Morgunblaðið - 26.07.1984, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1984
45
Héttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Á síöustu árum hefur fjölbreytni
aukist í matargerð okkar íslendinga.
Uppskriftir ágætra rétta berast alls-
staðar frá úr heiminum — sem viö
getum auðveldlega aölagaö því hrá-
efni sem hér er á boðstólum.
Réttir þessir þurfa ekki að vera
eins dýrir og ítalskur
Cevapicici
1 stk. laukur
1 hvítlauksrif
3 matsk. matarolía
600 gr. hakkað kjöt
'k bolli brauðmylsna
'k tsk. paprikuduft
1 stk. egg
salt og pipar.
1. Rífið niður laukinn og fínsax-
ið hvítlauksrifið. Hitið matarolí-
una og steikið laukinn og hvít-
laukinn í feitinni, þar til hann er
orðinn gulbrúnn.
2. Hakkaða kjötið er sett í skál
ásamt brauðmylsnu, papriku, salti
og pipar. Þessu er öllu blandað vel
ásamt eggi (sundurþeyttu) og
lauknum.
3. Hrærið deigið þar til það er
orðið þétt. Úr því eru síðan mótað-
ar u.þ.b. 12 lítið eitt ílangar bollur.
Látið þær síðan standa á aiski í
kæliskáp í 30 mín. svo þær verði
þéttari í sér.
4. Bollurnar eru síðan steiktar í
2 matsk. af matarolíu á öllum
hliðum í 6—8 mín. Til öryggis má
setja 3 matsk. af vatni á pönnuna
með bollunum ásamt kjötkrafti,
setja síðan lok yfir og sjóða í 5
mín.
5. Ef til eru grillpinnar, þá setj-
ið 3—4 bollur á hvern pinna, einn
pinna á mann. Leggið síðan á fat
með grjónum indverskum;
Indverskt
pflaf
'k bolli smjörvi eða matarolía
1 bolli grjón (ósoðin)
1 hvítlauksrif fínsaxað
2'k bolli vatn
kjötkraftur 1 teningur
(M bolli rúsínur)
2 matsk. ristaðar möndlur.
Hitið feitina og steikið grjónin
og hvítlaukinn í feitinni þar til lit-
urinn er ljósgulur orðinn. Þá er
vatni og kjötkrafti bætt út í og
soðið í vel lokuðum potti í 15 mín.
Grjón þessi, sem eru mild á
bragðið og með bestu grjónarétt-
um, eiga mjög vel við glóðarsteikt-
an mat, nautakjöt og bragðbætt
lambakjöt.
Sem meðlæti með réttinum eru
tómatar skornir i bita mjög góðir.
Verð á hráefni
Kjöt, nautahakkkr. 120,00
egg 7,50
laukur 2,00
grjón( V2 pakki) 9,90
Fljúgandi korvetta
Brezka tímaritið „Jane’s Defence Weekly" birti þessa
mynd og sýnir hún risastóran flugbát, sem sovézki
sjóherinn hyggst gera tilraunir með á næstunni. Er hér
um eins konar fljúgandi korvettu að ræða, þar sem
flygildinu er ætlað að bera langdrægar eldflaugar, sem
ætlaðar eru gegn skipum. Nýlegar leyniþjónustufregn-
ir herma að Rússar geri nú tilraunir einnig með undar-
lega útlítandi árásar- og landgönguskip, sem flutt get-
ur allt að 900 hermenn.
STQFNFJÁRREIKNINGUR
SKATTALÆKKUN
, OG EIGIN
FJARFESTING
Framlög einstaklinga til atvinnurekstrar eru frádráttarbœr frá skatt-
skyldum tekjum að vissu marki skv. nýjum ákvœðum skattalaga.
Frádráttur má vera allt að kr. 20.000.- á ári hjá einstaklingi eða kr.
40.000.- hjá hjónum.
SKILYRÐI
Til þess að njóta þessara skattafríðinda geta einstaklingar m.a. lagtfé
inn á stofnfjárreikning í því skyni að stofna síðar til eigin atvinnu -
rekstrar.
Stofnun atvinnurekstrar má fara fram hvenœr sem er innan 6 ára frá
lokum innborgunarárs.
INNLÁNSKJÖR
Stofnfjárreikningarnir eru sérstakir innlánsreikningar bundnir í 6
mánuði. Innstœður eru verðtryggðar samkvæmt lánskjaravísitölu.
Landsbankinn býður 1.54% vaxtaálag á þessa reikninga.
HAGDEILDIN AÐSTOÐAR
Hefur þú í hyggju að stofna til eigin atvinnurekstrar með þessum
hætti? Sé svo geturþú leitað til sérfræðinga Hagdeildar Landsbankans
að Laugavegi 7 Reykjavík og ráðfært þig við þá um rekstur fyrirtækja
þér að kostnaðarlausu.
Upplýsingar um stofnun stofnfjárreikninga eru veittar í sparisjóðs -
deildum Landsbankans
LANDSBANKINN
Græddur er geymdur eyrir
Kr. 138,40