Morgunblaðið - 26.07.1984, Side 44

Morgunblaðið - 26.07.1984, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1984 Jón Karl Helgason skrifar frá Róm Knattspyrnu- Árbærinn í gegnum tíðina hefur ítölsk knattspyrna einkennst af leiði- gjörnum varnarleik, þar sem markskot hafa næstum verið jafn sjaldgæf og rauðhærðir línuverð- ir. Það þótti því ganga kraftaverki næst er ítalski landsliðsframherj- inn Paolo Rossi tók upp á því að skora mörk um miðbik síðustu heimsmeistarakeppni og færa þannig þjóð sinni heimsmeistara- titilinn í knattspyrnu. Því stór- fenglegra var afrek þessa smá- vaxna undrabarns að það hafði verið í banni frá íþróttinni mörg misseri fyrir keppnina og átti þar af leiðandi að skorta getu til að standa sig sem skyldi. Síðan þetta gerðist hefur knattspyrnan hér á stígvéli Evrópu breyst mikið; ít- ölsk lið komast í úrslit Evrópu- keppna og deildarkeppnin hér nýt- ur vaxandi alþjóðlegrar athygli. Nú væri eðlilegast að ætla að bylt- ing þessi stafaði af því að hin snjalla uppfinning Rossi hefði hrifið landa hans á knattspyrnu- vellinum svo, að þeir fylgdu for- dæmi hans í hópum. Þvi er þó ekki að heilsa. Hann hefur sjálfur að mestu látið af þessum ávana sín- um eftir því sem leikreynsla hans og æfing hafa aukist og ítalska landsliðið hefur naumast unnið Michel Platini leik síðan það lagði hið þýska að velli í úrslitunum á Spáni, sællar minningar. Það er aukið fjármagn sem breytt hefur „ítölsku knatt- spyrnunni". Innkaup á knatt- spyrnumönnum Á vorum dögum gengur æ erfið- legar að aðgreina íþróttir og viðskipti. Iþróttamenn eru í senn hetjur og fyrirmyndir, áhrif þeirra á almenning eru hátt metin verslunarvara. Itölsku knatt- spyrnuliðin hafa nýtt sé meðbyr heimsmeistaratitilsins til fulln- ustu, fjáfesta grimmt í erlendum leikmönnum þannig að segja má að ftalía sé nú farin að sverja sig í ætt við Árbæjarsafnið okkar ást- sæla, en í stað glæstra gamalla húsa er á síðustu tveimur árum búið að safna hér saman mörgum fremstu knattspyrnumönnum ver- aldar. Meðal ítala á líka engin íþrótt öðru eins fylgi að fagna og knattspyrnan nema ef vera skyldi hveitilengjuát. Frá því að síðasta keppnistíma- bili lauk hefur mikið verið um fé- lagsskipti; ítalska knattspyrnu- sambandið gaf frá sér reglugerð sem bannar kaup á nýjum leik- mönnum á næstu tveim árum, svo liðin áttu ekki annars úrkosti en að gera sannkölluð helgarinnkaup. Nú er öllu braski lokið í bili og þess eins beðið að vertíðin hefjist um miðjan september. Fyrstu deilarliðin sextán reka verðmætar hjarðir sínar á æfingavelli, þar sem stirðleiki sumarleyfa er kreistur úr kroppunum og vöðv- arnir stæltir fyrir komandi átök. Á knæpum dunda menn sér við að spá um gengi liðanna, þráttað er og karpað og sýnist sitt hverj- um. Sterkt liö á pappírnum Eftir stórtækar breytingar still- ir Napolí nú upp geysilega sterku liði, á pappírnum séð. Hæst bera kaupin á gullkálfinum marg- umrædda, Diego Maradona frá Barcelona en Napolíbúar trúa því staðfastlega að þessi stutti Arg- entínumaður komi til með að færa þeim meistaratitilinn næsta vor. Hann mun þó njóta dyggrar að- stoðar í þeirri baráttu. Frá Fior- entina var landi hans, Daniel Bertoni, keyptur og er honum ætl- að að styðja vel við bak Maradona, líklega jafnt andlega sem líkam- lega. Auk þeirra tveggja fjárfesti Napolí í 4 ítölskum miðju- og sóknarleikmönnum, þ.á m. fyrrum Juventus-leikmanninum, Domen- ico Penzo og Salvatore Bagni frá Inter. Það eru aðeins varnarleik- mennirnir og markmaðurinn sem ekki eru nýir í liðinu svo helst er það skortur á samæfingu sem koma kann í veg fyrir gott gengi þess. Nokkur breyting hefur orðið hjá Fiorentina, liðið krækti sér í hinn brasilíska fótafima lækni Socrat- es, en bjó áður að argentínska landsliðsmanninum Daniel Pass- Karl-Heinz Rummenigge arella. Vörn sína styrkti það með kaupum á bakverðinum Gentile, svo liðið er til alls líklegt í kom- andi baráttu. Er gullöld Juventus liðin? Inter-Iiðið lét báða erlendu leikmenn sína eftir síðasta keppn- istímabil, Hansa Muller til Como, þar sem hann leikur við hlið Dans Cornelliussonar fyrrum félaga Ásgeirs Sigurvinssonar hjá Stuttgart, og Ludo Coeck sem spila mun með Ascoli á næsta keppnistímabili. I stað þeirra keypti liðið Karl Heinz Rummen- igge frá Bayern eins og frægt mun orðið auk Irans Liam Bradys, sem áður lék með Sampdoria. Mynda þeir ásamt ítalska heimsmeistar- anum Altobelli, framlínu liðsins. Inter-liðið kemur og til með að státa af elsta leikmanni fyrstu deildarinnar, gamla brýninu, Franco Causio, sem keyptur var frá Udinese nú í vor. Eftir gott keppnistímabil sá stjórn Juventus litla ástæðu til mikilla breytinga. Liðið byggir upp á sama kjarna og síðastliðin tvö ár, ítölunum Rossi, Tardelli, Scirea, Brio, Bonini, Cabrini, Pólv- erjanum Boniek að ótöldum töfra- manninum franska, Michel Plat- ini. Liðinu er þó ekki spáð mikilli velgengni, talið að hin liðin hafi styrkst það mikið að gullöld „Juve“ sé liðin. Slíkir spádómar eru þó varhugaverðir, leikmenn liðsins þekkja hver annan eins og fingurna á sér og búa yfir ómet- anlegri leikreynslu. Dani yngstur Með Milan leika nú i fyrsta skipti tveir breskir leikmenn, Ray Wilkins, sem keyptur var frá Manchester United, og framherj- inn ungi, Mark Hateley, frá Portsmouth. Almennt er þó talið að snjöllust kaup hafi liðið gert er það nældi sé í miðjuleikmanninn Agostino di Bartolomei frá Roma, en honum er ætlað hlutverk lið- stjórnanda hjá Milan. Sapdoria stillir upp skemmtilegri blöndu yngri og eldri leikmanna, þar sem um helmingurinn er samansafn leikreyndra jálka um þrítugt. I stað Liam Bradys hefur Trevor Francis nú fengið Liverpool- leikmanninn Graeme Souness sér við hlið og er engum vafa undir- orpið að í kringum þá félaga komi til með að myndast skemmtilegt miðjuspil. Sem fyrr státar Udinese af bras- iliska snillingnum Zico, en þar með er það líka upptalið. Hjá Atl- anta leika nú tveir norðurlanda- búar, Lars Larsson, sem keyptur var frá Malmö og Peter Stranberg, sem lék í fyrra með portúgalska liðinu Benfica. Þriðji norðurlanda- búinn, hinn nítján ára Dani, Michael Laudrup nýtur þess heið- urs að vera yngsti leikmaður deildarinnar, en hann kemur til með að hefja sitt annað keppnis- tímabil með Lazio. Torina státar þetta árið af brasilískum lands- liðsmanni, en það er jú mikill gæðastimpill; liðið keypti miðju- leikmanninn Junior af Suður- Ameríska knattspyrnustórveldinu Flamingo. Roma er líklega það lið sem minstum breytingum hefur tekið; í stað Bartolomeis var keyptur 25 ára framherji frá Ver- ona, Maurizio Iorio. Þá á einungis eftir að minnast á tvö lið, Cremon- ese sem flaggar ekki neinum stjörnum og spáð er falli og lið Verona sem í vor keypti Þjóðverj- ann Briegel af Kaiserslautern og Lokeren-leikmanninn fyrrverandi, Preben L. Elkjær. Mikið stjörnuflóð Síðastliðin tvö ár hefur Platini verið markakóngur fyrstu deildar- innar hér, þó Zico hafi í ár skorað hlutfallslega fleiri mörk í leik, en spilað færri leiki. Nú er hugleitt hver hreppa muni tignina að vori og koma margir til álita. Rumm- enigge mætir til leiks með hæðsta meðalskorið, en hann skoraði að meðaltali 0,89 mörk í leik á síðasta keppnistímabili, næstur er Zico með 0,79 mörk og síðan Platini með 0,71. Auk þeirra eru tilnefndir Mara- dona, Bretinn Hateley, Preben L. Elkjær og Corneliusson. Af ítölsku leikmönnunum er helst veðjað á þá Rossi, Altobelli, Iorio og Bruno Giordana sem leikur með Lazio. Eins og sjá má hér að framan er það mikið stjörnuflóð sem eltast mun við knöttinn á Ítalíu í vetur. Hér etja kappi álíkir leikmenn af ólíku þjóðerni og vafalaust bjóða þeir hinum blóðheitu áhorfendum uppá knattspyrnu á heimsmæli- kvarða. I raun finnst manni aðeins eitt skorta; svo sem einn íslending. CANNON-VÖRURNAR STUÐLA AÐ VELFERÐ BARNSINS 10 P <o (D £1 (0 ^i.Q V Skoðiö CANNON-barnavörurnar í næstu lyfjaverslun. 3000 í biðröð eftir einum ísskáp í KÍNA er að fínna um 740 þúsund ísskápa, eða einn á hvern 1351 íbúa, samkvæmt tilkynningu stjórnvalda. Eftirspurn eftir ísskápum er slik að þeir hverfa jafnharðan úr verzlunum og þeir berast frá verksmiðju. Engan veginn hefst undan að framleiða ísskápa, jafnvel þótt framleiðslan hafi verið aukin um 130% frá í fyrra. Að sögn Xinhua-fréttastofunnar myndað- ist 3.000 manna biðröð við verzlun eina í Peking að nóttu til þar sem einn ísskápur var til sölu. Fátt er eftirsóttara í Kína um þessar mundir en ísskápar að sögn fréttastofunnar, sem segir aukna velmegun borgarbúa og bænda valda þar mestu um.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.