Morgunblaðið - 31.07.1984, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 31.07.1984, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 1984 3 Framleiðsluráð skorar á utanríkisráðherra: Varnarliðið verði skyldað að kaupa íslenskar búvörur FRAMLEIÐSLURÁÐ landbúnaðarins samþykkti ályktun á fundi sínum fyrir skömmu þar sem minnt er á þau ákvæði framleiðsluráöslaganna að innflutn- ingur landbúnaðarvara megi því aðeins fara fram, að innlend framleiðsla fullnægi ekki neysluþörfum. I ályktuninni er skorað á utanríkisráðherra að beita ákvæðum íslenskra laga og skylda varnarliðið á Keflavíkurflugvelli nú þegar til að kaupa íslenskar búvörur til neyslu bæði á flugvellinum sjálfum sem og utan hans. í ályktuninni segir að umrædd lagaákvæði hafi verið brotin árum saman með innflutningi til varn- arliðsins, þó að nægar íslenskar búvörur hafi verið til í landinu, sem fullnægt hefðu þörfum varn- arliðsins. Jafnframt hafi ákvæði tollalaga verið brotin með flutn- ingi búvara og fleiri neysluvara út af flugvallarsvæðinu til varnar- liðsmanna og ef til vill fleiri aðila, sem búa utan flugvallarins. í ályktuninni segir einnig: „Með til- vísun til þess að nú beitir stjórn Bandaríkjanna gömlum laga- ákvæðum til að útiloka islensk skipafélög frá því að flytja vörur frá Bandaríkjunum til Keflavíkur, skorar Framleiðsluráð landbúnað- arins á utanríkisráðherra, hr. Geir Hallgrímsson, að beita ákvæðum íslenskra laga og skylda varnarliðið nú þegar til að kaupa íslenskar búvörur til neyslu, bæði á flugvellinum sjálfum sem og utan hans.“ Gunnar Guðbjartsson fram- kvæmdastjóri Framleiðsluráðs sagði í samtali við Morgunblaðið að varnarliðið keypti neyslumjólk hér á landi en flytti inn allar aðr- ar búvörur. Þetta hefði verið svona alla tíð þrátt fyrir að Fram- leiðsluráð hafi margsinnis minnt á þau ótvíræðu lagaákvæði sem bönnuðu innflutning búvara og hefði því verið borið við að Banda- ríkjamönnum væri heimilað þetta í varnarsamningnum. Löndunarstopp í Vestmannaeyjum VeNtmannaeyjum, 28. júlí. í GÆR var sfðasti löndunardagur hjá bátum og togurum fyrir þjóðhá- tíð og munu frystihúsin ekki taka á móti fiski aftur fyrr en 20. ágúst nk. Löndunarstoppið nú varir því í þrjár vikur sem er einni viku styttra en undanfarin ár. Mikill afli hefur bor- ist á land síðustu dagana þannig að næg vinna verður i frystihúsunum alla þessa viku. Ástæður þess að frystihhúsin loka eru fyrst og fremst þær að undanfarin ár hefur mikill meiri- hluti starfsfólks þeirra yfirleitt tekið sin sumarfrí um og eftir Árekstur báts og ísjaka VÉLBÁTURINN Happasæll lenti í árekstri vió ísjaka sjö sjómflur vest- ur af Grímsey nú um helgina. Rifa kom á bátinn fyrir ofan sjólínu og hélt hann inn til Grímseyjar, þar sem hann hafði skamma viðdvöl meðan gert var við skemmdirnar til bráðabirgða. Báturinn hélt að lokinni viðgerð á veiðar aftur, en hann er á grá- lúðuveiðum. Happasæll er um 200 lestir að stærð. ------» » ♦ Hárgreiðslusveinar: Gott verkfall VERKFALL hárgreiðslusveina á föstudag gekk vel að sögn Stellu Hauksdóttur, formanns Hár- greiðslusveinafélags Islands, en þó gerðu örfáar stofur sig sekar um verkfallsbrot með því að láta nema ganga í verk sveina. Enginn nýr fundur hefur verið boðaður hjá ríkissáttasemjara en Stella sagðist búast við að hann yrði upp úr helginni. Lítið hefur enn miðað til lausnar í kjaradeil- unni og verður verkfall að nýju næstkomandi föstudag hafi samn- ingar ekki tekist. þjóðhátíð og auk þess loka barna- heimilin á þessum tíma vegna sumarleyfa. Þó svo húsin hætti að taka við fiski þessar þrjár vikur þýðir það ekki að öll vinna í þeim leggist niður. Fastráðnu starfs- fólki gefst kostur á vinnu við ýmis lagfæringarstörf og viðhald. Vegna löndunarstoppsins mun bátaflotinn vera bundinn við bryggju næstu vikurnar og fjórir af togurunum munu verða í höfn næstu tvær vikurnar að minnsta kosti. Þrír togarar hafa haldið til veiða og munu sigla með aflann til Englands og Þýskalands. - hkj. Líflegt í Andakflnum Veiði í Andakilsá hefur verið betri nú en á sama tíma í fyrra, bara nokkuð lífleg á köflum. Um helgina voru komnir milli 70 og 80 laxar á land. Veiðimenn sem voru í ánni á laugardaginn færðu tíðindin, þeir veiddu ekk- ert, en sáu eitthvert líf, lítið þó. Á hinn bóginn var áin vatnsmik- il. Laxarnir hafa bæði veiðst á maðk og flugu, en í ánni ku vera mjög skemmtilegir fluguveiði- staðir. Vænn lax, einkum fram- an af, upp í 14 til 15 pund, en svolítið smærri upp á síðkastið. Álftá þrumugóð Álftá hefur ekki svikið í sumar, þar er mikið af laxi og alltaf að ganga nýr fiskur. Til dæmis komu sex laxar á land á föstudaginn, fjórir grálúsugir. Áin var þá að jafna sig eftir mikið flóð aðfaranótt fimmtu- dagsins og langt fram eftir þeim degi. Mikið og gott vatn hefur verið í ánni og laxinn veiðst víða, mest þó á þremur stöðum, í Kerfossi, Stekkjarkvörn og Hrafnshyl. Laxinn í Álftá er iðu- lega geysivænn, mikið um 10 til 14 punda laxa og þeir stærstu 17 til 19,5 pund, sex slíkir voru komnir á land á föstudaginn. Meðalþunginn hefur dvínað ögn síðustu vikurnar þar eð smálax hefur gengið í talsverðum mæli. 136 laxar voru komnir á land á föstudagskvöld og þeir sem veitt hafa um helgina hafa átt við ána í sínum skemmtilegasta ham; að jafna sig eftir flóð og fulla af laxi! Stórir sjóbirtingar í Leirvogsá Talsvert hefur borið á sjóbirt- ingi í Leirvogsá síðustu daganna og eru margir þeirra rokvænir. Þannig veiddi Kristinn Jör- undsson einn 5 punda á svarta Frances í Helguhyl á sunnudag- inn og sagði hann að fimm aðrir slíkir hefðu verið skráðir í veiði- bókina. Nokkuð á þriðja hundrað laxa eru komnir á land úr Leir- vogsá, sem er afar gott. Laxinn veiðist um alla á og er sagt mikið magn af fiski í gljúfrunum fyrir ofan Ketilhyl, en þangað nenna ekki allir, enda brattlendi mikið og strembin ganga. Punktar úr Borgarfirði. Milli 70 og 80 laxar hafa veiðst í Straumunum og þar er sagt talsvert af laxi. Ætti það að gleðja veiðimenn og eigendur veiðiréttar í Norðurá og Gljúf- urá, því búast má við því að Straumalaxinn gangi í þær ár. Fyrir skömmu veiddist 23 punda lax í Straumunum, en obbinn af laxinum er þó smár. Enn er heldur slök veiði víða í Borgarfirði, einkum í Norðurá og Þverá. Frétti blm. Mbl. að eitt holl í Þveránni fyrir skömmu hafi aðeins fengið 7 laxa á 7 stangir á 3 dögum. Ekki burðug veiði það. Heldur er frískara í Norðurá þó ekki sé hún _góð á eigin mælikvarða. Magnús Jónsson, framkvæmdastjóri hjá Carlsberg, missti þann stóra þar fyrir skömmu, þreytti ferlíkið, sem tók flugu í Veiðilækjar- kvörn, í 50 mínútur áður en aust- urrískur veiðifélagi hans brá miklum háf og sterklegum undir ekki síður sterklegan laxinn. En í stað þess að renna höfðinu fyrst inn í háfinn eins og Magn- ús hafði sagt fyrir um, smeygði sá austurríski háfnum undir lax- inn miðjan, hífði svo. Háfurinn brotnaði , taumurinn slitnaði, Magnús varpaði stönginni frá sér og hljóp út í skóg til að halda ró sinni. „Ég var smeykur um að ég myndi henda honum í ána, en auðvitað rann mér reiðin strax. Þetta var mér bærilegra er ég mundi eftir orðum skosks vinar míns, er hann sagði: „Þú missir ekki laxinn ef þú setur ekki í hann.“ Sem sagt, hefði ég heldur viljað að ævintýrið hefði aldrei gerst? Auðvitað er svarið nei. Ég svaf því vært um nóttina, en ég efast um að félagi minn hafi gert svo,“ sagði Magnús. Við Gljúfurá í Borgarfirði. Við erum komnir í Olympíu- liðið FUJI-liðið er kátt núna Framkvæmdanefnd Olympiu- leikanna i Los Angeles 1984 hefur valið FUJI filmur fyrir allar myndatökur í sambandi við Olympiuleikana 1984 Á Olympíuleikunum eru aðeins þeir bestu - þeir sem skara fram úr, - í þeim hópi er FUJI. Nýlega kom á markað ný FUJI filma - FUJICOLOR HR, sem gefur þér bjartari skarpari og litríkari myndir en áður hefur þekkst. Nýja FUJICOLOR HR filman markar timamót í litfilmuframleiðslu og er örugglega skarpasta filma, sem þú átt kost á. Þess vegna á FUJI vel heima á OLympiuleik- unum - þvi þar eru aðeins þeir bestu. i »Jy ■ ■ -—llll l iUHl^l "'GH RESOLLlT10*1 ^JICOL^ hriqQ^ ÍQ« COLOf . ■ - Ofiictal Film af I the Los Angeles 1984 Ofymptcs L A aptpæ S>»nöoá» C '990 L A Oty Com W FUJI PHOTO FILM CO., LTD. Tokyo. Japan P1983 / wfáimiiÆm SKIPHOITI 31 filma H/GH RESOLUTION FUJICOLOR HR100/HR400
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.