Morgunblaðið - 26.07.1984, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1984
49
námi ólíkra möguleika", þ.e.a.s.
draumsýninni af samfélagi, þar
sem algjör jöfnuður ríkir meðal
manna. Þegar mæit er með þess-
um hugsjónum um algjört frelsi
og jöfnuð, verður i námsskránum
núverandi samfélag eitthvað, sem
er ábótavant, samfélag, sem
þarfnast breytinga". Menn taka
varla eftir því frelsi og því öryggi
og þeim möguleikum til frama,
sem samfélagið gefur, vegna þess
að menn líta á það, sem eitthvað
sjálfsagt og auk þess ófullnægj-
andi.
Nemendum er gefið pólitiskt
markmið, sem ekki felst í því að
treysta þetta samfélag, heldur
„breyta" því. Kennsluskrárnar
innræta, að huglæg skoðun,
einka-„hagsmunir“, „eigin kröfur
um hamingju" séu eini mæli-
kvarðinn fyrir „persónuleika, sem
frelsaður er undan öllum binding-
um“, þegar hann á að dæma og
aðhafast. Æskulýðurinn á að alast
upp í varanlegri tortryggni gagn-
vart hefðinni. Það er ofurselt
hentisemi þeirra að viðurkenna
eða hafna mælikvörðum samfé-
lagsins.
Dæmigert fyrir blöndu barna-
legrar trúar á skynsemina og
öfgafullt frjálslyndi eru markmið
pólitískrar fræðslu í skólunum í
Nordhein-Westfalen. „Frelsun frá
bindingum sem markmið póli-
tískrar fræðslu þýðir, að ungl-
ingarnir eru gerðir færir um ann-
aðhvort að viðurkenna mæli-
kvarða samfélagsins sem fyrir
eru, frjálst og á eigin ábyrgð, eða
að vísa þeim á bug og í síðara
dæminu að velja þá mögulega
aðra. Forsenda þessa er að að-
skilja sig arfinum og þeim samfé-
lagsformum, sem eru við lýði, um
leið og markmiðið er allan tímann
að ná víðtækri sjálfsákvörðun.
Menn kenna ungmennunum að
líta ekki á samfélagslega skipan
samfélagsins sem vernd, heldur
einhliða að líta á hana út frá því
viðhorfi, að hún setji takmörk, þar
sem mikilvægt sé að fá uppfylltar
einstaklingsbundnar þarfir og
„kröfu um hamingju". I samræmi
við þetta tala menn ekki framar
um „samfélagsskipan“, heldur um
samfélagslegar þvingunarstofnan-
ir og nota slagorð, sem eru hlaðin
neikvæðu tilfinningagildi.
Færnin og viljinn til að viður-
kenna ekki samfélagslegar þving-
unarstofnanir og valdakringum-
stæður er grundvallar „hæfni“,
sem menn vilja ná með hjálp
„pólitískrar fræðslu". Nemend-
urnir eiga að læra að greina á
milli „viðunandi“ og „ekki viðun-
andi“ valdakringumstæðna og
samfélagslegra „þvingunarstofn-
ana“. Þeir eiga að öðlast „færni til
að aðskilja sig hlýðniskröfum, sem
ekki eru skynsamlega rökstudd-
ar“. Þeir eiga að vera færir um að
afhjúpa allar gerðir af „upplýs-
ingamiðlun“ út frá hugmynda-
fræðilegu baksviði hennar. Þeir
eiga að vera færir um að skilja
hvernig samfélagið takmarkar
„kröfur þeirra til hamingju" og
„eignast áhuga á að minnka óþarf-
ar takmarkanir. Slík frelsun verð-
ur reyndar aðeins að veruleika í
smáskrefum samfélagslegrar
breytingar."
Menn geta gefið hiklaust jáyrði
sitt við mörgum af þessum
markmiðum sem mótvægi gagn-
vart kröfunni um að vera fús til
þess að fara eftir mælikvörðum
samfélagsins og beygja sig undir
hagsmuni heildarinnar. En í
námsskrám, sem hafa „frelsun frá
bindingum að viðmiðun“, er ekki
um mótvægi að ræða, heldur mið-
læg atriði. Einhliða er talað um
réttindi, en ekki um skyldur. Talað
er um hættuna af misnotkun
valdsins, en ekki um hættuna af
misnotkun frelsisins, um nauðsyn
stöðugrar gagnrýni, en ekki um
nauðsyn trausts og ekki um um-
burðarlyndi og tillitssemi í sam-
skiptum við aðra. Þessi öfgafulli
framdráttur grundvallartor-
tryggni gagnvart samfélaginu,
mælikvörðum þess, stofnunum og
áhrifavöldum getur varla verið til
annars en að auka á öryggisleysi
nemandans, skorti á færni til þess
að átta sig, gildistómhyggju, eig-
ingirni, yfirlæti og tilhneigingu til
að trúa á draumasamfélag.
Námsskráin gefur til kynna, að
þetta „fullkomna" samfélag verði
skapað með „breytingum" á nú-
verandi samfélagi. Um leið og hún
litilsvirðir sérhvert „vald“ og
„áhrifavald", dregur hún taum
tortryggninnar og fjandsamlegrar
afstöðu til ríkisins. Ríkið sem
stjórnunarvald, sem stendur ofar
hagsmunahópum samfélagsins og
verndar réttindi borgaranna, er
ekki nefnt í námsskránni. Meðvit-
und um ríkisfang og skyldu borg-
arans að hlýðnast lögum ríkisins
er ekki nefnt. Það skortir alla
skírskotun til þess að aðgreina ber
ríki og samfélag, enda þótt
„stjórnarskrá, sem tryggir rétt og
frelsi" „standi og falli" með þess-
ari aðgreiningu. Námsskráin
hjálpar til við að veikja ríkið um
leið og hún hvorki krefst þess að
menn fræði um siðferðileg rétt-
indi þess, né ali fólk upp til já-
kvæðrar afstöðu til hlýðni.
Sé slíkt vanrækt verður
mönnum ómögulegt að öðlast
verulegt frelsi, stjórnleysið verður
niðurstaðan. Ríkið verður hreint
út sagt ranglátt vald, sem kúgar
og ekki getur gert neitt tilkall til
hollustu og fúsrar aðlögunar
o.s.frv. Sá sem með stöðugri lít-
ilsvirðingu á frjálsa lýðræðislega
ríkinu glæðir trú á draumsýninni
um „valdalausa samfélagið“ greið-
ir meðvitað eða ómeðvitað götu
stjórnleysisins, en um leið einnig
götu þess, sem á að koma með
björgunina úr sjálfskaparvíti
ringulreiðarinnar, alráða flokks-
ríkisins, sem tryggir hugmynda-
fræðilega lokað samfélag.“
(Hér fylgir kafli um móður-
málskennsluna og honum líkur
með því, sem hér fer á eftir.)
Við þessi dæmi, sem tekin eru
úr námsgreinunum samfélags-
fræði og þýzku, er hægt að bæta
dæmum úr flestum öðrum grein-
um. Þegar tekið er saman yfirlit
yfir námsskrár, sem hafa frelsi
frá öllum bindingum að viðmiðun,
og tillögur að námsskrám í anda
vinstri-róttæklinga sem og til-
heyrandi námsefni, þá kemur f
ljós, að undir yfirskyni hjálpar til
„sjálfsákvörðunar" er komið í veg
fyrir raunverulega sjálfsákvörð-
un. Að því marki sem sjálfs-
ákvörðun er möguleg og samrým-
anleg lágmarkskröfum um sam-
heldni i samfélaginu, þá er hún
háð því, að mönnum séu ljósir sið-
ferðilegir mælikvarðar, sem eru
innbyggðir í samvizku manna, og
að menn hafi tileinkað sér sið-
ferðilegt atferli í samræmi við
þessa mælikvarða. Námsskrár,
sem einhliða leiða til gagnrýni
eigin samfélags og mælikvarða
þess og ekki krefst neins siðferðis
af nemendum, fela í sér misnotk-
un æskulýðsins í pólitískum til-
gangi. Ný-róttæklingarnir hvetja
til fræðslu, sem truflar sálrænt
öryggi nemenda og eyðileggur
traust þeirra til manna, veikir sið-
ferðilega afstöðu þeirra og eyði-
leggur lífsgleði þeirra, til þess að
gera með þessum hætti manneskj-
urnar rótlausar og knýja fram
breytingu á hötuðu samfélagi í
nýtt „samfélag".
Hvergi í þessum námsskrám,
sem hafa samfélagsgagnrýni að
viðmiðun, er að finna viðleitni til
þess að örva innri menningu
manneskjunnar til að veita henni
hjálp til siðferðilegrar sjálfshjálp-
ar. Persónulegir eiginleikar, hæfi-
leikar til fagurfræðilegrar
reynslu, til dýrmætra kærleiks-
sambanda, til trúarlegra bindinga,
til trufesti, til menningarmiðlun-
ar. Allt er þetta óæskilegt. Það
sem gildir er aðeins fúsleiki til
gagnrýni og pólitiskra athafna í
opinberu lífi.
Þessar námsskrár þjóna því
markmiði að einangra ungu kyn-
slóðina frá kynslóð foreldranna og
frá kynslóð afa og ömmu. Skólan-
um er hér falið undir yfirskini
„upplýsingar" og „frelsis frá bind-
ingu“ og „vísindalegra viðhorfa“
það hlutverk að aðskilja nemand-
ann menningararfinum. Fræðslan
samkvæmt slíkum mælikvarða
örvar „hina mögnuðu sundur-
greinandi hvöt, sem ... eyðileggur
nútímann og alla rósemi og útilok-
ar allan friðsamlegan vöxt og
þroska“. Hún tekur frá börnunum
og æskunni ómissandi siðferði-
legar stoðir til þess að þau
grandalaus og varnarlaus falli i
gildru nýs frelsislærdóms draum-
kennds sósíalisma.
JÚLÍ-TILBOÐ
10% AFSLÁTTUR
ÍMITSUBISHI EIGENDUR! í JULÍ GEFUM VIÐ
10% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTT Á EFTIRTÖLDUM
VÖRUFLOKKUM í ALLAR MITSUBISHI BIFREIÐAR
WáPIPfS** I
i
Dæmi um venð
Kerti........
Platínur.....
Kveikjulok ...
Kveifquhamar
Vrftureimar ..
Þurkublöð ..
Frákr. 40 +10%
— 50 - 10%
— 95
— i 35 + 10%
50
150
10%
10%
10%
Aurtilífar ....Frákr.
Bæmsuklossar. —
Loftsíur ......... —
Gíusíur........ —
Framdemparar —
Aftundemparar . —
Kúpfingsdtekar i, —
160 -10%
285 -10%
195 -10%
155 -10%
995 -10%
400 -10%
840 -10%
HEKLAHF
Laugavegi 170 -172 Sími 212 40
Tveir góðir
SAAB 900 GLE 1981 sjálfskiptur meö vökvastýri ek-
inn 39 þús. Litur brúnn. Metalic/pluss áklæði.
Skipti á t.d. SAAB Combi Coupé 77—78 eða jap-
önskum station (Mazda 929 79—81, Toyota Cress-
ida). Einnig koma mánaöagreiðslur og skuldabréf til
greina. Verð 400 þús.
BUICK SKAYLAK 1981 sjálfskiptur með vökvastýri,
ekinn 43 þús, 4ra cyl. Verð 440 þús.
UPPLÝSINGAR í SÍMA 12729 HEIMA,
28693 VINNUSÍMI.
Verið
velkomin.
ópavogsbúáT
athugið!
Við bjóðum alla almenna hársnyrtingu svo sem
Permanent, klippingu, lagningu, hárþvott, litun,
[jjlástur, strípur, skol, djúpnærlngu o.s.frv.
Opiö frá kl. 9—18 á virkum dögum.
Lokað á laugardögum í sumar.
Pantanir teknar í síma 40369.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
ÞINGHÓLSBRAUT 19.
NÚ
SPÖRUMVIÐ
PENINGA.
Og smíðum sjálf!
Við eigum fyrirliggjandi flest það efni, sem til þarf þegar
þið smíðið sjálf. Til dæmis efni í fataskápa, eldhús-
innréttingar, húsgögn, hvers konar vegghillur o.fl. Enn-
fremur loftbitaefni, viðarþiljur, límtré og spónaplötur.
Þið getið fengið að sníða niður allt plötuefni í stórri sög
hjá okkur.
Við veitum fúslega