Morgunblaðið - 31.07.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.07.1984, Blaðsíða 1
64 SIÐUR írrgttínM&tíiiífo STOFNAÐ 1913 173. tbl. 71. árg. ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Samstöðuleiðtogi horfinn sporlaust V.r.» 1/1 iúlf AP Varsjá, 30. júli. AP. Samstöðuleiötoginn Wladislav Frasinyuk, sem sleppt var úr fangelsi á dögunum ásamt þúsundum annarra fanga um gervallt Pólland, hefur horf- ið sporlaust og pólska lögreglan segist leita hans skipulega. Eiginkona Frasinyuks kom að máli við lögregluyfirvöld í borginni Lodz nokkrum dögum eftir að til- kynnt var að eiginmanni hennar hefði verið sleppt ásamt fleirum samkvæmt hinni nýju reglugerð sem kveður á um uppgjöf saka. Hafði Frasinyuk ekki komið heim né látið vita um ferðir sínar. Fras- inyuk var látinn laus á föstudaginn eftir því sem talsmaður lögreglunn- ar sagði i dag. „Ég talaði við lögregluna og eftir að hún hafði gengið úr skugga um að hann hefði ekki verið handtekinn á ný, var ákveðið að skipuleggja leit. Þá ræddi ég við Lech Walesa og hann lofaði að spyrjast fyrir um dvalarstað manns míns,“ sagði eig- inkona Frasinyuks, Krystyna. Fras- inyuk, sem er 29 ára gamall, var ein af helstu driffjöðrum Samstöðu er starfsemi samtakanna var orðin ólögleg eftir að Pólland var hneppt í herlög. Lækkandi olíu- verð í heiminum? Orðrómur á kreiki eftir að Rússar lækkuðu olíuverðið í síðustu viku New York, 30. júlf. AP. VERÐLÆKKUN sú á olíu, sem Sovétríkin boðuðu sl. föstudag, kann að leiða til þess, að OPEC- ríkin og önnur olíuútflutningsrfki svo sem Bretland og Egyptaland verði knúin til þess að fara eins að og lækka olíuverðið. „Olíumarkaðurinn er mjög við- kvæmur nú,“ var haft eftir Paul Mlotok í New York, en hann er kunnur sérfræðingur í olíuvið- skiptum. „Ég tel, að líkurnar séu jafnar með eða móti því, hvort olíuverðið lækkar," sagði hann ennfremur. Rússar lækkuðu verð á hráolíu sinni á föstudag um 1,5 dollara tunnuna. Enda þótt tilkynnt hafi verið, að þetta verð ætti aðeins að Yngsti hjarta- þeginn London, 30. júlf. AP. NÍU daga gamalt stúlkubarn fékk nýtt hjarta í morgun og er heilsa þess sögð góð eftir atvikum. Aðgerð- in tók 5'/2 klukkustund og fór fram i sjúkrahúsi í London. Þetta er yngsti hjartaþeginn í heiminum til þessa. „Telpunni virðist heilsast vel,“ var haft eftir Tom Cosgrove, yfir- manni í London National Heart Hospital, þar sem aðgerðin fór fram. Hann sagði þó, að nokkrir dagar yrðu að líða, unz fullljóst yrði, hvernig Hollie Roffey, en svo heitir telpan, myndi reiða af. Ástæðan fyrir því, að skipta þurfti um hjarta í Hollie, var sú, að hjarta hennar vantaði allan vinstra hluta eðlilegs hjarta. Það var Magdi Yacoub, sem fram- kvæmdi aðgerðina, en hann er einn fremsti hjartaskurðlæknir Bretlands. Hefur hann fram- kvæmt hjartaflutning 121 sinni. Hjartað, sem sett var í Hollie, var úr þriggja daga gömlu hollenzku barni, sem ekki náði að lifa. gilda út ágústmánuð, þá er al- mennt talið, að það eigi eftir að haldast áfram. Þannig sagði blað- ið Wall Street Journal í dag: „Það er mjög ósennilegt, að olia frá Sovétríkjunum eigi eftir að hækka aftur upp í 29 dollara tunnan, nema því aðeins að mikil aukning verði á eftirspurn." í Bandarikjunum er bensinverð nú þegar eitt hið lægsta í fimm ár, en samt er talið, að það eigi eftir að lækka enn. Hefur bensinverðið þar farið stöðugt lækkandi siðustu 11 vikur og undanfarin fimm ár hefur það aðeins tvisvar sinnum verið lægra en nú. í lok siðustu viku var það að meðtöldum skött- um 1.184 dollarar hvert gallon (um 36 kr. ísl. hverjir 4 lítrar eða um 9 kr. lítrinn). Með þvi að lækka olíuverðið nú virtu Rússar að vettugi tilmæli OPEC í þessum mánuði til allra oliuútflutningsríkja heims þess efnis að halda oliuverðinu óbreyttu. MorRunblaðið/Símamynd AP. • Bandarísku sundstúlkurnar Carrie Steinseifer, til vinstri, og Nancy Hogshead, urðu fyrstu keppendur í sundi í sögunni til að koma svo jafnt í mark að ekki var hægt að skera úr um það hvor hlyti sigurinn. Þeim voru báðum veitt gullverðlaun. 23. Ólympíuleikarnir f Los Angeles: Työ ný íslandsmet hafa þegar verið sett Bandaríkjamenn hlutu tvenn gullverðlaun í sömu greininni TVÖ íslandsmet hafa nú þegar verið sett á 23. Ólympíuleikunum f Los Angeles í Bandaríkjunum. Guðrún Fema Ágústsdóttir synti 200 metra bringusund á 2:44,85 mín. og Tryggvi Helgason synti 100 metra bringusund á 1:07,71 mín. Ólympíu- leikarnir voru settir við hátíðlega at- höfn á laugardag og standa þeir yfir til 12. ágúst Á leiö frá Líbanon Þeir 100 bandarisku sjóliðar, sem gætt hafa sendiráðs Bandaríkj- anna í Beirút í Líbanon, héldu burt þaðan í gærmorgun. Mynd þessi sýnir bandarískan hervagn, sem farið getur bæði á sjó og landi, á leið til Miðjarðarhafsins, þar sem skip úr bandaríska flotanum beið hans. Heims- og ólympíumet hafa þegar fallið, og keppni hefur yfir- leitt verið tvísýn og spennandi. Svo spennandi var hún í 100 metra skriðsundi kvenna að veita varð tvenn gullverðlaun. Vinkonurnar og herbergisfélagarnir í ólympíu- þorpinu, Carrie Steinseifer og Nancy Hogshead, hlutu báðar gullverðlaun fyrir sundið. Kínverjar taka nú þátt í ólympíuleikum í fyrsta skipti síð- an 1952 og hafa þeir nú þegar unn- ið nokkur gullverðlaun þegar að- eins tveimur keppnisdögum er lok- ið. Kínverji hlaut fyrstu gullverð- laun leikanna nú, Xu Haifeng, í skotfimi með skammbyssum. Kínverjar hafa einnig verið sigur- sælir í fimleikum það sem af er — og hafa t.d. sex sinnum fengið hæstu einkunn sem gefin er, tíu. Sjá nánar um Ólympíuleikana í íþróttafréttum Morgunblaðsins í dag, á síðum 27—38. „Þeir halda skamm- byssu að höfði mér“ Flugvél frá Venezúela með 80 manns um borð á valdi flugræningja á Arúba Curíclo, 30. júlf. AP. „CURACAÓ, þeir halda skamm- byssu að höfðinu á mér,“ heyrðist flugmaður farþegaþotunnar segja f útvarp vélarinnar. Síðan mátti glöggt heyra tvo skothvelli, en svo sagði flugmaðurinn grátbiðjandi: „Heyrð- uð þið þetta? Þetta var aðvörun. Þið verðið að gera eitthvað." Þetta var aðeins hluti af ógn- vekjandi atburði, sem átti sér stað á flugvellinum á hollenzku eynni Arúba á Karíbahafi í dag, eftir að flugræningjar höfðu rænt far- þegaþotu af gerðinni DC-9 frá Venezúela með 80 manns um borð og neytt hana til þess að lenda þar. Kröfðust þeir 3 millj. dollara í lausnargjald fyrir farþegana og flugvélina, ella yrði vélin sprengd í loft upp með öllum, sem i henni voru. Yfirvöld í Arúba harðneituðu að eiga nokkur samskipti við flug- ræningjana og neyddu þeir þá áhöfnina til þess að fljúga vélinni til Curacao. Síðdegis í dag leyfðu ræningjarnir sex farþegum, þar af þremur börnum, að yfirgefa vélina en öðrum ekki. Af farþegum vélar- innar eru flestir hollenzkir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.