Morgunblaðið - 27.10.1984, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1984
*-/
9,AmaXcÁu*', viLtu gjörtx Svo vel a.& -FsercL f>(9
fYci siraumrofonum-1'
*
Ast er...
Wv>
... að fara saman í
húsnæðisleit.
TM R*g U.S. Pal. Off.-AII rlgMa r«s*rv*d
C 1977 Lo« AngslM Tlmss Lj
Ciet ég hjálpað þér með
cilthvað?
HÖGNI HREKKVÍSI
„ MÉtZ SKlLST AO EISIIHVERJie TVE/K
HAri l'AtiO Q/AMAMSJSi (SEVSA i SIÓtT
Bréfrítari telur Laugarneshverfið bjóða íbúum sínum upp á mikil þægindi s.h.
Laugardalinn og sundlaugina.
Best að
búa að
sínu
Hrönn hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja:
Það er dálítið sem mig langar
til að beina til íbúa Laugar-
neshverfis hér í Reykjavík. Ég
hef verið að hugleiða það undan-
farnar verkfallsvikur hve við
Laugarnesbúar erum mikilla
þæginda aðnjótandi. Við höfum í
næsta nágrenni Laugarnes-
tanga, einstaka náttúruperlu
með útsýni yfir sundin blá,
Laugardalinn, sundlaugina, tvo
ágæta skóla, Laugarnesskóla og
Laugalækjarskóla og Kjötmið-
stöðina þar sem boðið er upp á
fyrsta flokks gæðavöru á hag-
stæðu verði og ennfremur frá-
bæra þjónustu.
Af illri nauðsyn hef ég nokkr-
um sinnum, sakir þrengsla i
Kjötmiðstöðinni (þangað kemur
fólk alls staðar að úr bænum),
neyðst til að versla annars stað-
ar og í öll skiptin staðið upp með
verri vöru fyrir hærra verð. Við
höfum einnig hreinlega og góða
fiskbúð að ógleymdum kaup-
manninum á horninu. Verðlist-
ann þar sem boðið er upp á góða
þjónustu og er sú verslun hér í
bæ sem alltaf býður upp á fatnað
fyrir konur sem nota stærra en
42. Fyrir mitt leyti myndi mér
duga gos-, ís- og sælgætisverslun
Ragnars en þar fyrir hef ég ekk-
ert á móti tveimur ísbúðum að
auki, ef þær geta borið sig.
Það sem mér er efst í huga
með þessum skrifum er að vekja
fólk til umhugsunar um það
hvernig við getum hlúð að þess-
ari góðu þjónustu. Fyrstu bú-
skaparár mín i Laugarnesinu |
talaði maðurinn minn oft um að
maður ætti að vera hverfisbund-
inn en ég skildi ekki það hugtak,
hafði heldur aldrei búið lengi í
neinu hverfi. Nú eftir margra
Vísukorn um
valdastjórn
Kniitur Þorsteinsson skrifar:
Velvakandi góður.
Ég sendi þér hér vísukorn sem
varð til í huga mínum er ég sá og
heyrði í blöðum og útvarpi, hrafl
úr stjórnarsáttmála þeim sem
formenn núverandi stjórnarflokka
gerðu með sér á langæjum fund-
arsetum nú síðsumars. Þingflokk-
ur þeirra ku hafa samþykkt þenn-
an sáttmála sem starfsgrundvöll
fyrir núverandi ríkisstjórn til að
vinna á, til lausnar þeirri vá sem
nú steðjar að þjóðinni vegna
þeirra efnahagsörðugleika sem
ríkissjóður og undirstöðu atvinnu-
vegir landsmanna standa nú
frammi fyrir og sem þegar hefur
þrengt mjög afkomu stórs hluta
hinna almennu borgara.
Sannarlega er þessi vísa ekki
neitt bókmenntaverk enda kveðin
af munni fram við útvarp og
blaðalestur. En því sendi ég þér
hana, að ef til vill speglar hún
skoðanir og dóma fjölmargra ann-
arra en mín, sem þó vilja af fyllstu
sanngirni um þessi mál dæma, um
þær aðgerðir sem nú er beitt og
virðist samkvæmt hinum nýja
sáttmála eiga að beita, gegn því
efnahagsöngþveiti sem hér er orð-
ið og hefur raunar lengi verið. En
visan er þá svona:
Um úrræði í þjóðmálum allt virðist flatt,
og almennings þrengist um hagi,
og þó komin sé valdastjórn með kúrekahatt,
hcnnar kýr eru í magrara lagi.
ára búsetu í Laugarneshverfi hef
ég öðlast skilning á hugtakinu að
vera hverfisbundinn, þ.e. að hlúa
að þeirri þjónustu og þægindum
Árný skrifar:
Velvakandi kær.
Ég er ein af þeim fjölmörgu sem
hafa gaman af því að fara í búðir,
og læt ég mig oft dreyma um að ég
ætti sæg af peningum og gæti
keypt allt það fallega sem fyrir
augu ber. Hins vegar þykir mér
það miður hve afgreiðslufólk
verslana (sérstaklega tískuversl-
ana) er oft stutt í spuna og óliðlegt
við að aðstoða mann, svo ég tali nú
ekki um það ef maður er „bara að
skoða“. Hver kannast ekki við að
hafa komið inn í verslun þar sem
afgreiðslukrafturinn er upptekinn
í símanum og munar ekkert um að
láta viðskiptavinina bíða uns sím-
talinu er lokið. Ég virðist a.m.k. si
og æ verða fyrir slíku og fór svo
um daginn að mér blöskraði alger-
lega viðmót tveggja ungra stúlkna
við viðskiptavin einn.
Þannig var að ég var stödd
ásamt ungri stúlku við brauðút-
söluvagn einn niðri í miðbæ og
biðum við báðar eftir afgreiðslu.
Afgreiðsludömurnar, ungar að ár-
um, voru uppfullar af áhuga yfir
einhverju undralyfi sem bera
skyldi á varir og voru þær mjög
einbeittar á svip, makandi smyrsl-
inu góða hvor á aðra. Mér var
hreinlega ekki farið að standa á
Löghlýðinn borgari skrifar:
Það vakti mikla undrun mína er
ég heyrði að Eiður Guðnason og
nokkrir aðrir stjórnarandstæð-
ingar hefðu lagt það til að kosin
yrði rannsóknarnefnd á vegum
þingsins, til að kanna afskipti ráð-
herra af frjálsu útvarpsstöðvun-
um, á meðan að málið er fyrir
dómstólum. Slíkt ber vott um
furðulegan hugsanagang.
sem hverfið býður upp á. Vil ég
því vekja athygli Laugarnesbúa
á mikilvægi þess að svo verði
gert í okkar hverfi.
sama, standandi hríðskjálfandi
úti í slyddunni á meðan stúlkurn-
ar athöfnuðu sig og stúlkan sem
beið ásamt mér var svo sannar-
lega á sama máli. Enda fór svo að
lokum að hana brast þolinmæði og
hún spurði stúlkurnar, dálítið
hæðnislega, hvort að þær væru af-
greiða eður ei.
Brugðust þær þá hinar verstu
við og önnur hreytti út úr sér að
þær væru ekki við afgreiðslustörf
heldur væru þær áhorfendur, eins
hjákátlegt og það kann að hljóma.
Vesalings viðskiptavinurinn fékk
síðan ófyrirleitið augnaráð frá
þeim báðum. Ég var mest undr-
andi á því að hún skyldi ekki
storma á brott heldur neyða þær
til að afgreiða sig, sem vakti nátt-
úrlega furðu og gremju hinna
steigurlátu afgreiðslustúlkna.
Þótti mér þetta áþreifanlegt
dæmi um ókurteisi afgreiðslufólks
í garð viðskiptavina sem vart væri
hægt annað en átelja harðlega.
Væri nú ekki ráð að þeir af-
greiðslukraftar verslana sem
þetta bréf lesa og vita upp á sig
sökina, tækju sig nú saman í and-
litinu og breyttu viðmóti sínu til
hins betra? Þeir eru ótaldir sem
yrðu því fegnir.
Þá langar mig til að spyrja Eið
að einu, fyrst að hann fer fram á
það við þingið að það skipi nefnd
til að rannsaka afskipti ráðherra
af útvarpsmálinu, og það er,
hversvegna hann lætur þá ekki
einnig rannsaka afskiptaleysi
ráðherranna af kapalstöðvunum í
ólafsvík og í Borgarnesi, sem eru
jafn skýrt brot á útvarpslögunum?
Misjafnar mót-
tökur í verslunum
Afskipti eða afskiptaleysi