Morgunblaðið - 11.08.1984, Page 13

Morgunblaðið - 11.08.1984, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1984 13 Fjallkonan, fris Baldvinsdóttir Ein- arsson, og skjaldarmerki íslands, málað af Gísla Bergmann, í baksýn. Lýðveldi í 40 án 17. júní fagn- að í Ástralíu ÍSLENDINGAFÉLAGIÐ i New South Wales, Ástralíu, boðaði til fögnuðar 17. júní að vanda. Þar kom m.a. fyrsta sinni fram fjall- konan, íris Baldvinsdóttir Einars- son, á upphlut og flutti hún ís- lendingaljóð 17. júní 1944 eftir Jó- hannes úr Kötlum. Einnig var þar afhjúpað skjald- armerki íslands sem ungur fslend- ingur, Gísli Bergmann, málaði og færði félaginu að gjöf. Arnarflug með aðalum- boð fyrir KLM ARNARFLUG tekur við aðalumboði fyrir hollenska flugfélagiö KLM á ís- landi þann 15. ágúst nk., að ósk hol- lenska félagsins. Samningur milli félaganna um þetta umboð var undirritaður í síð- ustu viku og eru meginverkefnin, sem Arnarflug sér um á íslandi fyrir KLM, á sviði sölu- og kynn- ingarmála. Arnarflug hefur frá upphafi áætlunarflugsins til Hol- lands annast sölu á farseðlum og farmflutningum KLM og nýta fé- lögin sameiginlega CORDA-þjón- ustutölvuna til farskráningar og upplýsingamiðlunar. Nú verður sölustarfsemi fyrir hönd KLM auk- in á f slandi og einnig er í undirbún- ingi auglýsinga- og kynningarstarf um þjónustu KLM. Tveir af yfirmönnum KLM á sviði sölumála í Evrópu eru væntanlegir til fslands 14. ágúst nk. til viðræðna við Arnarflug um sölu- og kynn- ingarmál. KLM er elsta starfandi áætlunar- flugfélag heimsins. Starfsmenn fé- lagsins eru yfir 17 þúsund talsins og félagið rekur rúmlega 50 þotur og flýgur til um 120 staða í 75 löndum. (Fréttatilkynning.) Ferð um Hafnahrepp NOKKUR örnefni misrituðust því miður í blaðinu í gær í fréttinni um náttúruskoðunar- og söguferð um Hafnahrepp, sem verður í dag á veg- um Náttúruverndarfélags Suövestur- lands. Hafnarberg á að vera Hafnaberg, Hrafneyri á að vera Hafnareyri, Litla-Sandvík á að vera Litla- Sandhöfn, Stóra-Sandvík á að vera Stóra-Sandhöfn og Árnastaðir á að vera Árnagerði. Þá má geta þess að Jón Thorar- ensen fræðimaður frá Kotvogi verð- ur einn af leiðsögumönnum í ferð- inni. Mikil ásókn í kvennaathvarf ÁSÓKN í Kvennaathvarfið í Reykjavík hefur verið óvenju mikil nú í sumar, en frá því í desember á síðasta árí hafa á annað hundrað konur leitað til athvarfsins. Elísabet Gunnarsdóttir hjá Samtökum um kvennaathvarf sagði f samtali við Morgunblaðið, að fjöldi þeirra kvenna, sem leitað hefðu ásjár hjá samtökunum nú í sumar, værí mun meiri en verið hefði sumarið 1983 og verí þar um að ræða konur bæði af höfuðborgarsvæðinu og utan af landi. Elísabet sagði að ein skýringin oft þegar að þrengdist. í flestum á þessu gæti verið sú, að nú væri víða þröngt i búi hjá fólki og ef ósamkomulag væri fyrir á heimil- um magnaðist slíkt ósamkomulag tilfellum er um það að ræða að konurnar flýja af heimilunum eft- ir að eiginmenn eða sambýlismenn hafa lagt hendur á þær, en einnig er nokkuð um að konur leiti til athvarfsins eftir hjónaskilnaði og hafi ekki f önnur hús að venda. Elísabet sagði að meðaldvalartími kvenna hjá athvarfinu væri um ein vika, en gæti farið niður í einn sólarhring og allt upp í tvo til þrjá mánuði. I síðastnefndu tilfellun- um væri einkum um að ræða kon- ur sem leituðu til athvarfsins eftir hjónaskilnaði. Að sögn Elísabetar er fjöldi þessara kvenna óvenju mikill í ekki stærra samfélagi. Flestar væru af höfuðborgarsvæðinu, en einnig kæmu konur utan af landi og benti hún á f því sambandi, að nú hefði verið opnað kvenna- athvarf á Akureyri enda hefði reynslan sýnt, að þörf væri fyrir svona starfsemi víðar en í höfuð- borginni. •• cn aðrirbankar bjóða Paö er engin spurning, Iðnaðarbankinn býður aðrar sparnaðarleiðir. Við bjóðum þér BANKAREIKNING MEÐ BÓNUS í stað þess að kaupa skírteini. Þú týnir ekki bankareikningi. Pú þarft ekki að endurnýja banka- reikning. Þú skapar þér og þínum lánstraust með bankareikningi. Iðnaðarbankinn Fer eigin leiðir -fyrir sparendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.