Morgunblaðið - 27.10.1984, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1984
7
Menguð matarolía á markaði
MATAROLÍU, sem var gölluð
vegna mengunar af lífrænu
upplausnarefni var hinn 12.
september síöastliöinn dreift í
verzlanir í takmörkuöu magni.
í samvinnu við dreifingaraðil-
ann hefur Hollustuvernd ríkis-
ins ákveðið að innkalla olíuna
og eru þeir, sem hafa þessa
olíu undir höndum, beðnir um
að hafa samband við viðkom-
andi heilbrigðisyfirvöld.
í fréttatilkynningu frá Holl-
ustuvernd ríkisins, sem Morgun-
blaðinu barst í gær, kemur fram
að þetta lífræna upplausnarefni,
sem í olíunni er sé etýlasetat.
Hefur það sérkennilega lykt,
sem líkist asetónlykt. Matarolf-
an var soyabaunaolía, flutt til
landsins í tunnum af Efnagerð-
inni Flóru og sett i neytenda-
umbúðir, 780 millilítra og 465
millilitra piastflöskur.
Síðan segir í fréttatilkynningu
Hollustuverndarinnar: „í sam-
vinnu við dreifingaraðilann hef-
ir verið ákveðið að kalla inn
þann hluta sendingarinnar, sem
kann að vera mengaður áður-
nefndu upplausnarefni. Þess
vegna eru þeir, sem hafa undir
höndum soyabaunaoliu í fyrr-
greindum umbúðum, beðnir að
hafa samband við viðkomandi
heilbrigðiseftirlit."
Samkvæmt upplýsingum Arn-
ar Bjarnasonar, forstjóra Holl-
ustuverndar ríkisins, mun mat-
arolían ekki vera lífshættuleg,
en fólk getur fengið magakveisu
af að neyta hennar.
Mengaða matarolían
f
/
Skógafoss, hið nýja skip Eimskips, við bryggju í Sundahöfn, skömmu eftir
komu þess til landsins. Ljósm. MblVJúllua.
Skógafoss bætist
í flota Eimskips
EIMSKIP hefur tekið tvö 300 gáma
skip á leigu og munu þau bera nöfn-
in Skógafoss og Reykjafoss.
Skógafoss og Reykjafoss leysa
af hólmi tvö eldri skip félagsins,
Mánafoss og Dettifoss. Skipin eru
systurskip, sérstaklega byggð til
gámaflutninga, og munu þau
verða notuð til Skandinavíusigl-
inga. Skógafoss er þegar kominn
til landsins, en Reykjafoss verður
afhentur í lok nóvember. Fyrst í
stað verður þýsk áhöfn á skipun-
um, en íslenskur stýrimaður verð-
ur um borð til eftirlits þar til ís-
lensk áhöfn tekur við.
Mánafoss og Dettifoss, sem nýju
skipin leysa af hólmi í Skandin-
avíusiglingum, verða seld á næst-
unni, en þangað til verða þau not-
uð til annarra verkefna hjá Eim-
skip.
Lánskjaravísitala
938 stig:
Mælir 12,3%
verðbólguhraða
SEÐLABANKI Islands hefur reikn-
að út lánskjaravísitölu fyrir nóv-
embermánuð 1984 og reyndist hún
vera 938 stig eða 9 stigum hærri en
lánskjaravísitala októbermánaðar.
Hækkun milli mánuða er því 0,97%.
Samkvæmt þessari hækkun mæl-
ist verðbólguhraði á 12 mánuða
tímabili 12,3%.
Kjaradeilunefnd:
Ákvörðun
um útborg-
un tekin
um helgina
Kjaradeilunefnd hefur að
undanförnu fjallað um
hvort úrskurða eigi fólk til
starfa til að reikna út og
greiða því fólki laun um
næstu mánaðamót sem
nefndin hefur úrskurðað til
vinnu í verkfallinu. Nefnd-
in hefur þegar úrskurðað
nokkra starfsmenn til
vinnu til að forvinna launa-
útreikninga þannig að hægt
væri að framkvæma verkið
ef ákveðið yrði. Búist er við
að ákvörðun verði tekin um
helgina.
Sömuleiðis er útborgun bóta
almannatrygginga eftir mánaða-
mótin til umfjöllunar I nefnd-
inni. Helgi V. Jónsson formaður
Kjaradeilunefndar sagði í sam-
tali við Mbl. að forsvarsmenn
BSRB hefðu sett sig upp á móti
því að þeirra félagsmenn fái
laun um mánaðamótin en hefðu
ekkert á móti því að öðrum yrði
greidd laun. Samkvæmt heimild-
um Mbl. byggist þessi afstaða
BSRB á því að samkvæmt lögum
eiga þeir sem Kjaradeilunefnd
úrskurðar til vinnu í verkfalli að
fá laun samkvæmt nýjum kjara-
samningi en það fá þeir ekki um
mánaðamótin að óbreyttu. For-
svarsmenn BSRB sögðu í gær að
mál þetta væri til umfjöllunar í
viðkomandi félögum og yrði end-
anleg afstaða BSRB ekki ákveðin
fyrr en eftir þá umfjöllun.
Þessir bílar eru
tilvalin lausn a
gaþörí flestra fyrirtækja og
einstak-
in
linga.
MAZDA E 2000 og 2200
eru ný gerð frambyggðra bíla^frá^MAZDA.^ser
lega ^mgóðir og Þ*gilegú með^
urðarþoU. ^^f^'^flar með gluggum og
.okaðir ®end*a^a fóiksflutningabílar með
ætum fynr 6*^ paUbflar með saetum
VrÍrTog^plllbílar með tvöföldu húsi með seatum
S emTaW 2000 CC be"StaVél éða
2200 cc dieselvél.
Hafið samband við sölumenn
fúslega aUar nánan upplysmg •
SýningarbíU á staðnum.
Opið laugardag