Morgunblaðið - 17.08.1984, Síða 12

Morgunblaðið - 17.08.1984, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1984 Mikill pallur hnindi, er reistur hafði verið fyrir áhorfendur, sem hugðust fagna bandarísku verðlaunahöfunum á Ólympíuleikunum, er þeir færu í skrúðgöngu á Broadway í New York. Hér sést hvar verið er að gera við pallinn, en skrúðgangan fór fram samkvæmt áætlun skömmu síðar. Ríkisstjórn Sri Lanka: Kennir marxistum um ofbeldisverkin Colombo, 16. ígúst AP. RÍKISSTJÓRNIN á Sri Unka sakaði í dag „öfgamenn“ og „marxista“ í hernum um að bera ábyrgð á ofbeldisverkum gegn tamflska minnihlutanum í land- inu. Herinn heldur enn áfram leit sinni að skæruliðum og í dag voru 14 handteknir, sem grunaðir eru um stuðning við þá. Anandatissa, upplýsingamála- ráðherrra Sri Lanka, sagði á fréttamannafundi í dag, að þau ofbeldisverk, sem stjórnarherinn hefði unnið á óbreyttum borgur- um, væri því að kenna, að „öfga- menn og marxistar" í röðum her- manna hefðu hvatt til þeirra í þeim tilgangi að koma á ringul- reið í landinu. Fyrr í vikunni gengu hermenn berserksgang í bænum Mannar, lögðu eld að húsum og rændu og rupluðu. Sagði Anandatissa, að hverjum íbúa bæjarins, sem hefði orðið fyrir fjárhagstjóni, yrðu greiddir tvö þúsund dollarar í skaðabæt- ur. Leiðtogar 55 milljóna tamíla á Indlandi hafa krafist þess, að indverska stjórnin grípi í taum- ana á Sri Lanka og sendi þangað her til að stöðva ofbeldið gegn tamílum. Indira Gandhi hefur vísað þeim kröfum algerlega á bug. I Jaffna, helstu borg á Norður-Sri Lanka, eru sjúkrahús yfirfull af fólki, sem orðið hefur fyrir barðinu á stjórnarher- mönnum. í Chunnakam var fréttamönnum sýnt lík gamals manns, sem hermenn skutu á og særðu þegar hann reyndi að forða sér undan þeim. Síðan var hann hengdur. Samstarf þriggja þjóða: Gervihnöttum skotiö á loft Reagan ekki sigraður án stuðnings svartra - segir Jesse Jackson New York, 16. áfpíst. AP. SÉRA Jes.se Jackson sagði í dag, að hann væri „ekki fullkomlega þátt- takandi" í kosningabaráttu Walters Indland: Stjórnin Pradesh Nýju Delhí, 16. á(rú»l. AP. STJÓRN Rama Raos í fylkinu Andhra Pradesh á Indlandi var leyst upp í morgun. Jafnframt bárust fréttir af því, að Kama Rao og ýmsir háttsett- ir embættismenn hefðu verið fangels- aðir. Mikið uppnám varð á indverska þjóðþinginu í dag vegna þessara at- burða og sökuðu þingmenn stjórn- arandstöðunnar frú Indiru Gandhi Mondales fyrir forsetakosningarnar í haust og varaði við því að Mondale gæti ekki sigrað Ronald Reagan án stuðnings svertingja. „Án atkvæða svertingja getur Demókrataflokkurinn ekki sigr- að,“ sagði Jackson. „Svertingjar hafa alltaf verið tryggari Demó- í Andhra leyst upp og stjórn hennar um stórfelld stjórnarskrárbrot, svo að annað eins hefði ekki gerzt „í sögu lands- ins“. Lýsti Madhu Dandavate, leið- togi stjórnarand8töðunnar þessum atburðum sem valdaráni, sem ind- verska stjórnin hefði staðið á bak við. Stjórn Rama Raos er þriðja fylk- isstjórnin f Indlandi, sem leyst er upp frá því í maí. krataflokknum en gyðingar eða verkamenn eða nokkur annar hóp- ur kjósenda," sagði Jackson enn- fremur. Jackson lét þessi orð falla í morgunþætti ABC-sjónvarps- stöðvarinnar „Góðan daginn Bandaríkin" og komu þau í kjölfar kvartana frá Mondale þess efnis, að Jackson stæði ekki við loforð þau, sem hann hefði gefið um að styðja frambjóðendur demókrata í forsetakosningunum. „Ég er ekki þátttakandi í innri hring stuðningsmanna Mondales, ég á ekki þátt í því að móta stefn- una,“ sagði Jackson. Skoraði hann á Mondale að halda fund með sér og öðrum áhrifamiklum demó- krötum í því skyni að gera áætlun um, hvernig unnt megi verða að sigra Reagan í nóvember. „Til þessa höfum við ekki verið í þeirri beinni snertingu, sem við hefðum þurft,“ sagði Jackson ennfremur. „Við þurfum að standa saman. Þegar við gerum það ekki, þá töpum við. Þegar við stöndum saman, þá sigrum við. Ég vona, að við getum staðið saman." l'lórida. 16. ágúat. AP. GERVIHNÓTTUM þriggja þjóða var skotið á loft í dag til að leiða fram og gera rannsóknir á gervi- skýjum og búa til eftirlíkingu af halastjörnu. Er þetta gert í tengsl- um við rannsóknir á sólstormum. Þriggja þrepa bandarísk eld- flaug af Delta-gerð, búin gervi- hnöttum frá Bandaríkjunum, Vestur-Þýskalandi og Bretlandi, hóf sig af skotpallinum síðdegis í dag. Flugtaki var frestað um sex mínútur vegna skips, sem þurfti að yfirgefa siglingarsvæði skammt frá skotpallinum. Eldflaugaskotið tafðist um tvo daga sökum tæknierfiðleika, en Frankfurt, 16. ágúst. AP. STARFSMENN vestur-þýzka flugfé- lagsins Lufthansa hafa hafnað sátta- tillögu, sem fram hefur verið borin til lausnar kjaradeilu starfsmanna hjá flugfélögum í Vestur-Þýzkalandi. þetta er í fyrsta sinn, sem eld- flaug búin gervihnöttum frá þremur ríkjum, er send á loft. Er verkefni gervihnattanna eitt hið flóknasta sem um getur á þessu sviði visinda, og er áætlað- ur kostnaður um 78 milljónir dollara. Meðal þess, sem rannsakað verður eru áhrif sólar á veðurfar og fjarskipti. Einnig vonast vís- indamenn til að komast að því hvernig sólstormar ná inn í seg- ulsvið umhverfis jörðina, og hvort rafurmagnaðar róteindir vindsins séu orsök geislunar á Van Allen-beltinu, sem umlykur heimskringluna. Er nú mikill uggur kominn upp vegna yfirvofandi hættu á verkfalli, sem lamað gæti flugsamgöngur með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir milljónir flugfarþega og spillt mjög fyrir rekstri flugfélaganna. Nær 79% af 2.952 starfs- mönnum Lufthansa greiddu at- kvæði gegn sáttatillögunni, en samkvæmt henni var gert ráð fyrir kauphækkun en engri stytt- ingu vinnutímans. Hinn 15. júní sl. varð Lufthansa að fresta eða fella niður 24 innan- landsflug vegna þriggja klukku- stunda aðvörunarverkfalls, sem 1.500 starfsmenn tóku þátt í. Eldur í olíu- palli út af Rio Rio de Janeiro, 16. ipjst AP. ELDUR kom upp á olíuborpalli úti fyrir Rio de Janeiro og að minnsta kosti 31 maður drukknaði, er björgunarbát hvolfdi þegar verið var að bjarga starfsmönnum á olíupallinum í land. Nokkurra er enn saknað og mikill fjöldi slökkviliðsmanna og björgunar- sveitarmanna svo og lögreglu börðust við eldinn klukkustundum saman. Borpallurinn er 130 mílur aust- ur af Rio. Þar hafa verið fram- leiddar 40 þúsund olíutunnur á sólarhring. Klæddi sjúkling upp eins og Boy George Áminnt fyrir slæma hegðun í starfi Newrawtle upon Tyne, 16. ágúst. AP. Hjúkrunarkona, sem klætt hafði upp 65 ára gamlan mann, þannig að hann leit alveg eins út og popp- söngvarinn Boy George, hefur ver- ið fundin sek um slæma hegðun í starfi. Hafði hún sett varalit og augnfarða á manninn og síðan greitt hár hans með sama hætti og poppsöngvarinn frægi gerir. Hjúkrunarkonan Valerie Hodgson, 40 ára að aldri, úthellti höfgum tárum, er aganefndin komst að þeirri niðurstöðu, að hún hefði sýnt sjúklingnum óvirðingu með háttalagi sfnu. Nafn hans var ekki nefnt, en það varð hjúkrunarkonunni til auk- ins áfellis, að hann var kominn „út úr heiminum" af völdum slags, sem hann hafði fengið fyrir nokkru. Gerði maðurinn sér því ekki nokkra grein fyrir því, sem gert hafði verið við hann. Aganefndin féllst hins vegar á, að ekki væri þörf frekari að- gerða í þessu máli og samþykkti, að frú Hodgson héldi starfi sínu sem hjúkrunarkona. Uppátæki hjúkrunarkonunnar varð uppvíst, er hún var kölluð burt og læknir uppgötvaði, að maðurinn, sem ekki gat talað, var með andlitsfarða og hárið greitt „eins og á kvenmanni". Frú Hodgson, sem starfað hef- ur á sjúkrahúsinu í Carlisle í 8 ár, gaf þá skýringu á uppátæk- inu, að það hefði verið „meint sem grín“ til skemmtunar fyrir sjúklinginn og aðra á sömu deild. Maðurinn hefði heldur ekki virzt taka þessu illa. Cliff Allison, lögmaður hjúkr- unarkonunnar sagði, að atvikið hefði valdið „mikilli kátínu" og að einn af sjúkiingunum hefði sagt, að það hefði verið eitt það skemmtilegasta, sem komið hefði fyrir á sjúkrahúsinu, eftir að hann kom þangað. „Allir viðstaddir hlógu með manninum en ekki að honum. Hann varð ekki aðhlátursefni, heldur þáttt- akandi í gríninu. Hefði læknir- inn verið til staðar, þá er ég viss um að aldrei hefði verið kvartað út af atvikinu," var haft eftir Allison. Graham Franks, yfirmaður Boy George í eigin mynd. hjúkrunarfólks á sjúkrahúsinu, sagði eftir atvikið, að frú Hodg- son hefði fengið skriflega aðvör- un og verið flutt á aðra deild sjúkrahússins. Vestur-Þýskaland: Flugverkfall yfirvofandi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.