Morgunblaðið - 31.07.1984, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 1984
3
Framleiðsluráð skorar á utanríkisráðherra:
Varnarliðið verði
skyldað að kaupa
íslenskar búvörur
FRAMLEIÐSLURÁÐ landbúnaðarins samþykkti ályktun á fundi sínum fyrir
skömmu þar sem minnt er á þau ákvæði framleiðsluráöslaganna að innflutn-
ingur landbúnaðarvara megi því aðeins fara fram, að innlend framleiðsla
fullnægi ekki neysluþörfum. I ályktuninni er skorað á utanríkisráðherra að
beita ákvæðum íslenskra laga og skylda varnarliðið á Keflavíkurflugvelli nú
þegar til að kaupa íslenskar búvörur til neyslu bæði á flugvellinum sjálfum
sem og utan hans.
í ályktuninni segir að umrædd
lagaákvæði hafi verið brotin árum
saman með innflutningi til varn-
arliðsins, þó að nægar íslenskar
búvörur hafi verið til í landinu,
sem fullnægt hefðu þörfum varn-
arliðsins. Jafnframt hafi ákvæði
tollalaga verið brotin með flutn-
ingi búvara og fleiri neysluvara út
af flugvallarsvæðinu til varnar-
liðsmanna og ef til vill fleiri aðila,
sem búa utan flugvallarins. í
ályktuninni segir einnig: „Með til-
vísun til þess að nú beitir stjórn
Bandaríkjanna gömlum laga-
ákvæðum til að útiloka islensk
skipafélög frá því að flytja vörur
frá Bandaríkjunum til Keflavíkur,
skorar Framleiðsluráð landbúnað-
arins á utanríkisráðherra, hr.
Geir Hallgrímsson, að beita
ákvæðum íslenskra laga og skylda
varnarliðið nú þegar til að kaupa
íslenskar búvörur til neyslu, bæði
á flugvellinum sjálfum sem og
utan hans.“
Gunnar Guðbjartsson fram-
kvæmdastjóri Framleiðsluráðs
sagði í samtali við Morgunblaðið
að varnarliðið keypti neyslumjólk
hér á landi en flytti inn allar aðr-
ar búvörur. Þetta hefði verið
svona alla tíð þrátt fyrir að Fram-
leiðsluráð hafi margsinnis minnt
á þau ótvíræðu lagaákvæði sem
bönnuðu innflutning búvara og
hefði því verið borið við að Banda-
ríkjamönnum væri heimilað þetta
í varnarsamningnum.
Löndunarstopp í
Vestmannaeyjum
VeNtmannaeyjum, 28. júlí.
í GÆR var sfðasti löndunardagur
hjá bátum og togurum fyrir þjóðhá-
tíð og munu frystihúsin ekki taka á
móti fiski aftur fyrr en 20. ágúst nk.
Löndunarstoppið nú varir því í þrjár
vikur sem er einni viku styttra en
undanfarin ár. Mikill afli hefur bor-
ist á land síðustu dagana þannig að
næg vinna verður i frystihúsunum
alla þessa viku.
Ástæður þess að frystihhúsin
loka eru fyrst og fremst þær að
undanfarin ár hefur mikill meiri-
hluti starfsfólks þeirra yfirleitt
tekið sin sumarfrí um og eftir
Árekstur báts
og ísjaka
VÉLBÁTURINN Happasæll lenti í
árekstri vió ísjaka sjö sjómflur vest-
ur af Grímsey nú um helgina. Rifa
kom á bátinn fyrir ofan sjólínu og
hélt hann inn til Grímseyjar, þar
sem hann hafði skamma viðdvöl
meðan gert var við skemmdirnar til
bráðabirgða.
Báturinn hélt að lokinni viðgerð
á veiðar aftur, en hann er á grá-
lúðuveiðum. Happasæll er um 200
lestir að stærð.
------» » ♦
Hárgreiðslusveinar:
Gott verkfall
VERKFALL hárgreiðslusveina á
föstudag gekk vel að sögn Stellu
Hauksdóttur, formanns Hár-
greiðslusveinafélags Islands, en þó
gerðu örfáar stofur sig sekar um
verkfallsbrot með því að láta nema
ganga í verk sveina.
Enginn nýr fundur hefur verið
boðaður hjá ríkissáttasemjara en
Stella sagðist búast við að hann
yrði upp úr helginni. Lítið hefur
enn miðað til lausnar í kjaradeil-
unni og verður verkfall að nýju
næstkomandi föstudag hafi samn-
ingar ekki tekist.
þjóðhátíð og auk þess loka barna-
heimilin á þessum tíma vegna
sumarleyfa. Þó svo húsin hætti að
taka við fiski þessar þrjár vikur
þýðir það ekki að öll vinna í þeim
leggist niður. Fastráðnu starfs-
fólki gefst kostur á vinnu við ýmis
lagfæringarstörf og viðhald.
Vegna löndunarstoppsins mun
bátaflotinn vera bundinn við
bryggju næstu vikurnar og fjórir
af togurunum munu verða í höfn
næstu tvær vikurnar að minnsta
kosti. Þrír togarar hafa haldið til
veiða og munu sigla með aflann til
Englands og Þýskalands.
- hkj.
Líflegt í Andakflnum
Veiði í Andakilsá hefur verið
betri nú en á sama tíma í fyrra,
bara nokkuð lífleg á köflum. Um
helgina voru komnir milli 70 og
80 laxar á land. Veiðimenn sem
voru í ánni á laugardaginn
færðu tíðindin, þeir veiddu ekk-
ert, en sáu eitthvert líf, lítið þó.
Á hinn bóginn var áin vatnsmik-
il. Laxarnir hafa bæði veiðst á
maðk og flugu, en í ánni ku vera
mjög skemmtilegir fluguveiði-
staðir. Vænn lax, einkum fram-
an af, upp í 14 til 15 pund, en
svolítið smærri upp á síðkastið.
Álftá þrumugóð
Álftá hefur ekki svikið í
sumar, þar er mikið af laxi og
alltaf að ganga nýr fiskur. Til
dæmis komu sex laxar á land á
föstudaginn, fjórir grálúsugir.
Áin var þá að jafna sig eftir
mikið flóð aðfaranótt fimmtu-
dagsins og langt fram eftir þeim
degi. Mikið og gott vatn hefur
verið í ánni og laxinn veiðst víða,
mest þó á þremur stöðum, í
Kerfossi, Stekkjarkvörn og
Hrafnshyl. Laxinn í Álftá er iðu-
lega geysivænn, mikið um 10 til
14 punda laxa og þeir stærstu 17
til 19,5 pund, sex slíkir voru
komnir á land á föstudaginn.
Meðalþunginn hefur dvínað ögn
síðustu vikurnar þar eð smálax
hefur gengið í talsverðum mæli.
136 laxar voru komnir á land á
föstudagskvöld og þeir sem veitt
hafa um helgina hafa átt við ána
í sínum skemmtilegasta ham; að
jafna sig eftir flóð og fulla af
laxi!
Stórir sjóbirtingar
í Leirvogsá
Talsvert hefur borið á sjóbirt-
ingi í Leirvogsá síðustu daganna
og eru margir þeirra rokvænir.
Þannig veiddi Kristinn Jör-
undsson einn 5 punda á svarta
Frances í Helguhyl á sunnudag-
inn og sagði hann að fimm aðrir
slíkir hefðu verið skráðir í veiði-
bókina. Nokkuð á þriðja hundrað
laxa eru komnir á land úr Leir-
vogsá, sem er afar gott. Laxinn
veiðist um alla á og er sagt mikið
magn af fiski í gljúfrunum fyrir
ofan Ketilhyl, en þangað nenna
ekki allir, enda brattlendi mikið
og strembin ganga.
Punktar úr Borgarfirði.
Milli 70 og 80 laxar hafa veiðst
í Straumunum og þar er sagt
talsvert af laxi. Ætti það að
gleðja veiðimenn og eigendur
veiðiréttar í Norðurá og Gljúf-
urá, því búast má við því að
Straumalaxinn gangi í þær ár.
Fyrir skömmu veiddist 23 punda
lax í Straumunum, en obbinn af
laxinum er þó smár.
Enn er heldur slök veiði víða í
Borgarfirði, einkum í Norðurá
og Þverá. Frétti blm. Mbl. að eitt
holl í Þveránni fyrir skömmu
hafi aðeins fengið 7 laxa á 7
stangir á 3 dögum. Ekki burðug
veiði það. Heldur er frískara í
Norðurá þó ekki sé hún _góð á
eigin mælikvarða. Magnús
Jónsson, framkvæmdastjóri hjá
Carlsberg, missti þann stóra þar
fyrir skömmu, þreytti ferlíkið,
sem tók flugu í Veiðilækjar-
kvörn, í 50 mínútur áður en aust-
urrískur veiðifélagi hans brá
miklum háf og sterklegum undir
ekki síður sterklegan laxinn. En
í stað þess að renna höfðinu
fyrst inn í háfinn eins og Magn-
ús hafði sagt fyrir um, smeygði
sá austurríski háfnum undir lax-
inn miðjan, hífði svo. Háfurinn
brotnaði , taumurinn slitnaði,
Magnús varpaði stönginni frá
sér og hljóp út í skóg til að halda
ró sinni.
„Ég var smeykur um að ég
myndi henda honum í ána, en
auðvitað rann mér reiðin strax.
Þetta var mér bærilegra er ég
mundi eftir orðum skosks vinar
míns, er hann sagði: „Þú missir
ekki laxinn ef þú setur ekki í
hann.“ Sem sagt, hefði ég heldur
viljað að ævintýrið hefði aldrei
gerst? Auðvitað er svarið nei. Ég
svaf því vært um nóttina, en ég
efast um að félagi minn hafi gert
svo,“ sagði Magnús.
Við Gljúfurá í Borgarfirði.
Við erum
komnir í
Olympíu-
liðið
FUJI-liðið er kátt núna
Framkvæmdanefnd Olympiu-
leikanna i Los Angeles 1984
hefur valið FUJI filmur fyrir allar
myndatökur í sambandi við
Olympiuleikana 1984
Á Olympíuleikunum eru aðeins
þeir bestu - þeir sem skara fram
úr, - í þeim hópi er FUJI.
Nýlega kom á markað ný FUJI
filma - FUJICOLOR HR, sem gefur
þér bjartari skarpari og litríkari
myndir en áður hefur þekkst.
Nýja FUJICOLOR HR filman markar timamót í
litfilmuframleiðslu og er örugglega skarpasta
filma, sem þú átt kost á.
Þess vegna á FUJI vel heima á OLympiuleik-
unum - þvi þar eru aðeins þeir bestu.
i »Jy ■ ■
-—llll l iUHl^l
"'GH RESOLLlT10*1
^JICOL^
hriqQ^
ÍQ« COLOf .
■
- Ofiictal Film af
I the Los Angeles
1984 Ofymptcs
L A aptpæ S>»nöoá» C '990 L A Oty Com W
FUJI PHOTO FILM CO., LTD.
Tokyo. Japan
P1983
/
wfáimiiÆm
SKIPHOITI 31
filma
H/GH RESOLUTION
FUJICOLOR
HR100/HR400