætl-
að að styðja vel við bak Maradona,
líklega jafnt andlega sem líkam-
lega. Auk þeirra tveggja fjárfesti
Napolí í 4 ítölskum miðju- og
sóknarleikmönnum, þ.á m. fyrrum
Juventus-leikmanninum, Domen-
ico Penzo og Salvatore Bagni frá
Inter. Það eru aðeins varnarleik-
mennirnir og markmaðurinn sem
ekki eru nýir í liðinu svo helst er
það skortur á samæfingu sem
koma kann í veg fyrir gott gengi
þess.
Nokkur breyting hefur orðið hjá
Fiorentina, liðið krækti sér í hinn
brasilíska fótafima lækni Socrat-
es, en bjó áður að argentínska
landsliðsmanninum Daniel Pass-
Karl-Heinz Rummenigge
arella. Vörn sína styrkti það með
kaupum á bakverðinum Gentile,
svo liðið er til alls líklegt í kom-
andi baráttu.
Er gullöld Juventus
liðin?
Inter-Iiðið lét báða erlendu
leikmenn sína eftir síðasta keppn-
istímabil, Hansa Muller til Como,
þar sem hann leikur við hlið Dans
Cornelliussonar fyrrum félaga
Ásgeirs Sigurvinssonar hjá
Stuttgart, og Ludo Coeck sem
spila mun með Ascoli á næsta
keppnistímabili. I stað þeirra
keypti liðið Karl Heinz Rummen-
igge frá Bayern eins og frægt mun
orðið auk Irans Liam Bradys, sem
áður lék með Sampdoria. Mynda
þeir ásamt ítalska heimsmeistar-
anum Altobelli, framlínu liðsins.
Inter-liðið kemur og til með að
státa af elsta leikmanni fyrstu
deildarinnar, gamla brýninu,
Franco Causio, sem keyptur var
frá Udinese nú í vor.
Eftir gott keppnistímabil sá
stjórn Juventus litla ástæðu til
mikilla breytinga. Liðið byggir
upp á sama kjarna og síðastliðin
tvö ár, ítölunum Rossi, Tardelli,
Scirea, Brio, Bonini, Cabrini, Pólv-
erjanum Boniek að ótöldum töfra-
manninum franska, Michel Plat-
ini. Liðinu er þó ekki spáð mikilli
velgengni, talið að hin liðin hafi
styrkst það mikið að gullöld
„Juve“ sé liðin. Slíkir spádómar
eru þó varhugaverðir, leikmenn
liðsins þekkja hver annan eins og
fingurna á sér og búa yfir ómet-
anlegri leikreynslu.
Dani yngstur
Með Milan leika nú i fyrsta
skipti tveir breskir leikmenn, Ray
Wilkins, sem keyptur var frá
Manchester United, og framherj-
inn ungi, Mark Hateley, frá
Portsmouth. Almennt er þó talið
að snjöllust kaup hafi liðið gert er
það nældi sé í miðjuleikmanninn
Agostino di Bartolomei frá Roma,
en honum er ætlað hlutverk lið-
stjórnanda hjá Milan. Sapdoria
stillir upp skemmtilegri blöndu
yngri og eldri leikmanna, þar sem
um helmingurinn er samansafn
leikreyndra jálka um þrítugt. I
stað Liam Bradys hefur Trevor
Francis nú fengið Liverpool-
leikmanninn Graeme Souness sér
við hlið og er engum vafa undir-
orpið að í kringum þá félaga komi
til með að myndast skemmtilegt
miðjuspil.
Sem fyrr státar Udinese af bras-
iliska snillingnum Zico, en þar
með er það líka upptalið. Hjá Atl-
anta leika nú tveir norðurlanda-
búar, Lars Larsson, sem keyptur
var frá Malmö og Peter Stranberg,
sem lék í fyrra með portúgalska
liðinu Benfica. Þriðji norðurlanda-
búinn, hinn nítján ára Dani,
Michael Laudrup nýtur þess heið-
urs að vera yngsti leikmaður
deildarinnar, en hann kemur til
með að hefja sitt annað keppnis-
tímabil með Lazio. Torina státar
þetta árið af brasilískum lands-
liðsmanni, en það er jú mikill
gæðastimpill; liðið keypti miðju-
leikmanninn Junior af Suður-
Ameríska knattspyrnustórveldinu
Flamingo. Roma er líklega það lið
sem minstum breytingum hefur
tekið; í stað Bartolomeis var
keyptur 25 ára framherji frá Ver-
ona, Maurizio Iorio. Þá á einungis
eftir að minnast á tvö lið, Cremon-
ese sem flaggar ekki neinum
stjörnum og spáð er falli og lið
Verona sem í vor keypti Þjóðverj-
ann Briegel af Kaiserslautern og
Lokeren-leikmanninn fyrrverandi,
Preben L. Elkjær.
Mikið stjörnuflóð
Síðastliðin tvö ár hefur Platini
verið markakóngur fyrstu deildar-
innar hér, þó Zico hafi í ár skorað
hlutfallslega fleiri mörk í leik, en
spilað færri leiki. Nú er hugleitt
hver hreppa muni tignina að vori
og koma margir til álita. Rumm-
enigge mætir til leiks með hæðsta
meðalskorið, en hann skoraði að
meðaltali 0,89 mörk í leik á síðasta
keppnistímabili, næstur er Zico
með 0,79 mörk og síðan Platini
með 0,71.
Auk þeirra eru tilnefndir Mara-
dona, Bretinn Hateley, Preben L.
Elkjær og Corneliusson. Af ítölsku
leikmönnunum er helst veðjað á
þá Rossi, Altobelli, Iorio og Bruno
Giordana sem leikur með Lazio.
Eins og sjá má hér að framan er
það mikið stjörnuflóð sem eltast
mun við knöttinn á Ítalíu í vetur.
Hér etja kappi álíkir leikmenn af
ólíku þjóðerni og vafalaust bjóða
þeir hinum blóðheitu áhorfendum
uppá knattspyrnu á heimsmæli-
kvarða. I raun finnst manni aðeins
eitt skorta; svo sem einn íslending.
CANNON-VÖRURNAR
STUÐLA AÐ VELFERÐ
BARNSINS
10 P
<o
(D
£1
(0
^i.Q
V
Skoðiö CANNON-barnavörurnar
í næstu lyfjaverslun.
3000 í biðröð
eftir einum ísskáp
í KÍNA er að fínna um 740 þúsund
ísskápa, eða einn á hvern 1351 íbúa,
samkvæmt tilkynningu stjórnvalda.
Eftirspurn eftir ísskápum er slik að
þeir hverfa jafnharðan úr verzlunum
og þeir berast frá verksmiðju.
Engan veginn hefst undan að
framleiða ísskápa, jafnvel þótt
framleiðslan hafi verið aukin um
130% frá í fyrra. Að sögn
Xinhua-fréttastofunnar myndað-
ist 3.000 manna biðröð við verzlun
eina í Peking að nóttu til þar sem
einn ísskápur var til sölu.
Fátt er eftirsóttara í Kína um
þessar mundir en ísskápar að sögn
fréttastofunnar, sem segir aukna
velmegun borgarbúa og bænda
valda þar mestu um.