Morgunblaðið - 17.08.1984, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 17.08.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1984 23 Sextugsafmæli: Sigfús Kristjáns- son tollfulltrúi Sigfús Kristjánsson, tollfulltrúi á Keflavíkurflugvelli, er sextugur í dag. Árin telja og aldurinn hækkar, en mér finnst Sigfús ekk- ert eldast, kannski erum við svo jafnstíga að eldast, að ég sé ekki muninn, væntanlega gott fyrir báða. Við höfum átt saman í starfi langa og góða samvinnu við lög- gæslustörf á Keflavíkurflugvelli. Sigfús hefur ávallt sýnt trúmennsku, dugnað og reglusemi í starfi. Það er fátítt að mönnum takist að halda sömu árvekni í starfi áratugum saman, en það hefur honum tekist. Sigfús er fastur fyrir, hann skiptir ekki um skoðun nema fyrir liggi staðfestar og vel grundvall- aðar niðurstöður, en þó er hann réttlátur og málefnalegur. Sigfús hefur um áratugaskeið mikið starfað að margs konar fé- lagsmálum. Almenn og staðgóð þekking hans á landsmálum, markviss og vönduð vinnubrögð, samfara dugnaði, hafa valdið því að Sigfúsi hafa verið falin ótal- mörg félags- og trúnaðarstörf í gegnum árin og má þar tilnefna: Stjórnarmaður Kaupfélags Suður- nesja síðan 1963 og stjórnarfor- maður þess síðan 1974, í stjórn Skákfélags Keflavíkur frá 1957, nær óslitið í 20 ár og formaður þess í 7 ár, formaður Félags áfeng- isvarnarnefnda í Gullbringusýslu síðan 1969 og í Áfengisvarnanefnd Keflavíkur síðan 1964, formaður Leikfélags Keflavíkur 1977, for- maður yfirkjörstjórnar í Keflavík siðan 1978, í stjórn kjördæmis- sambands Framsóknarmanna í Reykjaneskjördæmi frá 1964 til 1972 og formaður þess í 5 ár, for- maður framfærslunefndar Kefla- víkur frá 1970—1981, í miðstjórn Framsóknarflokksins 1972. Samvinnuhreyfingin hefur ávallt átt mjög ríkan þátt í lífi og starfi Sigfúsar. Hann hefur stutt starfsemi hennar af alhug og ósérhlífni, enda verið þess fullviss að á grundvelli hugsjóna sam- vinnuhreyfingarinnar yrði hags- munum þjóðarinnar best borgið. Á hundrað ára afmæli hreyfingar- innar ritaði hann ágæta grein, sem ég leyfi mér að taka orð upp úr sem hljóðuðu svo: „Samtök þeirra byggjast upp af viðskipta- stefnu og félagsmálastefnu, sem grundvallaðist á viðhorfum fé- lagshyggju, mannúð og trú á mátt samtakanna. Síðast en ekki sist má nefna menningarstefnu með beinni fræðslu innan félaganna. Þar var einnig leitast við að halda opnum leiðum fyrir utanaðkom- í dag er 80 ára að aldri Gunn- hildur Guðmundsdóttir. Hún fæddist 17. ágúst 1904 á Akrahóli í Grindavík þar sem faðir hennar, Guðmundur Magnússon, stundaði sjósókn. Móðir Gunnhildar hét Gyðríður Sveinsdóttir af ætt þess nafnkunna kennimanns, Jóns Steingrímssonar prófasts í Skaftafellsþingum. Gunnhildur giftist 3ja dag des- embermánaðar 1927 Björgvini Pálssyni, f. 3. júlí 1907 á Lamba- felli undir Eyjafjöllum. Þau flutt- ust snemma á búskaparárum sín- um til Vestmannaeyja svo sem margt fólk í leit að vinnu og bjuggu þar lengst af, eða uns nátt- úruhamfarirnar hófust aðfarar- nótt 23. janúar 1973, og íbúar máttu yfirgefa eyna. Settust þau þá að í Hveragerði þar sem þau hafa unað sér vel. Stundum ber það við að fólk, sem aðeins hefir haft dálitla af- spurn af tilveru skyldfólk síns, hittist á nýjan leik. t bjargræð- isskorti fyrri tíma og allt fram á þessa öld, leystust heimili upp og skyldir sundruðust. Sá sem þessar línur ritar, minnist þess ungur er faðir hans, sem þá var lífs, kom fagnandi til síns heima með ætt- ingja sem hann hafði hitt aftur af tilviljun. Þessi dagstund var upp- hafið að meiriháttar kynnum og órjúfandi böndum vináttu og skyldleika. Þessi fjarlæga taug skyldleika, sem þarna náði aftur saman, átti mikinn þátt í því að auka skilning og víðsýni, að ógleymdum aðgangi að þeim ríku- lega fjársjóði sem mölur og ryð fá ei grandað. Heimili Gunnhildar og Björg- vins hefir löngum verið sannkall- aður miðpunktur mannlegra sam- skipta meðal ættingja, þar sem ýmis mannlegur breyskleiki hefir verið krufinn til mergjar, ýmsir erfiðleikar verið ræddir og þar hefir sjaldnast verið skortur á andi þekkingu og menningar- straumum. Þetta samspil efnis- legra og andlegra þátta hefur orð- ið samvinnuhreyfingunni drjúgt veganesti í eitt hundrað ár og það er afmælisósk mín til hennar, að vægi þeirra raskist ekki." Sigfús er ritfær maður, hann hefur skrif- að margar greinar um mismun- andi efni. Það er gaman og fróð- legt að lesa greinar hans, þar fer saman gott vald á íslenskri tungu og vel grundvallað efnisval. Sigfús er vel hagmæltur, eftir hann ligg- ur mikið magn af vísum og kvæð- um, en því miður hefur alltof lítið af þvi, birst opinberlega. Sigfús hefur gott skopskyn, við sam- starfsmenn hans fáum stundum sendar vísur, þar sem atburðum er stundum lýst með kjarnyrtum orðum og duldum hætti eða þá skotið beint í mark. Sigfús hefur mikið yndi af skák, enda teflt mikið um dagana. Það er alltaf gaman að tefla við Sigfús, J góðum og hugheilum ráðlegging- um. Þar hefir á stundum öllu verið brugðið í glens og gaman, lítið gert úr vandræðum um stund en komið að efninu aftur, gjarna úr annarri átt með nýjum viðhorfum sem hafa raunverulegar lausnir í för með sér. Hafa því mörg vanda- málin horfið á methraða en gleðin yfir góðum árangri verið allsráð- hann er góður skákmaður, keppn- ismaður mikill og sókndjarfur. Vonandi eigum við eftir að tefla margar skákir saman, ég lifi í von- inni að verða jafngóður og hann, hver veit nema að sóknaraðferðir mínar fari að skila tilskyldum árangri. 1 þessari stuttu afmælisgrein hef ég aðeins tilgreint lítinn hluta af þeim fjölda góðra málefna, sem þú, Sigfús, hefur látið til þín taka. Ég þakka þér ánægjulegt sam- starf um áratugaskeið og vona að samskipti okkar eigi eftir að vara lengi enn. Sigfús er kvæntur Jónínu Kristjánsdóttur, leikstjóra. Þau hjónin taka á móti gestum aö heimili sínu Hringbraut 69, Kefla- vík, milli kl. 4 og 7 á afmælisdag- inn. Bestu hamingjuóskir i tilefni dagsins og lifðu heill. Kristján Pétursson andi. Frá litla heimilinu þeirra hjóna í Vestmannaeyjum og nú síðastliðinn áratug í Hveragerði hefir stafað ótrúleg birta og ylur sem ekki veitir af í viðsjárverðri og villtri veröld. Þar hefir hið sannkallaða kristilega æðruleysi og hjartahlýja fengið að dafna og ávaxtast sem allt of margir fara á mis við í nútíma timaleysi við söfnun veraldlegra forgengilegra gæða, sem er því miður misskipt, en það er Önnur saga. Þar er og reglusemin og festan hvarvetna í fyrirrúmi, enda slíkt mikil for- senda farsæls og heilbrigðs lífs. Það hefir verið mér stundum áleitið umhugsunarefni, hvað valda kunni misjöfnu hjartalagi fólks. Hjá þér frænka góð er allt svo ríkulegt af hlýju og gleði með- an aðrir eru eins og ískaldur freri allan ársins hring. Ekki er útilok- að að hjartalagið þitt kunni i mörgu að minna á hjartalag þíns góða og merka ættföðurs Jóns eldklerks, þess sem hafði svo sterkan sannfæringarkraft af trú- arhita að eldurinn fékk ekki grandað honum. Mína allrabestu og hugheilu af- mæliskveðju leyfi ég mér og fjöl- skylda mín að senda þér, kæra ömmusystir, Gunnhildur Guð- mundsdóttir. Guðjón Jensson Gunnhildur Guðmunds- dóttir frá Vestmanna- eyjum - Afmæliskveðja Málefni aldraðra Þórir S. Guðbergsson Hjálpartæki Mörgum öldruðum reynist erf- itt að fá pláss á hjúkrunar- eða langleguedeildum. í sumar hefur deildum á sjúkrahúsum verið lokað bæði vegna sparnaðar og vegna skorts á hjúkrunarfræð- ingum eða sérmenntuðu starfs- liði. Margir aldraðir hafa því verið útskrifaðir af spitölum sem fyrst og fremst eru ætlaðir bráðveiku fólki þegar slys eða sjúkdóma ber að höndum. En stundum hafa jafnvel fallið þau orð að ekki séu nógu margir hjúkrunarfræðingar til þess að annast þetta fólk og þá hafa ófaglærðir aðstandendur þurft að annast það daga og nætur. ' Sumir aldraðir þurfa því að vera heima vegna skorts á hjúkrunar- eða langleguplássum en aðrir kjósa fremur að vera heima eins Iengi og þeim frekast er unnt. Það er því eðlilegt að spurt sé: hvaö er til ráða til þess að gera öldruðum kleift að búa heima við þolanleg skilyrði? Heimahjúkrun — heimilis- þjónusta — dagvistun Margir aldraðir þurfa á hjúkr- un að halda í heimahúsum. Sum- ir þurfa sprautur, aðrir lyfja- gjafir eða eftirlit með sárum, hjálp til þess að baða sig, fylgj- ast með blóðþrýstingi o.s.frv. Heimilislæknar sækja um heimahjúkrun fyrir skjólstæð- inga sína ýmist á heilsugæslu- stöðvar eða til Heilsuverndar- stöðvar Reykjavíkur, heima- hjúkrun. Með heimsókn hjúkr- unarfræðings er siðan ákveðið hversu mikla og tíða hjálp sjúkl- ingurinn þarf á að halda. Ekki er alltaf unnt að verða við beiðnum Sumir aldraðir þurfa að vera heima vegna skorts á hjúkrunar- oj langleguplássum en aðrir kjósa fremur að vera heima eins leng. og þeim frekast er unnt. Það er því eðlilegt að spurt sé, hvað sé til ráða til þess að gera öldruðum kleift að búa heima við þolanleg skilyrði. strax og biðtíminn þá misjafn- lega langur. Heimsókn heima- hjúkrunarfræðings er sjúkling- um að kostnaðarlausu. Sömu sögu er að segja um heimilisþjónustu við aldraða. Hún hefur aukist mjög á undan- förnum árum og myndast oft langir biðlistar. Heimilislæknar eða viðkomandi sjálfur getur beðið um heimilisþjónustu undir erfiðum kringumstæðum og er þá viðkomandi heimsóttur og að- stæður kannaðar nánar. Allir fbúar 67 ára og eldri fá 50% af- slátt af gjaldi fyrir heimilisþjón- ustu, en annars miðast greiðslur við ákveðnar gjaldskrár sveitar- félaganna. Ekki þarf að tíunda það nánar hversu mikilvægt það er fyrir sjúka aldraða að geta notið heimahjúkrunar og heimilis- þjónustu til þess að geta búið sem lengst á eigin heimili við sæmileg skilyrði og þyrfti enn að auka við þessa þjónustu um kvöld, helgar og nætur. Starfsmenn í þessum stöðum vinna því mjög þýðingarmikil störf sem sjaldan eru metin til fulls. Dagvistun aldraðra er rekin á 4 stöðum í Reykjavík og víða úti á landi. Hefur hún aukist mjög á undanförnum árum. Oft er nauð- synlegt fyrir aldraða að komast í endurhæfingu eftir sjúkdóms- legu, slys eöa veikindi til þess að ná aftur bata eða halda við heilsu og fyrirbyggja stirðnun eða hrörnun. 4* í Hátúni lOb, Hafnarbúðum og Múlabæ í Reykjavík er um slíka endurhæfingu að ræða og lækn- ismeðferð og sækja heimilis- læknar um dagvistun fyrir sjúkl- inga sina. Síðan er metið hvað viðkomandi þarf að koma oft i viku, en allir eru sóttir heim að morgni og ekið heim siðdegis. Gjaldskrá er mismunandi og er hún sjúklingum að kostnaðar- lausu i Hafnarbúðum og i Há- túni lOb en i Múlabæ, sem rek- inn er af Reykjavíkurdeild Rauða krossins, greiða sjúkl- ingar fyrir akstur. I Þjónustuibúðum aldraðra við Dalbraut hefur dagvistun verið rekin á undanförnum árum af Reykjavíkurborg og eru þátttak- endur í dagvistun alla 5 daga vikunnar. Þar hefur greiðsla verið um 4.000 krónur á mánuði. Margir aldraðir sem búa í heimahúsum eiga einnig við ým- iss konar fötlun að stríða t.d. liðagigt á háu stigi, lömun eftir heilablóðfall, hreyfihömlun í handleggjum eða ganglimum o.fl. Á síðustu árum hafa ýmis tæki verið hönnuð með tilliti til þessa t.d. sérstakar griptangir með fjöðrun, handföng á krana, sérstakir vinkilostaskerar með breiðu handfangi og þannig mætti lengi telja. Ástæða er til þess að vekja at- hygli fólks á slíkum hjálpar- tækjum svo og ýmsum lagfær- ingum sem unnt er að gera á heimilum t.d. fjarlægja þrösk- ulda, setja upp góð handföng á bað, eldhús og aðra staði í íbúð- inni, hugsa vel um góða lýsingu, fá sérstakar skífur á símtól fyrir sjónskerta og stillanlega sfma fyrir heyrnardaufa o.s.frv. Á undanförnum árum hafa einnig komið á markaðinn ýms- ar gerðir hjólastóla og hentugra stóla sem lita út eins og venju- legir stólar en hafa þó margvís- lega tæknilega möguleika. Hélt fyrirtækið Epal athyglisverða sýningu á slíkum tækjum á sl. vetri. í grein þessari er ekki um að ræða nákvæma upptalningu á því sem til er af slíkum hjálpar- tækjum, en gott sýnishorn er unnt að fá í Hjálpartækjabanka Rauða krossins og hjá ýmsum félögum og félagasamtökum. Hjá upplýsingafulltrúa Trygg- ingastofnunar ríkisins fást einn- ig nánari upplýsingar um þátt Tryggingastofnunar í greiðslu á slíkum hjálpartækjum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.