Morgunblaðið - 26.07.1984, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 26.07.1984, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1984 59 Bréfritari vill heldur fá aö horfa á „kanann“ sem er sjónvarpað á Keflavíkurflugvelli en norska sjónvarpið. „Kanann“ frekar en norska sjónvarpið 3648—7720 skrifar: Mig langar til að koma hér nokkum orðum á blað um ýmislegt í þjóðfélaginu sem okkur verka- mönnum er boðið upp á. Til að byrja með eru það launin. Fyrir einu ári hafði ég um tvö þúsund krónum meira i laun á mánuði en sá sem var að byrja að vinna á sama stað. Það gerðu þrepin sem við unnum okkur inn fyrir hvert ár. Eins og allir vita voru sett sem lágmarkslaun yfir landið tæpar þrettán þúsund krónur. En hvað gerðist. Launin mín duttu niður fyrir lágmarkslaunin, þannig að þeir sem eru nýbyrjaðir á sama stað, með enga reynslu, fá sömu laun og ég. Fyndist ykkur ekki öll- um réttlátt að þrepin sem við öðl- uðumst, héldu sínu striki og hækkuðu í samræmi við starfsfer- il? Svo komu þessi tvö prósent sem áttu að Ieggjast á launin, en þá hækkuðu landbúnaðarvörur um átta til tíu prósent. Okkur var boðið upp á óætar kartöflur og fokdýrar, aðeins vegna einokunar Grænmetisverslunarinnar. Hve- nær fáum við að velja og kjósa? Þurfa þeir sem eru á þingi sífellt að taka fram fyrir hendurnar á okkur? Við eigum að heita sjálf- stæð og hljótum því að geta tekið ákvarðanir. Finnst mér það öllu nær en að 60 manns ákvarði allt fyrir tæplega tvö hundruð og fjörutíu þúsund ibúa þessa lands. Það er næstum eins og ef ein fjöl- skylda fengi yfirráðarétt yfir öllu landinu. Þegar herinn steig hér á land, máttum við engu ráða um það hvort við vildum hafa hann eða ekki. Þeir höfðu reyndar yfir út- sendingum frá ameríska sjónvarp- inu að ráða, en ekki máttum við horfa á það. Til hvers er herinn annars hér? Erlendis greiða Bandaríkjamenn fyrir herstöðvar sínar í öðrum löndum, sem jafn- gilda árlegum skattgreiðslum allra íslendinga. Ameríska sjónvarpið er laust við ofbeldi en það er hins vegar að færast í aukana í því íslenska. Oft vill jafnvel gleymast að tilkynna það ef myndir eru bannaðar börn- um. íslenska sjónvarpsdagskráin er líka með fádæmum léleg. Flest- ir hafa heyrt um Nordsat, þ.e. norska sjónvarpið, en nú er gælt við þá hugmynd að leyfa okkur að fylgjast með því. Hefur nokkur hugmynd um, að norska sjónvarp- ið er enn lélegra en það íslenska? Þetta kostar okkur Islendinga sæg af seðlum og fyndist mér miklu nær að leyfa okkur að fá afnot af „kananum", það kostar okkur ekk- ert. Ég legg hér með til, að fram fari atkvæðagreiðsla í þessum efnum, þ.e. hvort menn kjósa heldur „kan- ann“ eða norska sjónvarpið. Þessir hringdu . . . Aðeins raunhæfar kjarabætur koma að gagni Athugull hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: Ríkisútvarpið flutti þá frétt í fréttatíma 19. þ.m., að verka- mannafélagið Dagsbrún hefði ný- lega á félagsfundi sagt upp kaup- samningum félagsins, en ekki var þess getið að fundinn sótti aðeins lítið brot félagsmanna, eða 60 manns. Félagsmenn í Dagsbrún munu hins vegar vera um fimm þúsund. Hér er því um mjög villandi frétt að ræða og varla Ríkisút- varpinu samboðna. Útvarpið hefði frekar átt að nefna nafn Guð- mundar Jaka og telja hann hafa tekið áðurnefnda ákvörðun. Ríkis- útvarpið getur þess jafnan, þegar órói er á vinnumarkaðinum en sjaldan er fréttin hlutlaus, né heldur það hvernig hlutföllin skiptast milli fundarmanna og meðlima hinna ýmsu félaga. Voanandi greiðist betur úr en nú horfir í atvinnumálum lands- manna, undir það taka flestir velviljaðir menn og þá um leið, að ekki megi stefna málum í verð- bólguátt. Við ættum að vera orðin reynslunni ríkari. Fyrir hinn al- menna launþega er ekkert verra en aukin dýrtíð og er það skamm- sýni mikil, að halda að krónu- hækkun jafni þar metin. Allir verða að vera minnugir þess, að ekki má eyða meiru en aflað er og það þýðir lítið að hafa þann hátt- inn á, eins og gert var í tíð fyrr- verandi stjórnar, að lofa öllum gulli og grænum skógum en svíkja síðan allt. Svavar og hans félagar voru kokhraustir í upphafi valda- ferils síns en efndir urðu engar. Verkalýðsfélög eða BSRB verða vonandi minnug þess, að aðeins raunhæfar kjarabætur koma að gagni og geta fært launþegum bættan hag. SlöeA V/öga * ‘íiiveRAu Lokað vegna sumarleyfa 30. júlí—6. ágúst. Verk- stæöi — skrifstofur. E. TH. MATHIESEN H.F DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIRÐI — SÍMI 51888 Hver er sam- viska fólks? 9771—7176 hringdi og hafði eftir- farandi að segja: Ég hef verið að velta því fyrir mér, hvort fólk, sem verður fyrir því að finna glataða hluti, hafi samvisku í sér til að hirða þá sjálft. Sannleikurinn er sá að ég tapaði dýrindis Seiko-armbandsúri ein- hvers staðar á Laugaveginum nú í sumar. Ég er búin að auglýsa tvisvar eftir því og hef verið með annan fótinn hjá lögreglunni en það hefur engan árangur borið. Vona ég nú að finnandi úrsins sjái að sér og skili því hið bráðasta til Lögreglunnar í Reykjavík. Utsala Utsala IHINGAI 0G EKKI ILENGRA Þegar þig vantar vönduð sófasett á hagstæðu verði , VÍSA E EUROCARD Utborgun meö greiöslukorti. HUSGAGNAHÖLLIN BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK « 91-81199 og 81410
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.