Morgunblaðið - 27.10.1984, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1984
Lögreglan kallar út
verkfallsverði BSRB
Tók ekki mark á leyfisbréfi bæjarfógetans í Hafnarfirði
VEGALÖGREGLUMENN stöðvuðu í gœr flutningabifreið með
tengivagni, sem var að flytja ker úr Stálvík í álverið við
Straumsvík. Breidd farmsins var umfram það sem leyfílegt er að
flytja nema í lögreglufylgd. Vegalögreglumenn höfðu samband
við lögregluna í Hafnarfírði og í samráði ákváðu lögreglumenn-
irnir að hafa samband við BSRB og láta verkfallsvörslu þeirra
vita um atburðinn. Töldu vegalögreglumenn rétt að stöðva þessa
flutninga og fá verkfallsverði á staðinn. Hafnarfjarðarlögreglan
hafði síðan samband við BSRB, sem sendi menn á vettvang.
Það var skömmu fyrir hádegi síðan svo frá: „Ég sýndi vega-
sem vegalögreglumenn stöðvuðu
flutningabílinn og er þau tíðindi
spurðust í Stálvík fór Eyjólfur
Amundason, skipatæknifræð-
ingur, á staðinn til að kanna
málið. Eyjólfur sagði i samtali
við Morgunblaðið, að hann hefði
farið strax á lögreglustöðina í
Hafnarfirði og fengið þar þær
upplýsingar í óspurðum fréttum,
að lögreglan væri búin að kalla
út verkfallsverði BSRB. Eyjólfur
fór síðan með yfirlögregluþjóni á
staðinn, þar sem flutningabíll-
inn hafði verið stöðvaður.
Vegalögreglumenn kváðust þá
taka gilt skriflegt leyfi frá yfir-
lögregluþjóninum, Steingrími
Atlasyni. Steingrímur gekkst
fyrir því að útvega leyfið og kom
með það skömmu fyrir klukkan
eitt, undirritað af Einari Ingi-
mundarsyni, lögreglustjóra i
Hafnarfirði.
Verkfallsnefnd BSRB
Eyjólfur Ámundason segir
hvort sú nefnd hefði nú orðið
með það að gera að gefa út leyfi
fyrir þungaflutningum í landinu,
og hvernig í ósköpunum nefndin
gæti eiginlega blandast inn í
þetta. Þeir svöruðu því til, að ef
verkfallsnefnd BSRB gæfi leyfi,
myndu þeir tala við Vegagerð-
ina. Samkvæmt þessu virðist því
verkfallsnefnd BSRB fara með
stjórn landsins í stóru og smáu,“
sagði Eyjólfur Ámundason.
Osmekklegt að
leita til BSRB
„Ég kem af fjöllum," sagði
Einar Ingimundarson, sýslu-
maður, bæjarfógeti og lögreglu-
stjóri í Hafnarfirði, er málið var
borið undir hann, síðdegis í gær.
Hann kvaðst hvorki hafa haft
spurnir af því að flutningabif-
reiðin hefði verið kyrrsett eftir
að hann gaf út leyfið, né því, að
vegalögreglan og lögreglan í
Hafnarfirði hefðu haft samráð
um að blanda BSRB í málið. Um
þetta sagði Einar m.a.: „Ég veitti
leyfið í samráði við yfirlögreglu-
þjón og taldi það sjálfsagt mál.
Ég held að það sé það ósmekk-
legasta sem hægt er að hugsa sér
að lögreglumenn skuli að fyrra
bragði hafa samband við BSRB
undir slíkum kringumstæðum."
Einar var að því spurður hvort
undirmenn hans hefðu lagalegan
rétt til að hundsa fyrirmæli
hans, og taldi hann svo ekki
lögreglumönnunum þetta leyfi,
en þá fara þeir að tala um Vega-
gerðina. Þeir vitnuðu þar í um-
ferðarlögin, þar sem segir í ein-
hverri grein, að ef farið sé út
fyrir kaupstaðarmörkin, með
hluti sem séu yfir einhverri til-
tekinni breidd, þá þurfi leyfi
lögreglunnar og hún þurfi að
ráðfæra sig við vegamálastjóra.
Viðstaddir lögreglumenn, þar á
meðal undirmenn Einars Ingi-
mundarsonar, tóku sem sagt
ekki mark á leyfisveitingu lög-
reglustjórans heldur kusu frekar
að leita ráða hjá BSRB. Ég
spurði einn þeirra hvort það
væri í hans valdi að dæma úr-
skurði og leyfi lögreglustjórans
ógild. Hann hélt það nú, það
væru alveg hreinar línur að
hann hefði fullt vald til þess.
Verkfallsverðir BSRB komu
síðan á staðinn og sögðu mér að
það réttasta sem ég gerði væri
að sækja um leyfi til verkfalls-
nefndar BSRB. Ég spurði þá
Morgunblaöið/Júlfus.
Eyjólfur Ámundason með leyfisbréfið, undirritað af Einari Ingimundarsyni bæjarfógeta í Hafnarfirði.
Sviftingar við írafoss í Hafnarfirði:
Eimskip krefst lög
banns á verk-
fallsvörslu BSRB
í fyrrakvöld kom til ordahnipp-
inga og smástimpinga á milli verk-
fallsvaröa og verkamanna frá Eim-
skip þegar þeir fyrrnefndu reyndu
aö koma í veg fyrir að löndunar-
krana væri ekið að ms. írafossi i
Hafnarfjarðarhöfn. Verkfallsverðir
hafa síðan staðið vörð um skipið
þannig að ekki hefur verið hægt að
losa það. Síðdegis í gær var þingfest
hjá bæjarfógetanum f Hafnarfirði
lögbannskrafa Eimskips vegna að-
gerða verkfallsvarða BSRB í Hafn-
arfjarðarhöfn. Málsaðilum ber ekki
saman um gang mála í Hafnarfjarð-
arböfn í fyrrakvöld.
Páll Guðmundsson í verkfalls-
vörslu BSRB lýsti atburðum þann-
ig á blaðamannafundi í gær: Eim-
skipsmenn reyndu að landa úr fra-
fossi á hinn hrottalegasta hátt.
Stykkishólmun
Miklar skipa-
viðgerðir
Stjkkwbólmi i sepL
SKIPASMÍÐASTÖÐIN Skipavík í
Stykkishólmi hefir haft næg verk-
efni það sem af er þessu ári. Mikið
eru það viðgerðir og svo er núna ver-
ið að byggja yfir mb. Garðar frá
Ólafsvík og er það mikið verk. Æ
fleiri bátar eru nú yfirbyggðir enda
batnar öll aðstaða sjómanna við það.
Allt dekkið er yfirbyggt og með því
skapast allt önnur aðstaða. Fleiri
bátar munu svo yfirbyggðir hjá
Skipavík, enda þeir sem þessarar
þjónustu hafa notið ánægðir með
verkið.
Fréttaritari
Bakkaði stór krani á hvað sem
fyrir varð, keyrði á bil og ýtti á
undan sér konu sem fyrir honum
var. Þá kom lögreglan og stöðvaði
Eimskipsmennina og tók skýrslu
af þeim sem brotlegir voru. Þeir
reyndu aftur í morgun en það fór
á sömu leið. Þarna voru 50 til 60
verkfallsverðir frá BSRB. Að-
spurður um með hvaða rökum
BSRB teldi sig geta stöðvað losun
á tollafgreiddu skipi sagði Páll að
það hefði verið ólöglega toll-
afgreitt.
Þórður Sverrisson fulltrúi
framkvæmdastjóra hjá Eimskip
lýsti atburðum á þessa leið í sam-
tali við blm. í gær: írafoss kom til
Hafnarfjarðar frá Rifi í gær.
Verkfallsverðir komu í veg fyrir
að það gæti lagst við bryggju í
suðurhöfninni og var það þá bund-
ið við bryggju í norðurhöfninni.
Skipið var tollafgreitt á Rifi af
fulltrúa sýslumanns og yfirlög-
regluþjóni en verkfallsverðir
stöðvuðu losun þess þar í miðjum
klíðum. Skipið var tekið inn í
Hafnarfjarðarhöfn af hafnsögu-
mönnum sem ekki eru lengur i
verkfalli í Hafnarfirði. í gær-
kvöldi þegar komið var með krana
til Hafnarfjarðar hafði hópur
fólks safnast saman á bryggjunni.
Reyndi það að koma í veg fyrir að
krananum væri ekið að skipshlið.
Einhverjir reyndu að halda í kran-
ann síðasta metrann og bíl var ek-
ið utan í hliðina á honum. Greini-
legt var að mikill hiti var í fólkinu
og hættum við þegar kraninn var
kominn á sinn stað við skipið, en
aldrei var fyrirhugað að hefja los-
un um kvöldið, þrátt fyrir að þess-
ar aðgerðir fólksins hafi verið
Morgunbltðið/RAX.
Eimskipafélagsskip í Hafnarfjarðar-
höfn.
fullkomlega ólöglegar þar sem
skipið var tollafgreitt og því heim-
ilt að undirbúa losun þess. Þórður
sagði að lögreglan hefði verið
kvödd til eftir að bílnum var ekið
á kranann og hefðu lögreglumenn
tekið skýrslur af bílstjóranum og
kranastjóranum.
Hekla hf. selur karfa til Japans:
Viljum ekki
láta okkar eftir
liggja í öflun
nýrra markaða
- segir Ingimundur Sigfússon, forstjóri Heklu hf.
HEKLA hf. hefur fyrir
milligöngu bresks fyrir-
tækis gert samninga við
aöila í Japan um sölu á
heilfrystum karfa til Jap-
ans. I framhaldi af þeim
sölusamningi sömdu for-
ráðamenn Heklu og Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihús-
anna um að SH myndi láta
vinna karfann í frystihús-
um innan sinna vébanda
og annast útskipun hans.
„Fyrr á árum var Hekla hf. í
útflutningi, og hafði faðir minn
brennandi áhuga á því,“ sagði
Ingimundur Sigfússon, for-
stjóri Heklu, þegar Morgun-
blaðið spurðist fyrir um þessi
mál hjá honum. „Á þessu varð
hlé en nú á 50 ára afmælisári
fyrirtækisins þótti okkur eig-
endum þess tilefni til að leita
aftur fyrir okkur í útflutn-
ingsmálum og beindum þá at-
hyglinni fyrst að sjávarútveg-
inum.“
Ingimundur Sigfússon sagði
að á vegum Heklu hf. hefði ver-
ið leitað fyrir sér víða um lönd
að aðilum sem vildu kaupa
sjávarafurðir héðan. Þá hefði
meðal annars komið í ljós að
Japanir vildu kaupa íslenskan
karfa á viðunandi verði. Eftir
langa og stranga samninga-
fundi hefðu síðan tekist samn-
ingar um tilraunasölu á allt að
2500 lestum af karfa á þessu
ári.
„Þetta hefur verið mér mjög
lærdómsríkt," sagði Ingimund-
ur. „Eftir að hafa náð í kaup-
anda þurfti ég að finna aðila
sem gæti framleitt karfann og
uppfyllt kröfur Japana um
gæði og vinnsluaðferð. Það hef-
ur nú tekist með samningi við
SH, sem er einstæður að því
leyti að Sölumiðstöðin hefur
aldrei áður gert slíkan samn-
ing við íslenskan söluaðila.
Hekla hf. mun halda áfram að
þreifa fyrir sér á þessu sviði og
ætlun okkar er síður en svo að
takmarka umsvifin við frystan
fisk. Hvarvetna eru menn að
álykta um nauðsyn nýs mark-
aðsátaks í þágu íslenskra út-
flutningsgreina. Við viljum
ekki láta okkar eftir liggja í
þeim efnum," sagði Ingimund-
ur Sigfússon að lokum.