Morgunblaðið - 26.07.1984, Síða 62
62
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 26. JÚLl 1984
Stærsta íþróttablað Banda-
ríkjanna spáir Einari silfri
Stærsta íþróttablaö Banda-
ríkjanna, Sport llluatrated, gef-
ur út riaastórt blað í tilefni
ólympíuleikanna. Blaöió er 540
aíöur og er allt hiö glœsilegasta
og þar er farið rækilega ofan í
aaumana á leikunum og öllum
þeim íþróttum aem þar er keppt
í.
Blaðiö spáir úrslitum í hverri
grein í leikunum og þaö er mjög
athyglisvert aö íslendingnum
Einari Vilhjálmssyni er spáö
silfurverölaunum í spjótkasts-
keppninni. Blaöiö sem fær sér-
fræöing til aö spá um hverja
grein og um spjótkastið segir
þaö: .í fjarveru Uwe Hohn,
Austur-Þjóöverja, sem á dögun-
um setti nýtt heimsmet, kastaöi
104,80 metra, og landa hans
Detlef Michel, ætti fyrrum heims-
methafa, Tom Petranoff frá
Bandaríkjunum, ekki aö veröa
skotaskuld úr því aö sigra í
spjótkastkeppni ólympíuleik-
anna. Segja má aö Petranoff
keppi á heimavelli — hann þekk-
ir mjög vel inn á allar aðstæöur í
Kaliforníu og hefur tekiö þátt hér
í mörgum stórmótum."
Einar Vilhjálmssyni er spáö
ööru sætinu í spjótkastinu og (
þriöja sæti veröi Bandaríkjamaö-
urinn Duncan Atwood sem hefur
komiö mjög á óvart meö góöum
köstum í sumar. Því er jafnframt
spáö aö þessi svo til óþekkti
bandaríski spjótkastari geti jafn-
vel komiö á óvart og hreppt
fyrsta sætiö.
Þegar litiö er yfir spá blaösins
yfir Ólympíusigurvegara kemur í
Ijós aö reikna er meö því aö
Bandaríkjamenn veröi lang sig-
ursælastir í leikunum og þeir
komi til meö aö sópa tii sin verö-
launum. Þess má geta til gamans
aö fyrstu verölaunin sem afhent
veröa á þessum Ólympíuleikum
verða afhent fyrir hjólreiöar. Þaö
er 190 km hjólreiöakeppni sem
fram fer á götum Los Angeles.
Frá Þórarni Ragnarssyni, blaðamanni Morgunblaðsins á Ólympíuleikunum í Los Angeles
Los Angeles komin í hátíðar-
búning vegna ólympíuleikanna
Los Angeles, „Englaborgin“ í
Kalíforníu, er tilbúin til aö halda
Ólympíuleikana. Borgin er nú
þegar komin í hátíðarbúning og
Ólympíuleikvangurinn er þegar
fánum prýddur og allar götur
kringum hann fagurlega
skreyttar. Jafnframt hefur veriö
komið upp miklu af stórum
skiltum sem minna á leikana og
segja má aö augu allra hér í
Kaliforníu og sjálfsagt víöar um
heiminn beinist nú að ólympíu-
hringjunum og aó Ólympíuleik-
unum sem veróa settir á laug-
ardag.
Forseti Bandaríkjanna, Ronald
Reagan, segir aö þjóö sín veröi
stolt af þessum leikjum sem
standa munu frá 28. júlí til 12.
ágúst. Allt hefur veriö lagt í söl-
urnar til aö gera leikana sem
glæsilegasta og aö þeir veröi eft-
irminnilegri en nokkru sinni fyrr.
En ieikarnir fara ekki aöeins
fram hér í Los Angeles. Þeir
munu fara fram á heimilum fólks
um alla veröld og aldrei áöur hef-
ur verið lagt jafn mikiö í sölurnar
til þess aö vel takist til meö sjón-
varpsútsendingar. Bandaríska
sjónvarpsstööin ABC mun veröa
meö 2.500 manns sem leggja
munu nótt viö dag viö útsend-
ingar og gert er ráö fyrir því aö
2,5 milljónir manna um allan
heim muni fylgjast grannt meö
þessari stærstu íþróttahátíö sem
nokkru sinni hefur fariö fram.
ABC borgaöi 225 milljónir
dollara fyrir sjónvarpsréttinn af
leikunum og er þaö hærri upp-
hæö en nokkru sinni áöur. Marg-
ir hafa óttast, sérstaklega Evr-
opubuar, aö erfitt veröi aö keppa
í Los Angeles vegna hins mikla
hita og mengunar sem oft er hér
í lofti, en ráðamenn Ólympíuleik-
anna hafa fullvissað alla um aö
þaö muni ekki hafa áhrif á leik-
ana og þegar þetta er skrifaö er
hitinn hér í Los Angeles mjög
þægilegur — um 28 gráöur —
og ekki er hægt aö segja annaö
en aö loftiö sé nokkuö gott, jafn-
vel inni i miöborginni, þar sem
loftiö er oft mjög mettaö af
óhreinindum og mengun.
Margir höföu t.d. áhyggjur af
hlaupurum í lengri vegalengdun-
um og þess má geta aö hér hefur
veriö skýrt frá því í bfööum aö
rússneska blaöiö Pravda hefur
reynt aö gera lítiö úr Ólympíu-
leikunum og birt myndir af
mönnum á hlaupum meö gas-
grímur og sagt aö ekki sé hægt
aö hlaup hér meö góöum árangri
ööru vísi en með gasgrímur fyrir
• Mikill fjöldi fólks safnaöist saman viö Santa Anita-veöhlaupavöllinn í Arcadia í Kaliforníu í gær, í von um aö ná sór í miöa á Ólympíuleikana.
Þar var veriö aö selja mióa sem afgangs uröu — þeir höföu veriö teknir frá fyrir þjóöir, sem síöan afboöuóu komu sína á leikana á síöustu
StundU. Morgunblaölö/Símamynd AP
andlitinu. Þetta er án efa alrangt.
Maraþonhlaupararnir sem
koma til með aö hlaupa 42,2 kíló-
metra, hafa kviðiö fyrir, en
Bandaríkjamenn hafa haft ráö
undir rifi hverju, og ákveöiö aö
koma fyrir sturtum á hlaupaleiö-
inni þannig aö keppendur geti
kælt sig niöur meö vissu millibili.
Ekki ósvipaö kerfi og þegar bíll
fer gegnum bílaþvottastöö!
Til aö menga ekki loftið enn
frekar á því svæöi sem mara-
þonhlaupiö fer fram mun engin
bílaumferö veröa leyfð á því
svæöi — og einu bílarnir sem fá
aö fylgja þeim eru sérstakir raf-
magnsbílar sem byggöir voru
eingöngu fyrir ABC-sjónvarps-
stööina og þeir munu fylgja
hlaupurunum eftir.
Þaö fer ekki fram hjá neinum
sem kemur nálægt blaöamanna-
miöstööinni og leikvanginum
sjálfum aö öryggisgæsla er gíf-
urleg hér í Los Angeles. öryggís-
verðir eru á hverju strái, einkenn-
is- og óeinkennisklæddir.
Ólympíuleikar fá nú í fyrsta
skipti markaösfrelsi, ef svo má
aö oröi komast. Fram aö þessu
hafa Ólympíuleikar yfirleitt veriö
reknir meö tapi og viökomandi
borgir hafa setiö uppi meö stór-
kostlegt fjárhagslegt tap. En nú
veröur breyting á.
Los Angeles-borg heldur ekki
leikana heldur voru þeir boönir
út. Venjulega fá Ólympíuleikar
ríkisstyrk, þeir fá ágóöa af happ-
drætti og gjafir frá ýmsum aöil-
um, en nú er öllum þessum
greiöum hafnaö. Reyndar eru
happdrætti bönnuö meö lögum
hér í Kaliforníu, og ólympíunefnd
einkafjármagnsins tók aö sér aö
leysa dæmiö. Hún seldi sjón-
varpsréttinn, eins og áöur kom
fram, fyrir 225 milljónir dollara,
og síöan samdi hún viö 50 stór-
fyrirtæki um framlög gegn leyfum
til aö nota Ólympíuleikana i aug-
lýsinga- og áróöursskyni. i þriöja
lagi er stefnt aö því aö selja aö-
göngumiöa inn á leikana fyrir 90
milljónir dollara.
Islensku siglingamennirnir:
Frammistaða þeirra
hefur komið á óvart
íslenskir síglingamenn taka nú
þátt í ólympíuleikum í fyrsta
skipti, Gunnlaugur Jónasson og
Jón Pétursson. Þeir félagar hata
nú dvaliö hér á aðra viku og
hafa stundað æfingar af miklum
krafti nióur vió Long Beach þar
sem siglingakeppnin mun fara
fram.
Þeir hefja æfingar kl. sjö á
hverjum morgni og sigla mjög
mikiö hvern dag. Þeir láta vel af
öllum aöstæöum hér og kunnugir
segja aö frammistaö þeirra á æf-
ingum hafi komiö nokkuö á óvart
og þeir kunna greinilega meira
fyrir sér í þessari grein en margur
hyggur. Þaö kæmi mér ekki á
óvart þó þeir ættu eftir aö sýna
góöa frammistööu í siglinga-
keppninni. Keppt verður sjö
sinnum og samanlögö stig ráöa
úrslitum.